Þjóðviljinn - 04.01.1978, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 04.01.1978, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 4. janúar 1978 MiOvikudagur 4. janúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Brúin sem beðið er Þolum ekki bið til 1982 að brúin komi segir Björgvin Sigurðsson formaður Verka- lýðsfél. Bjarma Björgvin Sigurðsson, formaöur Verkalýðsfélagsins Bjarma á Stokkseyri er að sjálfsögðu mikill baráttumaður fyrir þvi að brú verði byggð yfir ósa ölfusár, þar sem útgerð og fiskvinnsla er undirstöðu atvinnugreinin á Stokkseyri, sem og Eyrarbakka og leggist útgerð og fiskvinnsla niður á þessum stööum, deyja þorpin um leið. Þvi leituöum viö til Björgvins og báðum hann segja okkur sitt álit á þessu máli og hvernig það liti út frá sjónar- hóli vcrkafólks. „Brú yfir ósinn hefur verið bar- áttumál alls fólks á Stokkseyri i meira en aldarfjórðung, eða allt frá þvi 1956, að Jörundur Brynjólfsson kqm þessari brúar- smið inná brúárlög á alþingi. En kannski höfum við ekki verið nógu harður þrýstihópur, eins og það er kallað í dag, i það minnsta hefur enn ekkert gerst i málinu annað en loforð, þvi miður. Og eftir þessa áratuga baráttu fyrir þvi að brúin verði byggð verð ég að játa að ég er heldur vantrúaður á að stjórnvöld sinni þessu máli, jafn vel þótt ljóst sé að þetta er hagsmunamál númer eitt hjá okkur og Eyrbekkingum. Þetta er okkar lang stærsta mál, enda fer ástandiö versnandi meö Björgvin Sigurðsson hverjuárinu sem liður. Fiskiskip- inverða sifelltstærriogstærri, en hér geta ekki landað stærri bátar en þetta 50 til 60 tonn og svo litlum bátum fækkar óðum. Og að aka þá leið sem nú þarf með fisk frá Þorlákshöfn getur ekki gengið mikið lengur. Þvi má segja að hér sé um baráttu uppá lif og dauða að ræða, fyrir þorpin hér á ströndinni. Nú þarf að aka 56 km. meö fiskinn frá Þorlákshöfn, en það yrðu ekki nema 12 til 15 km. er ósinn væri brúaöur. Auk þess kemur það mjög oft fyrir, þegar kemur fram á vetrarvertfð, að bilarnir verða að aka Þrengsla- veg og Hellisheiði með fiskinn, þegar þungatakmarkanir eru á veginum frá Þorlákshöfn uppi Hverageröi. Hér á Stokkseyri er varla hægt aö tala um höfn, aðeins smá bryggjustubbur og nú er svo kom- ið, að 5 af þeim 9 bátum, sem eru i eigu Stokkseyringa geta alls ekki lent hér og verða þvi að landa i Þorlákshöfn. Og það liöur sjálf- sagt ekki á löngu þar til svo litlir bátar, sem hér geta landað verða ekki til, eða ekki gerðir út á vetrarvertið. Og ég þori að full- yrða aö komi ekki brú yfir Olfus- árósa, leggst útgerð niður, bæði frá Stokkseyri og Eyrarbakka. Þvi er alveg ljóst, að við þolum ekki að biða til ársins 1982 eða 1983eftir þvi að brúin verði tilbú- in, en samkvæmt loforðum ráða- manna, á að hefjast handa þegar smiði Borgarf jarðarbrúarinnar lýkur, 1979 og þvi ljóst aö það verðurekkifyrren 1982 aö brú yf- irölfusárósverðurtilbúin.Það er bara þvi miður of langur timi, við þolum ekki þá bið. Ég veit ekki um einn einasta mann hvorki á Stokkseyri eða Eyrarbakka sem ekki telur brú yfir Olfusárósa mál málanna hjá okkur. Þar eru menn algjörlega einhuga nú orðið. Enda er málið svo ljóst sem frekast má vera, þegar fólk er farið að flytjast héðan til Þorlákshafnar aðeins vegna þess að brúna vantar. Það erusjómenn sem eiga heimili hér en verða að landa i Þorlákshöfn sem gefast upp sem eðlilegt er, þar sem þeir verða að aka á annað hundrað kilómetra til og frá heimili sinu. Þá hafa hin tiðu óhöpp meö bátana á Eyrarbakka 1975 og hér á Stokkseyri á dögun- um þjappað mönnum saman i þessu máli. Hér fyrrum voru! Eyrbekkingar með drauma um; stóra og mikla höfn á Eyrarbakka og voru á þeim árum ekki eins ákafir baráttumenn fyrir brúnniog nú. Eftir að landshöfnin kom i Þorlákshöfn hafa vonir þeirra um viðunandi höfn dofnaö óg þeir eru alveg jafn ákveönir baráttumenn fyrir brúnni nú og við hér á Stokkseyri sem alla tið höfum verið fylgjandi brú yfir ós- Bara loforð Það vantar ekki að við höfum leitað aftur og aftur til ráða- manna i þessu máli. Við höfum rætt við forráðamenn Byggða- sjóðs við þingmenn Suðurlands- kjördæmmis og ráðherra. Allir hafa fullan skilning á málinu en siðan ekki meir. Það gerist ná- kvæmlega ekkert i málinu. Mér finnst það furðuleg stefna hjá stjórnvöldum aö veita fé og það stórfé I hverskonar ævintýri á sama tima sem ekki fæst króna i þessa brúarsmíð sem þó snertir svo mikið sjálfa undirstöðuat- vinnuvegi þjóðarinnar útgerð og fiskvinnslu. Þetta er pðlitik sem ég skil ekki. Að lokum má geta þess aö hér fyrrum var ferja yfir ósinn þar sem fyrirhugað er að brúin komi og sýnir það svo ekki veröur um villst að þá þegar töldu menn það mikils viröi að sleppa við þann stóra krók sem Hellisheiðin er hvað þá nú i dag eftir að höfnin i Þorlákshöfn er orðin aðal lifæð Suðurlandsundirlendis. —S.dór Þaö viröast allir sammála en... samt gerist ekkert i málinu, segir Jóhanhes Reynisson odd- viti á Stokkseyri Hvað hafa ráðamenn á Stokks- eyri og Eyrarbakka gert undan- farin ár til aö ýta á eftir brúar- smiöi yfir öifusárós, til hverra hefur veriö leitað og við hverja hefur veriö talaö. Til að fræöast um þetta var rætt viö Jóhannes Reynisson oddvita á Stokkseyri. ,,Ég hygg að rætt hafi verið við alla þá sem hugsanlega gætu haft áhrif á að málinu yrði hrundið i framkvæmd. Og við suma hefur verið rætt marg oft. Þingmenn okkar ráðamenn Byggðasjóðs, ráðherra og fleiri. Og þaö er al- veg sama við hvern er rætt allir erusahimála um nauðsyn þess aö brúin komi og það semfyrst en — það gerist bara ekkert I málinu. Þaö eina svar sem við fáum er að um leið og Borgarfjarðarbrúar- smiðinni sé lokið veröi hafist handa hér. Þvi viljum við bara ekki una. Viö viljum að það verði hafist handa fyrr. Hætta á fólksflótta A meðan ekkert áþreifanlegt gerist í málinu, liggjum viö Jóhannes Reynisson undirþeirri hættu að fólk flytjist héðan til Þorlákshafnar. Fyrst yrðu það sjómennirnir og það hefur gerst að sjómannafjöl- skyldur hafi flust héðan vegna þessa og siðan myndu aðrir fylgja á eftir, þvi að stór hætta er á að útgerð og fiskvinnsla hætti hér ef brúin kemur ekki. Og þegar fólk sér ekkert áþreifanlegt gerast i málinu er þessi hætta meiri en ella. Um leið og byrjað verður á framkvæmdum myndi það róa fólk. — Hefur orðið fólksfækkun? — Nei það hefur ekki fækkað fólki, heldur fjölgað á siðustu ár- um. Til að mynda get ég nefnt að á sl. 12 árum hefur fjölgað fólki á Stokkseyri úr 480 manns i 600 og það er vegna þess að hér hefur verið sæmilega góð atvinna og unga fólkið hefur ekki flust burt eins og áður var. Það breytir þó ekki hinu sem ég sagði- áðan að héöan hafa flust fjölskyldur sjó- manna vegna hinna erfiðu að- stæðna sem brúarleysið veldur. En þessi f jölgun sýnir að fólk vill búa hér og ég er viss um það að hér væri míklu fleiribúar en nú er ef brú yfir ölfusárósa væri til staðar. Við höfum alltaf litið svo á, að eftir að Þorlákshöfn var gerð að landshöfn og hætt var við hafnar- gerð á Stokkseyri og Ey^arbakka ogokkur gertað nota Þorlákshöfn að brú yfir ósinn væri i raun hluti af framkvæmdunum i Þorláks- höfnogég veit að það eru fleiri en við sem leggjum sama skilning i þetta mál. Höfnin hér á Stokks- eyri og raunará Eyrarbakka lika erekki annað en löndunaraðstaða fyrir minni báta yfir sumar- mánuðina. Það er að visu hægt fyrir allt að 60-70 tonna báta að komast hingað inn yfir veturinn en þeir eiga það alltaf á hættu að komast ekki út aftur og meðan svo er munu bátar að sjálfsögðu frekar leita til Þorlákshafnar. Vissulega hefur mest verið rætt um brúarsmiöina útfrá hagsmun- um sjávarútvegsins sem eðlilegt er. En nú er nýútkominn skýrsla um alla þá ótal möguleika til iðnaðar, sem Arborgarsvæðið hefur og þegar hefur verið myndað hlutafélag til aö vinna að undirbúningi iðnaöar hér á Ar- borgarsvæðinu. Miklar likur eru á að verksmiðjur fyrir slikan iðnað yrðu reistar á þéttbýlis- svæðinu kringum Selfoss, Stokks- eyri og Eyrarbakka með tilliti til vinnuafls. Og auðvitað yrði Þor- lákshöfn útflutningshöfnin og þá geta menn séð enn frekari nauðsyn þess að hefjast handa með smiði brúar yfir ölfusárósa. — Þú sagöir áðan að allir sem þið hefðuð rætt við væru sammála um nauðsyn þess að byggja brú yfir ósinn en hvar leynist þá and- staða sem kemur i veg fyrir aö framkvæmdir hefjist? Mig grunar að sú andstaða sem hefur orðið til þess að ekki hefur verið hafist handa enn sé frá þingmönnum af Norður og Austurlandi. Þeir berjast fyrir brúarsmiði i sinum kjördæmum og hafa oft á tiðum staðiö sig vel i þeim efnum en að þvi er mér og fleirum finnst á okkar kostnaö. Þetta er alla vega min skoðun á þeim seinagangi sem einkennir þetta mál. Það urðu skaðar á bátum á Eyrarbakka 1975 og nú hér á Stokkseyri I vetur og mönnum þykir mælirinn þegar orðinn full- ur og ég get fullvissað þig um það að við munum hefjast handa af tvöföldum krafti nú þegar þing kemur saman að koma þessu nauðsynjamáli af stað og fá fram meira en loforðin tóm. —S.dór Hér er unnið að þvl að losa um hræ eins af þeim bátum sem eyðilögöust i Stokkseyrarhöfn á dögunum Svona var ástandiö eftlr flóðln mikiu á Stokkseyri f vetur, ónýtir (Ljósm. -eik-) fjórlr bátar lágu uppá þurru landi, seunilega allir Mikil gróska í ullaridnadi ullariðnaði 1977 F ramleiðniaukning krefst stærri eininga Nú eru starfandi hér á landi 15 prjónastofur, sem framleiöa til útflutnings, og fjölgaði prjóna- stofum um tvær á árinu 1977. Þetta kemur fram i nýútkomnu fréttabréfi Ctflutningsmiöstöðv- ar iðnaðarins. Stærð þessara prjónastofa er ákaflega mismun- andi og eru þær með allt frá einni prjónavél upp I rúmlega 20 prjónavélar. Pólarprjón á Blönduósi og Hekla á Akureyri hafa flestar prjónavélar. Allar prjónastofurnar reka jafnframt saumadeild. Auk þess eru 12 fyr- irtæki, sem eingöngu reka saumastofur sem byggja mikið á útflutningi og fjölgaði þeim um þrjár á sl. ári. Vitað er nú um fyr- irhugaða stofnun nýrrar prjóna- stofu og tveggja nýrra sauma- stofa. t fréttabréfinu segir, að ekki fari á milli mála að ekki hefði veriö unnt að auka útflutning um 50% á siöastliönu ári ef ekki hefði komiö til mikil afkastaaukning. Hins vegar megi velta þvi fyrir sér, hvort fjölgun prjóna- og saumastofa sé æskileg frá sjónar- miBi heildarinnar. Framundan séu mikil átök um framleiðni- aukningu og bætt gæði, en hvoru- tveggja krefjist aukinnar sér- þekkingar. Hins vegar byggist sérþekking seint upp þar sem framkvæmdastjórinn hafi fram- kvæmdastjórnina sem aukastarf, verkstjórinn hafi litla reynslu og enn minni völd og prjónamaður- inn hafi ekki orðið neinnar starfs- þjálfunar aönjótandi. Þvl miöur einkennist nýju fyrirtækin allt of oft af þessu. Enn fremur segir I fréttabréf- inu, að margt bendi til þess, að til þess að unnt sé að knýja fraa framleiðniaukningu þurfi stærri einingar, a.m.k. sé það reynslan 1 Evrópu. öllum ber saman um að markaösútlitiö 1978 sé gott, en varla er unnt að gera ráö fyrir meiri hækkun á erlendum mark- aöi en 10%. Nú stendur ullariðn aöurinn frammi fyrir vanda vegna launahækkana, hækkana á bandi og ef áframhaldandi gengissig veröur. „Og um það skal engu spáð hvernig stjórnvöld munu bregöast við honum, en hitt er augljóst, aö þau fyrirtæki sem geta knúiö fram verulega fram- leiðniaukningu og um leið bætt gæði standa betur aö vigi i þess- um bardaga en hin sem geta það ekki”, segir. aö lokum um ullar- iönaðinn i fréttabréfinu. —eös Ylirlit yfir útflutning helstu flokka vetjar- og lataiinaðar 1971-1977 Tölur í tonnum og hlutdeild hvers flokks i heildarmagnTTMagn fyrirdesember 1977 er áætlaö) 1. Prjónavörur úr ull aöallega 2. Ullarteppi 3. Ullarlopi og ullarband 4. Annaö (aðallega ytrifatnaöur nema prjónafatnaður) Teskeidin, Stalín og Margrét aftur á sviö Nú upp úr áramótunum hefjast á ný sýningar i Þjóðleikhúsinu á þeim leikritum, sem i sýningu voru f yrir jól,en legið haf a niðri vegna jólasýningar innar á Hnotubrjótnum. A Litla sviðinu verður fyrsta sýningin á Fröken Margréti þriðjudagskvöldið 3. janúar og sú næsta 5. janúar. Þetta brasiiiska leikrit um kennslukonuna Mar- gréti hefur vakið verðskuldaða athygli og leikur Herdisar Þor- valdsdóttur i eina hlutverki sýn- ingarinnar hlotið mikiö lof. Upp- selt hefur veriö á allar sýningar verksins til þessa. Leikstjóri er Benedikt Arnason. A Stóra sviðinu verður leikrit Vésteins Lúðvikssonar, Stalin er ekki hér,sýnt miðvikudagskvöldið 4. janúar, en leikritið hlaut af- bragösgóða dóma og undirtektir. Leikstjóri er Sigmundur Orn Arn- grimssoi\ en i hlutverkunum eru Rúrik Haraldsson, Bryndis Pétursdóttir, Anna Kristin Arn- grfmsdóttir, Steinunn Jóhannes- dóttir, Sigurður Sigurjónsson og Sigurður Skúlason. Leikrit Kjartans Ragnars- sonar, Týnda teskeiðin, verður sýnt fimmtudagskvöldið 5. janúar og er það 24. sýning verksins. Mikil aðsókn hefur verið að leik- ritinu i allt haust,enda hlaut það hinar bestu viðtökur gagnrýn- enda. Leikstjóri er Briet Héðins- dóttir. Þær breytingar verða nú á hlutverkaskipan, aö Sigurður Skúlason tekur viö hlutverki Randvers Þorlákssonar, en aðrir leikendur eru Róbert Arnfinns- son, Sigriður Þorvaldsdóttir, Þóra Friðriksdóttir, Gisli Al- freðsson, Guörún Þ. Stephensen, Flosi ólafsson, Lilja Þórisdóttir og Jón Gunnarsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.