Þjóðviljinn - 03.10.1976, Side 17

Þjóðviljinn - 03.10.1976, Side 17
Sunnudagur 3. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 17 Laser- geisli spilar mynd- plötu Philips í Hollandi hefur sýnt nýja tegund mynd- sýningartækis, sem tengja má við hvaða sjón- varpstegund sem vera skal. leiö og loki myndplötuspilarans er lyft. Tæki þetta leyfir aö upptakan sé skoðuð hægt, afturábak og svo að numið sé staðar við einstakar myndir. Gert er ráð fyrir þvi, að sjónplöturnar muni ekki kosta mikið meira en venjulegar plötur. Þess skal getið, að fyrirtækið heldur þvi stranglega ieyndu hvernig éfnið er skráð á plötuna. Styrkir til að sækja þýskunámskeið í Sambandslýðveldinu Þýskalandi Þýska sendiráðið i Reykjavik hefur tilkynnt Islenskum stjórnvöldum að boðnir séu fram nokkrir styrkir til handa isíenskum stúdentum til að sækja tveggja mánaða þýsku- námskeið i Sambandslýðveldinu Þýskalandi á vegum Goethe-stofnunarinnar á timabilinu júni-október 1977. Styrkirnir taka til dvalarkostnaðar og kennslugjalda, auk 600 marka ferðastyrks. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 19-32 ára og hafa lokið a.m.k. tveggja ára há- skólanámi. Þeir skulu hafa til að bera góða undirstöðu- kunnáttu i þýskri tungu. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamála- ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. nóvember n.k. — Sérstök umsóknareyðublöð fást I ráðu- neytinu. Menntamálaráðuneytið, 29. september 1976. A plötu tækisins er hálf- tima dagskrá, hvort sem er svarthvit eða i litum og fylgir hljóð að sjálfsögðu með. Platan er gerð úr málmi og þakin gagnsærri hlifðarhimnu úr plasti. Lasergeisli les svo þær myhd- og hljóðrænar upplýs- ingar sem, skráðar hafa verið á plötuna i gegnum hlifðarhimn- una. Með þvi að platan verður ekki fyrir neinskonar núningi spillist upptakan ekki með tim- anum.Til öryggis er komið fyrir sjálfvirkum útbúnaði sem slökkvir á lasergeyslanum um Bíræfnir peninga- falsarar í Frans Nýlega uppgötvaði franska lögreglan nokkuð frumlega pen- ingafölsun. Peningafalsararnir notuðu aðferð, sem blaðamaður franska dagblaðsins „Le Monde” fann upp fyrir nokkrum árum, en birti þó aldrei i blað- inu. Þetta blað kom nefnilega einu sinni með eftirfarandi gátu i gátudálki sinum: hvernig er hægt að búa til tuttugu seðla úr nitján seðlum? Gátan vakti svo mikla athygli lesenda — og svo mikla gremju peningayfirvalda i landinu — að lausnin var aldrei birt. Aðferðin er samt einföld, þótt hún sé klunnaleg, og talsvert hættuleg fyrir þann sem ætlar að augast á henni, þvi að hann á erfitt með að koma peningunum frá sér um leið og grunsemd annarra er vakin. Það þarf aðeins að taka 19 seðla, klippa einn tuttugasta hluta vinstra megin af þeim fyrsta, tvo tuttugustu af öðrum, þrjá tuttugustu af þeim þriðja o.s.frv. Fýrsta og siðasta seðil- inn er hægt að nota eins og þeir eru, þó örlitið vanti á þá. Siðan limir maður einn tuttugasta hluta fyrsta seðilsins framan víð þann seðil, sem af voru klipptir tveir tuttugustu, og þannig heldur maður áfram uns maður er búinn aö lima saman öll brotin. Þá hefur maður tuttugu seðla, þótt einn tuttug- asta hluta vanti á hvern þeirra! En franska lögreglan telur þó litla hættu á þvi að þessi aðferö breiðist út, þvi að yfirleitt er kaupmönnum og öðrum illa vif að taka við iimdum seðlum á þennan hátt og benda þá heldur handhöfum þeirra að fara eftir settum reglum og skipta þeim gegn heilum seðlum i banka. Slika áhættu gætu peningafals- arar ekki tekið. En ef allir frakkar færu eftir aðferðum falsáranna og tækju að drýgja seðla sina á þennan hátt, heföi það sennilega þær afleiðingar — að gengi franska frankans félli um einn tuttugasta! Tilátta stórborga vetursem sumar Félög sem sjá um föst tengsl við umheiminn Sumariö er sá tími ársins, sem íslendingar nota mest til ferðalaga, þá koma einnig flestir erlendir ferðamenn til landsins. Þess vegna er sumar- áætlun okkar víðtækari, við fljúgum til fleiri staða og fjöldi áætlunarferða okkar er meiri en venjulega. En ferðalög landsmanna og samskipti við umheim- inn eru ekki bundin við sumarið eingöngu- þau eiga sér stað allan ársins hring. Þess vegna gerir vetraráætlun okkar ráð fyrir tíðum áætlunarferðum til átta stórborga i Evrópu og Bandaríkjunum. Þjóðin þarf að geta reitt sig á fastar öruggar áætlunarferðir til útlanda jafnt vetur sem sumar, það er henni lífsnauðsyn. Það er okkar hlutverk að sjá um aö svo megi verða áfram - sem hingað til. ^ucféuíc LOFTLEIDIR /SLANDS

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.