Þjóðviljinn - 24.08.1977, Blaðsíða 8
r
►
► 8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. ágúst 1977
LÁTRABJARGSFÖR ALÞÝÐUBANDALAGSINS Á VESTURLAIMDI
Um síðustu helgi fór Alþýöu-
i bandalagiö á Vesturlandi i feröa-
' lag á Baröaströnd. Var margt um
r manninn í ferðinni og þótti hdn
r heppnast með eindæmum vel,
r enda var ferðaveður eins og best
r verður á kosið, sól og bliða.
r Má með undrum telja hve vel
r hefur viðraö á sumarferðir
r Alþýðubandal agsins á þessu
r sumri, sem og i fyrra. Eru harð-
sviruðustu trúleysingjar I flokkn-
um farnir að tala um að ,,forsjón-
in” sé með flokknum þegar hann
fer i ferðalag.
En hápunktur þessarar ferðar
var þó ekki veðrið,heldur heim-
sóknin i Látrabjarg og að heyra
< frásögn Asgeirs Erlendssonar
r vitavarðar af bjarginu, flval-
í látrum og sögur tengdar bjargi og
r vi1<.
r Lagt var i ferðina um kaffileyt-
, ið á föstudag, 19. ágúst frá Akra-
r nesi með rútu frá Sæmundi. 1
r Borgarnesi voru Borgnesingar og
nágrannar þeirra teknir i hópinn,
en siðan var ekið norður Mýrar.
Við Heydalaveginn voru Snæ-
fellingar teknir uppi, var siðan
ekið norður Heydal og i Dali. t
Búðardal komu hinir siðustu til
leiks og hélt nú hópurinn fuilskip-
aður vestur Dalasýslu og vestur á
Barðaströnd.
A leiðinni skemmtu menn sér
við söng, kveðskap og frásagnir.
Leiðarlýsing mæddi mikiðá þeim
Skúla Alexanderssyni og Jenna
R., en ýmsir komu þeim þó tii
hjálpar.
I vesturförinni tókst einnig að
sameina gaman og gagn, þvi i
Gilsfirði voru hinir filefldu karl-
menn drifnir út til að hjálpa við
aö koma bil upp á götuna. Hafði
sá ekið ákaflega snyrtilega út af
veginum og sat fastur milli girð-
ingar og vegkants. Með liprum
akstri og stuðningi margra handa
tókst að koma honum aftur upp á
veginn.
Um eittleytið aðfararnótt
laugardags var komið i áfanga-
stað: Birkimel á Barðaströnd.
Þar er skóli og félagsheimili fyrir
Barðarstrandarhrepp og hafði
fengist leyfi til að hópurinn gisti i
félagsheimilinu.
Þar var einnig sundlaug ágæt,
þvi jarðhiti er á svæðinu. Var
laugin óspart notuð meðan fólkið
hélt sig á Birkimel. Stendur hún
niðri við sjávarkambinn og geta
þvi sundgestir hlaupið i'sjóinn og
kælt sig ef þeim þykir nóg um yl-
inn. Hinum sem þykirlaugin ekki
nógu heit býðstað setjast í baðkar
eitt er stendur skammt frá laug-
i inni. 1 karið fellur buna ein heit
■ úr röri er stendur beint út úr
, sjávarbakkanum.
, Birkimelur er á hinni raun-
verulegu Barðaströnd, sem er að-
einslitill hluti þess sem i daglegu
tali kallast Barðaströnd, þ.e. öll
Barðastrandarsýsla. Hin raun-
verulega Barðaströnd takmark-
ast af Siglunesi i vestri og
Krossanesi i austri, og er því að-
eins svæðið milli Rauðasands og
Vatnsfjarðar.
Þar er ríki Hákonar i Haga, er
allt átti og öllu réði á þessu svæði
meðan hann var og hét. Var hann
enda einn af stofnendum Sjálf-
stæðisflokksins og sá af stofnend-
unum er lengst lifði.
Ógleymanlcg stund. Asgeir Er-
lendsson vitavörður lýsir stað og
sögu á Látrabjargi.
Ilér er megniö af hópnum við vitann á Bjargtöngum. Asgeir vitavörður situr fyrir miðju I fremstu röð.
Unnar Þór er standandi þriðji frá vinstri.
Med fræðaþul
á efstu brún
En vinstri hreyfing á einnig
hauka ihorni á Barðaströnd. Enn
þeirra er skólastjórinn á Birki-
mel, Unnar Þór Böðvarsson.
Hafði svo um samist að auk þess
að útvega hópnum húsaskjól yrði
hann leiðsögumaður hópsins um
Barðaströnd. Til að tryggja sem
besta leiðsögn hafði Unnar tryggt
sér fulltingi Asgeirs Erlendsson-
ar, vitavarðar á Látrabjargi,
fróðasta og frásagnagleggsta
manns sem hægt er að hafa með
sér um þær slóðir.
Látrabjargsför
A laugardagsmorgun vöknuðu
ferðalangar i glaðasólskini, og er
sund hafði verið iðkaö um stund
var haldið af stað út að Látra-
bjargi.
Unnar tók við leiðsögn og lýsti
staðháttum auk þess sem hann
sagði sögur af mannlifi á Barða-
strönd, fyrr og nú.
Er komið variPatreksf jörðvar
ekið heim að Sauðlauksdal, þar
sem hinn þekkti klerkur Björn
Halldórsson hóf kartöflurækt, og
varð einna fyrstur manna til að
reyna að hefta sandfok.
Var hópnum sýnt það sem
eftir er af þeim fræga grjótgarði
Ranglát, en hann urðu sóknar-
börn Björns að hlaða endur-
gjaldslaust.
I Sauðlauksdal er nú i sumar i
fyrsta sinn starfrækt sumardval-
arheimili fyrir börn.
Er við komum á staðinn voru
þar 15 börn eftir, en megnið af
sumrinu hafa verið um 25 börn i
Sauðlauksdal, þangað komin af
öllum landshornum.
t Sauðlauksdal var kirkjan
skoðuð og kirkjugarðurinn, og
vakti athygli að þar virðast menn
hafa verið grafnir með höfuðið
ýmist í austur eða vestur.
Afram var haldið um örlygs-
höfn og yfir í Breiðuvik. Þar með
útsýn yfir vikina og út á hafið
snæddu menn nesti sitt. Siðan var
haldið áfram siðasta spölinn heim
að Hvallátrum.
Ásgeirs þáttur Erlends-
sonar.
Þar tók á móti okkur eldri mað-
ur, lágvaxinn og léttur á fæti og
kynnti sig sem Asgeir Erlends-
son, vitavörð.
Hóf hann þegar að segja okkur
af lifi og náttúru á Látrum, og
satt að segja, þá skortir orð að
lýsa þeim frásagnarmáta, og
þeirri orðkynngi er þá frásögn
alla einkenndi.
Var hans þáttur allur sem sýni-
kennsla i þeirri list er tslendingar
eru nú sem óðast að týna niður:
frásagnarlistinni.
Sagði hann okkur frá útrasði að
Brunnum i Látravik, en þar var
mikil verstöð fram á þessa öld,
frá sigi í Látrabjarg, til eggja og
fulgatekju. Hefur Asgeir i þeim
efnum ýmislegt reynt, og má þar
nefna þann þekkta atburð er sylla
hrundi undan mönnum i bjarginu.
Þrir féllu niður og létu lifið,
einn sat eftir og bjargaðist. Hinn
eini er Asgeir Erlendsson.
Svipurinn á Sigurði og Bjarnfríði er eins og einn úr hópnum hafi hrapaðfyrir björg.
Séð inn með Látrabjargi. Fjærst er Barð, sem Asgeir telur að Barðaströnd taki nafn af.
Miðvikudagur 24. ágúst 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Skemmtileg er frásögn Asgeirs
af Guðmundi góða Hólabiskupi og
bjargvigslum hans. Er
Guðmundur vigði Látrabjarg
skildi hann eftir hluta i bjarginu
og heitir þar Heiðnaberg. Sömu
sögu er að segja frá Drangey. As-
geir er þeirrar skoðunar að með
þessu hafi Guðmundur verið að
hugsa um fátæklingana þvi
Heiðnaberg i Látrabjargi er eins-
konar almenningur, þangað gátu
menn sótt björg i bú ef hungrið
svarf að. Að visu er bergið illsótt
á þessum stað, en þarna var þó
viss möguleiki.
Fái þessi skoðun staðist er
þarna komin ný og ákaflega
skemmtileg hlið á Guðmundi
góða.
Það vakti athygli okkar að við
vitann er fánastöng. Ásgeir
fræddi okkur á þvi að hún hefði
verið reist i tilefni að komu for-
seta Islands i vitann, sem reynd-
ar ekkert varð af, þvi timi forset-
ans leyfði það ekki.
Þarna er flaggað á hinum lög-
giltu fánadögum og einnig ef sér-
lega gott fólk kemur i heimsókn.
Ekki var flaggað þennan dag, og
kvaðst Asgeir ekki hafa vitað
hvort við kærðum okkur um slikt.
Er staðað var við uppi á bjarg-
inu sigldu skip framhjá á leið suð-
ur fyrr Breiðafjörð. Eitt þeirra
var Þórsnesið frá Stykkishólmi
og sendi okkur kveðju með skips-
flautu. Þeirri kveðju er hér með
svarað með þökk á prenti.
Er niður af Látrabjargi var
haldið (landmegin að sjálfsögðu)
sýndi Asgeir okkur aflrauna-
steina þá er útróðramenn á
Brunnum spreyttu sig á. Heitir
annar Brynjólfssteinn og er 260
kíló á þyngd. Ber hann nafn
Brynjólfs nokkurs er nefndur var
hinn sterki og bar stein þennan á
bakinu um 50 metra veg. Sterk-
ustu menn i okkar för gátu reist
hann upp á endann, en enginn
hafði hann á loft.
Annar steinn er þarna og heitir
Júdas. Ber hann það nafn sakir
þess að hann tolldi hvergi i
hleðslu, heldur skreið alltaf út.
Var hann notaður til að skera úr
um hvort hálfdrættingar gætu
orðið hlutgengir. Er hann 120 kíló
að þyngd. Hinir hraustustu úr
hópnum fengu lyft steininum, og
ein af kvenþjóð fékk lyft honum
svo vatnaði undir.
Að aflraunum loknum var sest
að kaffidrykkjuog hlýttá frásögn
Asgeirs af Spánarvigunum svo-
nefndu 1616, einu nöturlegasta
atriði islenskrar vigasögu, er
vestfirðingarallt frá Ströndum til
Látrabjargs mufkuðu niður
spánska skipsbrotsmenn.
Er sú frásögn var liðin sagði
Asgeir frá sjóslysinu við Látra-
bjarg árið 1947, og verður sú frá-
sögn öllum ógleymanleg.
Að svo búnu var ekið frá Látra-
vik og yfir til Keflavikur við hinn
enda bjargsins og fylgdi Asgeir
okkur þangað yfir og sagði .frá
staöháttum. Var hann siðan
kvaddur uppi á Látraheiði með
pomp og pragt og miklu þakklæti
og er seinast sást til hans skokk-
aði hann léttur á fæti móti sól
áleíðis heim að Hvallátrum.
Eftir nokkur ár hættir hann
störfum við vitann. Verður þar
skarð fyrir skildi.
Af Látraheiði var haldið til
baka sem leið liggur fyrir botn
Patreksf jarðar og til kauptúnsins
Patreksfjarðar, eða Vatneyrar
eins og það einnig heitir. Þar sá
Jenni R. um leiðsögn, enda inn-
fæddur Patreksfirðingur.
Eftir að menn höfðu nestað sig
á Patró var ekkert eftir að gera
nema koma sér aftur i náttstað-
inn á Birkimel, og lokaspölinn
hlýddu menn á frásagnir Unnars
af lifi og fristundagamni manna á
Barðaströnd.
Ragnheiður i Krossholti.
Ragnheiður, sambýliskona eða
ráðskona Unnars eins og hún
kallar sig, var þátttakandi i
Alþýðubandalagsferð Vestlend-
inga ifyrra.enda með lögheimili i
Borgarfirði.
Nú býr hún á Breiðamel, eða i
Krossholti sem er næsta hús við,
og hugsar um Unnar og soninn
Böðvar.
Yfir kvöldkaffi berst taliö að
hinni miklu „starfsreynslu”
Ragnheiðar, en hennar starfs-
reynsla er ekki i þvi fólgin á hfma
sem lengst i sama starfinu, held-
ur i þvi að reyna sem flest störf,
og er það auðvitað miklu merki-
legri starfsreynsla en hitt.
Má segja að hun hafi hafið feril
sinn 16 ára er hún fór til Noregs
og var þar einn vetur á lýðskóla.
Að þvi' loknu skrapp hún til Dan-
merkur og vann i nokkra mánuði
á lýðháskóla, svona til að kynnast
hinni hliðinni á slikum stofnun-
um.
Eftir þessa útreisu hélt hún sig
við ættjörðina i nokkur ár. Vann i
Borgarfirði á sumrin, við hó-
telþjónustu og við tómatana i
Reykholtsdalnum.
Hún brá sér um stund i HUs-
mæðraskóla en fann brátt að slik-
ar stofnanir voru ekki að hennar
skapi. Betur kunni hún við sig i
Bændaskólanum á Hólum og það-
an lauk hún búfræðiprófi. Stær-
ir sig lika af því að vera eini bú-
fræðingurinn á Barðaströnd.
Ragnheður er listræn og þvi
eðlilegt að hún kynnti sér nokkrar
starfsgreinar er að sliku lúta.
Hefur hun þvi starfað i leðuriðju
ogviðframleiðsluá gler-og postu-
linsvörum. Auk þess hefur hún að
sjálfsögðu starfað við megin list-
iðnað islendinga: fiskverkun. Það
hefur hún gert i frystihUsum i
Reykjavik og á Vestfjörðum.
En ekki var hUn of lengi um
kyrrt á fósturjörðinni. A vegum
utanrikisþjónustunnar dvaldist
hún hálft ár i Sviss, var þar
þjónustustúlka hjá sendiherra
vorum hjá Efta.
Ekki löngu siðar en hún var
heim komin úr þeirri för heim-
sótti hún Danaveldi á ný. Vann
hún þar sumarlangt við að fram-
kalla „slætsmyndir” hjá fyrir-
tækinu Kódak.
Var að hennar sögn ákaflega
skemmtilegt að bera saman hin
óliku ljósmyndamótif Islendinga
og Dana. Danskar „fjöiskyldu-
myndir”-voru gjarna af hjónun-
um berrössuðum i baði; islensku
fjölskyldumyndirnaraf öllu liðinu
skælbrosandi fyrir framan jóla-
tréð.
Svo vann hún i Liverpool. Ekki
borginni ensku, heldur á Lauga -
veginum, svona tilað fá nasasjón
af lifi verslunarstéttarinnar.
Meiri kynni hefur hún haft af
uppeldismálum. Hún hefur starf-
að á heimilinu á Skálatúni og
einnig á upptökuheimilinu i
Breiðuvik, rétt hjá Látrum.
Einnig tók Ragnheiður þátt i
námskeiðum I leiklist hjá Leik-
félagi Reykjavikur og stundaði
þess utan um skeið söngnám,
enda hefur hún mikinn áhuga á
leiklistogsöng. ErhUn þvijafnan
pottur og panna i félagslifi hvar
sem hún fer.
,,Ég kann vel við mig hér á
Barðaströnd, en ég sakna þó
margs úr Borgarfirðinum”, segir
Ragnheiður. „Ég hef enn lög-
heimili i Borgarfirði og flyt það
ekki hingað af þeirri einföldu
ástæðu að það er ekki sérlega vel
tekið á móti fólki hér um slóðir,
þ.e.a.s. af yfirvöldum.
Þrátt fyrir minn flæking og
andúð á HUsmæðraskólum held
ég að ég kunni bara best við mig í
húsmóðurstarfinu, rétt eins og ég
hef það nUna”.
Þórsmörk að ári.
Á sunnudag var haldið heim á
leið og enn i góðu veðri. Var viða
stansað og lifinu tekið með ró. A
leiðinni skemmtu menn sér við
kveðskap og ferðasögur. Einkum
hlógu mennmikið af frásögn Lilju
Ingimarsdóttur frá Akranesi af
ferðalagi frá Akranesi til Seyðis-
fjarðar á striðsárum. Væri sú
saga þess virði að skrá hana á
prent.
I Dölum fór Kristjón Sigurðsson
úr BUðardal að skemmta fólki
með sögum um Dali og Dala-
menn. Siðan fóru menn að hverfa
frá borði einn af öðrum, en áöur
en það yrði var tekin mikil
ákvörðun:
Næsta sumar fára Alþýðubanda-
lagsmenn á Vesturlandi i Þórs-
mörk, og verður það væntanlega
helgina 18-20. ágúst. Þá verða
kosningar búnar og væntanlega
verður sú ferð sigurhátið. Gleöi-
hátið verður hún, það er vist.
eng.
Tvær kempur af Snæfeilsnesi: Sigurjúnu Valdimarsdúttir með afkvæmin Sigriði Kristinu og Magnús
iljörleifur Magnússon og Björg- s. Kristjúnsson. Þau voru ákaflcga ánægð með feröina þútt Sigriður
vin Magnússon. „Ég fer sjálfsagt Væri lasin. Eiginmaðurinn lýsti þvi yfir að þau kæmu með næsta sumar
inæstu ferð ef ég verð ofar foldu,” þött þauyröu aðaka iangt til aðkomast isamflotið.
sagði Hjörleifur.
Brimrún lyftir steininum Júdasi
við mikinn fögnuð.
Asdis Magnúsdúttir, Jún Hjartarson og Gunnlaugur Bragason frá
Akranesi voru hin ánægðustu með ferðina, og verða væntanlega með i
Þúrsmörk aö ári.
Pálina Hjartardúttir frá Borgar-
nesi.
Undir lciðsögn Guðmundar Sigurðssonar var bilnum hjálpaö upp á
veginn.
Ólafur Guðmundsson litur upp frá
harðfiskbarningnum.
MYNDIR OG
EXTI: ENG
Þessir kappar heita Hallur Eyfjörð Þúrðarson, Jörgcn Hraín Magnús-
son og Kristján Magnússon. Þeir hafa allir eytt sumrinu á sumar-
dvalarheimilinu í Sauðlauksdal.