Þjóðviljinn - 24.08.1977, Síða 1

Þjóðviljinn - 24.08.1977, Síða 1
MOÐVIUINN Miðvikudagur 24. ágúst 1977 —42. árg. 184. tbl. Fyrsta boð tll BSRB Samninganefndir BSRB og fundar klukkan 5 I gær rikisins i kjaradeilu opinberra eftir langt hlé. Stóö fundurinn i 2 starfsmanna komu saman til klukkustundir. V onast eftir úrlausn Fulltrúar frystihús- anna á fundi með forsætisráðherra i gærdag átti fimm manna nefnd fiskverkenda fund meö for- sætisráöherra vegna þess ástands sem skapast hefur i rekstri fisk- verkunarhúsa á Suövesturlandi. i nefndinni eiga sæti Hjalti Ein- arsson, ólafur B. Ólafsson. Ágúst Flygering, Arni Benediktsson og Margeir Jónsson, en auk þeirra sátu fundinn þeir Siguröur Stef- ánsson endurskoðandi, Einar Ingvarsson fulltrúi sjávarútvegs- ráöherra og Jón Sigurðsson, for- stöðumaöur Þjóðhagsstofnunar. Fundurinn stóð i eina klukku- stund og sagði Hjalti Einarsson að honum loknum að undirtektir stjórnvalda hefðu verið jákvæð- ar, og vonast nefndin til þess að fá einhverja úrlausn sinna mála bráðlega. Hjalti sagði að þeir hefðu ekki komið með nein loforð af þessum fundi, en á honum kom fram, að forsætisráðherra hefur átt við- ræður við Seðlabankann vegna aukinnar lánafyrirgreiðslu til fiskverkenda, en eins og fram hefur komið telja fiskverkendur að ekki hafi verið staðið við loforð i þeim efnum, sem gefin voru i kjarasamningunum í vor. Hjalti sagði að ekki hefði verið minnst á gengisfellingu á fundin- um, enda hefði nefndin sem slik ekki sett fram neina slika kröfu, þótteinstaka fiskverkendur hefðu gert það. Hjalti taldi að gengis- felling nú myndi ekki koma að þeim notum sem oft var áður Framhald á bls. 14. Þorsk- klak illa heppnað Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræöingur.greinir frá þvl i viðtali við Morgunblaðiö I gær að samkvæmt niðurstöð- um þeirra seiðarannsókna, sem unnið hefur verið að að undanförnu á hafrannsókna- skipunum Arna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni, þá hafi þorskklakið heppnast illa i ár og litlu skár liafi til tekist með ýsuna. Hins vegar tekur Hjálmar fram, að loðnuklak virðist hafa heppnast vel. Þess munu flestir minnast, að í fyrra tókst þorskklakið mun betur en almennt hafði verið reiknað með, en fiski- fræðingarbentu þá á, að slíkt gæti alltaf viljað til eitt og eitt ár, þótt stofninn væri smár, meðan ekki væri um algeran viðkomu brest að ræða. Eins og nú horfir má þá búast við þvi að þorskár- gangurinn frá 1976 verði sterkur, árgangurinn frá 1977 hins vegar mjög lélegur. Þetta er þó enganveginn full séð enn, þvi að sjálft klakið er aðeins einn þátturinn af fleirum, sem úrslitum ráða um það, hversu mikið af fiski nær að vaxa upp úr þessum árgangi eða hinum. Þessi mynd var tekin i Bæjarútgerðinni i Reykjavlk I gær, og eins og sjá má, er þar nóg að gera. Engar uppsagnir hafa enn átt sér stað i fiskverkun i Reykjavik, en verkafólk veit þó ekki hvað getur orðið næsta dag, enda missir nú fjöldi fólks atvinnuna dag hvern á Suðurnesjum og hótanir um frekari lokun frystihúsa dynja á mönnum. — Ljósm: eik Verkalýðsfélögin á Suðurnesjum: Bíðum átekta Karl Steinar Guðjónsson for- maður verkalýðs- og sjómannafé- lags Keflavikur sagði að i fyrra- dag hefðu forystumenn verka- lýðsféiaganna á Suðurnesjum átt fund meö fiskverkendum uni þaö alvarlega ástand sem skapast hefur í atvinnumálum staöanna meö lokun hvers frystihússins á fætur ööru. Karl Steinar sagði, að menn hygðust þó biða átekta enn um sinn, enda færi meira fyrir hót- unum og harmkvælum en að þeir hlutir hefðu gerst sem köll- uðu á alvarleg viðbrögð verka- lýðsfélaganna. Karl sagði að með lokun Sjö- stjörnunnar hefðu 60 manns misst vinnu, og i Vogunum hefðu 20-30 manns tii viðbótar misst vinnuna við lokun Voga h.f. I Hraðfrystistöðinni hefði fólk hins vegar verið sent i sumarfri, þar sem togarinn væri i slipp. Karl sagði að fiskverkendur hefðu greinilega ekki látið yfir- völdunum i té þær upplýsingar sem þeir áttu að gera, og hefðu verka- lýðsfélögin lagt áherslu á það aö þetta ástand yrði ekki lengt um of með slikum vinnubrögðum. '»Laun hafa verið greidd með eðlilegum hætti i frystihús'unum undanfarið, en miklir erfiðleik- ar hafa verið með uppgjör á sum- um togaranna. Karl sagöi að á fundi með útgerðarmönnum i gær hefði verið stofnuð samstarfs- nefnd til að tryggja réttan fram- gang þeirra mála og loforö hefðu verið gefin um að gert yrði upp samkvæmt samningum. —ÁI A þessum fundi lagði samn- inganefnd rikisins fram sitt fyrsta tilboð, en þar er gert ráö fyrir, að laun opinberra starfs- manna hækki um 7,5% frá 1. júli s.l. Sé launahækkunin, sem varð vegna visitölubreytinga þann 1. júni s.l.,og sú 4% hækkun launa, sem varð 1. júli vegna ákvæða i eldri samningum,reiknuð með, þá ættu júlilaun opinberra starfs- manna samkvæmt þessu tilboði að vera 19,33% hærri i ár en laun voru i mai s.l. — Siðan er gert ráð fyrir tæp- lega 4% hækkun 1. sept. n.k. vegna visitöluhækkunar. Laun i nóvember eiga siöan aö verða 21.12% hærri en mailaun og þess- ar sömu visitölubætur upp á íæp 4% að greiðast ofan á það. Siöan kæmi samkvæmt tilboðinu 3% hækkun 1. des. n.k., þó eigi lægri en kr. 5000, þá önnur hækkun 1 júni 1978, þó eigi lægri en kr. 5000.-,og 3% hækkun 1. sept. 1978, þó eigi lægri en kr. 4000.-. öllu svipar þessu mjög til ákvæða i al- mennu kjarasamningunum. Þá er enn gert ráð fyrir 3% launahækkun 1. júli 1979, en gert er ráð fyrir að samningarnir gildi til tveggja ára. Gert er ráð fyrir því i tilboði samninganefndar rikisins að visi- töluákvæði núgildandi samninga framlengist út næsta samnings- timabil, þó með þeirri breytingu að áfengi og tóbak hverfi úr visi- tölugrundvellinum. Sitthvað fleira er komið inn á i tilboði rikisins. Næsti samninga- fundur verður haldinn klukkan 2 á morgun og verða samningafund- irnir i Lögbergi,húsi lagadeildar Af hálfu BSRB er lögð áhersla á, að samningaviöræðum verði nú haldið áfram af fullum krafti. Fundu vatn við borun holu 9 Einskær heppni segir EINAR TJÖRVI Ennþá gerast ævintýr I Kröflu. Þegar verið var að bora holu 9 niður nú um helgina, kom borinn skyndilega niöur á mikla vatnsæð i berginu á aöeins 1260 m dýpi. Einar Tjörvi,yfirverkfræöing- ur við Kröflu, sagði i samtali við Þjóðviljann I gær, að menn teldu þetta einskæra heppni, þar sem áætlað hafði verið að bora holuna niöur i allt að 2000 m dýpi. Ekki er endanlega búið að taka ákvörðun um það hvað gert veröur næst, en borunum var hætt i bili, þegar vatnsæðin fannst. Einar taldi þó liklegt að bor-- inn yrði fluttur af holunni, og þess yrði beðið að hún hitnaði og færi að blása, en samkvæmt lauslegum mælingum er hita- stigiö i æöinni vel vinnsluhæft. Aflvélarnar i Kröflu eru ekki i gangi nú sem stendur enda vantar gufuna. Hola ll, sem tengd er vélinni, hefur verið dyntótt undanfarið og ekki skil- aö sama gufumagni og fyrstu dagana sem vélarnar voru reyndar. Ef þessi nýfundna vatnsæð i holu 9 er eins góð og menn gátu frekast gert sér vonir um, er þá von til þess aö gufa fáist fyrr en ella. Borinn verður þá liklega fluttur að holu 7, en eins og fram kom i Þjóðviljanum i gær eru komnar borkrónur til landsins, sem vinna eiga bæði á kalkstífi- unum og skemmdunum á fóöur- rörinu i þeirri holu. —-AI. ÁSKORUN FÉLAGS JÁRNIÐNAÐARMANNA: Fullkomna skipasmíðastöð í Reykjavík Þurrkví veröi byggð og aöstaöa sköpuö til viðgerða á öllum rslenskum skipum A fundi sinuin þann 18. þ.m. samþykkti stjórn Félags járniðn- aðarmanna áiyktun, sem send hefur verið borgarráði I Rvík. Alyktunin felur i sér áskorun Félags járniðnaöarmanna til borgaryfirvalda I Reykjavik, að þau gangist nú þegar fyrir því að I Reykjavik verið byggð fullkomin skipalyfta og þurrkvl ásamt skipasmiða- og skipaviðgerða- stöð, þar sem hægt verði að fram- kvæma allar viðgerðir á stærri fiskiskipum og öllum kaupskipum islenska skipastólsins. t bréfi Félags járniönaðar- manna til borgarráðs er bent á, aö i hinni nýju skýrslu til borgar- stjóra um atvinnumál I Reykjavik sé viðurkennt, hversú óviðunandi ástandið sé i skipasmiöaiönaðin- um i Reykjavik. Guðjón Jónsson, formaður Félags járniðnaðarmanna. Það eru nú liðin um 10 ár siöan Guðjón Jónsson, formaður Félags járniðnaðarmanna, flutti fyrst tillögu I borgarstjórn Reykjavikur um að byggð yrði þurrkvi og fullkomin skipasmiða- stöð i Reykjavik, en Guðjón sat fundi borgarstjórnar sem vara- borgarfulltrúi Alþýðubanda- lagsins. Siðan þá hafa ýmsir tekið þetta mál upp á vettvangi borgar- stjórnar, og á árum vinstri stjórnarinnar siðustu leitaði þá- verandi iðnaðarráðherra Magnús Kjartanssbn eftir samvinnu við borgaryfirvöld i Reykjavík um að hrinda slikum hugmyndum i framkvæmd, en nægilegur áhugi reyndist þá ekki vera fyrir hendi hjá borgarstjórnarmeirihlutan- um i Reykjavik fyrir þessu sfóra máli. Vonandi er að málið fái betri undirtektir nú i ljósi þeirrar skýrslu um ástand atvinnumála i höfuðborginni, sem hagfræðideild Framh^ld á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.