Þjóðviljinn - 17.02.1978, Page 5

Þjóðviljinn - 17.02.1978, Page 5
Föstudagur 17. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA S Samiö í Kuldalegar eöa neikvœðar undirtektir erlendis SALISBURY og víöar 16/2 — Tilkynnt hefur verið að stjórn hvitra manna i Ródesiu og þrenn samtök þarlendra biökkumanna hafi í meginatriðum komist að samkomulagi um nýja stjórn- skipan i landinu. Erlendis er samkomulagi þessu ýmist tekið kuldalega eða þvi er beinlinis vísað á bug. Johannes Vorster, forsætis- ráðherra Suður-Afriku, hefur einn erlendra leiðtoga fagnað fréttinni eindregið. Joshua Nkomo, annar leiðtoga Föður- landsfylkingarinnar, sem stendur að skæruhernaði gegn stjórn hvitra manna, segir að samkomulagið breyti engu. Föðurlandsfylkingin átti engan hlut að viðræðum Ródesiu- stjórnar og blökkumannasamtak- anna þriggja, sem að samkomu- laginu standa. Andrew Young, Kastast í kekki með Egyptum og Keníumönnum Hertaka flugvélar hvorir fyrir ödrum KAÍRÓ 16/2— Egyptar tóku i dag hertaki tvær keniskar farþega- flugvélar með um 130 farþegum og flugliðum og neyddu egypskar herþotur aðra þeirra til þess að lenda á flugvellinum við Kairó. Gerðu Egyptar þetta i hefndar- skyni vegna þess að i gær neyddu keniskar herflugvélar egypska flugvél til að lenda i Keniu, á þeim forsendum að flugvélin væri að flytja vopn til Sómalilands og hefði þar að auki i óleyfi flogið yfir keniskt land. Atvik þessi varpa nokkru ljósi á flækjurnar i sambandi við hern- aðarátökin á austurhorni Afriku. Kenia er það riki i austanverðri Afriku sem er hvað hliðhollast Vesturveldunum, en styður þó málstað Eþiópiu i striðinu við Sómali. Mun þetta stafa af þvi,að i norðausturhluta Keniu eru svæði mestanpart byggð hirðingjum af sómölsku þjóðerni, og gerir Sómaliland þvi tilkall til svæða þessara. Af þeim sökum hafa samskipti Keniu og Sómalilands verið miður vinsamleg. Keniustjórn segir að egypska flugvélin hafi verið fermd sprengikúlum og öðru sprengiefni og hefur gert þann farm upptæk- an. Eþiópiustjórn hefur fyrir all- löngu sakað Egypta um að veita Sómölum hernaðaraðstoð, en Sjfátótt Hljómleíkar HARPÓ sunnudag 19. febr. kl. 21.00 18 ára og eldri. Mánudag 20. febr. kl. 20.30 13 ára og eldri. Miðasala i Faco. Skifunni Hafnarfirði Vikurbæ Keflavik Egyptar hafa til þessa þrætt fyrir það. Talið er liklegt að Egyptar muni sleppa kenisku flugvélunum jafnskjótt og Keniumenn láta egypsku flutningaflugvélina lausa. Umdeild lög gegn hryðjuverka- mönnum BONN 16/2 Reuter — Vestur- þýska sambandsþingið samþykkti i dag með aðeins eins atkvæðis meirihluta stjórnar- frumvarp um umdeðd lög, sem ætlað er að auðvelda lögreglunni að hafa uppi á hryðjuverkamönn- um og hindra að þeir sleppi úr fangeisum. Hin hægrisinnaða stjórnarandstaða greiddi öll at- kvæði gegn frumvarpinu, sem hægrimenn telja að gangi ekki nógu langt, og nokkrir vinstri- sinnaðir þingmenn sósialdemó- krata voru einnig á móti vegna þessað þeir telja að i hinum nýju lögum felist brot á þegnréttind- um. Samkvæmt lögunum getur lög- regla haldið grunuðum mönnum föngnum f allt að 12 klukkustundir og þeim er einnig ætlað að hindra lögfræðinga, sem grunaðir kunna að verða um stuðning við öfga- menn, í þvi að mæta til réttar- halda. Misklíð Breta og F æreyinga LUNDCNUM 15/2 — Alvarleg misklíð virðist komin upp á miili Breta og Færeyinga út af túlkun nýgerðs samnings Efnahags- bandalags Evrópu og Færeyja um veiðar á hvors annars miðum. Heyrst hefur að Færeyingar vilji banna Bretum veiðar á Færeyjamiðum fram i mai i fisk- verndunarskyni og hafi skoskum togara þegar verið visað úr fær- eysku landhelginni á þeim for- sendum. Bruce Millan, Skot- landsmálaráðherra Breta- stjórnar, sagði i dag að breska stjórnin hefði þegar haft sam- band við færeysku stjórnina út af þessu máli og einnig visaði því til EBE. Hélt Millan þvi fram að ef Færeyingar hyggðust bægja breskum togurum úr fiskveiðilög- sögu sinni, stangaðist það á við fiskveiðisamning þeirra og EBE, sem Bretar myndu þá telja úr gildi fallinn. aðalfulltrúi Bandarikjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði að samkomulagið gæti ekki leitt til neins nema þess að striðið i Ródesiu yrði einnig innbyrðis- styrjöld svartra landsmanna. Sovéska stjórnin hefur látið hafa eftir sér að með samkomulaginu sé stefnt að þvi að viðhalda óbreyttu ástandi i Ródesiu með nýrri forhlið. Sagt er að i samkomulaginu sé gert ráð fyrir að hvitir Ródesiu- menfái einir að kjósa 28 þingm • af 100 á fyrirhugað þing. Hvitir landsmenn eru tæplega 270.000 talsins en blakkir um 6,8 miljónir. 1 dag var tilkynnt i Salisbury að samningsaðilar hefðu náð sam- komulagi i meginatriðum um nýja skipan Rósesiuhers, sem nú er undir stjórn hvitra manna. Sagt er að i samkomulaginu sé gert ráð fyrir að einhverjir af skæruliðunum, sem berjast gegn Ródesiustjórn, geti fengið sig tekna i öryggisliðið, en margt er þó óljóst um þetta atriði. Þá er svo að heyra að þegar hinni nýju skipan hafi verið komið á, muni opinbert heiti landsins verða Zimbabwe, sem lengi hefur verið heiti blökkumanna á þvi. Þetta nafn er dregið af rústum miklum, sem að likindum eru minjar eftir voldugt blökkumannariki fyrr á tið, en heitið Ródesia, sem hvitir menn gáfu landinu, er hinsvegar dregið af nafni Cecil Rhodes auðkýfings mikils sem var pott- urinn og pannan i tiltektum Breta er þeir lögðu landið undir sig skömmu fyrir s.l. aldamót. Enn hefur ekki náðst samkomulag um skipan bráða- birgðastjórnar, sem fara á með völd i landinu þangað til nýskipanin, sem gert er ráð fyrir i samkomulaginu, kemst á, en haft er eftir heimildum i Salisbury að um það muni að likindum semjast fyrir lok næstu viku. Biireiðaskoðun í Kópavogi Bifreiðaskoðun i Kópavogi, sem hefst 20. þ.m., lýkur klukkan sextán hvern dag,en ekki kl. 16.30... eins og misritaðist i auglýs- ingu um biíreiðaskoðun frá 8. þ.m. Bæjarfógetinn i Kópavogi. • Blikkiðjan Ásgaröi 7, Garðabæ Önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboö SIMI 53468 0 1 Starfsfólk heimilisþ j ónustu Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar óskar að ráða starfsfólk til heimilisþjón- ustu (ellilifeyrisþegar). Nánari upplýs- ingar veitir forstöðumaður heimilisþjón- ustu, Tjarnargötu 11, simi 18800. Sffl Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar i|i Vonarstræti 4 sími 25500 Vetrarvörur Shell! Sterkt vopn í baráttunni vió Vetur konung Startgas (svari fyrir blöndunga Sætaáklæði í flesta bíla Rakaþerrir Gluggahreinsiefni Frostlögsmælir Rafgeymar, flestar gerðir Ljóskastarar í bíla/ Tjöruhreinsiefni íseyðir fyrir rúðusprautur Lásaolía, hindrar ísingu í bílaskrám Silikon á þéttilistana (sbræðir fyrir bílrúður njóskóflur, 2 gerðir Hleðslutæki 4 og 7 amper Geymasambönd Startkaplar Fjölmargar gerðir af gúmmímottum (ssköfur, margar gerðir Dekkbroddar, skyndikeðjur, 3 gerðir Fást á bensinstöðvum Shell Oliufélagið Skeljungur hf Shell Smávörudeild Sími 81722

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.