Þjóðviljinn - 28.01.1978, Blaðsíða 5
Laugardagur 28. janúar 1978. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 5
UMSJON: HELGI ÓLAFSSON
Skáþing Reykjavíkur 1978
Bragi Halldórsson efstur í A-riðli
— en staðan óljós vegna fjölda biðskáka
Skákþing Reykjavíkur
1978 er nú komið á allgóð-
an rekspöl og eru nú að-
eins þrjár umferðir tii
loka þess. Keppnin í A-
riðli/ sem að venju vekur
mesta athygli er að þessu
sinni óvenju hörð og bar-
áttan um efsta sætið
geysilega tvísýn. Staða
efstu manna að loknum 8
umferðum er þessi:
1. Bragi Halldórsson 5,5 v.
2. Þórir Ólafsson 4,5 v + 2 biö.
3. Björn Jóhannesson 4,5 v. + 1
biö.
4. Haukur Angantýsson 4 v + 1
bið.
5. Benedikt Jónasson 4 v.
Þórir Olafsson getur skotist
uppi efsta sætið nái hann hag-
stæðri útkomu úr biðskákunum
tveimur. Hann stendur til ör-
uggs vinnings gegn Benóný
Benediktssyni, en biðstaða hans
við Leif Jósteinsson er bæði
óljós og flókin.
Annars vekur þátttaka Benó-
nýs Benediktssonar hvað mesta
athygli.
Þessi gamla kempa sem kom-
in er á sjötugsaldurinn hefur
ekki tekið þátt i kappmóti sinan
1974, er hann varð efstur á
Skákþingi Reykjavikur, ef und-
an er skilin þátttaka hans i Al-
þjóðamótinu ’74 er hann hætti i
miðjum kliðum. Benóný lætur
engan bilbug á sér finna þrátt
fyrir aldurinn og vist er að þeg-
ar yfir lýkur skipar hann sér i
eitt af efstu sætunum.
Haukur Angantýsson tekur nú
aftur þátt i skákmóti eftir meira
en árs hvild. Taflmennska hans
hefur greinilega einkennst af
æfingaleysi, þó enn eygi hann
möguleika á sigri.
Annars hafa okkar allra bestu
skákmenn ekki séð ástæðu til að
vera með að þessu sinni og hafa
þvi gæði surnra skákanna verið
ansi rýr. Eftirfarandi skák sem
tefld var i 8. umferð tók þó útyf-
ir allan þjófabálk:
Iivitt: Benedikt Jónasson
Svart: Jónas P. Erlingsson
Enskur leikur
1. c4-c5 6. 0-0-d5
2. Rc3-Rc(> 7. cxd5-Rxd5
3. Rf3-Rfö 8. Rxd5-I)xd5
4. g3-g6 9. d3-b6??
5. Bg2-Bg7
Eins og allir almennilegir
skákmenn voru fljótir að átta
sig á getur hvitur nú gert út um
taflið i einni svipan með 10. Rd4
eða 10. re5. Þetta sá Jónas lika
fljótlega eftir að hafa leikið
snilldinni og er þvi auðvelt að i-
mynda sér að ófáir svitadropar
hafi sprottið fram er Benedikt
tók að handleika riddarann á f3,
hvatvislega i meira lagi. En viti
menn, i stað þess að hoppa til d4
eða E5 kom 10. Rg5?
Sagan er þó ekki öll þvi það
sem eftir lifði skákar skiptust
keppendur á að leika einhverj-
um þeim ótrúlégustu afleikjum
sem hugsast gat. Fyrst náði
Jónas upp allt að þvi vinnings-
stöðu en lék þá illilega af sér
peði og fékk tapað tafl. Hann
þráaðist þó við og þar kom að
Benedikt svaraði i sömu mynt,
þ.e. skilaði peðinu til baka. Jón-
as fékk nú aftur vinningsstöðu
en varaði sig ekki og á lymsku-
legan hátt náði Benedikt að riða
mátnet um kóng hans. Slapp
Jónas ekki úr þvi neti og gaf
upp öndina eftir vonlitinn flótta
kónsins upp h-linuna.
B-riöill
Hér i flokki hefur 14 ára gam-
all Reykvikingur, Jóhann
Hjartarson algerlega stungið
aðra keppendur af og aðeins
misst niður hálfan vinning.
Staða efstu manna er annars
þessi:
1. Jóhann Hjartarson 7,5 v.
2. -3. Guöni Sigurbjarnarson 5 v.
2.-3. Sigurður Jónsson 5 v.
4. Agúst Ingimundarson 4,5 v. +
1 bið.
5. -6. Gylfi Magnússon 4,5 v.
5.-6. Einar Valdimarsson 4,5 v.
Keppendur eru 12.
Sem sýnishorn af tafl-
mennsku Jóhanns kemur hér
skák hans úr 1. umferð:
Hvitt: Jóhann Hjartarson
Svart: Guðni Sigurbjarnarson
Caro — Kann
1. e4-c6
(Caro — Kann vörnin svokall-
aða. Raunar vilja sumir skritnir
menn nefna hana byrjun fátæka
mannsins.)
peðabreiðkeðjan á kóngsvæng
sem reynst getur svörtum þung
i skauti.)
16. .. Be7 19. a3-g5
17. f4-Hhg8 20. hxg6-Hxg6
18. Re4-Kb8 21. Kbl-c5
(t slæmum stöðum getur
reynst erfitt að finna góðu leik-
ina. Hver tilgangur textaleiks-
ins er,.er mér hulin ráðgáta.)
22. C4-Rb6 23. Ba5-Hxdl + ?
(Gefur d-linuna eftir að tilefn-
islausu. Sjálfsagt var 23. - Hgg8
með tvöföld hrókakaup að
markmiði.)
24. Hxdl-Dc6 28. Hxd8 + -Bxd8
25. Bxb6-axb6 29. Rb5-Be7
26. Hd2-Hg8 30. Dc2!
27. Rc3-Hd8
Haukur Angantýsson
2. d4-d5
3. Rc3-dxe4
4. Rxe4-Bf5
5. Rg3-Bg6
6. h4-h6
7. Rf3-Rd7
8. h5-Bh7
9. Bd3-Bxd3
10. Dxd3-Rgf6
11. Bd2-e6
12. De2-Dc7
13. 0-0-0-0-0-0
14. llhel?!
(Óvenjulegur leikur og tæp-
lega betri en hefðbundna fram-
haldið 14. Re4 Rb6 (eða 14. - Rb8
15. Hh4 Bd6 16. Rc4! Bxg3? 17.
fxg3 Dxg3 18. Hf4 Dg5 19. Re5
Rxh5 10. Hxf7 Dh4 21. Rg6 Dh2
22. Re7+ Kd7 23. Rd5+ Kd6 24.
Bb4+ Kxd5 25. c4 mát! Jón L.
Árnason — Bragi Halldórsson
Skákþing Reykjavikur 1977.) 15.
Ba5 Hd5!? með tvisýnni stöðu.)
14. .. Rd5?
(Slakur leikur án sýnilegs
markmiðs. Eftir 14. - c5! 15. Re5
Rb8 er öll vandamál svarts úr
sögunni.)
15. Re5-Rxe5
16. dxe5
(Reynslan hefur sýnt að það
er ekkert sældarbrauð fyrir
svartan að sitja i slikri stöðu.
Hvitur hefur frumkvæði á báð-
um vængjum, einkum er það
(Vel leikið. Hvita drottningin
er nú tilbúin til innrásar hvort
sem er i gegnum h7, eða a4 reit-
inn.)
30. .. Dd7
31. Ka2-f5
32. exf6 (Ef 32. Da4 þá 32. - Dc6
og svartur skrimtir.)
32. .. Bxf6
33. Dg6-Bg7
34. f5!
(Skemmtilegur leikur sem
skapar enn frekari veikingu i
herbúðum svarts.)
34. .. exf5
35. Dxb6-Be5
(Eða 35. - Dc6 36. Dd8+ Dc8
37. Dd6+ Ka8 38. Db6! og mát-
ar.)
36. Dxc5-Bf4 37. Dd4!
(Afgerandi.)
37. .. Dxd4 40. c5-h5
38. Rxd4-Kc8 41. a4-Be5
39. Kb3-Kd7 42. Kc4-Bxd4
(Að sjálfsögðu jafngildir þetta
uppgjöf en svartur var varnar-
laus gegn vart framrás hvitu
peðanna á drottningarvængn-
um.)
43. Kxd4-Kc6 45. b5+
44. b4-f4
Svartur gafst upp.
C+riöi II
Tveir ungir og efnilegri skák-
menn, þeir Elvar Guðmundsson
og Jóhannes Gisli Jónsson bitast
hér um efsta sætið. Elvar stend-
ur þó greinilega betur að vigi
með6vinninga úr 7 skákum. Jó-
hannes hefur hlotið 5,5 v. úr 8
skákum. Keppendur i C-riðli
voru upphaflega 12 en einn
helltist úr lestinni.
D-riðill
Ungu mennirnir „dóminera”
þennan riðil sem aðra. ( — ef A-
riðillinn er undanskilinn) beir
Karl borsteinsson og Arni A.
Árnason eru vart búnir að slita
barnsskónum en aðrir keppend-
ur veita þeim ekki mikla keppni
um efsta sætið. Karl hefur hlotið
5 v. úr 7 skákum en Árni er með
jafnmarga vinninga úr 8 skák-
um. Keppendur eru 11.
E-riðill
Hér eru keppendur u.þ.b. 50
og er teflt eftir Monrad kerfinu,
11 umferðir. Jóhann P. Sveins-
son er i efsta sæti með 7 vinn-
inga. Jóhann er mikið bæklaður
en lætur það ekki á neinn hátt á
sig fá. Hann er greinilega sterk-
astur i þessum riðli.
Lárus Ársælsson hefur hlotið 6
vinninga og á eina biðskák sem
er tvisýn. Hann er sá eini i riðl-
inum sem megnar að veita Jó-
hanni einhverja keppni.
Ágæt frannnistaða Margeirs
í Noregi
— hafnadi í 2 - 3 sæti
af 22 keppendum
Margeir Pctursson náöi ein-
um þeim besta árangri sem
islenskur unglingur hefur náö á
erlendri grund ilangan tima, er
hann hafnaöi i 2—3. sæti á
allstcrku alþjóölegu móti sem
haldið var i ósló i byrjun þessa
árs. Keppendur voru 22 og voru
tefldar 9 uinferðir eftir Monrad
kerfi. Axel Ornstein scm tvi-
mælalaust er annar fremsti
skákmaður Svia um þessar
mundir — á eftir Ulf Anderson
— sigraði i mótinu hlaut 7 vinn-
inga, en Margeir og Paul Little-
wood frá Englandi fengu sex
vinninga. i 4. sæti kom svo
italski skákmeistarinn Toth
með 5,5 v.
Margeir byrjaði mótið ekki
vel og eftir 5 umferðir hafði
hann hlotið 2 vinninga. 1 siðustu
fjórum umferðunum var hann
óstöðvandi og vann allar skákir
sinar þ.á.m. menn á borð við
Toth, Lundin frá Sviþjóð en þeir
eru báðir alþjóðlegir meistarar
og svo siðast en ekki sist danska
skákmanninn Gert Iskov er
hann varð skákmeistari Dana
1975. Við skulum fylgjast með
viðureign Margeirs við Iskov:
Hvitt: Margeir Pctursson
Svart: Gert Iskov (Danmörk)
Kóngsindversk-vörn
1. c4-g6 4. Rc3-c5
2. e4-Bg7 5. Be3?!
3. d 1-d6
(Vafasamur leikur. Betra er
einfaldlega 5. Rge2sem kæmi tii
með að leiða skákina inn i
Samisch-afbrigði kongsind-
versku-varnarinnar.)
5. ,.-exd4 ii. Bh4-Be6
6. Bxd4-Rf6 12. Rd2-Dd7
7. RfS-Rc6 12. h3-Rh6
8. Be3-0-0 14. o-0-f5
9. Be2-Rg4 15. f4
10. Bg5-f6
(Nauðsynlegur leikur. Að öðr-
um kosti kemur f5-f4 ásamt
Rh6-f7-e5.)
15. ... Hae8 17. Rdxe4-Bxh3
16. Bd3-fxe4
(Mannsfórn af einfaldari
gerðinni. Gallinn er bara sá að
hvitur fær ágætis mótvægi
vegna veikleikans sem nú
myndast á f6-reitnum.)
18. Itd5!
(Eftir 18. gxh3 Dxh3 19. Bg3
Bd4+ 20. Hf2Rg4! er hvitur illa
beygður.)
18. ... Bg4 19. I)b3
(Með tvöfaldri hótun, 20. Dxb7
og 20. Rf6-)
19. ...Rd4 21. Kh2
20. Dxb7-Re2+
(En ekki 21. Khl Hxe4!
o.s.frv.)
21. ... c6?
(Eftir þennan slaka leik nær
hvitur frumkvæðinu. 21. - Bh5
eða 21.—Bf5 voru leikir sem
komu sterklega til greina.)
22. Dxd7-Bxd7 23. Re7+!
(Svona einfalt er það. Svartur
tapar nú skiptamun.)
23. ...Hxe7 28. Bxe5-Bxe5
24. Bxe7-Rg4+ 29. Rc5!-Bg4
25. Khl-Hxf4 30. Hel-Bxb2
26. Bxd6-Re5 31. Be4!
27. Hxf4-Rxf4
Margeir Pétursson
(Smiðshöggiö. Svarta staðan
hrinur i rúst.)
31. ... Bc3 39. Hb5-a4
32. Ilbl-Bb4 40. Ha5-Kf6
33. Rd3-Rxd3 41 Hxa4-h5
34. Bxd3-a5 42. Ha7-Be6
35. Hb7-Be6 43 a4
36. Hc7-c5
37. He7-Bf7
38. Hb7-Kg7
Svartur gafst upp. A-peðið
verður ekki stöðvað með góðu
móti.