Þjóðviljinn - 14.08.1976, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. ágúst 1976
Skrýmslið endurlifgað
Þegar þjófar höfðu brotist inn i búð þessa kaupmanns
i Puerto Rico fann hnn upp það snjallræði að geyma
þar sextán mánaða gamalt Ijón til að hræða burtu
aðra sem kynnu að hafa einhvern áhuga vörum hans
og peningum.Kannske væri þetta ekki svo af leit leið til
að stöðva framferði Náttfara fyrst hundahald er nú
einu sinní bannað í Reykjavík... Það er nefnilega
aðeins búið aðgóma hluta af „Náttfara"ef marka má
blaðaskrif síðustu dagana.
„Vinstri villa”
Á skiltinu stendur: haldið ykkur hægra megin - og
sýnir myndin hvað getur gerst ef athygli bílstjóra
síjóvgast svo að þeir gefa slikum skiltum ekki
nægilegan gaum.
Flestir hafa heyrt minnst á eitt frægasta skrímsli
kvikmyndasögunnar, risaapann King Kong sem tröll-
reið New York um árið. Nú hefur bandariski leikstjór-
inn Dino De Laurentiis ákveðið að endurlífga þetta
skrýmsli en nú skal það vera kvenkyns og bera nafnið
„Queen Kong". Hér sést hún fá sér spássitúr um götur
Lundúnaborgar, það er Sánkti Páls dómkirkjan sem
sést milli fóta frúarinnar.
Góður nœturvörður
ALÞJÓÐLEGA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN í ÞRÁNDHEIMI
V eitir
mynd
nýjasta
ÞRÁNDHEIMI 9/8 — Norska al-
þjóðlega sjávarútvegssýningin
1976 var opnuð hér i Þrándheimi
kl. 12 á hádegi i dag. Hátiðahald
dagsins byrjaði hér á torginu
fyrir framan Niðarhöllina kl.
11.20 með hornablæstri og ræðu-
höldum. Fyrst talaði fiskimála-
stjórinn KnutVartdal, siðan Odd-
var Nordli, forsætisráöherra,
sem að endaðri ræðu sinni bað
Ólaf konung aö opna sýninguna.
Ólafur konungur steig þá I ræðu-
stólinn og opnaði sýninguna með
stuttri ræðu, þar sem hann óskaði
norsku þjóðinni og samankomn-
um gestum sýningarinnar til
hamingju og velfarnaðar. Þetta
fór allt virðulega og látlaust
fram. Stuttu siðar mætti ég ólafi
konungi inni iNiðarhöllinniog var
þar enginn lifvörður sjáanlegur i
fylgd með honum.
Nafn þessarar alþjóðlegu sýn-
ingar er Nor-Fishing 1976 og
stendur sýningin yfir frá 9.-15.
ágúst. Að sýningunni standa sam-
eiginlega norska fiskimálastjórn-
in, „Fiskeridirektoratet” ásamt
vörusýningu Noregs, „Norges
Varemesse”. Þetta er 6. alþjóð-
lega sjávarútvegssýningin sem
haldin er í Noregi eftir siðari
heimsstyrjöldina; hinar voru
haldnar i Björgvin árið 1960 og i
Þrándheimi 1965, 1969, 1972 og
1974. A sýningunni nú sýna 210
fyrirtæki frá Noregi, Sviþjóð,
Danmörku, Finnlandi, Islandi,
Englandi, Vestur-Þýskalandi,
Austurriki, Póllandi, Japan og
Bandarikjunum eða samanlagt 11
riki, sem hafa hér opna sýningar-
bása. Hinsvegar eru yfir 500
framleiðendur frá 19 löndum sem
taka þátt i sýningunni og eru þeir
auk framantalinna frá Skotlandi,
Austur-Þýskalandi, Belgiu, Sviss,
Júgóslaviu, Frakklandi, Kanada,
Nýja-Sjálandi og Hollandi. Þetta
er reiknað sem 19 lönd, en eru
reyndar 20 sé Skotland ekki talið
með Bretlandi eins og ég býst viö
að þeir kysu sjálfir heist. Gestir
á sjávarútvegssýningunni hér i
Þrándheimi árið 1974 voru 43.000
frá 48 löndum og þar af margir
frá þróunarlöndunum i suðri.
Sjávarútvegssýningin nú nær yfir
mikið stærra svæöi en 1974. Nú er
talið að sýningarsvæðið allt sé
6.264 fermetrar, sem skiptist
þannig, að sýnt er nú á 1565 fer-
metra útisvæði og 4.836 fermetr-
um innanhúss og hafa veriö reist-
ir 2 skálar auk Niðarhallarinnar
fyrir sýninguna.
Mörg þúsund manns hafa sótt
sýninguna i dag, á fyrsta degi
hennar, og hefur viða verið nokk-
ur þröng i sýningarbásunum.
Maður hefur tæpast fengiö nægi-
lega yfirsýn yfir það sem hér er
að sjá eftir fyrsta daginn, en þó
má fullyrða að sýningin sé góð
mynd af þvi nýjasta sem er á boð-
stólum i heiminum á sviöi fisk-
veiða og fiskvinnslu. Við fyrstu
yfirsýn virðist mér sem stærstu
framfarirnar á siðustu árum séu
á sviði margskonar rafeinda-
tækni i þjónustu siglinga og fisk-
veiða. Þónokkrir islendingar
komu á sýninguna á fyrsta degi
hennar og koma vonandi f leiri áð-
ur en hún er úti. Fátt er okkur
islendingum nauðsynlegra en að
fylgjast vel með öllu sem er að
gerast á sviði siglinga, fiskveiða
og vinnslu aflans á hverjum tíma.
En á þessum sviöum standa norð-
af því
Frá Þrándheimi.
á boðstólnum
fiskimal
^eftir Jóhann J. E. Kúld^
menn nú mjög framarlega, og á
sumum sviðum liklega fremstir,
og er það merkilegt um svo litla
þjóð sem norðmenn eru. Og þegar
maður hugleiðir það að okkar
næstu nábúar og frændur færey-
ingar keyptu af okkur gömlu
skakskútumar eftir fyrri heims-
styrjöldina þegar við vorum að
leggja þeim, þá er maður undr-
andi á þvi hvaö framarlega þeir
standa á sviði fiskveiöa. Þvi
sannleikurinner sáaðþeir búanú
að þeirri fullkomnustu veiðitækni
sem völ er á i dag. Þetta er i það
minnsta hægt að fullyrða um
þeirra nýjustu veiðiskip, sem að
langstærsta hluta eru smiðuð hér
i Noregi og búin tækjum héðan.
Þetts segir okkur aðeins að við
verðum að fylgjast með öllu sem
hér er á gerast að sviðum
siglinga, fisveiða og vinnslu afl-
ans.
Oll nánari frásögn af
sjávarútvegssýningunni I Þránd-
heimi verður að biða betri tima,
þvi það er of snemmt að skrifa af
henni fullnaðarlýsingu.
Sýningarsvæðiö hefur allt verið
baðað 1 sól nú i dag hér á bakka
Niðarárinnar. Að likindum stend-
ur Niðarhöllin ekki langt frá þeim
stað þar sem islendingar lögðu
skipum sinum við bryggjur forð-
um þegar Ólafur konungur
Tryggvason setti á þá farbann
vegna þess aö þeir voru tregir til
að skipta á hvita Kristi og sinum
fornu goðum, eftir því sem
Laxdælasaga greinir frá.
Blómabúðin MÍRA
Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430
Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590
Blóm og gjafavörur i úrvali
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 - Sími 81960