Þjóðviljinn - 19.11.1977, Síða 9

Þjóðviljinn - 19.11.1977, Síða 9
li í yinnslu íangs aö orkukostna&ur sé um 1/3 i Hverageröi miöaö viö þaö sem annars staöar gerist um þurrk- un á saltfiski og jarövarma nýtur ekki. t yfirlitstöflu um ný fram- leiðslutækifæri, töflu 8, er gerö grein fyrir helstu hagrænum stæröum varðandiþætti 1,2,4 og 5, hér að ofan, en þáttur 3 er enn svo Htt mótaöur að um hann veröur ekki gerö áætlun aö svo stöddu. Stofnkostnadur á tólfta mi lj: ai *ð Hér fer á eftir tafla, þar sem samanburöur er geröur á ein- kennistölum framieiðslutækifæranna á Arborgarsvæöinu. Til skýringar akal tekiö fram, aö þegar talaö er um mannár mun vera átt við það, sem einn maöur vinnur á einu ári. Og þaö kem- ur i ljós að stofnkostnaöur þeirra verksmiðja, sem þarf til að konta allri framleiöslunni af staö, er rúmlega ellefu miljaröar, eins og sést I stofnkostnaðardálki skýrslunnar. Já s u , M s á C j* u tú u SXÍ c c 5 ui o c *0 £3 ‘S « 11 •cö u ^ 12 e C 1 § a s s U 53 > 03 £ l.lGræðlingarækt 45 715 360 15,9 1,99 1.2 Grænmetisframl. 20 400 200 20,0 2,00 1.3Ýmis ylrækt 120 2000 1100 16,7 1,82 2. Steinefnaiönaður 2.1 Þilplötugerð 28 250 250 8,9 0,89 2.2 Steinefnablöndur 7 350 1200 50,0 0,29 2.3Gervitimbur 6 180 275 30,0 0,65 2.4 Byggingareiningar 5 200 200 40,0 1,00 2.5Steinullarframl. 120 1800 600 15,0 3,00 2.6Basaltbræðsla 170 2800 1200 16,5 2,33 3. Vmis efnaiðnaður 3.lSykurhreinsun 60 1500 1100 25,0 1,36 3.2Fiskafóður 2 10 32 5,0 0,32 4. Fiskrækt * 4.1BleikjueldiI 3 150 100 50,0 1,5 4.2BleikjueldiII 5 600 300 120,0 2,0 5. Sjávarútvegsiðnaður S.lSaltfiskþurrkun 12 150 310 12,5 0,48 5.2 Smáfisksþurrkun 12 150 250 12,5 0,60 5.3 Slógkjarna verksm. 9 120 40 13.3 1.71 Alls 624 11175 7577 17,9 1,47 Laugardagur 19. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 É fflV 1 ■::: ■ 1 ' * § I 1 £ ■ 1 Ylrækt á hvergi meiri möguleika en á Arborgarsvæöinu. Ylrækt á erfitt uppdráttar í Árborgarskýrslu Vil- hjálms Lúðvíkssonar er að sjálfsögðu ýtarlegur kafli um ylrækt á svæðinu, enda mun ekki annarsstaðar á íslandi vera meira um yl- rækt en á Suðurlandsundir- lendi, né heldur munu önn- ur landsvæði bjóða uppá meiri vaxtarmöguleika þessarar atvinnugreinar. Vilhjálmur telur að ylrækt sé sú framleiðslugrein, sem hvað áhugaverðust er á Arborgar- svæðinu með hliðsjón af öllum að- stæöum. Aðalkost ylræktar hér á landi telur hann vera lágan orku- kostnað tengdan notkun jarö- varma og að hluta raforku. Siöan rekur hann ýmislegt varðandi möguleika ylræktar, en segir sið- an að hér á landi séu gróðurhús að flatarmáli 14 hektarar, en það svarar til 0,64 ferm. á hvern ibúa á móti 550 hekturum i Danmörku sem svari til 1 ferm. á hvern ibúa og 8 þúsund hektara i Hollandi sem svarar til 5,5 ferm. á hvern ibúa. Hann segir neyslu græn- metis afar litla hér á landi miðað við venjur á nágrannalöndunum og að ylrækt hér á landi sé litt þróuð, rekin i smáum stil með lit- illi hagkvæmni. 1 Sviþjóð neyta menn 3,20 kg. á mann af gúrkum á móti 1,13 kg. á tslandi og 5,60 kg. af tómötum á móti 1,63 kg. á tslandi. Segir Vilhjálmur skýr- inguna á þessu að hluta til i neysluvenjum og að hluta i verð- lagi. Og sem dæmi nefnir hann að 1974 hafi smásöluverð á tómötum i Noregi verið 86,27 kr. og i Hol- landi 78 kr. en á tslandi 302,76 kr. Og loks segir orðrétt: segir Þorvaldur Þorsteinsson framkvœmda- stjóri Sölu- félags Garö- yrkjumanna „Þess má reyndar geta, að verulegu magni gróðurhúsaaf- urða (hér á landi) er hent vegna offramleiðslu árlega, eða selt til vinnslu á mjög lágu verði, en hinsvegar eru neytendur ekki látnir njóta iækkandi verðs til að auka grænmetisneyslu”. Það er að visu rétt að nokkru magni af gróðurhúsaframleiðslu hefur orðið að henda eða selja hana á afar lágu verði til vinnslu, en það er aftur á móti ekki rétt, hjá Vilhjálmi að við höfum ekki lækkað verð á grænmeti til að reynaaðörvaneyslu.en það hefur bara ekki dugað til, sagði Þor- valdur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Sölufélags garð- yrkjumanna, er við ræddum vio hann um sumt af þvi sem kemur fram i skýrslunni. Þorvaldur sagði að Sölufélagið hefði hvað eftir annað lækkað verðá grænmeti, langt niður fyrir kostnaðarverð til að reyna að auka neyslu þess og þar með sölu, en slikt hefði skilað afar litlum árangri, kannski 8 til 10% aukn- ingu. Hann sagði að þrátt fyrir itrekaðar tilraunir hefði þessi að- ferð ekki borið meiri árangur. Einn aðal-vanda ylræktar-' bænda sagði Þorvaldur vera hinn skamma birtutima hér á landi. Vegna þessa skamma birtutima væri það svo, að á sumrin væri markaðurinn yfirfullur, en svo vantaði grænmeti yfir veturinn. 1 skýrslu Vilhjálms er minnst á möguleika á gervilýsingu, sem gerði það mögulegt að rækta grænmeti allt árið um kring. Vissulega er það rétt, sagði Þorvaldur, en slik gervilýsing er svo dýr að algerlega óhugsandi er fyrir ylræktarbændur að nota hana. Rafmagn til slikrar lýsing- ar er svo dýrt að slikt er ekki framkvæmanlegt. Og það er fleira, sem gerir samanburð á yl- rækt hér á landi og i nágranna- löndunum óhagstæðan okkur, sagði Þorvaldur. Allt til ylræktar þarf að flytja inn, nema orkuna. og það eru háir tollar á vörum til ylræktar. Þá er við- hald gróðurhúsa hér hærra en i nokkru öðru landi, bæði vegna þess hve innflutt efni i þau eru dýr og ekki síður vegna þess hve veð- ur hér eru mikil, veður sem valda stór-tjóni á gróðurhúsum árlega. Að lokum var Þorvaldur spurð- ur að þvi hvert væri verð þeirra ylræktarafuröa, sem seldar eru til vinnslu, og sagði hann að það væri um það bil 5 til 6% af meðal- verði ylræktarafurða. Þorvaldur sagðist að visu ekki hafa séð skýrslu Vilhjálms enn þá, en það væri óskaplega mikið verk að koma málefnum ylræktarbænda i viðunandi horf, Samt sagðist hann vis* um að slikt væri hægt eí allir legðust á eitt um að vinna að þvi máli. —S.dór ria Framkvæmdastofnunar ríkisins Siðari hluti

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.