Þjóðviljinn - 11.05.1977, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 11.05.1977, Qupperneq 11
Miövikudagur 11. mai 1977 ÞJÓÐVII.JINN — StÐA 11 íslandsmótið l.deild KR-ÍBK0:2: / IBK á toppinn — og er til alls líklegt í sumar ólafur Friöriksson og Friöfinnur Helgason bítast um boltann í gærkvöldi. Ljósm,—gsp Eyjamenn settu baráttuna á oddinn og gáfu Breiða- bliksmönnum aldrei frið — og þar til úthaldið brást, voru þeir mun betri aðilinn í leiknum Keflvikingar hafa svo sannarlega komið á óvart það sem af er íslands- mótinu. I gær sigraði liðið KRmeðtveimur mörkum gegn engu á Melavelli. Sigur þessi var engin til- viljun. Lið IBK var greinilega mun betri aðil- inn í leiknum og átti sig- urinn fyllilega skilinn. Það var einn hinna ungu ný- liða i liði Keflavikur, Þórir Sig- fússon, semskoraði fyrsta mark leiksins þegar leiknar höfðu verið 28 minútur af fyrri hálf- leik. Hann einlék upp allan hægri vallarhelming KR og i stað þess að gefa knöttinná Ólaf Júliusson eins og KR-ingar höfðu gert ráð fyrir^skaut hann föstu vinstrifótarskoti sem lenti i vinstra horninu án þess að Magnús Guðmundssón kæmi nokkrum vörnum við. Fallegt mark og staðan 1:0. Við þetta var eins og KR-ing- ar vöknuðu af dvalanum sem haföi einkennt leik liðsins, og það sem eftir lifði hálfleiks sóttu þeir stöðugt að marki KR.þó án þess að skora, og staðan i hálf- leik þvi 1:0. 1 seinni hálfleik héldu KR-ing- ar uppteknum hætti og sóttu af miklu offorsi, en án þess aö skapa sér nein umtalsverð tæki- færi, enda vörn keflvikinga vel á verði með Gisla Torfason sem besta mann. Virtist sem allan kraft drægi úr KR við mótlætið, og undir lok leiksins sóttu kefl- vikingar mjög i sig veðrið. A 38. min leiksins siapp Einar ólafs- son einn innfyrir i dauðafæri, en spyrnti himinhátt yfir. Aðeins minútu siðar bættu keflvikingar svo öðru marki sinu við. ólafur Júliusson tók aukaspyrnu rétt fyrir utan vitateig. Sending hans var á leið út fyrir enda- mörkin þegar Gisla Torfasyni tókst að ná til knattarins og sendi hann rakleiðis fyrir mark- ið þar sem Þórður Karlsson var fyrir, og hann var ekkert aðtvinóna við hlutina drengur- inn sá, þrumuskot hans hafnaði fyrir aftan Magnús i markinu, 2:0, og þau urðu úrslit leiksins eins og áður sagði. Liðin: Lið IBK hefur komið verulega á óvart það sem af er Islands- mótinu. Þeir ungþ leikmenn sem tekið hafa við liðinu i vor hafa greinilega uppfyllt þær vonir sem bundnar höfðu verið við þá. Liðið leikur iéttan og skemmtilegan sóknarleik og i vörninn er Gisli Torfason sá klettur sem fátt fær brotið á. Má ljóst vera að Keflavikurliðið verður ekki i botnbaráttunni i sumar eins og ýmsir hafa spáð þvi. KR-ingar mega sannarlega taka á honum stóra sinum ef ekki á illa að fara i deildinni i sumar. 1 liðinu i gær var enginn sem stóð fyrir þvi sem búast mætti við. örn Óskarsson sem til skamms tima lék með IBV, virðistengan veginn hafa fundið sig með liðinu, hvað sem veldur. Nái Orn sér á strik, verður hann örugglega ‘KR mikill styrkur i inni erfiðu baráttu sem augljós- lega er framundan. Dómari var Ragnar Magnússon, og fórst það hon- um það vel úr hendi. Breiðabliksmenn fengu óblíðar móttökur i Vest- mannaeyjum í gærkvöldi .er liðið mætti heima- mönnum í 1. deild islands- mótsins i knattspyrnu. Eyjamenn voru mun sprækari allan tímann, gáfu Breiðabliki aldrei frið til þess að byggja upp og lengi framan af voru réðu þeir lögum og lofum á vellinum. Undir lokin, þeg- ar heimamenn voru farnir að lýjast á hinni miklu keyrslu náði Breiðablik að ógna nokkrum sinnum, en engu að siður máttu að- komumenn þakka fyrir annað stigið úr þessum leik. Ekkert mark var skorað, þrátt fyrir nokkur Danski norðurlanda- meistarinn í badminton ‘ Flemming Delfs bætti enn einum sigrinum í safniðer hann vann landa sinn Sven Pri í úrslitum heims- meistaramótsins i Malmö, Sviþjóð, með 15:5 og 15:6. Delfs hafði mikla yfir- burði yfir Pri í úrslitunum eins og raunar alltaf þegar þessir garpar mætast. Danir voru afar sigursælir á þessu fyrsta opinbera heims- meistaramóti, þvi i kvennaflokki sigraði Lena Köp pen en hún er is- lenskum badminton unnendum að góðu kunn frá þvi að hún lék hér á tækifæri á báða bóga, og 0- 0 jafntefli varð því staðreynd. Besta tækifæri leiksins átti Jón Orri Guðmundsson fyrir Breiða- blik undir lok siðari hálfleiks. Hann fékk þá stungubolta inn i vinstra vitateigshornið og komst i galopið færi. En Orri vandaði sig um of, skaut of seint og Páll Pálmason, markvörður IBV gómaði knöttinn á elleftu stundu. En burtséð frá þessu tækifæri voru það eyjamenn sem voru i sviðsljósinu, einkum þó á fyrstu minútunum. Þá var baráttan og keyrslan strax i hámarki og á 5. min. komst Snorri Rútsson i opið / færi eftir stórskemmtilega sam- vinnu við Tómas Pálsson. Boltinn gekk stutt á milli þeirra upp vallarhelming Breiðabliks, inn i vitateiginn og þar lét Snorri hörkufast skot riða af... en rétt yf- ir! Og það skall oftar hurð nærri hælum við Breiðabliksmarkið i Norðurlandameistaramótinu. 1 úrslitum sigraði Köppen Gilks frá Englandi 12:9 og 12:lj. Köppen gerði sér litið fyrir og sigraði einnig i tvenndarkeppninni ásamt landa sinum Steen Skovgaard en þau sigruðu Derek Talbot og Gilian Gilks frá Englandi 13:12 og 18:17. 1 tviliöaleik kvenna sigruðu japönsku stúlkurnar Toganoo og Euneo þær Riddler og Beusekom frá Hollandi 15:10 og 15:11 i úr- slitaleiknum. 1 tviliðaleik karla sigruðu indónesiumennirnir Tjun Tjin og Wadyudi landa sina Ada Chandra og Christian 15:6 og 15:4 Næsta heimsmeistarakeppni i badminton veröur haldin i Indónesiu árið 1980. upphafi leiksins, þótt besta tæki- færið sé nú upptalið. Er á leið jafnaðist siðan leikur- inn. Breiðablik reyndi að byggja upp stutt spil á fremur smávöxn- um grasvelli ÍBV, en eyjamenn voru allan timann mun fljótari á boltann og gáfu gestum sinum engan frið. Fyrir vikið fór leikur- inn að miklu leyti fram á miðjum velli og einkenndist af tilraunum Blika til samleiks, en góðri og vel heppnaðri viðleitni eyjamanna til að kæfa slikt i fæðingu og næa hættulegum gagnsóknum. Greinilega vantaði IBV þó mann til þess að binda endi á annars ágætar sóknarlotur. Þeg- ar upp að markinu kom var farið illa með góð tækifæri eða þá vantaði herslumuninn til þess að skapa þau. Eyjamenn hafa misst mikið þar sem Sigurlás Þorleifs- son er óvigur næstu vikurnar, en hann var einmitt sá ógnandi mið- herji sem vantaði i gærkvöldi. Bestu menn hjá IBV voru i gær þeir Óskar Valtýsson i framlin- unni. Karl Sveinssonvar sömu- leiðis ógnandi á meðan úthald entist og ölafur Sigurvinsson tók bakvarðarstöðu sina af öryggi. I markinu stóð Páll Pálmason... og hélt hreinu. Lið Breiðabliks átti litið svar við eldfljótum heimamönnum, sem settu baráttuna á oddinn. Mikið mæddi á vörninni i þessum leik, og þar var Valdimar Valdi- marsson i aðalhlutverki á miðj- unni og byggði jafnframt vel upp, þótt Blikar næðu aldrei tökum á leiknum. Þór Hreiðarsson vann einnig vel og ógnaði i stöðu tengi- liös og i framlinunni bar einna mest á Jóni Orra, em hafði mikla yfirferð. En á einu féllu sóknarmenn Breiðabliks öðru fremur... og þaö var hin ágætlega útfærða rang- stöðuleikaðferð IBV. Liklega hefur það ekki verið sjaldnar en tiu til fimmtán sinnum sem Blik- ar voru flautaðir rangstæðir og fyrir kom aö þeir stæðu jafnvel tveir eða þrir fyrir innan varnar- vegg andstæðinga sinna. Dómari var Kjartan Ólafsson og skilaöi hann sinu hlutverki þokkalega. Tveir Breiðabliks- menn fengu áminningu, þeir Jón Orri fyrir brot og Hinrik Þór- hallsson fyrir...?...leiktöf,? —gsp Viðar Guðjohnsen og Gfsli Þorsteinsson sem hér sjást takast fang- brögðum keppa báðir á Evrópumeistaramótinu í júdó. Viðar og Gísli keppa á evrópumeistaramótinu í júdó Viðar Guðjohnsen og Valur 66 ára í dag I dag 11. maí eru liðin 66 ár frá því er knatt- spyrnuliðið Valur var stofnað. Af því tilefni hefur félagið opið hús fyrir félagsmenn og áhangendur kl. 3-6 í dag. Gísli Þorsteinsson taka fyrir fslands hönd þátt í Evrópumótinu í judo sem fram fer í Ludvigshaven í V-Þýskalandi. Mótið hefst i dag og þá keppa þeir báðir. Ekki er vitað hverjir verða andstæöingar þeirra í 1. umferð. Viðar keppir i 86 kg. flokki en Gisli i 95 kg. flokki. Eysteinn Þorvaldsson formað- ur judosambandsins veröur fararstjóri og um leið aðstoðar- maður þeirra félaga. Að lokinni þessari keppni held- ur Viðar til Japans þar sem hann hyggst stunda æfingar og keppni i iþróttinni. HM 1 badminton Danir sigursælir Flemming Delfs varð heimsmeistari

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.