Þjóðviljinn - 17.02.1978, Page 11
Föstudagur 17. febrúar 1978 jþJóÐVILJINN — SIÐA 11
Listamennirnir viö verk sin ásamt tveimur andlitsmyndum eftir heiOursgestinn, Jón Kaldal. Þeir eru
f.v. Pjetur Maack, Kjartan Kristjánsson og Gunnar S. Guðmundsson (Ljósm.:eik)
1 dag kl. 17 verður opnuð ljós-
myndasýningin Ljós á Kjarvals-
stöðum en hún hefur verið haldin
annað hvert ár siðan 1971. Að
þessu sinni standa 3 ljósmyndar-
araðsýningunni,þeirGunnar S.
Guðmundsson, Kjartan Krist-
jánsson og Pjetur Maack. Heið-
ursgestur sýningarinnar er Jón
Kaldaf en hann var fyrsti Islend-
ingurinn sem hélt einkasýningu á
ljósmyndum. Sýningin verður op-
in 16—28. febr. kl. 16—22 daglega
og um helgar frá 14—22.
—GFr
Uppruni og meginrennslisleiðir fiestra heitra vatnskerfa
landsins. Kerfin eru sýnd með örvum, og eru þá örvarnar
dregnar frá miðju áætlaðs úrkomusvæöis kerfisins og tii
viðkomandi jarðhitasvæðis. Alls eru á myndinni 47 tölusett heit
vatnskerfi.
Fylgirit
Árbókar H.í.
Uppruni
hvera
og linda
Til þess að gefa almenn-
ingi einhverja hugmynd
um og innsýn í þau rann-
sóknastörf sem fara fram
innan veggja Háskóla
Islands fylgir Árbók H.i
1973-1976 sérstakt rit sem
fjallar um rannsóknir dr.
Braga Árnasonar, prófess-
ors, á uppruna og eðli
grunnvatnskerfa landsins,
bæði heitra og kaldra, og
nefnist það „Rennsli vatns
um bergrunn islands,
Uppruni hvera og linda."
Markmið þessara rannsókna
hafa einkum verið að afla grunö-
vallarþekkingar um þessa hluti,
og helstu niðurstöður sem hafa
fengist eru eftirfarandi.
Tekist hefur að kortleggja
vatnsstreymi kaldra grunnvatns-
kerfa á nokkrum allstórum svæö-
um á landinu. Helstu svæðin eru:
Vatnasvið Þórisvatns og svæðið
suðvestur af því allt niður í Land-
sveit, og svæðið norðan Vatna-
jökuls allt norður i öxarfjörð.
Rannsóknir á hveravatni hafa
gefið eftirfarandi mynd af
uppruna jarðhitans: Hveravatnið
er að uppruna regn. 1 flestum til-
fellum er það regn, sem fallið
hefur á hálendi landsins fyrir all-
löngu siðan. Þar hefur það náð aö
seytla djúpt niður i bergrunninn,
en við það hitnar það. Vatnið
getur siðan streymt neöan jarðar
allt að 150 km leiö, uns það leitar
upp um sprungur og misgengi á
láglendi landsins eða jafnvel á
hafsbotni undan ströndum þess.
Loks hafa þessar rannsóknir
veitt nokkrar upplýsingar um
aldur vatns, þ.e. hve langt er frá
þvi það féll sem regn og þar til
það birtist aftur i uppsprettum
eða borholum. Vatn köldu grunn-
vatnskerfanna er vart meir en
fárra áratuga eða jafnvel aðeins
fárra ára gamalt. Heita vatniö er
hins vegar mjög misgamalt,en þó
i flestum tilvikum miklu eldra en
kalda vatnið. Yngsta heita vatnið
er aðeins nokkurra áratuga gam-
alt, en það elsta er frá siðustu
isöld.
Þegar haft er i huga að vatns-
föll og jaröhiti er megin^undir-
staða þeirrar orku, sem Islend-
ingar eiga, ætti þýðing þessara
rannsókna fyrir orkubúskap
landsmanna að vera nokkuö
augljós. Þaö er álit höfundar rit-
gerðarinnar, að með þessum
rannsóknum höfum við komist
einu skrefi nær þvi lokatak-
marki, ekki aðeins aö vita hvar
eigi að bora eftir heitu vatni,
heldureinnig að vita hve miklu af
þvi við megum dæla upp úr
jörðinni án þess að hætta á að
rányrkja þessa orkulind.
Tflkynnlng
frá Nýja Hjúkrunarskóianum
Fyrirhugað er hjúkrunarnám fyrir ljós-
mæður i Nýja hjúkrunarskólanum. Um-
sóknareyðublöð fást i skólanum. Umsókn-
ir berist fyrir 15. september 1978.
Skólastjóri
Blikkiðfan
Ásgaröi 7, Garöabæ
Önnumst þakrennusmíöi og
uppsetningu — ennfremur-
"hverskonar blikksmíði.
'Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
Félag
járniðnaðarmanna
Félagsfundur
verður haldinn þriðjudaginn 21. febrúar
1978 kl. 8.30 e.h. i Félagsheimili Kópavogs,
uppi.
Dagskrá:
Uppsögn kjarasamninga
Mætið vel og stundvislega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
Iðja,
félag
verksmiðjufólks,
heldur félagsfund i Lindarbæ mánudaginn
20. febrúar, kl. 5 e.h.
Dagskrá:
1. Uppsögn samninga.
2. Kosning fulltrúa á 3. þing Landssam-
bands iðnverkafólks.
Stjórn Iðju.
Aðalfundur
Aðalfundur Prentsmiðju Þjóðviljans h/f
fyrir árið 1977 verður haldinn fimmtudag-
inn 2. mars 1978 og Grettisgötu 3. Fundur-
inn hefst kl. 17.00.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2) önnur mál.
Stjórnin.
Styrkir til háskólanáms á ítaliu
ítölsk stjórnvöld hafa tiikynnt aö þau bjóöi fram I löndum
sem aöild eiga aö Evrópuráöinu fimm styrki til háskóla-
náms á ltaliu háskólaáriö 1978-79. — Ekki er vitaö fyrir-
fram hvort einhver þessara styrkja muni koma í hlut Is-
lendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætiaöir tii fram-
haldsnáms viö háskóla og eru veittir til 12 mánaöa náms-
dvalar. Styrkfjárhæöin er 240.000 lirur á mánuöi auk þess
sem feröakostnaöur er greiddur aö nokkru.
Umsækjendur skuiu hafa góöa þekkingu á frönsku eöa
ensku, eigi vera eldri en 35 ára og skulu hafa lokiö há-
skólaprófi áöur en styrktimabil hefst. Þeir ganga aö ööru
jöfnu fyrir um styrkveitingu sem hafa kunnáttu I Italskri
tungu.
Umsóknum um styrki þessa skai komiö tii menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 23. þ.m. —
Sérstök umsóknareyöublöö fást i ráöuneytinu.
Menntamálaráöuneytiö,
13. febrúar 1978.
Málfrelsiss j ó ður
minnir á heimsenda giróseðla sem greiða
má i hverri bankastofnun og pósthúsL
Póstgirónúmer Málfrelsissjóðs er 31800.
Málfrelsissjóður
Laugavegi 31, simi 29490