Þjóðviljinn - 13.07.1977, Page 3
Miðvikudagur 13. júll 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Þreyta bugaði rúss-
neska flugræningja
Finnar afhenda þá sovétmönnum
HELSINKI 12/7 Reuter — Finnsk
stjórnarvöld tilkynntu I dag að
þau myndu afhenda sovéskum
yfirvöldum tvo unga rússneska
flugræningja, sem neyddu
flugmenn sovéskrar farþegaþotu
i innanlandsflugi til þess að lenda
á flugvellinum vilj Helsinki
Finnskir embættismenn tjáðu
fréttamönnum að flugræningj-
arnir, sem báðir eru um tvítugt,
hefðu i rauninni verið óvopnaðir,
en látist hafa handsprengjur.
Paavo Vayrynen, utanrikis-
ráðherra Finnlands, kvað Sovét-
rikin þegar hafa farið þess á leit
að flugræningjarnir yrðu fram-
seldir, og myndu finnar verða við
þéirri ósk, þar eð samkvæmt
samningi milli rikjanna, sem
gerður var fyrir tveimur árum,
sru finnar skuldbundnir til að
Gengisfelling á Spáni
MADRID 12/7 Reuter — Spænska
stjórnin lýsti yfir gengisfellingu i
dag á gjaldmiðli landsins, peset-
anum, og lækkar hann um 20%.
Að forminu til er að visu aðeins
um að ræða svokallað gengissig,
þannig að pesetinn er látinn siga
niður i 87,40 gagnvart dollar.
Nemur það sig 19,9% frá þvi að
stjórnin stöðvaði verslun með
erlendan gjaldeyri á föstudaginn.
Ráðstöfun þessi er ætluð til þess
að bæta efnahag Spánar, sem er
orðinn heldur bágur. Gengis-
fellingin mun að likindum auka
straum ferðamanna til landsins,
en sumir draga þó i efa að spán-
verjar græði mikið á þvi i
bráðina, þar eð helsta ferða-
mannatimanum i ár er þegar að
ljúka. I annan stað kemur gengis-
fellingin til með að valda veru-
legum verðhækkunum innan-
lands og það eykur á óánægju
verkamanna, sem þegar eru
farnir að saka stjórnina um að
ætla að láta þá greiða kostnaðinn
af ráðstöfunum til bóta þjóðar-
búskapnum.
afhenda sovéskum yfirvöldum
sovéska flugræningja, sem hand-
teknir eru i Finnlandi.
Samkvæmt sovéskum lögum frá
1973 er hægt að dæma flug-
ræningja i þriggja til fimmtán
ára fangelsisvist.
72 farþegar voru i flugvélinni,
og að sögn voru þeir sannfærðir
um að flugræningjarnir tveir
myndu sprengja flugvélina i loft
upp ef að þeim yrði þrengt
Finnskur lögregluforingi sagði að
þreyta hefði um siöir unnið bug á
flugræningjunum tveimur, þeir
hefðu dottið út af sofandi og siðan
gefist upp i dögun i morgun. Þá
þegar höfðu allir farþegarnir
komist út úr flugvélinni, sumir af
eigin rammleik en öðrum höfðu
flugræningjarnir sleppt.
Mennirnir tveir tóku flugvélina
á vald sitt er hún var á leið til
Leningrad og kröfðust þess aö
henni yrði flogið til Stokkhólms,
en engu að siður varð það úr að
vélin lenti við Helsinki. Þar
kröföust flugræningjarnir elds-
neytis svo að hægt yrði að fljúga
áfram til einhvers Vesturlanda.
Suleyman Demirel — verkalýðs
samtökin vilja ekki aðra hægri-
stjórn.
TYRKLAND:
tveimur og sumir framámanna
þar hafa til þessa verið taldir
hlynnfir flokki Demirels.
Allsherjarverkfall er ólög-
legt samkvæmt tyrkneskum
lögum svo að hér væri um al-
varlega ráðstöfun aö ræða,
ef hún yrði framkvæmd. Tunc
benti á að á þvi tveggja ára tima-
bili.sem hægriflokkarnir fóru
með stjórn fram að kosningun-
'um fyrir skemmstu, hefði efna-
hagur landsins hriðversnað og
ástand i landinu yfirleitt. Biilent
Ecevit, leiðtogi Lýðveldissinnaða
alþýðuflokksins, sem náði mestu
fylgi i kosningunum, hefur þegar
boðið Demirel upp á samstjórn
sins flokks og Réttlætisflokksins,
en Demirel hafnað þvi boði.
Margir af helstu atvinnurek-
endum Tyrklands eru einnig
Hóta allsherj-
arverkfalli
ANKARA 12/7 Reuter — Halil
Tunc, forseti annars af tveimur
helstu verkalýðssamböndum
Tyrklands, Turk-Is, hótaði i dag
allsherjarverkfalli ef á ný yrði
mynduð samsteypustjórn hægri-
flokkanna undir forystu Siiley-
mans Demirel, foringja hins
ihaldssama Réttlætisflokks. -
Turk-Is er það ihaldssamara af
helstu verkalýðssamböndunum
sagðir hlynntir samstjórn Rétt-
lætisflokksins og flokks Ecevits,
sem sagður er sósialdemókrat-
iskur.
Margir spá engu góðu fyrir
þeirri samsteypustjórn, sem
Demirel er að reyna að mynda
með tveimur öðrum hægri-
flokkum.
ÆvintijHitenMr
til næstn iiátíKiiiiia
Gtænland
Feró til Grænlands - þó stutt sé - er engu lík. í
Grænlandi er stórkostleg náttúrufegurð og sér-
kennilegt mannlíf, þar er aö finna hvor tveggja í
senn nútíma þjóðfélag eins og við þekkjum það -
og samfélagshætti löngu liðins tíma.
Stórskemmtilegar ferðir
sérstaklega fyrir fjölskyldur - starfshópa
og félagasamtök.
Spyrjið sölufólk okkar, umboðsmenn eða
ferðaskrifstofumar um nánari upplýsingar.
Færeijjar
Það sem gerir Færeyjaferð að ævintýri er hin
mikla náttúrufegurð, ásamt margbreytilegum
möguleikum á skemmti- og skoðunarferðum um
eyjarnar, og síðast en ekki síst hið vingjarnlega
viðmót fólksins.
Ef þú ert einhvers staðar velkominn erlendis - þá
er það í Færeyjum.
lonuiam
ISLANDS