Þjóðviljinn - 06.01.1978, Blaðsíða 11
Föstudagur 6. janúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Sigruöu þá léttilega með
20 mörkum gegn 16. Gísli
Blöndal skoraði 9 mörk
Þaö var ekki rishár leik-
ur Vals og Víkings í
Reyk javíkur mótinu í
handknattleik sem háöur
var í Laugardalshöllinni.
Mikið um byrjendavitleys-
ur/og er greinilegt að jóla-
steikin ef ekki áramótin
sitja ennþá í flestum leik-
mönnum liðanna.
Leiknum lauk með sigri
Vals sem skoraði 20 mörk
gegn aðeins 16 mörkum
Víkings. Staðan í leikhléi
var 10:10.
Á undan leik Vals og Vik-
ings fór fram úrslitaleikur
Fram og Vals um Reykja-
vikurmeistaratitilinn, og
þar varð Fram öruggur
sigurvegari — sigraði með
11 mörkum gegn 3. Greini-
legt að Fram á mjög efni-
legu 3. flokks liði á að
skipa.
En það er leikur Vals og Vik-
ings sem ætlunin er að fjalla um.
Það var Fylkisleikmaðurinn
Steinar Birgisson sem skoraði
fyrsta markið fyrir Vikinga, en i
kjölfarið fylgdu þrjú mörk frá
Valsmönnum. Og áfram héldu
Valsmenn. Þegar fyrri hálfleikur
var um það bil hálfnaður var
staðan orðin 7:3.
Þá var eins og að Vikingar
vöknuðu fyrst til lifsins, og tókst
þeim eins og áður sagði að jafna
fyrir leikhlé 10:10.
Jón Pétur Jónsson skoraði
fyrsta mark siðari hálfleiks og
kom Valsmönnum yfir 11:10. Vik-
ingar komust siðan i 12:11 með
mörium frá þeim Steinari og Páli
Björgvinssyni. En er hér var
komið sögu tóku Valsmennirnir
mikinn kipp, og þegar siðari hálf-
leikur var hálfnaður var staðan
orðið 16:13 fyrir Val og úrslit
leiksins ráðin. Vikingar náðu ekki
að minnka forskot Valsmanna, og
leiknum lauk eins og áður sagði
með sigri Vals 20:16.
Bestu menn Vals að þessu sinni
voru þeir Gisli Blöndal, Björn
Björnsson og markvörðurinn
Brynjar Kvaran. Var Gisli frisk-
ur i fyrri hálfleik, en slappaðist
heldur er liða tók að lokum leiks-
ins. Brynjar varði mark Vals með
ágætum i gærkvöldi, og er greini-
legt að Valsmenn eru að eignast
enn einn frábæran markvörð.
Björn skoraði nokkur falleg
mörk.
Vikingar voru allir frekar dauf-
ir i þessum leik, enginn einn skar-
aði fram úr.
MöHK VALS: Gisli Blöndal 9 3v.,
Björn Björnsson 5, Jón Pétur 2,
Þorbjörn Jensson 2, Bjarni Jóns-
son Karl Jónsson eitt mark hver.
MÖRK VÍKINGS: Páll Björg-
vinsson 5,eitt viti, Ólafur Jónsson
4, Steinar Birgisson 4, Jón Sig-
urðsson 2, Magnús Sigurðsson eitt
mark.
Leikinn dæmdu þeir Kjartan
Steinback og Kristján örn Ingi-
bergsson og gerðu þeir það vel.
— SK.
INNIFALIÐ: Flug, rútuferöir. gisting,
morgunverður og
aðgöngumiöar á alla leikina
BEINT FLUG til Arósa og heim frá
Kaupmannahöfn.
Dletmar Schmidt sést ú þessarrl mynd taka viö verölaunum fyrlr sinn 100. landsleik fyrir A-Þýskaland. Hann er leikmaöur meö
a-þýska liöinu ASK Vorwerts sem oft hefur leikiö hér.
Björn Björnsson lék vel fyrir Val i gærkvöldi. Hann sést hér svifa inn úr horninu og skora glæsilega.
íþróttamad-
ur ársins
1977 kosinn
Iþróttamaður ársins hefur veriö
kosinn. Veröa úrslit kosningar-
innar kunngerö I hófi sem iþrótta-
fréttamcnn efna til aö Hótei Loft-
leiðum i dag. Þaö eru allir
Iþróttafréttaritarar dagblaöanna
auk útvarps og sjónvarps sem
kosningarétt höföu. — SK.
Tveir leikir
í körfunni
Tveir leikir verða háðir I Is-
landsmótinu í körfuknattleik I
Hagaskóla um þessa helgi. Leik-
irnir fara báðir fram á laugardag
og leika þá fyrst 1R og Þór og síð-
an strax á eftir Ármann og Fram.
Leikirnir hefjast kl. 14. Allt verða
þetta hörkuleikir þar sem öll
þessi lið keppast um aö ná sæti i
„súperligunni” sem leikið verður
i á næsta ári. í henni eiga rétt til
keppni sex lið.
Báðir leikirnir ættu að geta orð-
ið hörkuspennandi og er næsta út-
séð um möguleika á „súperlig-
unni” hjá þvi liði sem tapar i leik
IR og Þórs. Ef Armenningar ná
ekki stigi gegn Fram má telja
möguleika þeirra á veru i „super-
ligunni” á næsta ári úr sögunni.
— SK.
FRAMARAR SIGRUÐU
Reykjavikurmótið i innanhúss-
knattspyrnu var háð á miðviku-
dagskvöldið i Laugardalshöll.
Eftir mikla og mjög harða keppni
voru það Fram og KR sem léku til
úrslita. Lauk leiknum með jafn-
teflieftir venjulegan leiktima en i
framlengingunni sem var 2x4
minútur skoraði hvort liö tvö
mörk pg enn var þvi jafnt 6:6.
Framarar höfðu fengið gullið
tækifæri til að ná forystu i leikn-
um þegar jafnt var, en þá misnot-
uðu þeir vitaspyrnu.
Orslit leikjanna urðu annars
/
KR-Vfkingur
Þróttur-Leiknir
Valur-Fylkir
6:6
14:2
8:4
þessi: Armann-Fram 2:8
Vikingur-Leiknir 10:2 Fram-Fylkir 10:3
Þróttur-KR 6:9 Valur-Armann 9:5
KR-Leiknir 11:5 Valur-Fram 3:7
Vikingur-Þróttur 6:7 Fylkir-Armann 7:2
'í Samvinnuferöir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077
W JW Hópferð á heims-
meistaramótið i
handknattieik
Z£j3 26. janúar til 5. febrúar
VERÐ KR. 98.100
Reykjavíkurmótid í handknattleik
Valsmenn
fóru létt
meö Vlking