Þjóðviljinn - 17.02.1978, Side 3
Köstudagur 17. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Norrœnir menningardagar í Vestmannaeyjum í sumar
Maðurinn og hafíð
1978
Meinningar- og fraeðslusam-
band alþýðu hefur ásamt hlið-
stæðum samtökum á Norðurlönd-
um beitt sér fyrir, að haldnir
verði i Vestmannaeyjum i sumar
Menningardagar sjómanna og
fiskvinnslufólks. Þessi hátið hef-
ur verið nefnd „Maðurinn og haf-
ið 1978”, og hefur tekist samstarf
um hana við bæjarstjórn Vest-
mannaeyjakaupstaðar, sjó-
manna- og verkalýðsfélög i Eyj-
um, atvinnurekendur þar og fjöl-
marga aðila aðra.
Verkalýðsfélag
Borgarness
upp
samn-
og mótmælir
kjaraskerðingar-
áformum ríkis-
stjórnarinnar
Aðalfundur Verkalýðsfélags
Borgarness var haldinn hinn 12.'
febrúar s.I. 1 skýrslu stjórnar
kom fram að kjaramálin voru að-
alviðfangsefni félagsins á árinu
1977 og á fundinum var sam-
hljóma samþykkt eftirfarandi til-
laga:
„Aðalfundur Verkalýðsfélags
Borgarness, haldinn 12. febrúar
1978, mótmælir harðlega þeirri
harkalegu árás á frjálsan samn-
ingsrétt og lifskjör launafólks,
sem felst i efnahagsráðstöfunum
rikisstjórnarinnar. Slikar aðgerð-
ir draga úr trú manna á gildí
samninga og heiðarlegra vínnu-
bragða stjórnvalda, sem ættu þó
að vera til fyrirmyndar og stuðla
að þvf að staðið sé við gerða
samninga.
Fundurinn telur að verkalýðs-
hreyfingin verði nú að standa ein-
huga saman og hindra allar til-
raunir, sem miða að þvi aö skerða
þá samninga sem i gildi eru. Með
tilliti til þeirra aðstæðna sem nú
hafa skapast samþykkir fundur-
inn að segja upp öllum kaupliðum
kjarasamninganna nú þegar,
samanber heimild i ramma-
samningnum frá 22. júni 1977.”
Á árinu 1977 voru haldnir 9 fé-
lagsfundir og 26 stjórnar- og trún-
aðarmannaráðsfundir i Verka-
lýðsfélagi Borgarness, og gefið
var út fjölritað fréttabréf sem
dreift var til félagsmanna. Farin
var skemmtiferð til Vestmanna-
eyja og tvær leikhúsferðir til
Reykjavikur. Haldið var nám-
skeið á vegum stéttarfélaganna i
Borgarnesiog MFA um trúnaðar-
manninn og samningamálin.
Stjórn félagsins fyrir árið 1978
var sjálfkjörin og skipa hana:
. Jón Agnar Eggertsson, formaður,
Davið Sverrisson, ritari, Ingi-
björg Magnúsdóttir, gjaldkeri,
Baldur Jónsson fjármálaritari,
Þuriður Bergsdóttir og Guö-
mundur Egilsson, meðstjórnend-
ur, og varaformaður er Þorgeir
Guðmundsson.
Aðrir i varastjórn eru Arndis F.
Kristinsdóttir, vararitari, Agnar
Ólafsson, varagjaldkeri, Sigurður
Eiðsson varafjármálaritari og
Svava Kristjánsdóttir og Anna
Marla Guðbjartsdóttir varameð-
stjórnendur.
Menningardagarnir munu
standa dagana 29. júni — 2. júli
með ráðstefnu um kjör fólks i við-
komandi starfsgreinum og fjöl-
breyttri dagskrá, sem starfshóp-
ar sem myndaðir hafa verið i
Eyjum eru þegar farnir að undir-
búa.
Skipuð hefur verið fram-
kvæmdanefnd hátiðarinnar með
fulltrúum hinna ýmsu starfsaðila
og eiga sæti I henni Reynir Guð-
steinsson og Sigurgeir Jónsson af
hálfu bæjarstjórnar; fyrir verka-
lýðssamtökin i Eyjum Jón Kjart-
ansson, Jóhanna Friðriksdóttir
og Elias Björnsson; af hálfu at-
vinnurekenda Ágúst Bergsson,
Gisli R. Sigurðsson og Magnús
Bjarnason; fyrir ýmis áhuga-
mannafélög óg fleiri þeir Hlöðver
Johnsen, Sigurgeir Scheving og
Ástþór Jóhannsson, og af hálfu
MFA Stefán ögmundsson og Karl
Steinar Guðnason.
Framkvæmdastjóri hefur verið
ráðin Vilborg Harðardóttir.
Þetta er i fyrsta sinn sem MFA
á Norðurlöndum efna til menn-
ingardaga á Islandi á samnor-
rænum grundvelli, en þeir hafa
verið haldnir annars staðar, t.d.
Járnbrautardagar i Noregi,
Skógarhöggsdagar i Finnlandi og
Námudagar i Sviþjóð og Noregi,
og er tilgangurinn hverju sinni aö
auka veg og virðingu þess fólks
sem viðkomandi störf vinnur og
efla skilning annarra á störfum
þess og áhugamálum.
Styrkur hefur fengist til menn-
ingardaganna hér frá Norræna
menningarmálas jóðnum.
Ekki —
Heldur
Vegna fréttar, sem birtist I
Þjóðviljanum ekki alls fyrir löngu
um mismunandi verð Cannon
myndavéla, sér blaðið ástæðu til
að taka fram, að ekki var átt við
verðlag eða verslunarhætti i
versluninni Gevafoto, Austur-
stræti.
ARAS...
á útsölu-
markaðinn?
Nei, sem betur fer ræður friðsemdin ennþá ríkjum, en viijirðu versla
hagkvæmt væri rétt að ráðast nú þegar á vöruúrvalið á útsölumarkaði
Karnabæjar
Hafirðu gert góð kaup á útsölunni
munt þú gera enn betri kaup núna
Laugavegur 66 — 2. hæð
Tískuverslun unga fólksins
Útsölumarkaðurinn
Laugavegi 66 — sími frá skiptiborði 28155