Þjóðviljinn - 24.08.1977, Síða 16
DJOÐVIUINN
Miövikudagur 24. ágúst 1977
Aöalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-2ománudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaöaprent 81348.
81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans 1 sima-
skrá.
Grafíð í tœttur samals evðibvlis í Kelduhverfi
í miðju Kelduhverfi, um niu til tíu kilómetra suð-
ur af bæjunum i miðri sveit, eru leifar gamals eyði-
býlis, sem kallað er Bláskógar. Fyrir fáeinum dög-
um tóku sig til þrír menn, Kári Þórarinsson á Lauf-
ási i Kelduneshreppi, Sigurður bróðir hans og sr.
Sigurvin Eliasson á Skinnastað, og grófu i tætturn-
ar.
— Við fundum þarna nokkra
kljásteina, sem notaöir hafa veriö
i vef, sagði Kári Þórarinsson,
þegar Þjóðviljinn náði tali af hon-
um simleiðis. — Engar sagnir eru
til um býli þetta og ég veit ekki til
þess að þess sé nokkursstaðar
getið i gömlum annálum eöa forn-
sögum. Vist er um það að byggð
þarna hefur lagst niður fyrir
nokkrum öldum, því aö i jáfða-
mati Arna Magnússonar frá 1712
er Bláskóga ekki getið, og er þar
þó getið allra þeirra eyðibýla,
sem þá var kunnugt um. Við höf-
um verið að giska á að tætturnar
þarna gætu verið frá timabilinu
1000-1200, en vitum auðvitað ekk-
ert um það með vissu. En búseta
hlýtur að hafa verið þarna nokkuð
lengi, þvi að við komum niður á
þykka gólfskán. Mjög litið ber
orðiðá rústunum og bendir það til
þess að þær séu gamlar. En þarna
eru talsverðar tættur, svo að ætla
má að þetta hafi verið allstór bær.
Þar að auki eru leifar af stórum
vallargörðum. Allt hefur þetta
verið hlaðið úr torfi.
Við grófum 85 sentimetra áður
en við komum niður á gólflag,
sagði Kári Þórarinsson ennfrem-
ur, og bendir það til þess ásamt
öðru að langt sé um liðið frá þvi
að bærinn fór úr byggð. Þarna
skammt frá liggur gömul þjóð-
braut úr Reykjahverfi til norð-
austurlandsins, kölluð Bláskóga-
vegur.
dþ
V öruskipta-
jöfnuður
óhagstæður
um miljarð
á mánuði
i frétt frá Hagstofunni kemur
fram aö vöruskiptajöfnuöur okk-
ar tslendinga var óhagstæöur um
7138 miijónir króna á timabilinu
frá áramótum til júliloka á þessu
ári. A sama tima i fyrra var vöru-
skiptajöfnuðurinn óhagsstæöur
um 2805 miijónir króna, en hafa
ber i huga að meðalgengi erlends
gjaldeyris i janúar — júli 1977 er
taliövera 9.3% hærra en þaö var i
sömu mánuöum i fyrra.
A þessum fyrstu sjö mánuðum
ársins var nú flutt inn fyrir 63.7
miljarða en út fyrir 56.6 miljarða.
1 fyrra nam útflutningurinn á
sama tima 40.2 miljörðum, en
innflutningurinn var þá rúmlega
43 miljarðar.
1 júlimánuði einum var vöru-
skiptajöfnuðurinn nú óhagstæður
um 650 miljónir króna, en i sama
mánuði i fyrra var hann hagstæö-
ur um kr. 1160 miljónir.
Árlegar
hópferðir
Iðju á
Akureyri
Nokkrir félagar úr Iðju á Akur-
eyri fóru i júli s.l. I ferðalag til
Sovétrikjanna, en þetta er i annaö
sinn sem hópur frá Iðju fer út fyr-
ir landsteinana.
t hitteðfyrra var farið til Fær-
eyja, en þetta er langmesta ferð
sem farin hefur verið til þessa á
vegum Iðju, eftir þvi sem Jón
Ingimarsson hjá Iðju sagði,mjög
vel heppnuð,og sagði Jón,að fyrir-
greiðsla og móttökur hefðu verið
til fyrirmyndar.
Þá fór einnig 40 manna hópur
frá Iðju i ferðalág um Suðurland i
júli, en efnt hefur verið til hóp-
ferða innanlands á vegum Iðju á
hverju ári siðan árið 1937. Farar-
stjóri i þessari ferð var Arný
Runólfsdóttir. Tók ferðin 5 daga
og voru menn mjög ánægðir með
hana.
þs
Athygli hefur verið vakin á þvi i Alþýðublaðinu
undanfarna daga, að eitt af þvi fjölmarga, sem
verður til þess að hækka vöruverö á íslandi er að i
þeim grundvelli, sem tollar, verslunarálagning og
sgluskattur reiknast út frá, þá er jafnan reiknað
með hærri farmgjöldum en þau eru i raun.
Jón Ingimarsson, formaöur Iöju.
Þetta byggist á þvi, að miðað er
við að farmgjöld séu greidd ,,að
fuilu”, en föst venja er að inn-
flytjendur fái a.m.k. 5% afslátt af
farmgjöldum hjá skipafélögunum
og dæmi munu vera um allt að
30% afslátt.
Afleiöing þessarar reiknings-
aðferðar er sú, að sé farmgjald
vörunnar t.d. reiknað með þess-
um hætti lOþús. kr. hærra en það
er i raun, þá verður söluverö vör-
unnar ekki aðeins þessum
10 þúsund krónum hærra til
neytandans heldur þrefaldast
upphæðin á leiðinni i gegnum
kerfiö, vegna þess að tollar,
álagning og söluskattur er allt
ar nýjungar verða á sýninguiíni,
m.a. bátar á tjörn, turnar til að
spranga i, gegnsætt sjónvarps-
tæki, kringlótt hjónarúm, tölva
sem gengur fyrir ljósi og margt
fleira. Tiskusýningar og
skemmtiatriði verða daglega. |
Á hverju kvöldi verður dregið ■
um litsjónvarpstæki og aö sýn- I
ingunni lokinni verður dregiö I
um fjölskylduferð til Flórida. |
þs •
___________________________-______!
reiknað ofan á i prósentum og
varan verður þannig 30 þús. krón-
um dýrari en ef rétt farmgjald
hefði verið lagt til grundvallar.
Þannig hækkar t.d. verð einnar
bifreiðar, sem komin á götuna
kostar rúmar 2 miljónir króna,um
kr. 15.461,- ef afslátturinn hefur
verið 5% en um kr. 92.771,- ef af-
slátturinn, sem veittur var undir
borðið.hefur verið 30%.
Sömu sögu er að segja um
hvaða aðra vörutegund sem er.
Þaðer full ástæða til, að krefj-
ast þess að vérðlagsyfirvöld
stöövi svona gróðabrall innflytj-
enda, og að verslunarálagning og
gjöld til rikisins leggist aðeins á
raunverulega greidd farmgjöld.
við Suðurlandsbrautina
Hér er verið að dæla
sandi i stærsta stól i
heimi, svo að hann
fjúki ekki út i buskann,
en hann er reistur við
Suðurlandsbraut i til-
efni sýningarinnar
„Heimilið ’77”. Þorkell
Guðmundsson, hús-
gagnaarkitekt teiknaði
þennan stól, sem er 7.50
m á hæð.
Samkvæmt upplýsingum frá
útgáfufyrirtæki Heimsmeta-
bókar Guinness er stærsti stóll i
heimi til þessa i Massachusetts i
Bandarikjunum og er hæð hans
6.27 m. Atti stóllinn, sem helg-
aður er sýningunni i Laugar-
dalshöll, að risa i gærkvöld , en
verið var að dæla 8 tonnum
af sandi i stólfæturna
i gær þegar eik tók
þessa mynd. Var gert ráð
fyrir aö nauðsynlegt yrði að
dælaenn meira magni af sandi i
stólinn, eða svo að sandurinn
næði vel upp i stólfæturna.
Sýningin Heimilið ’77 verður
opnuð fyrir almenning kl. 18.00
á föstudag og sýna þar 130 aðil-
ar fjölbreytta innlenda og er-
lenda framleiðslu. Fjöldamarg-
85 sentimetrar niður
á þykka gólfskán
Mörg er
matarhola
heildsala