Þjóðviljinn - 19.11.1977, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 19.11.1977, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. nóvember 1977 |i| Bókasafns- " fræðingur Staða bókasafnsfræðings við Borgarbóka- safn Reykjavikur er laus til umsóknar. Launakjör fara eftir samningum við Starfsmannafélag Reykjavikurborgar. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist borgarbókaverði fyrir 15. des. n.k. Borgarbókasafn Reykjavikur. Rafmagnsveitur rikisins rikisins óska að ráða vélgæslumann að rafstöðinni á Seyðisfirði. Nánari upplýsingar gefur starfsmanna- stjóri i Reykjavik eða rafveitustjóri Austurlandsveitu, Egilsstöðum. Ilafmagnsveitur rikisins Laugavegi 116 Rvik. RÍKISSPÍTALARNIR iausar stöður RANNSÓKNASTOFA HÁSKÓLANS Staða SÉRFRÆDINGS i sýklafræði á Rannsóknastofu Háskólans er laus til umsóknar. Umsóknir er greini frá aldri, námsferli og fyrri störfum ber að senda stjórnarnefnd rikis- spitalanna Eiriksgötu 5 fyrir 20. desember n.k. KLEPPSPÍTALI IIJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast til starfa á deild 9. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast til starfa á ýmsar deildir. Barnagæsla er á staðnum og hús- næði er i boði fyrir hjúkrunar- fræðing i fullu starfi. Upplýsingar veitir hjúkrunarfor- stjóri i sima 38160. LANDSPÍTALI LÆKNARITARI óskast nú þegar til starfa á lyflækningadeild. Stúdents- próf eða hliðstæð menntun nauðsyn- leg ásamt með góðri réttritunar- kunnáttu og leikni i vélritun. Upplýsingar veitir læknafulltrúi deildarinnar, simi 29000. Reykjavik, 18. nóvember 1977. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000 200 tonn í þremur köstum Fyrir skömmu haföi Landpóstur tal af frétta- ritara Þjóöviljans á Tálknafirði/ Höskuldi Davíðssyni og sagöist honum svo frá: Aflabrögö — Aflabrögð hafa verið nokk- uð góð hér undanfarið. Héðan róa tveir bátar, Tungufell og Tálknfirðingur, og hafa þeir afl- að þetta 4-7 tonn i róöri. Tungufell fór á sild þann 25. okt. og fékk skammt sinn, 200 tonn i þremur köstum og raunar 18 tonnum betur. Þann 6. nóv. lagði Tálknfirðingur af stað og mættust bátarnir i Reykjavik og höfðu skipti á búnaði, Og þann 10. nóv. var Tálknfirðingur á landleið með 120-130 tonn af sild. Byggingaf ramkvæmdir Byggingaframkvæmdir hafa verið með mesta móti hér i sumar. Hafa verið byggð hér tvö fjölbýlishús og eru 5 ibúðir i hvoru og hafin er bygging sex einbýlishúsa. Einnig er hafin bygging nýs kaupfélagshúss hér á staönum og var sannarlega ekki vanþörf á þvi þar sem kaupfélagið var fyrir löngu búið að sprengja ut- an af sér gamla húsnæðið oj> má segja, að versla hafi þurft ut um allt pláss með þær vörur, sem á boðstólum eru, enda var gamla verslunarhúsið ekki nema um 60 ferm. Nýja húsið er hinsvegar um 450 ferm. og verður mikil breyting á allri aðstöðu fyrir Ólafsvik Frá Ólafsvík: Síld og sjón- leikur — Reknetabátarnir okkar Ólafsvikinga eru nú komnir heim af sildarvertiðinni, sagði fréttaritari Þjóðviljans í Ólafs- vik, Kristján Helgason, i viðtali við Landpást sl. miðvikudag. Afli þeirra var sem hér segir: Steinunn, SH 167, 5.170 tunnur. Matthildur, SH 67, 5.140 tunnur. Halldór Jónsson, SH 217, 4.480 tunnur. Jón Jónsson, SH 187, 3.319 tunnur. Ólafur Bjarnason, SH 137, 3.100 tunnur. Jökull, SH 77, 1.500 tunnur. Svo var einn nótabátur héðan að sildveiðum Gunnar Bjarnason og aflaði hann i kvótann, 200 tonn. Alls hafa þvi reknetabátarnir veitt 22.709 tunnur og að auki er svo afli nótabátsins. A timabilinu frá 16/8-8/9 var 255 tonnum og 120 kg. af sild landað i Ólafsvik. Veiddist hún i reknet undir Jökli. Skuttogarinn, Lárus Sveins- L.............. son, hóf veiðar um viku af september. Hefur hann aflað, I þremur veiðiferðum 350 tonn, 150 kg. Frá áramótum til 15. nóv. hafa 10.680 tonn af bolfiski bor- ist á land i Ólafsvik. Afli hefur verið sæmilegur hjá linubátunum að undanförnu. Sjö bátar róa með linu og hefur afl- inn verið þetta frá 4-6 lestir. Fljótlega upp úr næstu helgi munu 4 eða 5 sildarbátar byrja á linuveiðum. starfslið félagsins þegar það kemst i gagnið, sem vonandi verður fyrir jól. Félagslíf. Félagslif hefur verið nokkuð gott hér á Tálknafirði undanfar- ið. Má þar nefna nýlegt hjóna- ball, sem haldið var á dögunum. Samkórinn hefur einnig staðið fyrir félagsvistum þrjá sunnu- daga. Mæting var þar mjög góð og var spilað á 18 borðum fyrstu tvö kvöldin. Það var á meðan sjónvarpið var dautt. En i sein- asta skiptið var verkfallið leyst og þá var spilað á 10 borðum. Höfðu menn á orði, að réttast væri að sjónvarpa aöeins aðra hvora viku og nota aurana sem spöruðust til þess að afstýra næsta verkfalli opinberra. _ hd/mhg Leikfélag ólafsvikur frum- sýnir gamanleikinn Frænku Charleys eftir Branton Thomas á fimmtudagskvöld. önnur sýn- ing verður svo á föstudags- kvöldið. Leikstjóri er Hörður Torfason. Fyrirhugað er að fara með leikritið til sýninga i næstu nágrannabyggðir. Formaöur Leikfélagsins er Gréta Jóhannesdóttir, gjaldkeri Sjöfn Aðalsteinsdóttir og ritari Kristján Helgason. kh/mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.