Þjóðviljinn - 11.05.1977, Side 12
12 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur II. mai 1977
Hjúkrunarfrædingar
Eftirtaldar stöður við heilsugæslustöðvar
eru lausar til umsóknar:
Við Heilsugæslustöðina á Þingeyri
Við Heilsugæslustöðina á Þórshöfn
Við Heilsugæslustöðina á Húsavik
Við Heilsugæslustöðina á Ólafsvik
Við Heilsugæslustöðina i Grundarfirði
Við Heilsugæslustöðina á Höfn i Horna-
firði.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsing-
um um menntun og fyrri störf sendist heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
9. mai 1977
Þessi teikning er eftir Kerry Kennedy, einn bresku myndlistarmannanna tólf sem verk verða sýnd eftir
á Kjarvalsstöðum.
Bresk nútímalist á Kjarvalsstödum
Þjóðviljann
Vantar starfskraft, karl eöa konu,
á auglýsingadeild.
Sumarstarf eöa framtiðarstarf.
Viökomandi þyrfti aö geta hafið
störf sem fyrst.
Upplýsingar i Siðumúla 6
Hitaveita
Akureyrar
Tilboð óskast i lagningu dreifikerfis
áfanga I og II. útboðsgögn eru afhent á
tæknideild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9
Akureyri gegn 10 þúsund króna skila-
tryggingu. Tilboð i áfanga I verða opnuð á
skrifstofu bæjarstjóra, Geislagötu 9,
Akureyri, þriðjudaginn 24. mai 1977 kl.
14:00 eftir hádegi, en i áfanga II á sama
stað þriðjudaginn 31. mai 1977 kl. 14:00
eftir hádegi.
Akureyri 5. mai 1977,
Hitaveita Akureyrar.
Dagana 14. mai-5. júnf fer fram
sýning á verkum listamanna frá
Bretlandi f vestursal Kjarvals-
staða sem nefnist „12 breskir
Listmálarar”. Fyrir sýningunni
standa Listráð að Kjarvalsstöð-
um og Arts Councii í Bretlandi og
er hún án efa stærsta sýning á
breskri nútimalist sem haldin
hefur verið hér á landi, — og
fyrstu meiriháttar menningar-
samskipti Islands og Bretlands
eftir þorskastrið. Listamennina
tólf valdi framkvæmdastjóri List-
ráðs, Aðalstcinn Ingólfsson, I
samráði við breskan sérfræðing,
Sue Grayson frá Serpentine
Gallery i London, en sú stofnun er
rekin af breska listaráðuneytinu.
Mun Sue Grayson aðstoða við
uppsetningu sýningarinnar.
Verkin eru 100 talsins, allt frá
frummyndum gerðum með blý-
anti, vatnslitum eða krit og upp i
3x4 metra málverk.
Listamennirnir eru allir ungir
að árum, frá 30-37 ára og tiltölu-
lega nýlega farnir að láta bera á
sér með sýningum og annarri
starfsemi, en allir kenna þeir við
listaskóla i Bretlandi. Þeir voru
ekki valdir með það fyrir augum
að gefa vitt yfirlit yfir breska
myndlist, heldur þann hluta
hennar sem enn grundvallast á
notkun málningar og byggir bæði
a ameriskri arfleifð og enskri
náttúrutúlkun með snert af
geómetriu. Listamennirnir eru:
Colin Cina, Julian Cooper, Mike
Crowther, Jennifer Durrant, Pául
Hempton, Knighton Hosking,
Kerry Kennedy, Barry Martin,
Alan Miller, Alex Thomson,
David Whitaker og Tony Wilson,
— en i hópnum eru englendingar,
skotar, iri og einn ástraliumaður.
I sambandi við sýninguna mun
Listráð gefa út vandaða sýning-
arskrá, þar sem einn listmálar-
anna, Barry Martin, gerir grein
fyrir viðhorfum sinum og félaga
sinna, en annar listamaður, Colin
Cina, mun flytja fyrirlestur
sunnudaginn 15 mai um breska
málaralist. Siðar i mánuðinum
mun Aðalsteinn Ingólfsson kynna
breska málara og höggmyndalist
eftirstriðsáranna og Hamra-
hliðarkórinn undir stjórn Þor-
gerðar Ingólfsdóttur mun m.a.
flytja breska tónlist.
Sýningin verður opnuð laugar-
daginn 14. mai kl. 16, af sendi-
herra Bretland á Islandi, hr.
Kenneth East.
Múrarameistari
getur bætt við sig nýbyggingum, pússn-
ingu, flisalögnum og viðgerðum.
Upplýsingar i simum 20390 & 24954 miíli
kl. 12 og 1 og eftir kl. 19.00.
Blikkiðjan
Asgarti 7,
Garöahreppi
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
SÍMI 53468
Ot er komið ritiö Náttúruverk-
ur, 1. tbl. 4. árg. Náttúruverkur er
blað I verkfræði- og raunvisinda-
deild Háskóla islands. Efni þess
er að þessu sinni mikið til heigað
þeim umræðum sem standa yfir
um stóriðju i landinu auk þess
sem Krafla fær sinn skerf.
Blaðið er hið veglegasta, 80 síð-
ur að stærð og mjög myndskreytt.
Eru ma. I því fjölmargar myndir
eftir hinn snjalla teiknara Kol-
bein Arnason sem hefur mikið
teiknað I þágu baráttu náms-
manna undanfarin ár.
Lengsta greinin í ritinu er Sam-
ræður um vistkreppu en þar er
um að ræöa hringborðsumræður
Náttúru-
verkur
kominn út — Fjallar um
stóriöju á íslandi
með þátttöku Bjarna Braga Jóns-
sonar hagfræðings, Hjörleifs'
Guttormssonar llffræðings,
Jakobs Björnssonar orkumála-
stjóra, Jakobs Jakobssonar fiski-
fræðings og Þorsteins Vilhjálms-
sonar eðlisfræðings.
Starfshópur á vegum Félags
náttúrufræðinema tekur til gagn-
rýninnar meðferöar frumvarp til
1 Náttúruverk er ma. að finna þessar
tvær skemmtilegu myndir eftir Kol-
bein Arnason um þegar framin og
hugsanleg lögbrot bandariska hersins
á Miðnesheiði.
laga um umhverfisvernd, Viöar
Guðmundsson þýðir grein sem
nefnist Þarfnast visindin alþjóða-
máls? Emil Bóasson ritar Hug-
leiöingu um ruslahauga. Gylfi
Páll Hersir fjallar um fagrýni
innan verkfræði- og raunvisinda-
deildar. Erlendur Jónsson og
Lárus Guðjónsson fjalla um eit-
uráhrif cyans en það efni er ma. I
kerbrotum álversins. Sigmar
Hjartarson skrifar greinina A1 á
hvern fjörð. Þorgeir Helgason
tekur tíl meðferöar lélega þjón-
ustu strætisvagna. Loks er í ritinu
ýtarleg grein um Kröfluævintýriö
eftir þá össur Skarphéðinsson og
‘Halldór Pétursson. —ÞH