Þjóðviljinn - 31.01.1978, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 31. janúar 1978.
Kaupfélagsstjóri
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag
Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga er
laust til umsóknar.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist
formanni félagsins, Aðalbirni Benedikts-
syni, Hvammstanga eða Baldvin Einars-
syni starfsmannastjóra Sambandsins,
sem gefa nánari upplýsingar, fyrir 20.
febrúar n.k.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
Reykt sild
ISLENSK
MATVÆLI H/F
HAFNARFIRÐI
Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garöabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
Gjöf
lóns Sigurðssonar
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar hefur til ráð-
stöfunar á árinu 1978 3.1 milj. kr. Samkvæmt reglum skal
verja fénu til',,verðlauna fyrir vel samin visindaleg rit, og
annars kostar til þess að styrkja útgáfur merkilegra
heimildarrita”. Heimilt er og að „verja fé til viðurkenn-
ingar á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem hafa vis-
indarit i smiðum.” öll skulu rit þessi „lúta að sögu ís-
lands, bókmenntum þess, lögum, stjórn og framförum.”
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar auglýsir hér
með eftir umsóknum um fjárveitingar úr sjóðnum. Sú
breyting hefur orðið á, að i stað menntamálaráuðneytis
hefur forsætisráðuneytið tekið að sér vörslu sjóðsins.
Skulu umsóknir stilaðar til verðlaunanefndar, en sendar
forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsi, fyrir 20. mars n.k.
Umsóknum skulu fylgja rit, ritgerðir eða greinargerðir
um rit i smiðum.
Reykjavik, i janúarmánuði 1978.
Verðlaunanefnd
Gjafar Jóns Sigurðssonar.
Gils Guðmundsson
Magnús Már Lárusson
Þór Vilhjálmsson
Stýrimannafélag
Islands
heldur félagsfund að Hótel Loftleiðum
miðvikudaginn 1. febrúar kl. 20.30.
Fundarefni: Félagsmál
Stjórnin.
Frá Borgarfiröi eystra:
Framtíð byggðarlags-
ins veltur á höfninni
j
— Hér er norðaustan átt og
snjókoma og leiðin til Héraðs,
Vatnsskarðið, lokuð, sagði séra
Sverrir Haraldsson sóknar-
prestur i Borgarfirði eystra við
Landpóst, er þeir ræddust við
s.l. miðvikudag.
Samgöngur
— Einu samgöngurnar, sem
við höfum i raun og veru er flug-
ið, bætti séra Sverrir við. Það er
flogið hingað frá Egilsstöðum
einu sinni á dag, þegar fært er.
Flugið i vetur hefur gengið vel
en mér finnst þeir ansi djarfir,
flogið stundum, að þvi er leik-
manni sýnist, i tvisýnu en þetta
eru öruggir menn. Flugið er að
sjálfsögðu ákaflega mikið not-
að.
Gert er ráð fyrir þvi að opna
Vatnsskarðið tvisvar i mánuði
en það er nú ekki alltaf gert ef
útlitið er slæmt. Nú nýlega var
það opnað en lokaðist strax aft-
ur. Skip sjást varla hér. Þau
fara framhjá. Það er hrein
hending ef það kemur annað
hvort Esjan eða Heklan, nánast
tilviljun.
Veðurfar
Hér hefur ekki verið, venju
fremur, snjóþungt i vetur en tið
afskaplega umhleypingasöm.
Það hafa jú komið byljir en um-
hleypingarnir hafa verið ó-
venjumiklir. Það er ekki stund-
inni lengur sama veður, ýmist
norðan með snjókomu, vestan-
rok og svo sunnanrigning. Eng-
in beit. Féð er alveg á gjöf.
Engin atvinna
Atvinna er hér engin, eins og
Sverrir Haraldsson
er. Menn, sem fara á vertið, eru
farnir eða að búast til ferðar.
Þeir eru alltaf nokkrir, sem það
gera, en fer fækkandi. Annars
er þetta alveg dauður timi hér
um þetta leyti, hvað atvinnulifið
áhrærir. Og það lifnar naumast
yfir þvi fyrr en þeir fara að búa
sig á grásleppuveiðarnar i vor.
Hér er engin föst vinna. Venju-
lega hafa nú einhver hús verið i
smiðum en þau eru engin núna.
Ibúar i byggðinni eru um 240
og skiptast nokkuð jafnt milli
sveitar og þorps. Fólki fer alltaf
heldur fækkandi
Hafnleysiö
Það er höfnin, sem okkur
vantar, þvi hér byggist allt á
sjónum. Ef höfn kæmi hér þá
hefði þessi f jörður ekkert minna
að bjóða en firðirnir hérna i
kring. En ég held að allt sé i ó-
vissu með höfnina eftir eyði-
legginguna þarna i vetur. Það
hefur ekkert verið lagfært af
þvi, sem þá gekk úr skorðum.
Verði ekkert að gert i þessum
efnum þá er það algjört rothögg
á byggðina hér. Ýmsir voru
farnir að byggja sina framtið á
varanlegri og góðri höfn, sem
við töldum okkur sjá hilla undir.
Menn voru bjartsýnir og bátun-
um var farið að fjölga.
Skóli og félagslíf
Við höfum hér barnaskóla, 1.
og 2. bekk i skyldunáminu. En
okkur vantar 3. bekkinn. Aftur á
móti hefur gengið hálf
skrikkjótt með kennarana. Þó
læt ég það vera i vetur. Við er-
um búnir að hafa sama skóla-
stjóra i þrjá vetur. En það hefur
alltaf skipt um kennara á hverju
hausti, en hér er einn fastur
kennari með skólastjóranum og
svo stundakennari eitthvað
smávegis. Við höfum aldrei
fengið réttindamann sem fasta-
kennara. Einu sinni höfðum við
ágætan mann, Ólaf vitavörð i
Svalvogum. Hann var prýðileg-
ur og mikil eftirsjá að honum.
Félagslif er hér nú ekki mikið.
Þó er hér ungmennafélag, kven-
félag og leikfélag, sem sýndu
Skjaldhamra Jónasar i vetur.
Skólastjórinn okkar, Einar Þor-
bergsson, sá um leikstjórnina.
—sh/mhg
Perlusteinsvinnsla í
Borgarfirði
Fyrir um það bil 28 árum kom
fram hugmynd um hvort ekki
mætti vinna efni úr perlusteini
hérlendis.
Málið lá i dvala að mestu þar
til i tið siðustu vinstri stjórnar.
Þá skipaði Magnús Kjartans-
son, þáverandi iðnaðarráð-
herra, svokallaða gosefnanefnd,
sem kanna skyldi möguleika á
að vinna verðmæti úr islenskum
gosefnum til iðnaðar innan-
lands. Þar með var vinnsla á
perlusteini aftur komin fram i
dagsljósið. Iðnþróunarstofnun
hefur siðan, ásamt gosefna-
nefnd, unnið að rannsóknum á
perlusteini og vinnslu hans.
Einnig hafa tilraunir þar um
verið gerðar i Sementsverk-
smiðju rikisins.
Þegar þessi mál tóku að skyr-
ast vaknaði m.a. áhugi i Borg-
arfirði fyrir að hefja vinnslu á
perlusteini. Stofnað var hlutafé-
lagið „Prestahnjúkur” i þeim
tilgangi. Stofnendur eru allflest
sveitarfélög i Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslum nofðan Skarðs-
heiðar, ásamt fyrirtækjum og
einstaklingum. Hér má einnig
geta þess, að stofnuð hafa verið
félög á Akranesi og i Hveragerði
i sama tilgangi og er ætlunin að
um samstarf verði að ræða milli
þessara þriggja aðila að vissum
þáttum. M.a. er að þvi stefnt, að
reka sameiginlegt fyrirtæki,
sem annaðist frumvinnslu. t þvi
fyrirtæki mun „Prestahnjúkur”
eiga meiri hlutann.
Möguleikar á nýtingu perlu-
steins eru margir. Má þar nefna
útflutning á honum þurrkuðum
og flokkuðum og nú þegar hafa
borist nokkrar fyrirspurnir er-
lendis frá um það. Einnig eru
| margir möguleikar til full-
vinnslu innanlands, t.d. sem
einangrunarefni, i múrhúðunar-
blöndu, milliveggjaeiningar,
plötur samsvarandi spónaplöt-
um, jarðvegsbætir, til ölgerðar,
málningarframleiðslu og eru
hér þó aðeins taldir upp fáir
möguleikar.
Fjárhagslegur grundvöllur
fyrir rekstri fyrirtækja, sem
vinna úr perlusteini, hefur litið
verið kannaður. Það, sem gerir
verkefnið áhugavert er, að um
er að ræða innlent hráefni, sem
i flestum eða öllum tilfellum
mundi leysa innfluttar vörur
eða innflutt hráefni að hólmi.
(Heimild: Röðull)
—mhg
1400 refir - 4000
minkar
Svipaður fjöldi refa var unn-
inn s.l. ár og að undanförnu eða
um 1400 dýr. ötullega hefur ver-
ið unnið að eyðingu villiminka á
árinu, sérstaklega i varplöndum
og á heiðum uppi.
Veiddir minkar á árinu voru
um 4000 dýr eða svipuð tala og
áður. Á vegum veiðistjóra hafa
verið gerðar tilraunir með að
fækka vargfugli með lyfjum og
lofa þær tilraunir góðu. Drepnir
hafa verið um 3000 fuglar á
þessum tilraunaveiðum.
(Heimild: Uppl. þjón. landb.).
—mhg
Ötullega hefur verið unnið að
eyðingu minks á varplöndum.
VOf
Umsjón: Magnús H. Gíslason
J