Þjóðviljinn - 13.07.1977, Blaðsíða 1
ÞJOÐVIUINN
Miðvikudagur 13. júli 1977 —42. árg. 148. tbl.
Undirmenn samþykkja
verkfallsheimild
I gær voru talin atkvæði i allsherjaratkvæðagreiðslu
undirmanna á farskipum um að veita samninganefnd
heimild til verkfallsboðunar þegar þörf krefur. 120
greiddu atkvæði, 116 voru fylgjandi verkfallsheimild
en 4 andvígir. —
„ Yfirvinnubannið ekki dottið úr mönnum ”
Merk tilraun
í Stálvík
Hætt ad vinna eftirvinnu á fimmtudögum
og stefnt ad því að útrýma henni að fullu
Samkomuiag hefur orðið í Stálvík um að allir starfs-
menn, 120 samtals, hætti að vinna eftirvinnu á fimmtu-
dögum, og að stefnt verði að þvi að útrýma yfirvinnu i
fyrirtækinu á þremur til f jórum mánuðum. Hugmyndin
bak við þessa ákvörðun er að reynt verði að halda sömu
afköstum með því að koma á vissri tegund bónuskerfis
og leggja niður kaffitíma. Takist þetta munu starfs-
menn halda að minnsta kosti sama kaupi og áður þótt
vinnuvikan verði stytt um átta tíma.
„Þetta er I beinu framhaldi af
yfirvinnubanninu”, sagði Óttar
Guðmundsson, sem á starfs-
mannafundi var kjörinn sérstak-
ur trúnaðarmaður til aö fylgjast
með bónuskerfinu. „Ætlunin er að
skera fyrst af eftirvinnuna á
fimmtudögum, og reynist það vel,
er hugmyndin aö skera þrjá eftir-
vinnutima niður til viðbótar. bá
yrði ekki unnin eftirvinna á mið-
vikudögum og aðeins einn timi á
þriðjudögum. A móti niöurfell-
ingunni á eftirvinnunni, kemur
nokkurskonar akkorð, sem ætlaö
er að gefi 10% yfir linuna. Verði
reynslan af þessu góð hefur veriö
rætt um að fara lengra og skera
niður þá þrjá yfirvinnutima sem
eftir eru með niðurfellingu á
kaffitimum og tafatimum. Þá er-
Takist vel tilraunin i Stálvik með að skipta á yfirvinnutimum og bónus-
kerfi, hefur komið til tals að skipta á kaffitimum og yfirvinnutimum.
Mynd úr Stáivik — gel.
um viö komnir með raunhæfa 40
stunda vinnuviku.”
Járniðnaðarmenn náðu þvi
fram með samningum árið 1974,
að ekki yrði unnin föst eftirvinna
á föstudögum, en vikukaup; yrði
ekki skert. Nú hálfri annarri viku
eftir aö farið var að vinna eftir-
vinnu i Stálvik eftir yfirvinnu-
bann ASÍ láta menn þar til skarar
skriða gegn yfirvinnubölinu. Af-
kastaaukningin, sem gert er ráð
fyrir að ná með bónuskerfinu, er
af forráðamönnum ekki talin
þurfa að þýöa stóraukið vinnu-
álag, heldur er stefnt að meiri út-
sjónarsemi og skipulagningu á
vinnubrögðum. Guöjón Jónsson,
formaður Sambands málm- og
skipasmiða, fagnaði mjög þessari
tilraun, er blaðið ræddi við hann i
gær.
„Þetta er talsvert i umtali á
vinnustöðum járniönaðarmanna.
Og þótt viö heyrum I fréttum að
mikil yfirvinna sé unnin viða,
þurfa menn ekki aö halda að yfir-
vinnubannið sé dottið úr verka-
fólki. Það á eftir að hafa viðtæk
áhrif.” —ekh
Wm T&llll * x; s - , F
Bobby Fischer
Einvígi milii Fischers og
Kortsnojs í uppsiglingu!
Fischer skrifaði Kortsnoj bréf og bað
hann að hitta sig i Bandaríkjunum
Viktor Kortsnoj
Það kom fram I viötali sem
Gunnar Steinn Pálsson biaða-
maður Þjóðviijans átti við Viktor
Kortsnoj f gær að hann hefði
fengið bréf frá heimsmeist-
aranum fyrrverandi, Bobby
Fischer, þar sem Fischer baö
hann um aö hitta sig sem allra
fyrst að máli með einvígi fyrir
augum.
Kortsnoj sagðist vera yfir sig
hrifinn af þessu tilboði, hqnum
væri það mikill fengur að tefla við
Fischer ekki sist til þess að fá
Fischer aftur fram I sviðsljósið,
en bandarikjamaðurinn hefur
ekki teflt I fimm ár, eða siðan
hann háði hér á landi einvigið um
heimsmeistaratitilinn við sovét-
manninn Boris Spassky. Þarna
væri einstakt tækifæri komið.
Fyrir sig skipti þetta máli hvað
varðar að komast I heims-
pressuna, Fischer væri heims-
frægur maöur og slikt einvígi
myndi vekja gifurlegan áhuga.
„Þetta er engin spurning um
peninga”, sagði Kortsnoj. Hann
kvaðst strax að loknu einviginu
við Polugajevski fara til Banda-
rikjanna til að tefla fjöltefli og i
leiðinni myndi hann hitta Fischer
að máli og þá yröi einvígið endan-
lega ákveðið, staöur og stund.
Kortsnoj sagðist vita til aö
Fischer hefði legið á kafi i skák-
bókunum, hann fylgist geysilega
vel með öllu sem fram fer i skák-
heiminum. Kortsnoj taldi að
Fischer væri örugglega ekki
lakari en þegar hann tefldi siðast
hér I Reykjavik 1972.
Eins og kunnugt er af fréttum
hitti Fischer heimsmeistarann
Anatoly Karpov að máli á siðasta
ári.
beir ræddu um hugsanlegt
einvigi sin á milli, en töluveröur
ágreiningur varð um tilhögun
sliks einvigis, auk þess sem talið
var að sovétmenn hefðu engan
sérstakan áhuga á að Fischer
fengi þannig tækifæri til að
endurheimta titilinn.
Skip Eimskips hafa komið hlaðin bflum tii landsins siðustu mánuði og hér má m.a. sjá bflabreiðuna á
þaki Faxaskálans.
Mikill bíla-
innflutningur
Tvöfaldaðist milli ársfjórðunga
A fyrsta fjórðungi þessa árs
(janúar-mars) voru fluttir inn
1.135 nýir fólksbilar, en á öðrum
fjóröungi (april-júni) voru þeir
hartnær tvöfalt fleiri, eða 2.257.
Alls voru þvi fluttir inn 3.392
fólksbilar á fyrri helmingi árs-
ins, en á öllu árinu I fyrra aöeins
3.784.
Asmundur Sigurjónsson hjá
Hagstofunni var aö taka saman
yfirlitum bflainnflutninginn á 2.
fjórðungi þessa árs, þegar
blaðið hafði samband við hann,
og eru tölurnar hér að frama
samkvæmt þvi.
3.400 nú á.hálfu ári, en litlu
fleiri bilar á öllu árinu I fyrra
segir sina sögu. A fyrra helm-
ingi ársins 1976 voru fluttir inn
1.926 fólksbilar. Og árið 1975 var
innflutningurinn 2.888 allt árið.
Þaö liggur þvi ljóst fyrir að
innflutningur nýrra fólksblla
hefur tekið mikinn kipp siöustu
mánuði. Ekki jafnast hann þó á
við þjóðhátiðarmetið 1974, og
gerir það vist seint: 8.947 bflar.
—Þ.H.