Þjóðviljinn - 14.08.1976, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. ágúst 1976
Besta mj ólkurkýrin
mjólkaði 8.149 kg.
Iþróttir
Kramhald af ll.siðu.
2. deild Arskógsströnd—
Reynir: Haukar kl. 17.00
2. deild Vestmannaeyjar—
ÍBV :Selfoss kl. 14.00
2. deild Akureyri—
KA:1B1 kl.14.00
3. deild E Siglufjörður—
KS.UMSS kl. 16.00
3. deild E ólafsfjörður—
Leiftur:Magni kl.14.00
3. deild E Laugaland—
Arroðinn:USAH kl. 16.00
3. deild D Stykkishólmur—
Snæfell :HSS kl. 16.00
3. deild D Grundarfj.—
Grundarfj.:Skallagr. kl. 16.00
3. deild D Ólafsvik—
Vikingur:USVH kl. 16.00
Úrslit 4. fl. — Akranes
Urslit 3. fl. — Reykjavik
Sunnudagur 15. ágúst
1. deild Laugardalsvöllur—
Þróttur:Fram kl. 19.00
Úrslit 4. fl. — Akranes
Úrslit 3. fl. — Reykjavik.
Mánudagur 16. ágúst
1. deild Kaplakriki —
FH :Valur kl. 19.00
Úrslit 3. fl. — Reykjavik
Þriðjudagur 17. ágúst
1. deild Laugardalur —
KR :1A kl. 19.00
Miðvikudagur 18. ágúst
1. deild Laugardalsvöllur —
Þróttur :UBK kl. 19.00
Fimmtudagur 19. ágúst
1. deild Laugardalsvöllur —
Fram:Valur kl. 19.00
1. deild Kaplakriki —
FH: Vikingur kl. 19.00
Úrslit 3. deild — Akureyri
Föstudagur 20. ágúst
Úrslit 3. deild — Akureyri
Atvinnuleysi
Framhald af bls. 1
ástandið á Norðurlandi, m.a.
vegna Kröfluvirkjunar. Vinna
hefur verið nægjanleg en ekkert
umfram það. Og horfurnar eru
vægast sagt slæmar, sagði Jón
Snorri.
— 1 fyrsta lagi hefur orðið
samdráttur i byggingum frá þvi i
fyrra. Lóðaúthlutanir hafa verið
talsverðar en vegna fjármagns-
skorts og versnandi lánakjara
hafa menn veigrað sér við að
hefja framkvæmdir. Nú vinna um
3-400 byggingamenn hjá Energo-
projekt i Sigöldu og um 200 hjá
landsvirkjun. 1 Kröflu eru um 200
byggingamenn. Hefðbundnum
byggingarstörfum við þessar
tvær virkjanir verður að mestu
lokið um áramót og þá munu
aðeins sárafáir iðnaðarmenn og
byggingarverkamenn starfa á
þessum tveimur stöðum, en nokk-
uð fleiri rafiðnaðarmenn, þar
sem þeirra verkaþáttur tekur nú
við. 1 Sigöldu vinna um 240 rang-
æingar og ekki eiga þeir á visan
að róa. Ekkert tekur við i stór-
framkvæmdum. Ekki er gert ráð
fyrir að nema 60-64 vinni á
Grundartanga i vetur og fram-
kvæmdum þar verður dreift á
lengra timabil en ætlaö var áður.
Þeir byggingarmenn skipta þvi
hundruðum sem koma inn á full-
mettaðan atvinnumarkað á
haustmánuðum.
Þetta sést best á þvi að
samdráttur i sölu sements frá
Sementsverksmiðju rikisins hef-
ur á fyrstu 6 mánuðum þessa árs
verið um 13-14% miðað við sömu
mánuði i fyrra, úr 160 i 140 þúsund
tonn, þrátt fyrir gifurlegar
steypuframkvædmir i Sigöldu og
við Kröflu.
— Það rignir yfir okkur hjá
Sambandi byggingamanna fyrir-
spurnum um hvort til standi að
skipuleggja Sviþjóðarferðir eins
og á árunum ’68 og ’69. Við höfum
svarað þvi til að eins og er sé það
ekki ætlunin. Samt eru nokkrir
þegar farnir i atvinnuleit. Og
næga atvinnu er að fá fyrir
iönaðarmenn i Sviþjóð og Noregi.
1 sendiráðum þess. landa liggja
frammi auglýsingalistar frá fyr-
irtækjum, sem vilja fá tugi til
hundruð manna i vinnu.
— Við horfum þvi fram á
stórfellt atvinnuleysi i vetur. Það
mun sýnilega byrja fyrr og
standa lengur en i fyrra. Þá var 7-
8% atvinnuleysi hjá trésmiðum
yfir vetrarmánuðina, það fór aö
bera á þvi i nóvember og það stóð
fram i mai. Þegar atvinnuleysið
var mest eftir áramót voru 70 tré-
smiðir atvinnulausir. Hjá málur-
um komstatvinnuleysið upp i 25%
og hjá múrurum var ástandið
litlu betra. Og það er ekki nóg
með að atvinnuleysi sé viðloðandi
og enn verra ástand fyrir dyrum.
Timamælingaskýrslur um á-
kvæðisvinnu, sem við höldum,
sýna að geysilegur samdráttur
hefurorð.ið i vinnu og tekjumögu-
leikar stórminnkað
—ekh.
40,1%
Framhald af bls. 1.
samningaundirskrift og að sögn
Sigurjóns i gærdag er Tiklegt að
þeir sitji einnig hjá við afgreiðslu
þessa máls á borgarráðsfundi á
þriðjudaginn kemur.
— Okkar afstaða 'er i aðal-
atriðum sú, að hér sé um að ræða
samninga sem ganga þvert á
samninga annarra verkalýðs-
félaga. Hér er verið að hækka
laun tiltölulegs hálaunafólks um
að minnsta kosti 10% meira en
hækkun þá sem ASl, BSRB og
BHM fengu i siöustu samningum.
Eftir þetta eru verkfræðingar hjá
Reykjavikurborg með 24% hærri
laun fyrir nákvæmlega sömu
vinnu, en til dæmis verkfræðingar
hjá rikinu.
Ég tel einnig rétt að það komi
fram, að verkfræðingar neituðu
tilboði um a hækka lægstu laun
meira en hæstu laun, það er að
segja, þeir neituðu jafnlauna-
stefnu og það sem þeim var
alltaf rikast i huga var að hæstu
launin hækkuðu sem mest.
Það mun koma fram i bókun
sem við Kristján ætlum að gera á
þriðjudaginn, að við teljum að
peningum skattborgara sé betur
varið til að hjálpa verkamönnum
sem hafa tæpar 70 þúsund krónur
til að lifa af á mánuði, heldur en
mönnum sem hafa fast að 200
þúsund krónum.
— Það er ekki rétt, sagði
Sigurjón, — að hæstu laun verði
170 þúsund krónur. Þau verða 199
þúsund og byrjunarlaunin verða
fast að 120 þúsundum.
Túnin
Framhald af bls. 2
það hversu áburðurinn er orðinn
dýr.
Rangt væri hinsvegar að
segja að allir bændur væru jafn-
illa á vegi staddir með heyskap-
inn. Þeir,,sem búnir eru að
koma sér upp aðstöðu til þess að
verka verulegan hluta heyjanna
sem vothey og eru auk þess með
góða súgþurrkun eru vel settir
þrátt fyrir óþurrkana. Þeir hafa
orðið i fullu tré við veðurguðina.
Hvað mig snertir t.d., þá væri
ég mjög litið búinn að heyja nú
ef ég gæti ekki verkað
verulegan hluta af minni töðu
sem vothey.
Til eru þeir bændur, sem
þegar hafa lokið heyskap. Þeir
heyra að visu til undantekninga
en það sýnir þó að bændur þurfa
ekki að vera mikið háðir veður-
farinu með heyskapinn ef þeir
skapa sér aðstöðu til þess að
sleppa ósárir frá óþurrkunum
og það er hægt og afkoman bein-
linis undir þvi komin, að bændur
geri það. —mhg.
Hvað á að
gera við
háhýsin
A mánudagskvöldið kl.
20.30 verðr fluttur lit-
skyggnufyrirlestur á þýsku i
Norræna húsinu um
„Aðlögunarbyggingu:
Menningarsöguleg tengsl
nýrrar greinar i arkitektúr.
Fyrirlesarar eru Dieter
Blumel og Bernd Baier,
samstarfsmenn á
Ra nnsókna rs tof u Létt-
bygginga við háskólann i
Stuttgart, Léttbyggingar-
deild háskólans 1 Essen og
Tilraunastofu burðarforma i
Reykjavik. í fréttatil-
kynningu er þess getiö að
þeir muni ræða spurn-
inguna: Hvað skal gera við
háhýsishrúgöldin.
Höfðaborg:
Andrúms
loftið er
spennt en
rólegt
Höfðaborg 13/8 reuter — AUt var
með kyrrum kjörum I blökku-
mannahverfi Höfðaborgar i dag
en þar hafa amk. 29 blökkumenn
látið Iffið f óeirðum sem hófust á
miðvikudaginn.
Lögregla sagði að andrúmsloft-
ið I borginni væri „spennt en
rólegt”. Yfirvöld sögðu i dag að 7
af beim sem féllu i Höfðaborg
hefðu ekki fallið fyrir kúlum lög-
reglu. Einnig kom fram að 82
hafa -arið handteknir i óeirðun-
um 1 Höfðaborg.
Viða var þó róstusamt 1 landinu
i dag. Kveikt var I þremur skólum
i Pietersburg sem er 300 km fyrir
norðan Jóhannesarborg. Nltján
ungmenni voru handtekin og
fjöldi særðist í viðureign við
óeirðasveitir lögreglu. 1 Weenen
skammt frá Durban reyndi hópur
blökkuunglinga aö kveikja I ölkrá
og skóla en lögregla kvaðst hafa
dreift hópnum áður en það tókst.
1 Soweto var allt með kyrrum
kjörum en skólastjórar kvörtuðu
mikið undan slæmum mætingum
nemenda sinna. Viða mætti ekki
nema einn nemandi af hverjum
tiu.
Uta nrikisráðherra Suð-
ur-Afríku, HUgard Muller, hélt 1
dag ræðu þar sem hann sagði að
staða landsins i alþjóðamálum
myndi ekki batna fyrr en kyn-
þáttavandamálið hefði verið leyst
á þann hátt sem almenningsálitiö
I heiminum gæti sætt sig við.
Besta lausnin væri að auka
áhersluna á „aöskilda þróun”
kynþáttanna, þe. apartheid.
i síðasta hefti Freys eru birtar
niðurstöður úr skýrslum naut-
griparæktarfélaganna árið 1975.
Þar kemur fram, að kýr á skýrsl-
unni voru 21.746, en það eru 58%
af kúm landsmanna. Meðalnyt
reyndist vera 3594 kg með 4.13%
fitu. Hæst var nytin hjá kúnum i
Eyjafirði, 3797 kg með 4.33% fitu,
eða 165 kg af mjólkurfitu, þar var
meðalbúið einnig stærst, 28.4
árskýr.
Afurðir eftir reiknaða arsku
mælt I kg mjólkur hafa minnkað
um 145kg frá árinu áður. Þetta er
fjórða árið f röð, sem meðaltals-
afurðir kúnna dragast saman og
er lækkunin frá árinu 1971, þegar
afurðir voru þær hæstu, sem þær
hafa orðið, fast að 300 kg á kú eða
7.7%. Aðalástæðan er fjölgun
skýrslufærðra kúa.
Félagsbúið að Hamri, Ripu-
hreppi I Skagafirði hafði afurða-
hæstu kýrnar árið 1975, þar voru
22.6 kýr, meðalnytin var 4917 kg.
Næst í röðinni var kúabú þeirra
Utanríkisráðherrafundur Norð-
urlanda veröur haldinn i
Kaupmannahöfn dagana 19. og
20. ágúst n.k. Er hér um að ræða
reglulegan haustfund ráð-
herranna, þarsem fjallað verður
um ástand alþjóðamála með
sérstöku tilliti til 31. allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna sem
hefst i næsta mánuði.
Auk Einars Agústsonar,
utanrikisráðherra, fara héðan á
fundinn þeir Henrik Sv. Björns-
son, ráðuneytisstjóri, og Hörður
Helgason, skrifstofustjóri, en
einnig munu sitja fundinn af ts-
lands hálfu Agnar Kl. Jónsson,
Sængurgerð
árkróks
tbúar á Sauðárkróki hafa nú
tekið við sængurgerð Gefjunar,
en hún til þessa verið starfrækt á
Akureyri. Vinna i sængurgerðinni
hefst þann 17. ágúst og munu
starfa þar um tiu manns. Sá
mannskapur mun bera ábyrgð á
allri framleiðslu Gefjunar á
ullarsængum, dralonsængum,
svefnpokum, rúmteppum og
bræðra Sigurjóns og Bjarna i
Neðri-Tngu, tsafirði. Þar voru
14,7 árskýr. Meðalnyt þeirra var
4910 kg og það þriðja i röðinni var
hjá Steini Snorrasyni,
Syðri-Bægisá, öxnadal. Þar voru
árskýrnar 26.1. Meðalnyt þeirra
var 4830 kg. Besta kýrin árið 1975
var Hrefna 61 á Kroppi,
Hrafnagilshreppi. Mjólkaöi hún
8149 kg með 4.71% fitu. Mjólkur-
fita var 384 kg. Næstmesta
mjólkurfitu hafði Bláma i
Hróarsholti, Villingaholtshreppi.
Hún mjólkaði 5668 kg með 6.68%
fitu eða 379 kg af mjólkurfitu.
Afurðir Hrefnu eru næsthæstu,
sem um getur hér á landi, hvort
sem mælt er i kg mjólkur eða
mjólkurfitu. Gránaá Reykjarhóli
i Fljótum mjólkaði 8190 kg árið
1972, en Kæti á LjótsstöSum i "
Vopnafiröi gaf af sér 430 kg af
mjólkurfitu árið 1973.
(<Jr fréttabréfi upplþjón. land-
búnaðarins).
sendiherra, Ingi S. Invarsson,
fastafulltrúi Islands hjá
Sameinuðu þjóðunum og
Þorleifur Thorlacius, sendifull-
trúi.
1 fyrradag var haldinn hér i
Reykjavik til undirbúnings ráð-
herrafundinum fundur forstöðu-
manna þeirra deilda utanrikis-
ráðuneytanna á Norðurlöndum
sem f jalla um málefni Sameinuðu
þjóðanna. Fulltrúar íslands á
þeim fundi voru Hörður
Helgason, skrifstofustjóri, ölafur
Egislson, deildarstjóri, og
Benedikt Asgeirsson, fulltrúi.
til Sauð-
kerrupokum auk þess sem til
stendur að setja þar upp llka sér-
staka deild fyrir framleiðslu á
ryateppum.
1 siðasta heftir Sambandsfrétta
segir Hjörtur Eiriksson fram-
kvæmdastjóri að þessi flutningur
sængurverksmiðjunnar sé liður 1
viðelitni Sambandsins til að
skapa aðstöðu fyrir iðnaö sem
viðast á landinu.
-gsp.
—hm
Almennur
fundur með
Lúðvík
Jósepssyni
Almennur fundur verður
haldinn með Lúövik Jóseps-
syni i Egilsbúð miðviku-
daginn 18. ágúst kl, 20.30. A
fundinum mun Lúðvik
Jósepsson ræða um stjóm-
málaviöhorfið, siðan verða
almennar umræður.
A1 þýöubandalagið i
Neskaupstað hvetur norð-
Lúðvlk Jósepsson.
firðinga tQ að fjölmenna, en
fundurinn er öUu opinn.
Fjölmennt á
ráðherrafund