Þjóðviljinn - 22.12.1977, Síða 17
Fimmtudagur 22. desember 1977; ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
Leikritid í kvöld:
útvarp
J ólaævintýri
eftir Finn Methling
Herdis Þorvaldsdóttir
I kvöld kl. 20.25 veröur flutt
leikritiö „Jólaævintýri” eftir
danska rithöfundinn Finn Methl-
ing. Hannes Sigfiisson geröi
þýöinguna, en leikstjóri er
Klemenz Jónsson. Meö helstu
hlutverk fara þau Guöbjörg
Þorbjarnardóttir, Þorsteinn ö.
Stephensen, Lárus Pálsson, Jón
Aöils, Herdis Þorvaldsdóttir og
Jón Sigurbjörnsson. Leikurinn
var áður fluttur á jólum 1960.
Hann er rösklega klukku-
stundar langur.
Þetta leikrit er byggt á jóla-
Gubbjörg Þorbjarnardóttir
guöspjallinu og segir frá þvi,
þegar vitringarnir þrir fylgja
stjörnunni aö vöggu Jesúbarns-
ins. Verkið er ljóörænt, eins og
svo margt annað eftir Methling,
einlægt og umvafiö heiörikju.
Finn Mehling er fæddur á.
?riðriksbergiáriö 1917. Hann tók
stúdentspróf áriö 1936 og próf I
bókmenntasögu 1941. Fyrsta út-
varpsleikrit hans, „Begær og
bröde” var flutt 1944, en siöustu
25 árin, eða þar um bil, hefur
hann jöfnum höndum skrifaö
sviösverk, útvarpsleikrit og
Lárus Pálsson
handrit fyrir sjónvarp og kvik-
myndir. Eitt frægasta leikrit
hans er „Feröin til skugganna
grænu”, sem Þjóðleikhúsiö
sýndi áriö 1966. Þá hefur Methl-
ing fengist talsvert viö leikrita-
þýöingar, m.a. á klassiskum
verkum „Jólaævintýri”, Et
Julespil, var frumflutt i Dan-
mörku árið 1951.
útvarpið hefur, auk „Jóla-
ævintýris”, flutt tvö leikrit eftir
Methling, „Feröina til skugg-
anna grænu” 1966 og „Ef til
vill” 1970.
Burt með hvaða
bákn og hvernig?
Friðrik Sophusson lögffæðingur
svarar því í kvöld kl. 22.50
Helgi H. Jónsson stjórnar
þættinum „Spurt I þaula” i
kvöld kl. 22.50. Honum til aö-
stoöar verður annar fréttamaö-
ur hjá útvarpinu, Vilhelm G
Kristinsson. Þátturinn er allt aö
klukkutima langur.
1 kvöld verða spurningarnar
látnar dynja á Friöriki
Sophussyni lögfræðingi, framr
kvæmdastjóra Stjórnunarfélags
Islands. Friðrik var formaður
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna er þeir hófu á loft slag-
orðið „Báknið burt”, og sagði
Helgi H. Jónsson, að i þættinum
yrði farið i saumana á þessu
vigorði og þá spurt m.a. hvað
ætti aö fara burt og hvernig ætti
að framkvæma þessa hluti.
Inn i þáttinn verður skotið
simtölum frá fulltrúum ungra
manna úr öðrum stjórnmála-
flokkum. í gær hafði verið
ákveðið að eftirtaldir ættu orða-
stað við Friðrik i simann: Dag-
björt Höskuldsdóttir Fram-
sóknarmaður, Einar Þ.
Asgeirsson frá Samtökum
frjálslyndra og vinstri manna
og ungur jafnaðarmaður, Mari-
as Sveinsson að nafni. Ekki
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fegnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttirkl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Arnhildur Jónsdóttir.
lýkur lestri sögunnar um
„Aladdin og töfralamp-
ann”i þýðingu Tómasar
Guðmundssonar (10). Til-
kynningar kl. 9.15. Þing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög milli
atriða. A bókamarkaöinum
kl. 10.25. Dóra Ingvadóttir
kynnir. Morguntonleikarkl.
11.00: Janacek-kvartettinn
leikur Strengjakvartett i
Es-dúr nr. 2 op. 33 eftir
Haydn. Félagar i Vinar-
oktettinum leika Siverti-
mento nr. 17 i D-dúr (K334)
eftir Mozart.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. A frivaktinni.
Sigrún Sigurðardóttir kynn-,
ir óskalög sjómanna.
14.40 Eftirmáli viö sænsku
sjónvarpsmyndina „Skóla-
daga” Þórunn Gisladóttir
stjornar þættinum.
15.00 Miödegistónleikar.
Felicja Blnmenthal og Sin-
fóniuhljómsveitiniVIn leika
Konsertþátt fyrir pianó og
hljómsveit op. 113 eftir
Anton Rubinstein, Helmut
Forschauer stjórnar. Sin-
fóniuhljómsveitin i Cleve-
land leikur Sinfóniu nr. 2 i C-
dúr op. 61 eftir Robert Schu-
mann, Georg Szell stjónar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
17.00 Lestur úr nýjum barna-
bókum. Umsjónarmaður:
Gunnvör Brgga. Kynnir
Sigrún Sigurðardottir. Enn-
fremur kynnir Helga
Stephensen óskalög barna
innan tólf ára aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.50 Daglegt málGisli Jóns-
son flytur þáttinn
19.55 tslenskir "^eínsöngvarar
og kórar syngja.
20.25 Leikrit: „Jólaævintýri”
eftir Finn Methling. (Aöur
flutt á jólum 1960). Þýö-
andi: Hannes Sigfússon.
Leikstjóri: Klemenz Jóns-
son. Persónur og leikendur:
Friörik Sophusson.
hafði verið gengið endanlega frá
þvi, hvaða ungur Alþýðubanda-
lagsmaður slægi á þráðinn.
Friðrik varð sem kunnugt er
númer sex i prófkjöri ihaldsins i
Reykjavik og kostaði hann þó
ekki nema um hálfri miljón til.
Við skulum vona að þetta sé
maður sem segi sex i útvarpinu
I kvöld. _eös
■ ^mmmmm
Sögumaöur: Guöbjörg Þor-
bjarardóttir. Baltasar: Þor-
steinn O. Stephensen.
Melkior: Lárus Pálsson.
Kaspar: Jón Aöils. Þjón-
ustustúlka: Jóhanna Norö-
fjörö. Maria: Herdis Þor-
valdsdóttir. Jósep: Jón
Sigurbjörnsson. Heródes:
Róbert A.r.nfinnsson. Þjónn
Heródesar: Bessi Bjarna-
son. Englar: Margrét Guö-
mundsdóttir, Helga Bach-
mann og Arndis Björns-
dóttir. Hiröingjar: Valur
Gislason, Baldvin Halldórs-
son og Ævar R. Kvaran.
Aörir ieikendur: Valdimar
Lárusson, Margrét Helga
Jóhannsdóttir og Briet
Héöinsdóttir. Arni Jónsson
syngur.Páll Isólfsson leikur
á orgel.
21.30 Kammertónlist a. Trló i
C-dúr fyrir tvö óbó og horn
op. 87 eftirBeethoven. Péter
Pongracz, Lajos Tóth og
Mihaly Eisenbacher leika.
b. Tvisöngur eftir Schubert.
Janet Baker og Dietrich
Fischer-Dieskau syngja.
Gerald Moore leikur á
pianó.
22.05 „Jól Arndisar”, smá-
saga eftir Jennu Jensdóttur.
Baldur Pálmason les. Orö
kvöldsins á jólaföstu.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Spurt I þaula. Helgi H.
J ónsson stjórnar þætti, sem
stendur allt að klukkustund.
Fréttir, Dagskrárlok.
Rafvirki
Rafveita Hafnarfjarðar óskar að ráða raf-
iðnaðarmann til starfa nú þegar. Umsókn-
arfrestur er til 30. desember. Umsóknum
skal skila á sérstökum eyðublöðum til raf-
veitustjóra, sem veitir nánari upplýsingar
um starfið.
Rafveita Hafnarfjarðar.
ALAFOSSBÚÐIN
Vesturgötu 2 — Sími 13404