Þjóðviljinn - 06.01.1978, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 06.01.1978, Blaðsíða 3
Föstudagur 6. janiiar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 PINOCHET: Engír stjórnmála- flokkar framar SANTIAGO 5/1 — Stjdrn Pinoch- ets I Chile lýsti I dag yfir miklum sigri sinum I þjdöaratkvæöa- greiöslunni, sem fram fdr I gær, en samkvæmt uppgefnum tölum greiddu um 5.3 miljdnir manna atkvæöi og veittu þar af um 75% Pinochet og herforingjakllku hans stuöning meö atkvæöi sfnu. Varia þarf aö taka fram aö tölur þessar eru frá stjdrnarvöldum og mun þvl allt á huldu um áreiöan- leika þeirra. Pinochet lýsti þvl yfir eftir aö tölurnar höföu veriö kunngeröar aö útslitin þýddu endalok flokka- pólitlkur I Chile. „Þaö veröa eng- ar kosningar, engin atkvæöa- greiösla, engin ráöaleitun næstu tíu árin. Þetta vandamál, aö hugsa um kosningar og atkvæöa- greiöslu, er búiö aö vera,” sagöi Pinochet. Hann sagöi aö meö at- kvæöagreiöslunni heföi Chile SOVÉTRÍKIN: „Algert stríd” gegn andófsmönnum? PARÍS 5/1 Reuter — Fjórir kunn- ir sovéskir útlagar sögðust i dag hafa fengið sannanir fyrir þvi, að sovésk yfirvöld hefðu lýst yfir „algeru striði” á hendur þarlend- um baráttum önnum fyrir mannréttindum, bæöi innanlands og utan. Kváðust útlagarnir fjörir i þvi sambandi óttast um öryggi hins þekkta visindamanns Andrei Sakharof. Ctlagar þessir fjórir eru Vladi- mir Búkovski, sem í desember 1976 var látinn laus i skiptum fyrir Luis Corvalan, leiðtoga Kommúnistaflokksins i Chile, rithöfundarnir Viktor Nekrasof og Vladimir Maximof og málf ræðingurinn Tatjana Kodorovitsj. Þau gáfu i skyn aö þau hefðu upplýsingar þessar frá heimild i Sovétrikjunum, og hefði ákvörðunin um ofsóknirnar á, hendur andófsmönnum verið tek- in nýlega af miðnefnd sovéska kom múnistaflokksins. Maximof sagði að ákvörðunin hefði verið tekin eftir aðMikhail Súslof, helsti hugmyndafræðing- ur Kommúnistaflokks Sovétrikj- anna, hefði i ræðu i október s.l. hvatt til meiri hörku gegn andófs- mönnum. Maximof segir Súslof hafa sagt i ræðunni: „I náinni framtiö munum við ganga endan- lega frá andófshreyfingunni bæöi innanlands og utan.*' Maximof, sem flutti til Frakklands 1974, kvað Súslof hafa flutt ræöuna á Framhald á 13. siöu. SúsTof — engin vægð viö anddfs menn. Gustavo Leigh — missætti komiö upp I innsta hring hershöföingja- klikunnar. hafnaö afskiptum Sameinuöu þjóöanna, sem nýlega fordæmdu Pinochet-stjórnina fyrir ániöslu á mannréttindum, og kvaöst mundu láta Waldheim fram- kvæmdastjóra Sameinuöu þjóö- anna vita, aö ekki yröi fleiri nefndum frá S.þ. hleypt inn I Chile til þess aö rannsaka ástand- ið þar. Kaþólska kirkjan I Chile beitti sér gegn þjóöaratkvæöagreiösl- unni á þeim forsendum, að and- stæöingar herforingjastjórnar- innar heföu enga möguleika á aö reka áróöur fyrir sinum sjónar- miöum, og tveir hinna bönnuöu stjórnmálaflokka landsins, Sósi- alistaflokkurinn og Kristilegi demókrataflokkurinn, vefengdu einnig aö kosningarnar væru aö nokkru hafandi. Hershöföingja- klikan sjálf var klofin I afstööunni til málsins, þar eö Gustavo Leigh og Jósé Merino, yfirhershöföingj- ar flughers og sjóhers, töldu þjóö- aratkvæðagreiösluna meiningar- lausa. Dollarinn hressist en vart til lang- frama segja fjármálamenn NEW YORK 5/1 Reuter — Banda- rlkjastjórn lýsti þvl yfir I gær aö hún myndi grlpa til ráöstafana til þess aö stööva gengissig gjald- miöils landsins, dollarans, og fylgdi þvl á eftir I dag meö þvl aö kaupa doliara fyrir vesturþýsk mörk. Hefur þetta oröiö til þess aö dollarinn hefur hækkaö nokk- uö, en áöur en stjdrnin tilkynnti téöar ráöstafanir var dollarinn kominn lægra en nokkru sinni fyrr gagnvart núverandi sterk- ustu gjaldmiölum heims, sem eru vesturþýska markiö, svissneski frankinn og japanska jeniö. Dollarinn hefur átt í vök aö verjast fyrir þessum gjaldmiöl- um undanfarna mánuöi og sumir fjármálamenn í Wall Street voru I dag vantrúaöir á, aö umræddar ráöstafanir stjórnarinnar myndu veröa dollarnum til mikillar hjálpar til langframa. Benda þeir á að aðalástæöan til veröfallsins á dollarnum sé gífurlegur viö- skiptahalli Bandarikjanna í utan- rikisverslun, og ráöstafanir stjórnarinnar dygöu skammt til aö bæta úr þvi ástandi. Ecevit til valda ANKARA 5/1 — Ný rfkisstjórn undir forustu Bulents Ecevit tók formlega viö völdum I Tyrk- landi I dag, eftir aö hægristjórn undir forustu Suleymans Demirel haföi oröiö aö segja af sér. Ecevit er leiötogi Lýöveldissinnaöa alþýöuflokksins, sem kallr öur er sóslaldemókratlskur. Flokkurinn er sá stærsti I landinu en hefur þó ekki þingmeirihluta, en hann hef- ur styrkt aðstööu slna með stuön- inginokkurra óháöra þingmanna. Tyrkland á viö mikil efnahags- vandræöi aö stríöa og óöld af völdum hryöjuverkamanna hefur lengi hrjáö landiö. BRASILÍA: Deilur klíku hershöfðingja BRASILÍUBORG 5/1 — Ernesto Geisel Brasilfuforseti er sagöur hafa útnefnt yfirmann leyniþjdn- ustunnar, Joao Baptista Fig- ueirado, sem eftirmann sinn, og vakið meö þvl gremju sumra fé- laga sinna f hershöföingjaklik- unni, sem landinu stjdrnar, og hefur einn þeirra sagt af sér I mdtmælaskyni. Stjdrnmálaflokk- ur hershöföingjanna, sem kallast Þjóðlega endurnýjunarbandalag- iö, veröur aö vfsu aö staðfesta val forsetans, en þar er aöeins um formsatriöi aö ræöa. Þeir sem óánægöir eru meö valiö á Figueirado eru harðlfnu- menn innan hershöföingjaklik- unnar, sem hafa sakaö Geisel og stjórn hans um linkind gagnvart vinstrimönnum. Geisel er hins- vegar sagöur hafa I öllum hönd- um við harölinumenn þessa eftir aö hann vék einum helsta þeirra úr embætti hermálaráðherra I október s.l. Hershöföingjaeinræöi hefur verið I Brasillu sÖIan 1964, er yfirmenn hersins steyptu af stóli tiltölulega vinstrisinnaöri stjórn Joaos Goulart. Siöan hafa hershöföingjarnir skipst á um aö hafa forsetaembættið á hendi og hafa forsetarnir verið kosnir á leynifundum yfirstjórnar hersins. Búist er viö aö Figueirado taki viö forsetavaldi í mars 1979, er fimm ára embættistlö Geisels rennur út. Figueirado er talinn einn þeirra hófsamari I hópi hershöfö- ingjanna, llkt og Geisel. Ahugi brasillsks almennings á stjórnmálum er oröinn harla lítill undir einræðisstjórninni, enda hefur fólk enga möguleika á aö hafa áhrif á stjórnarstefnuna. Blaö eitt I Rio de Janeiro lét I dag fara fram skoöanakönnun um álit almennings á Figueirado. Yfir helmingur aöspurðra haföi aldrei heyrt mannsins getiö fyrr. Leitin ber engan árangur Leit aö konunni sem hvarf viö Þjórsárbrú á þriöjudag hefur engan árangur boriö. Fjöldi manns tdk þátt I leitinni á þriöju- dagskvöld og miövikudag, og til stdö aö fá þyrlu til aö fljúga yfir svæöiö. Sporhundur sem fenginn var austur rakti slóö konunnar frá bilnum sem hún var I út á miöja brú og þykir sýnt aö hún hafi farið I ána. Vonlitið veröur aö teljast um árangur af leitinni fyrir en isa leysir, en frá Urriöafossi, sem er hálfan annan kllómeter frá brúnni er Þjórsá nú eitt samfellt ishröngl til sjávar. Bændur sem búa nálægt ánni hafa veriö beönir aö hafa augun hjá sér. Haft var samband viö konuna á þriöjudeginum þar sem hún sat i bil sinum viö brúna, en hún kvaöst ekki aöstoðar þurfi. Næst þegar aö var gáö var hún horfin úr bllnum og voru þá skjótt kvaddir til leitarflokkar. Konan var úr Garðabæ, en ekki er hægt að birta nafn hennar aö svo stöddu. — ekh. Innritun fþessa viku Nýjustu táningadansarnir eru BEAT BOY, BULB og fl. Kenndir verða: BARNADANSAR (yngst 2ja ára) TÁNINGADANSAR JAZZ DANS STEPP SAMKVÆMISDANSAR GÖMLU DANSARNIR (hjóna og einstaklingsflokkar) TJOTT OG ROKK. Kennsla fer fram í: Reykjavík Hafnarfirði Kópavogi Hvolsvelli Hellu Akranesi Vestmannaeyjum Uppl. og innritun í símum 52996 frá kl. 1-6 og 84750 frá kl. 10-12 og 1-7 DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.