Þjóðviljinn - 17.09.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 17.09.1977, Blaðsíða 3
Laugardagur 17. september 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Bygging skipaverkstödvar— brýnt hagsmunamál Rvíkur Sagt frá umrœðum um tillögu Alþýðubandalagsins í borgarstjórn A fundi borgarstjórnar s.l. fimmtudag mælti Sigurjón Pét- ursson fyrir tillögu Alþýöubanda- lagsins um rekstur og byggingu stórrar skipa verkstöö var i Reykjavik. 1 ræðu sinni rakti Sigurjón bar- áttuna fyrir byggingu slfkrar stöðvar, en hún er löng og marg- brotin og hefur Alþýðubandalag- ið og fulltrúar þess á þingi og i borgarstjórn löngum átt frum- kvæði að þvi að hreyfa málinu. Borgarstjórnarmeirihlutinn hefur hins vegar oftast drepið málinu á dreif, en þó látið kanna ýmsa möguleika á uppbyggingu og gerð slikrar stöðvar. Siðustu könnuninni, sem gerð var af sænskum sérfræðingi Helmerson að nafni, var hrundið af stað fyrir tilstuðlan þáverandi iðnaðarráðherra, Magnúsar Kjartanssonar, en siðan stjórnar- skipti uðru, hefur ekkert af mál- inu heyrst. Sigurjón sagði að bygging skipaverkstöðvar, sem jöfnum höndum annaðist viðgerðirog ný- smiðar stórra skipa, væri eitt brýnasta hagsmunamál borgar- búa. Benti Sigurjón i þessu sam- bandi á niðurstöður i atvinnu- málaskýrslu Reykjavikurborgar, en þar kemur greinilega fram að atvinna hér á höfuðborgarsvæð- inu er mjög einhæf og byggir að mestu á þjónustustarfsemi. Sigurjón sagði að ljóst væri að þjónustustarfsemi tæki ekki til sin fleiri starfskrafta i nánustu framtið ef ekki kæmi til stóraukin framleiðslustarfsemi i borginni, og þvi væri málið mikilvægt bæði atvinnulega og fjárhagslega séð. Hann rakti athuganir og kann- anirsem gerðar hafa verið i þess- um efnum, en þær eru allar á þann veg, að nauðsyn beri til að slikri stöð verði komið upp hér i höfuðborginni, og að bygging hennar sé svo fjárfrek að opin- berir aðilar, riki og borg, verði að taka þátt i stofnkostnaði i sam- einingu. Sigurjónsagðiað lokum að eftir atvinnuskýrsluna væri jafnvel borgarstjórnarmeirihlutanum ljóst að til einhverra raunhæfra aðgerða þyrfti að gripa, og þvi sagðist hann búast við þvi, að nú fengi mál þetta betri byr en oft áður og þvi fyllilega timabært að hreyfa þvi'. Hann sagði að tiliagan miðaði fyrst og fremst að þvi að hafist yrði nú handa um framkvæmdir i þessum efnum, þvi dýrmætur timi hefði farið til spillis siðan málinu var siðast hreyft fyrir al- vöru af hálfu þáverandi iðnaðar- ráðherra, Magnúsar Kjartans- sonar. 1 svari formanns hafnarstjórn- ar, ÓlafsB. Thors, kom fram að fullur vilji væri nú fyrir hendi hjá borgarstjórnarmeirihlutanum til þess að standa að framgangi málsins. Ólafur sagði að tveir möguleik- ar væru fyrir hendi, annars vegar að bæta aðstöðuna i vesturhöfn- inni, þar sem slippurinn er, og hins vegar hefði nýlega borist beiðni Stjörnustáls h.f. um lóð i Elliðaárvogi undir slika stoð. Sigurjón tók aftúr til máls, sagði að rekstur og hagkvæmni stórrar stöðvar af þessu tagi krefðist mikils og rúms athafna- svæðis, sem ekki væri unnt að veita i vesturhöfninni. Taldi hann tómt mál að tala um það sem mögulegar úrbætur. Hins vegar væri rétt að borgin tæki frumkvæði að stofnun félags rikis og borgar og þeirra fyrir- tækja eins og Stjörnustáls h.f., sem áhuga hefðu á framgangi þessa máls. Sigurjón lýsti sig að lokumsammála framkominni til- lögu formanns hafnarstjórnar um að tillagan yrði tekin til annarrar umræðu i borgarstjórn þegar við- ræður við Stjörnustál hefðu farið fram og borgarráð hefði fjallað um málið. — AI Uppeldisbraut stofnuð í Kvennaskólanum Kennararnir bída í Ármúlaskólanum Þorbjörn Broddason, borgar- fulltrúi, ræddi á fundi borgar- stjórnar i vikunni það vand- ræðaástand sem skapast hefur í Armúlaskóia eftir stofnun upp- eldisbrautar við Kvennaskól- ann, og gagnrýndi enn sam- þykkt fræðsluráðs á deildar- stofnuninni, sem hann sagði að spillti fyrir hagkvæmni i rekstri annarra skóla i borginni og bryti i bága við yfirlýsta stefnu fræðsluyfirvalda i málefnum framhaldsskóladeildanna. Þjóðviljinn ræddi i gær við Arnfinn Jónsson, yfirkennara I Armúlaskóla, og sagði hann að 69 nemendur hefðu upphaflega sótt um nám i uppeldisfræði á 1. ári, og að ákveðið hefði verið að skipta þeim i 3 bekkjardeildir með 23 nemendum i hverri. 15 af þessum nemendum hafa ekki skilað sér, sagði Arnfinnur, og þvi er nú svo komið að aðeins 18nemendur eru i hverri bekkj- ardeild, sem að sjálfsögðu veld- ur verri nýtingu á kennslukröft- um og kennsluhúsnæði en ella hefði verið. Mér er kunnugt um að a.m.k. 6 þessara nemenda hafa flutt sig i Kvennaskólann, 4 hættu við nám og aðrir hafa liklega dreifst um aðra skóla, sagði Arnfinnur. Við Armúlaskóla starfar sér- hæft kennaralið, sem árum saman hefur kennt uppeldis- fræði og heilsugæslu i Lindar- götuskólanum, og vakti það sannarlega furðu okkar hér, þegar samþykkt var uppeldis- braut i Kvennaskólanum. Við sjáum ekki rökin fyrir þessari ákvörðun, sagði Arnfinnur, þvi þörfin fyrir brautina er engin. Þegar ákvörðunin var tekin, höfðu fáir nemendur sótt um nám i uppeldisfræðum i Kvennaskólanum, en nú munu 21 hafa innritast i deildina. Þrátt fyrir þessa fjölgun, gæti Armúlaskólinn tekið við öllum þessum nemendum, sagði Arn- finnur, og yrðu þá 25 nemendur i hverjum bekk. Auk þess er braut i uppeldis- fræðum i Fjölbrautaskólanum i Breiðholti, en mér er ekki kunn- ugt um nýtingu hennar. _ AI Stjörnustál h.f. hefur sótt um lóð I Elliðaárvogi, á iðnaðarsvæðinu, sem merkt er á kortið við Klcppsvikina. • að gefa út fríhlutabréf að upphæð 100 milljónir kr. og tvöfalda á þann hátt hlutafjáreign núverandi hluthafa Þúgetur eignast hlut í banka! Samvinnubankinn hefur ákveðið: • að auka hlutafé bankans úr 200 millj. i 500 millj. kr. • að gefa öllum kost á að gerast hluthafar Hlutabréfin eru að nafnverði 10 þús., 50 þús., 100 þús. og 500 þús. krónur. Helmingur greiðist við áskrift en eftirstöðvarnar innan árs. Upplýsingar og áskriftalistar í aðalbankanum, útibúunum og í kaupfélögunum um land allt. Kynningarbæklingur sendur þeim, sem þess óska. VILT ÞÚ VERA MEÐ! Samvinnubankinn Bankastræti 7, Reykjavík sími 20700

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.