Þjóðviljinn - 28.01.1978, Page 16

Þjóðviljinn - 28.01.1978, Page 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 28. janúar 1978. Félag járniðnaðarmanna Allsherjar- atkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs Félags járniðnaðar- manna fyrir næsta starfsár. Frestur til að skila tillögum rennur út kL 18.00 þriðjudaginn 31. janúar n.k. Tillögur eiga að vera um 7 menn i stjórn félagsins og auk þess um 14 menn til við- bótar i trúnaðarmannaráð og 7 varamenn þeirra. Tillögum skal skila til kjörstjórnar félags- ins i skrifstofu þess að Skólavörðustig 16, 3. hæð, ásamt meðmælum amk. 77 full- gildra félagsmanna. Stjórn Félags járniðnaðarmanna Gamlir Oslóbúar F.Í.S.N. Heldur þorrablót, laugardaginn 24. febrúar i Fáksheimilinu. Yinsamlega tilkynnið þátttöku sem fyrst i sima 8 62 96 á kvöldin (Hafþór). HÚSAVIÐGERÐIR Tökum aö okkur vifthald á húseignum, svo sem járnklæftn- ingar, gluggaviögerðir, þéttingar og viögeröir á stein- steyptum þakrennuin o.fl. Erum umboösmenn fyrir þétti- efni á steinþök, asbest þök og þéttiefni i steinsprungur. Viö gerum bindandi tilboft i verkefnin. Hagstæöir greiösluskil- málar. Verkpantanir i sima 41070. Skagaströnd — Skjaldarmerki Hreppsnefnd Höfðahrepps hefur ákveðið að efna til samkeppni um gerð skjaldar- merkis fyrir kauptúnið. Veitt verða ein verðlaun, 100.000.- kr. Tillögum skal skila á skrifstofu Höfða- hrepps fyrir 1. mars n.k. og skulu þær merktar dulnefni, en nafn og heimilisfang fylgja með i lokuðu umslagi. Hreppsnefnd Höfðahrepps Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar og jeppabifreiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðju- daginn 31. janúar kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. Herstoðvaa ndstæði nga r Herstöðvaandstæðingar i Kópavogi í Fundur verður haldinn um starf og stefnu Samtaka herstöövaand- sta.-öinga í Þinghóli við Hamraborg þriðjudaginn 31. janúar kl. 20.30. Ath.: Nú er tækifærið til að koma skoðunum á framfæri. —Starfshópur Samtaka herstöðvaandstæðinga i Kópavogi. Vetrarriki á Sigiufiröi Átak, sem olli algerum umskiptum — Loöna hefur veriö brædd hér ööru hvoru síðan um áramót, en | ekki aö staðaldri, þvi veiöi hefur veriö slitrótt. En þaö er veriö aö bræöa hérna núna og mun svo sjálfsagt verða áfram, ef friður gefst til veiða. Svo mælti Benedikt Sigurðsson á Siglufirði i viðtali við Landpóst s.l. þriðju- dag. Atvinna er næg i bænum nú og má raunar segja að svohafiverið siðastliðin þrjú til fjögur ár. Hér vantarraunarfólk.enþákoma nú húsnæðisvandræðin til. Hér er verulegur skortur á húsnæði og hamlar það þvi, að fólk flytji i bæ- inn. Mun nU vera i undirbúningi aðhefjahér töluverðar byggingar i vor. Raunarhefur talsvert verið byggt hér tvö til þrjú siðustu árin og allar gamlar ibUðir, sem hér stóðu auöar frá sildarleysisárun- um, eru nú komnar i notkun. Búið er jafnvel að innrétta hús, sem ekki hafði verið búið i árum sam- an. BæjarbUar höfðu miklartekjur á siðastliðnu ári og vel gæti ég trUað að mesta tekjuhækkun á landinu frá ári til árs reyndist vera á Siglufirði. Þetta gerbreytt- ist hér allt á árum vinstri stjórn- arinnar. Og þó var þetta nU svo sem ekkert stórátak, sem rikið gerði hér. en það nægði samt til þess að koma atvinnulifinu i gang. Hér hefur verið snjór siðan i nóvemberbyrjun,aldrei tekiðupp, og þvi útlit á að góður skiðasnjór verði jafnvel fram á vorið. Af snjónum hefurleittað samgöngur á landi hafa verið býsna erfiðar. Tið hefur verið mjög óstillt og umhleypingasöm i desember og janúar, og hefur það torveldað flugsamgöngur. Undanfarna viku hefur t.d. aldrei viðrað til flugs,en nú á að fljUga 1 dag, enda bliðu veður. I gær var hér hinsvegar ofsaveður af norðri eða norð- austri. Plötur fuku af húsum og kyrrstæður bill fauk á hliðina. bs/mhg Frá U.M.F. Skallagrími Starfsemi frjálsiþróttadeildar Skallagrims var mikil á siðasta starfsári, þ.e. frá nóv. 1976 til okt. 1977. Æfingar hófust i nóv. og var æft einu sinni i viku yfir veturinn, sem er nóg á meðan hópur sá, er æfingar stundar, er eingöngu skólafólk, sem hefur þrjá tima i leikfimi vikulega. Æfingar voru mjög vel sóttar enda áhugi mikill og allir stað- ráðnir i að gera sitt besta. En um miðjan nóv. fór deildin af stað með viðavangshlaup, þ.e. hlaupið var sex sinnum á tima- bilinu nóv.-apnl. Þátttaka i hlaupum þessum var góð i yngri flokkunum, en léleg i þeim eldri. Höfuðtil- gangur með hlaupunum var aö fá fólk til að hreyfa sig.en eldd til keppni. Aðeins einn keppandi var i flokki 25 ára og eldri, Kjartan Magnússon, og hlaut hann sérstaka viðurkenningu. Alls vorumót yfir veturinn 10; 5 innanhúss og 5 utan. Æfingar utanhúss hófust i lok mai' og var æft tvisvar i viku og voru þær ekki siöur sóttar en æfingar vetrarins, enda hafði sá árangur, er náðist á vetrar- mótunum, mjög hvetjandi áhrif á þá, er stunda iþróttir, og ekki siður á aðra að koma nú og vera með. Sumarmótin voru alls 15; 4 hér i héraði, en 11 annarsstaðar s.s. i Reykjavik, Hafnarfirði, Selfossi, Akranesi, Eiöum, og svo átti félagið tvo fulltrúa á Andrésar Andar leikunum i Noregi, Svöfu Grönfeldt og Iris Grönfeldt i Sviþjóð, en þær systur hafa staðið sig mjög vel og eiga báðar islensk met. Iris setú met i spjótkasti, 36,86 m i flokki telpna og meyja og Svafa setti isl. met i flokki telpna, 4,86 m i langstökki og 65,3 i 400 m hlaupi. Einnig má geta um nýtt Borgarfjarðarmet i 4x100 m boðhlaupi, sveit Skallagrims bætti 26 ára gamalt met, hljóp á 47,1 sek. en I sveit- inni voru: Friöjón Bjarnason, Kristján Bjarnason, Steinar Ragnarsson og Rúnar Hjartar. Hin góða aðstaða, sem nú er komin hér i Borgarnesi, hefur oröið til þess, aö öll mót innan- héraðs eru nú haldin héribæ. f völlurinn er orðinn hin mesta prýði I bænum. Nú vantar aðeins aðstöðu við völlinn, s.s. búningsherbergi, böð og geymslur. Verkefni þessa árs, 1978, eru mörg. Ber þar hæst Islandsmót 14 ára og yngri, sem haldið verður hér i Borgarnesi i lok júllmánaðar, en þá munu um 150-200 ungmenni koma hingað. Þetta er vissulega fagnáðarefni og sýnir að sá árangur og mikli áhugi innan UMSB hefur vakið athygli og eins það, að Borgar- nessvöllur er nú einn fárra valla utan Reykjavikur, þar sem hægteraðhaldamótsem þetta. Um miðjan jan. hófust viða- vangshlaup og er ætlunin að vera með 6 hlaup, eins og á siðasta ári og munu sömu reglur gilda. Er ástæöa til að hvetja alla, unga sem aldna, að koma nú og vera með, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Þjálfarar deUdarinnar hafa verið Eyjólfur Magnússon og Flemming Jessen, en einnig hefur Bjarni Sigurðsson unnið mikið starf fyrir deildina. —mhg Olögmætir verslunar- hættir? Vestfirðingur nokkur hafði samband við okkur og bað um að komið yrði á framfæri þeirri spurningu, hvort það flokkist ekki undir lög um ólögmæta verslunarhætti þegar gotteriis- salinn i Shellstöðinni á Bolungarvik neitar að taka við tómum ölflöskum og greiða út i hönd, heldur setur þaö skilyrði fyrir að taka við þeim, að menn versli a.m.k. fyrir andvirði glerjanna. Er spurningunni hér með komið á framfæri. Borgarnes Umsjón: Magnús H. Gislason

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.