Þjóðviljinn - 17.09.1977, Page 9

Þjóðviljinn - 17.09.1977, Page 9
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. september 1977 Laugardagur 17. september 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Upp grasi grónu brekkur, skref fyrirskref, þung spor óvönu fólki. Nær færast tindar og skörð. AB baki Hornvik. Grasið er þungt og þykkt. Himinn framundan. Eng- inn mælir orð. Eitt hvað stórkost- legt er i vændum. tit með strönd- inni aö baki eru mörg hús i túni. Stórbýli — sem var fyrir mörgum árum. Horn i Hornvik. Golan blæs þar um gróinn varpann og enginn reykurliðast úr strompi. Sóleyjar og súra, en mannlif horfið. Brekkurnar veröa brattari og brattari og knén eru að þvi komin að neita að hlýða. En það er eitt- hvað stórkostlegt I vændum — jafnvel ógnþrungið. Tindarnir framundan búa yfir leyndardóm um. Efst i brekkunum er gróöur jarðar svo þéttur og flókinn aö erfitt er að átta sig á þúfum og grjóti sem býr undir og inni á milli. Hvað eftir annaö fellur maður viö og á erfitt með að reisa sig við aftur vegna þyngsla bak- pokans. Skyndilega stendur maöur á brúninni og það er eins og hljóð- múrinn sé rofinn. Dumbshaf stendur fyrir fótum manns svo langt sem augað eygir og sam- hljómur bjargfogls skellur á hlustum eins og striðsöskur. Brúnin er þverhöggvin og langt langtniður —svo langt sem sér — er æðisgengið þvarg fugla. Upphafinn og óttasleginn stendur maður á öxl risans og horfir niður fellingar á hrjúfum skrokk hans, ataðan i fuglaskit og blautum leir, horfir niður skorn- inga, hvöpp, þræðinga og syllur. Niður. ..Niður. Bakpokinn gleymist og allt gleymist. Hornbjarg er þverhnipt úr sjó með reglulegum blágrýtislögum og rauðum móbergsröndum inn á milli og mun viðast hvar vera 300-400 m á hæð en einstök fell og tindar nokkru hærri. Hæstur er Kálfatindur. Hann er rúmur hálf- ur kilómetri á hæð (534 m). Þreyttir ferðalangar leggjast 1 kafgresið og hvila sig á brún. Grátt skýjaþykkni Ifður hægt fyr- ir sjónum þeirra á himninum. Blágresið bærist i hægum sveip- um, og saman viö ýliö I stráum blandast tignarlegur pólýfónkór bjargsins með' einstökum skerandi sólóröddum. Myndir lföa fyrir sjónum. Vor.og fjöldi fólks er kominn á brún. Þaö er lif og fjör. Unga fólk- ið gantast og hleypur til og frá, gömlu karlarnir sitja á ráðstólum og skeggræða, en 12 gefa niður fygling. Piltur og stúlka hafa dregiö sig i hlé svo að litið ber á I lautu, en óðar er tekiö eftir þvi og nýorpin egg drifa I átt til þeirra. Hlátur um allt bjarg. Svo hljóðn- ar eins og ský dragi fyrir sólu. Guðmundur Márusson hefur hrapaö. Bergið sprakk i sundur ofan hans og hvarf með hann nið- ur. Lik hans stöövast á breiðu bergnefi og næst aldrei. Andi hans er enn á sveimi i miðju bjargi. Ferðalangur i ágúst 1977 hrekk- ur upp meö andfælum. Svo er staðið upp og haldið austur meö bjargi undir tindum að Almenn- ingsskarði og niður i Látravik. — GFr Myndir og texti Þverhöggviö gnapir bergift Þreyttum ferftalangi rennur I brjóst Ikafgresi á briin. Skyggnst til fogla vift Fjalir Kálfatindur og Eilffstindur en Haröviörisgjá nær. Gamla þjóögatan úr Gjánni I Almenningsskarö þrædd. I seiltngarfjarlægft frá rönd bjargsins bylgjaat blómin fyrir hægum vindi Klöngrast niftur f fjöru austast undir bjarginu t Löngufjöru undir Hornbjargi. Fjallrnar til hægrl. Setift á brún og séft austur Hornstrandir. 1 fjarska Geirólfsgnúpur og Smlftju vlkurbjarg ■ Skreiöst á fiöringsmaga og gægst fram af. Forvafti niftri. Stjórn Landssambands fsl. samvinnustarfsmanna: frá v. Pétur Kristjónsson, Kópavogi. Jóhann Sigurösson, Akureyri, Anna Kristmundsdóttir, Reykjavik, Siguröur Þórhallsson, formaöur, Ann Marie Ilansen, Garöabæ, Pálmi Gislason, Reykjavik, Björk Thomsen, Reykjavik, Reynir Ingason, Isafirði, Páll A. Magnússon, Akureyri og sitjandi Reynir Ingibjartsson, starfsmaöur L.Í.S. A myndina vantar tvo stjórnarmenn, þá Kristinn Jónsson, Búöardal, og Egil Jónasson, Höfn í Hornafiröi. Samvinnustarfsmenn um 10 þúsund Samið beint við Vinnumálasambandið? Landsþing samvinnustarfs- manna, sem var haldið á Bifröst i Borgarfirði, um siðustu helgi samþykkti m.a itarlega ályktun um stöðu samvinnustarfsmanna i stéttarfélögum. Þar er bent á að á launum hjá samvinnu- félögunum eru um það bil 10 þúsund einátaklingar eða rúm- lega 20% af öllum félagsmönnum innan Albvðusambands Islands. Gæti þvi ekki talist óeðlilegt að samtök samvinnustarfsmanna semdu beint við Vinnu- málaáamband samvinnu- félaganna um kaup og kjör. Þingið taldi að áfram þyrfti aö ræða og kanna hugsanlegar breytingar á stéttarlegri stöðu samvinnustarfsmanna og afskipti þeirra af verkalýðsmálum og efna sem fyrst til sérstakrar ráð- stefnu um þessi mál. Þá taldi þingið að staða samvinnustarfsmanna f stéttar- félögunum væri of veik miðað viö hinn mikla fjölda samvinnu- starfsmanna, og hvatti til þess að samvinnustarfsmenn létu sig meira skipta störf verkalýðs- félaganna, einkum varðandi sér- hagsmunamál einstakra vinnu- staða og starfshópa. 35 aöildarfélög í Landssambandi ísl. samvinnustarfsmanna: Félagsmenn 4 þúsund Frá landsþinginu, sem um 100 manns sóttu. Haukur Inglbergsson, skólastjóri. I pontu. Viö boröiö frá v. Ingólfur Ólafsson, ritari, og fundarstjórarnir Páll A. Magnússon og Jón Kristjánsson. Viö fremsta borðið sitja Eyfirðingar, en skagfirskir fulltrúar á þvf næsta. 3ja Iandsþing Landssambands Isl. samvinnustarfsmanna var haldiö aö Bifröst i Borgarfirfti helgina 10. og 11. september sl. A þingiö mættu um 70 fulltrúar frá nærri 30 aöildarfélögum lands- sambandsins auk gesta. Sigurður Þórhallsson formaður L.l.S. setti þingið og siðan fluttu ávörp þeir: Eysteinn Jónsson for- maður Sambandsins, Haukur Ingibergsson skólastjóri, Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri og Þóröur Magnússon fulltrúi starfs- manna i stjórn Sambandsins. A þinginu var lögö fram itarleg starfsskýrsla um starfsemi landssambandsins sl. tvö ár. Meöal helstu verkefna má nefna byggingu 12 nýrra orlofshúsa að Bifröst i Borgarfirði, en þar eru nú 24orlofshús i eigu félaga sam- vinnustarfsmanna, útgáfu starfs- mannablaðsins Hlyns, sem kom út sex sinnum á ári, ferðir til Norðurlanda, sem nærri 400 sam- vinnustarfsmenn tóku þátt i, starfrækslu sumarbúða að Bifröst fyrir börn samvinnustarfsmanna og margháttað fræðslu- og félags- starf i Hamragörðum, félags- heimili sam vinnumanna i Reykjavik, þar sem haldið var uppi öflugu leshringastarfi og náms- og umræðuhópar komu saman um mál eins og atvinnu- lýðræöi og stöðu samvinnustarfs- manna i stéttarfélögunum. 'h þinginu var ályktað um fjölmörg atriði. Hvatt var til þess að stofnuð verði samtök lifeyrisþega i lif- eyrissjóðum samvinnufélaganna, sem vinni að bættum kjörum lif- eyrisþega og láti sig m.a. skipta, atvinnu- félags- og húsnæðismál þeirra. Þá fagnaði þingið þeirri sam- þykkt siðasta aðalfundar Sam- bandsins, þar sem hvatt er til stofnunar og starfrækslu fram- leiöslufélaga aldraðra og frum- kvæði samvinnuhreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar. Þingið taldi eðlilegt og sjálfsagt að lifeyrisþegar i lifeyrissjóöum samvinnufélaganna haldi fullum réttindum án greiðslu félags- gjalda i starfsmannafélögunum. Landsþingið taldi eðlilegt aö lif- eyrissjóðir innan samvinnuhreyf- ingarinnar yrðu sameinaöir i einn sjóð — lifeyrissjóð samvinnu- starfsmanna, og starfsmenn hefðu jafna aðild að stjórn þess sjóös á móti samvinnuhreyfing- unni. Einnig væri æskilegt aö lif- eyrisþegar ættu aðild aö stjórn þessa sjóðs. Landsþingið fagnaöi auknum áhuga á reglubundnu námskeiöa- haldi fyrir starfsfólk samvinnu- hreyfingarinnar og skoraði á stjórn Sambandsins að veita Samvinnuskólanum það fjár- magn, sem þarf til aö hrinda þessari áætlun i framkvæmd. Þá lagöi þingið til aö stofnaðar verði sérstakar fræðslunefndir I hverju kaupfélagi, Sambandinu og öðrum samvinnufyrirtækjum, sem skipaðar verði fulltrúum starfsmanna, félagsmanna og stjórnenda. I Landssambandi islenskra samvinnustarfsmanna eru nú 35 aðildarfélög með hátt i 4 þúsund félagsmenn og á siðasta starfs- timabili gengu 9 ný félög I lands- sambandið. LIS var stofnað 1. og 2. septem- ber 1973 og gerðist þá strax aðili að samtökum samvinnustarfs- manna á Noröurlöndum. Starfs- maöur landssambandsins frá upphafi hefur verið Reynir Ingi- bjartsson og skrifstofan er 1 Hamragörðum — félagsheimili samvinnumanna að Hávallagötu 24 I Reykjavik.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.