Þjóðviljinn - 19.11.1977, Page 2

Þjóðviljinn - 19.11.1977, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. nóvember 1977 Af holdanautum og hordrógum Fyrir nokkrum árum risu hér alvarleg málaferli útaf hrossaketi og nautaketi. Tildrög málsins voru þau að maður nokkur hugðist gera sér dagamun og bauð sér og sín- um út að borða. Á matseðlinum var nautasteik og kom öllum saman um að gaman væri að snæða fáséðasta ket á íslandi til hátíðabrigða. Nautasteik var pöntuð og hún borin f ram eftir kúnstarinnar reglum og eftir hæfilega en dæmigerða íslenska bið. Varla var sá sem til veislunnar bauð farinn að tyggja f yrsta bitann af nautinu, þegar hann þóttist finna að hrossaket væri á boðstóium en ekki naut. Maðurinn kvartaði við þjóninn, þjónninn viðkokkinn kokkurinn við brytann og brytinn við hótelstjórann, sem sagði brytanum að segja kokknum að segja þjóninum að segja manninum að hér væri um misskilning að ræða. Maðurinn sagði þjóninum að hann væri síður en svo á móti kjötinu af þarfasta þjónin- um, það væri raunar á borðum heima hjá sér minnst einu sinni til tvisvar i viku og þess vegna þekkti hann bragðið af hófaljóni frá bragðinu af öðru keti og heimtaði leiðréttingu. Voru þessi skilaboð látin ganga framan- greinda boðleið, með sama árangri og fyrr. Hér var um misskilning að ræða sagði vertinn brytanum, brytinn kokkinum og kokkurinn þjóninum og þjónninn manninum. Maðurinn undi ekki þessum málalokum pakkaði ketinu inní servéttu og fór í mál við veitingahúsið fyrir að selja hrossaket fyrir nautaket. Málið fór síðan rétta boðleið gegn- um réttarkerf i landsmanna og endaði í Hæsta- rétti þar sem maðurinn tapaði málinu. Höfðu þá dómstólarnir tekið umræddan kjötbita í sina vörslu og fengið hann yfirdýralækni þjóðarinnar, en hann hafði látið flytja kjöt- bitann á virtustu vísindastofnun landsmanna að Keldum til að rannsaka hvort hér væri um að ræða nautaket eða hrossaket. Hin víðfræga vísindastofnun úrskurðaði að með þeim tækjabúnaði, sem hún hefði yf ir að ráða væri ógerningur að þekkja hrossaket frá nautaketi, nema með þvi að fylgjast með bitanum allt frá því að skepnan væri felld. Gaf síðan stofnunin út yf irlýsingu þessa efnis og varð sú yfirlýsing þess valdandi að fram- angreindur maður tapaði framangreindu máli qegn framanqreindu veitingahúsi. Síðan þessi málalok voru gerið heyrinkunn er bara brosað góðlátlega þegar gestum á fín- ustu resturöntum borgarinnar dettur í hug að vekja máls á því að þeir séu að reyna að hest- húsa húðarjálk fyrir holdanaut. Holdanautarækt er því sem næst óþekkt fyrirbrigði hérlendis. Þó er það staðreynd að alltaf er nóg framboð af nautaketi í öllum kjötverslunum landsmanna og getur ekki far- ið hjá því að fólk, sem þarf að versla við kjöt- búðir fari að hugleiða hvaðan allt þetta yfir- náttúrlega nautaket sé eiginlega komið, en það er mun dýrara en annað ket. Þvi er ekki að leyna að talsverð mjólk er framleidd í landinu og mjólkurafurðir eru framleiddar í þeim mæli að smjör og ostaf jöll risa með jarðfræðilegum hraða margföld- uðum með miljón. Mjólkin er framleidd úr kúm, en kýrnar eru drepnar þegar þær eru komnar á grafarbakkann og búnar að missa nytina. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að megnið af þvi nautaketi, sem er á boðstól- um hér í kjötbúðum sé af gömlum beljum ef ekki hrossum og þess vegna hefur nautaket raunar verið bannað á mínu heimili. En það er ekki bara nautaket, sem maður þarf að óttast að sésvikin landbúnaðarneysluvara. ( slátur- tíðinni er kindaket flokkað í þrjá flokka. í verslunum er vonlaust að fá nema fyrsta flokk. Því er haldið fram að allur annar og þriðji flokkur fari í vinnslu. Það kann að vera, en kunnugir halda þvi samt f ram að megnið af því keti sem fari í vinnslu sé afgangur frá fyrra árs framleiðslu. Og nú vaknar sú spurn- ing: Hvernig veit sá sem kaupir kjöt í kjötbúð, hvort hann er að kaupa nýtt kjöt eða gamalt, fyrsta flokk eða þriðja, holdanaut eða hordróg. Mikið af landbúnaðarafurðum virðist ekki þurfa að hafa á sér gæðategundar-né aldurs- stimpil. Til dæmis gætu eggin verið tiu ára gömul, ef þau á annað borð fengjust i búðum, sviðin á fermingaraldri, pulsur, bjúgu,förs og kássur unnið úr gömlu og verulega komið til ára sinna í endanlegri mynd og tífus í mæonesinu. Fyrir þessu er neytandinn varnarlaus, því hvernig á almenningur að þekkja holdanaut frá hesti þegar ein virtasta vísindastofnun þjóðarinnar getur ekki fundið muninn á þessum dýrum. Nei það er vissast fyrir okkur neytendur að gera ekki of miklar kröf ur um gæði þegar landbúnaðaraf urðir eru annars vegar. Málið hlýtur að vera örugglega i höfn fyrst það kostar á ári hverju andvirði einnar Kröflu í styrki af opinberu fé að halda framleiðslunni gangandi. Hver man raunar ekki visuna, sem yfir- þjónninn á fínasta veitingastað borgarinnar varpaði fram þegar hann var spurður hverju hann mælti með á matseðlinum: „Steik ég ofar öllu set. Einn er réttur besti, nefnilega nautaket af nitján vetra hesti." Flosi. Haustvaka í Þinghól Siguröur Þórarinsson. Norræna félagið i Kópavogi efnir til haustvöku sunnudaginn 20. nóvember næstkomandi kl. 20.30 að Þinghól, Hamraborg 11. Bergljót Finnsdóttir, annar verölaunahafi i ritgeröa- samkeppni félagsins um vinabæi Kópavogs, segir frá dvöl sinni i Norrköping i Sviþjóö og nágrenni i sumar, en þangað var henni boö- iö af Norrænu félögunum þar og i Kópavogi. Hrönn Hafliðadóttir syngur ein- söng við undirleik Hafliða Jóns- sonar. Siguröur bórarinsson seg- ir frá Mývatnseldum hinum nýju og sýnir litskyggnur. Að lokum les Hjálmar Ólafsson nokkur ljóð úr Smalavisum Þorsteins Valdi- marssonar. Allir eru velkomnir. Nýtt frímerki í tilefni gigtarárs Póst og Simamálastjórnin hef- ur gefiö út sérstakt frimerki til- einkaö alþjóölegu gigtarári 1977. Á frimerkinu, sem er marglitt eru sýndar gigtlækningar i heitri laug, en þær lækningaaöferöir hafa reynst árangursrikastar hérlendis. Verögildi frimerkisins er 90 krónur, teiknari er Friörika Geirsdóttir og útgáfudagur 16. nóvember. bað er Alþjóöasamband gigtar- félaga, International League Against Rheumatism (ILAR) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) sem hafa ákveðiö að til- einka árið 1977 baréttunni viö gigtarsjúkdóma og hafa nefnt þaö Alþjóðlegt gigtarár. Meö þvi viija þessar stofnanir vekja athygli á gigtarsjúkdóm- um, efla rannsóknir á þeim og stuðla að bættri meðferð gigtar- sjúkra en gigtarsjúkdómar eru algengasta orsök fötlunar. Frimerki i tilefni alþjóðlegs gigtarárs hafa verið gefin út viöa um heim. Meistari Jakob í sídasta sinn n Brúöuleikhúsiö sýnir Meistara Jakob og fleiri þætti i siöasta sinn á morgun, sunnudaginn 20., kl. 15 aö Fríkirkjuvegi 11. Miöar eru seldir viö innganginn og I sima 15937 frá ki. 13 á sunnudaginn. Jólasýningar Brúðuleikhússins hefjast næsta sunnudag og veröur þá sýnt leikritið Jólasveinar einn og átta. A þvi veröa ekki marga sýningar fyrir jólin þvi Brúðu- leikhúsinu hefur verið boðið með það stykki til útlanda. Stofnuð hafa verið Samtök grásleppuhrogna framleidenda Laugardaginn 12. nóv. sl. voru stofnuð i Reykjavik samtök grá- sleppuhrognaframleiðenda hér á landi. Samkvæmt lögum samtak- anna staffa þau sem almennt hagsmunafélag framleiðenda grásleppuhrogna og skulu gæta réttar félagsmanna sinna i hvi- vetna. Skal félagiö beita sér fyrir öflun nýrra markaða, vinna að vöruvöndun og stuöla að hverju þvi máli, sem veröa má fram- leiðslu félagsmanna til framfara og eflingar. Félagið annast eða semur um sölu á framleiðslu félagsmanna, þeirra er þess óska. Þá mun fé- lagið útvega viðskiptamönnum sinum umbúðir, salt og aðfár nauðsynjar til framleiðslunnar. Ennfremur mun félagið koma fram sem fulltrúi félagsmanna við verðákvarðanir. Félagar geta orðið allir fram- leiðendur grásleppuhrogna og út- gerðarmenn, sem gera út á grá- sleppu, enda ráöi hver þessara aðila yfir a.m.k. 10 tunnum af grásleppuhrognum. Þeir félagsmenn, sem öska eftír sölu gegnum félagið, skulu tilkynna það magn, sem þeir vilja selja, til félagsstjórnar fyrir 15. febr. ór hvert. Stjór. iélagsins skipa: Björn Guðjónssor,, Reykjavik, Guð- brandur Kristvinsson, Ströndum, Guðmundur Hólmgeirsson, Húsa- vik, Henning Henriksen, Siglu- firði, Karl Ágústsson, Raufar- höfn, Rögnvaldur Einarsson, Akranesi og Sigursteinn HUberts- son, Hafnarfirði. Varastjórn: Helgi Kristjánsson, Reykjavik, Hafsteinn Guðmundsson, Flatey, Auðunn Benediktsson, Kópaskeri, Skarphéðinn Arnason, Akranesi, Jón Marteinsson, Vogum, Ragnar Hermannsson, Husavik,og Birgir Guðjónsson, Kópavogi. A stofnfundinum var gerð eftir- farandi samþykkt með samhljóöa atkvæðum: „Stofnfundur samtaka grá- sleppuhrognaframieiðenda hald- inn í Reykjavik 12. nóv. 1977 mót- mælir harðlega þeirri sérstöku skattlagningu, sem framleiðend- ur grásleppuhrogna hafa orðið að búa við undanfarin 5 ár með töku 6% útflutningsskatts af fram- leiðslu þeirrar sem iátinn hefur verið ranna að mestu til óskyldra aðila i þjóðfélaginmú. bess er krafist, að skattlagning þessi verði þegar I stað lögð niður i lok gildistimans, sem upphaf- lega var ákveðinn i árslok 1977. Þá er skorað á hlutaöeigandi stjórnvöld, að gera nú þegar sundurliöaða grein fyrir ráöstöf- un þeirra næstum 150 milj. kr., sem framleiöendur grásleppu- hrogna hafa greitt I Þróunarsjóö lagmetisiðnaðarins undanfarin fimm ár, og jafnframt bent á þaö sanngirnismál, að réttum eigend- um þessa f jár verði skilaö þvi til baka.”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.