Þjóðviljinn - 11.05.1977, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 11.05.1977, Qupperneq 3
Miftvikudagur 11. mai 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Undarlegur seína- gangur á upplags- eftlrliti dagblaða Rætt við Finn Torfa Hjörleifsson útbreiðslustjóra Þjóðviljans UPPLAGSEFTIRUT DAG- BLAÐANN A í SJÓNMÁU — aðeins Þjoðviljinn hef ur komið með athugasemdir við eftirlitiö Dagblaðið birti í gær frétt þar sem sagt er að Þjóðviljinn sé sérstaklega neikvæður í afstöðu sinni til upplagskönnunar dag- blaðanna. Finnur Torfi Hjörleifs- son útbreiðslustjóri Þjóð- viljans hefur tekið þátt i viðræðum um upplags- eftirlit af hálfu blaðsins. Hann hafði þetta að segja í tilefni af frétt Dagblaðs- ins: Undirbúningur að könnun á út- breiðslu og fjölmiðlunargildi dag- blaða og timarita hefur dregist úr hömlu, m.a. vegna litt skiljanlegs seinagangs i vinnubrögðum Verslunarráðs Islands, sem tók að sér forgöngu i málinu. Hinn 17. nóvember sl. mættu til fundar hjá Verslunarráði fulltrúar dagblað- anna (nema Visis) þriggja aug- lýsingastofa og fulltrúa frá Frjálsu framtaki (Frjáls verslun, Sjávartiðindi, Iðnaðarblaðið, Iþróttablaðiö). Á þeim fundi komu fram sterk- ar raddir um að það væri langt i frá fullnægjandi að könnunin tak- markaðist við upplagseftirlit (seld eintök) heldur þyrfti hún að ná til allra þeirra þátta i út- breiðslu þessara fjölmiðla sem fjölmiðlunargildi hafa, svo sem lesendafjölda á eintak, samsetn- ingar lesendahóps eftir stéttum og landshlutum, skörunar les- endahópa blaðanna o.fl. Ákveðið var að halda annan fund fljótlega, helst fyrir jól, og Verslunarráði (borvarði Elias- syni) falin tvö verkefni milli funda: 1. Leita eftir þvi við Hag- vang h/f, hvort það vildi annast slika könnun og fá kostnaðar- áætlun um hana — og 2. Leita eftir upplýsingum um slikar kannanir erlendis. Nú leið og beið fram yfir jól og nýár og ekki boðaði Versiunar- ráðið fund. bótti ýmsum undar- legur seinagangur, þar sem vitað var að Hagvangur svaraði já- kvætt mjög fljótlega og lagði fram uppkast að könnunarformi. Loks er boðaður fundur 10. mars sl. Á þeim fundi mættu full- trúar sömu aðila og fyrr, nema nú var Visis-maður mættur, en eng- inn frá Dagblaðinu né Morgun- blaðinu. Verslunarráðið lagði þarna fram uppkast að verk- samningi milli Verslunarráös annars vegar og auglýsingastofa dagblaða, timarita og annarra fjölmiðla hins vegar. 1 fyrstu grein þessa samningsuppkasts var gert ráð fyrir að Verslunar- ráð tæki að sér ,,að kanna upplag Framhald á bls. 14. Irar standa upp í hárinu á EBE Veröur þeim stefnt fyrir dómstól bandalagsins? BRUSSEL 10/5 Reuter — Haft er eftir írskum heimildum aft stjórn trlands muni ekki láta aft þeirri kröfu stjórnarnefndar Efnahags- bandalags Evrópu aft nema úr gildi fiskverndunarráftstafanir þær á irlandsmiftum, sem frland hefur lýst yfir i trássi vift önnur EBE-riki. Stjórnarnefnd EBE haffti krafist þess aft ráftstafanir yrftu felldar úr gildi fyrir miftnætti i nótt. Talið er víst að neitun ira leiði til þess að stjórnarnefnd EBE stefni þeim fyrir dómstól banda- lagsins, sem situr i Luxemburg. Samkvæmt ráðstöfunum Ira mega fiskiskip lengri en 33 metr- ar ekki fiska nær Irlandsströnd en fimmtiu sjómilur. Hollensku fiskiskipin tiu, sem irar tóku inn- an fimmtiu milnanna i s.l. mán- uði, hafa nú verið látin laus gegn tryggingu. UTIVISTARFERÐIR Gerist félagar i tJtivist og eignist Útivist- artimaritið frá byrjun. Takið þátt i ferð- um félagsins, sem eru við allra hæfi. Hreyfing er holl. UTIVIST Lækjargötu 6, Pósthólf 17, Reykjavík. Sími 14606. ií Lausar kennarastödur Fjórar kennarastöður við grunnskólann á Stokkseyri skólaárið 1977-1978 eru lausar til umsóknar. Gott húsnæði i boði. Upplýsingar gefa Theodór Guðjónsson skólastjóri, simi 99-3261, og Ágústa Valdi- marsdóttir formaður skólanefndar, simi 99-3281. Umsóknarfrestur til 20. júli. Skólanefnd Stokkseyrarhrepps. Öskum að ráða 2-3 einkaritara, eða starfsfólk með staðgóða vélritunar- og málakunnáttu, nú þegar. Nánari upplýsingar veittar á skrif- stofu starfsmannastjóra, Austurstræti 11. Upplýsingar ekki veittar i sima. Landsbanki íslands LANDSBANKI ÍSLANDS ÁRSHÁTÍÐ Alliance Francaise verður haldin i Snorrabæ (yfir Austurbæjarbió) föstu- daginn 13. mai kl. 20. Borðhald og frönsk ogislensk skemmtiatriði. Verð kr. 2.800,-. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku i sima 17994 eða 17524. Stjórnin Klemens á A mánudaginn lést aft heimili sinu, Kornvöllum i Hvolhreppi, Rangárvallasýslu, Klemens K. Kristjánsson, fyrrum tilrauna- stjóri og bústjóri á Sámsstööum i Fljótshlift. Þvi starfi gegndi hann frá þvi 1927 og þangaft til er hann lét af þvi fyrir nokkrum árum. Klemens var löngu þjóftkunnur maöur sem frömuftur i land- búnaftarmálum og þá sérstaklega um tilraunastarfsemi i sambandi vift kornrækt. Hefur hann ritaö margt um þau efni. Klemens Kristján Kristjáns- son, eins og hann hét fullu nafni, fæddist 14. mai 1895 i Þverdal, Sléttuhreppi I Norður-lsafjarðar- sýslu. Voru foreldrar hans Bárður Kristján Guðmundsson bóndiþarogfyrri kona hansJúdit Þorsteinsdóttir. Klemens nam i búnaðarskólum á Norðurlöndum, tók próf i búvisindum, einkum grasfræ- og grasrækt, frá Viborg- gaard Græsmarkskole og stund- aði nám i landbúnaðarháskóla norðmanna 1922-23. Auk námsins vann hann við tilraunastörf á sumrum I Danmörku. Heimkom- inn frá námi starfaði Klemens fyrst við Gróðrarstöðina i Reykjavik en tók sem fyrr segir við tilraunastjórn og bústjórn á Sámsstööum 1927. Starfaði hann Sámsstöðum látinn þar fyrst á vegum Búnaðarfélags tslands, en siðan hjá rikinu, sem tók að sér rekstur tilrauna- stöðvarinnar 1941. 1935 var Klemens veittur silfur- bikar frá Kristjáni tiunda dana- konungi sem viðurkenning fyrir kornyrkjutilraunir, er hófust 1923 og hefur veriö haldið áfram slðan. — Meðalannarra trúnaðarstarfa, sem Klemens á Sámsstöðum tókst á hendur, má nefna aö hann var formaður og gjaldkeri Ræktunarsambands Fljótshliðar, Hvolshrepps og Rangárvalla 1947-61, formaður Búnaðarfélags Fljótshliðar frá 193S og formaður Fóðurbirgöafélags Fljótshliöar i sex ár. — Kona Klemens Kristjánssonar var Ragnheiöur Nikulásdóttir, bónda og kennara á Kirkjulæk i Fljótshlið, Þóröar- sonar. Maharishi Mahesh Vogi KERFIÐ INNHVF.RF ÍHUGUN TRANSCENDENTAL MEDITATION PROGRAM Almennur kynningarfundur. Verftur i kvöld kl. 20.30 aft Kjarvals- stöðum. öllum heimill aftgangur. tslenska ihugunarféiagift (BSs) S »1+1 XXIV Úrslit — Úrslit — Dregið hefur verið úr réttum lausnum að auglýs- ingamyndagetraun Þjóðvilj- ansþeirri7. i röðinni. Útvar dregið nafn Arnbjargar Guftmundsdóttur, Klepps- vegi 120, Rvik, og biöjum við hana góöfúslega aö leggja krók á hala sinn og leita við hér I Siðumúlanum að vitja vinningsins. Rétt lausn gátunnar er: „Vinsælar plötur. Fálkinn, Laugavegi 24".

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.