Þjóðviljinn - 11.05.1977, Síða 2

Þjóðviljinn - 11.05.1977, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 11. mai 1977 Skrifiö — eöa hringið í síma 81333 Umsjón: Guðjón Friðriksson GEGN OKRURUM Mér flaug i hug a6 senda ykk- ur nokkrar linur, þegar ég sá frétt i sjónvarpinu um mismun- andi verö á vörum i verslunum i Reykjavik. Samkvæmt könnun verðlags- eftirlitsins reyndist munurinn á lægsta og hæsta vöruv. sömu vörutegundar (reiknað eftir kg. á 21 vörutegund) allt að þrefald- ur, og i flestum tilfellum meiri en tvöfaldur: i fréttinni var þvi beint til neytenda að athuga bet- ur sinn gang, hvað varðar mis- munandi verð sömu vöru. Slik áminning er vist meira en þörf, þvi það er næsta grátlegt hversu verðskyn almennings hér á landi er litið, þö ef til vill sé það að^nokkru skiljanlegt, þar sem nær heil kynslóö hefur vaxið upp við óðaverðbólgu, sem slævt hefur tilfinningu manna fyrir vöruveröi svo, að óviöa held ég menn geri sin daglegu matar- innkaup jafn „yfirvegunarlaus- ir” á verðið eins og hér á landi. 1 vetur var nokkuö rætt um „óeðlilegt” verö á innfluttri vöru miðað við verð á sömu vöru i Englandi. Eitthvað virt- ust kaupmenn hafa óhreint i pokahorninu, þótt þeir ryddust reyndar i sjónvarpið til þess að hvitþvo.sig. Ekki fannst mér málflutningur þeirra beysinn, og afhjúpaði þá reyndar, sem hreina okrara. Það eitt, að mannafiflin skuli hafa vogað sér að bera svo gagnsæja lygi á borð fyrir islenska neytendur, sýnir að þessir menn telja sig Rís hér röö af nýbyggingum? Skv. skipulagi sem samþykkt hefur verið f skipulagsnefnd Reykjavikurborgar eiga að rlsa allmargar nýbyggingar á l.andakotstúni. Eins og von er list vesturbæingum ckki alls kostar á þessa nýbreytni og hafa nú margir snúist til varnar. Þeir benda á að þetta tún sé siðast opinna, grænna svæða I gamla Vest- urbænum og þvi full þörf á að hlffa þvi. Hitt er annaö mál að túnið hefur verið i vanhirðu I mörg ár og full þiirf á að gcra þar bragarbót á. Máliö er nú í höndum borgarráös. Vöruverð i verslunum cr ótrúlega misjafnt. hafa kaupandann alveg i vasan- um, hvað varðar vöruverðið. Svo gleiðgosalegir voru kaup- menn, að höfundur Reykjavik- urbréfs Morgunblaösins viður- kenndi óbeinum orðum, að maökur væri i mysunni Við slikt væri þó ekkert athugavert, þar sem sá væri bestur bisness- maöurinn sem mest græddi, en óþarfi væri, að nýrikir kaup- mannog höndlarar létu hafa við sig viðtöl i vikublöðum með lit- myndaskreyttum siðum af einkavillum sinum og hömpuðu þannig gróðanum framan i al- menning. Vart hefði höfundi Reykjavikurbréfs þótt ástæöa til að vara hina nýriku gróssera við að hampa auöi sinum, hefði hann ekki vitað, að hann var „illa” fenginn. Þaö er staðreynd aö kaupmannastéttin stundar okur og ekkert annað en okur, og á sumum sviðum hafa þeir bund- ist samtökum, þannig að hin frjálsa samkeppni, sem leiöa á til hagkvæmasta vöruverðsins, er ekkert annað en blekkinga- vefur. Umræöan sem spannst Ut af okrinu, sem afhjUpað var i Kastljósi Sjónvarpsins og siðan i fleiri- fjölmiðlum hjaðnaði ótrUlega fljótt niöur og ekkert gerðist til batnaðar. Og þó, nU „berast þær fréttir”, að verð á sumum vörum sé ótrUlega mis- munandi i hinum ýmsu verslun- um! Er þetta árangur af bomb- unni i vetur? Varla nema að litlu leyti. En nU vita menn þó, að þeir hafa töluvert tækifæri til þess að velja og hafna eftir verði. En enn láta allt of margir féfletta sig og stórum hluta kaupmanna „liðst” að okra á kUnnanum. Hér þarf almenn- ingur að vera betur á verði. Mér dettur i hug, aö hægt væri að hef ja herferð til þess að auka veröskyn og kröfur hins al- menna neytanda, svo flestir kaupmenn leiki ekki sinn gráa leik svo leikandi létt. Ég sting upp á aðferð, sem bæði gæti klekkt á ósvifnum kaupmönnum (eða kaupfélögum), en um leið vakið mikla athygli, svo menn vakni betur til meðvitundar um málið. Vestur-þýska vikuritið Stern hefur um margra ára skeið birt reglulega þátt, sem nefndist „Okur vikunnar”. Neytendur sem keypt hafa ein- hvern hlut eða vöru, en komist svo að þvi, að sama hlut mátti fá miklu ódýrari annars staðar, senda blaðinu sögu sina. Blaðið fer siðan á stUfanna og sann- reynir okrið og birtir siðan mynd af okurholunni með nafni hennar og eiganda. Hlutaðeig- andi er gefinn kostur á að gera grein fyrir verömismuninum og verður oft fátt um svör. 1 Vest- ur-Þýskalandi hefur almenn- Framhald á bls. 14 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ — ALÞÝÐUBANDALAGIÐ — ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Islensk atvinnustefna Staðan í kjaramáhmuni Umræðufundur í Alþýðuhúsinu á Akureyri fimmtu- dagskvöldið 12. maí kl. 20.30. Lúðvik Jósepsson Stefán Jónsson Alþýðubandalagiðefnir til umræðufundar um íslenska atvinnustefnu og stöðuna í kjaramálunum í Alþýðuhúsinu á Akureyri f immtudagskvöldið 12. maí kl. 20.30. Fundurinn verður i fyrirspurnaformi/ áhersla lögð á spurningar, svör, frjálsar umræður og stuttar ræður. Fundurinn er öllum opinn. Umræðum stjórnar Stefán Jónsson og fyrir svörum sitja: Ragnar Arnalds, Lúðvik Jósepsson, Eðvarð Sigurðsson. Umræðum verður einkum beint að íslenskum atvinnumálum og þeim kjaraátök- um sem yfir standa. • Hvaða áform eru uppi um frekari erlenda stóriðju? • Hvaða möguleikar eru á orkufrekum iðnaði í höndum landsmanna sjálfra? • Hvað þarf til að inn- lendur iðnaður taki stór skref framávið? • Hverjir eiga að hafa forystu í uppbyggingu at- vinnulífsins: Einstakl- ÍSLENSK JW^ATVINNU g^SSTEFNA ingar, riki, samvinnu- félög, sveitarfélög? • Er útlit fyrir minnk- andi eða vaxandi sjávar- afla? • Er fiskiskipaf loti íslendinga þegar orðinn of stór eða þarf hann enn að vaxa? • Hvað er að gerast i samningunum? • Verður samið án verkfalla? • Um hvaða úrbætur á sviði skattamála, lif- eyrismála og húsnæðis- mála er einkum rætt i yf irstandandi samning- um? • Eru vinnubrögðin við gerð kjarasamninga hin réttu? Ragnar Arnalds Eðvarð Sigurðsson. AKUREYRI — AKUREYRI — AKUREYRI — AKUREYRI — AKUREYRI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.