Þjóðviljinn - 17.02.1978, Side 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. febrúar 1978
Greinargerð um samninga
við Blaðamannafélag íslands
Fréttatilkynning
Hér fer á eftir greinargerð frá
biaðaútgefendum vegna fram-
kominnar fréttatilkynningar frá
Blaðamannaféiagi Islands, þar
sem augljóst er að meginregla
blaðamanna um hlutlaust
fréttamat hefur ekki verið I
heiðri höfð við samningu henn-
ar.
Meginkrafa blaðamanna er
sú, að algjörir byrjendur i
blaðamennsku verði á sömu
kjörum og margreyndir og/eða
velmenntaðir fréttamenn Rikis-
útvarpsins. Mætti likja þessu
við að iðnnemi á fyrsta ári ætti
að fá sömu laun og iðnmeistari.
Útgefendur hafa boðið, að
blaðamenn er hafa sambæri-
lega starfsreynslu og/eða
menntun og fréttamenn Rikis-
útvarpsins njóti sömu kjara.
Þessu hefur Blaðamannafélag
tslands hins vegar hafnað, m .a.
i þvi formi að neita algjörlega
að taka nokkurt tillit til mennt-
unar er skipa skal i launaflokka.
Annað veigamikið atriði i þess-
um samanburðier þaðað blaða-
menn njóta sérstakra friðinda
umfram fréttamenn, sem nema
i dag milli 14 og 20 þúsund kr. á
mánuði. Þessi friöindi vill
Blaðamannafélagið ekki meta.
Er ekki náöist samkomulag
milli aðila i sérstakri nefnd út-
gefenda og blaðamanna var að-
ilum heimilt að segja upp gild-
andi kjarasamningi. Blaða-
mannafélag Islands notfærði
sér þennan rétt og sagði upp
samningi aðila frá og með 24.
janúar s.l.
Eins og venja er til er slikt á-
stand skapast, þá lagði Blða-
mannafélagið fram ýmsar kröf-
ur. Auk ýmissa friðindakrafna
og annarra sérkrafna voru
lagðar fram kaupkröfur er
námu allt að 105% hækkun
launa frá þvi sem nú er. 1 þessu
sambandi er rétt að taka fram
að launaþróun blaðamanna á
timabilinu 1. desember 1976 til
1. desember 1977 nemur um
47-48% hækkun launa meðan
launataxtar prentara dagblaða
hafa hækkað milli 52-56% á
sama timabili og meöaltals-
hækkun launataxta ASl-félaga i
heild nemur um 60%. Vöntunin
nemur þvi milli 5,7-8,4%. Sið-
asta tilboð vinnuveitenda sam-
svarar 6.5% hækkun launa, en
gagnboð blaðamanna eru nú
upp á um 91 %, Heildarhækkun
iauna á eftir þessu að dæma að
veraum 182% fyrir blaðamenn
meðan hækkun launataxta ASt
nemur um 60%.
Til aö itreka enn frekar kröfur
sinar hefur Blaðamannafélag
tslands hvatt félaga sina til ó-
löglegs yfirvinnubanns og hófst
þaðþann 14. febr. s.l. Að lokum
er rétt að taka fram að
samningsvilji blaðamanna hef-
ur um nokkurt skeið verið i al-
gjörulágmarkiogþvi vartvon á
lausn meðan óbreytt ástand rik-
ir.
Hér fylgja með kröfur blaða-
manna,þannig að lesendur geti
sjálfir dæmt um hversu rétt-
mætar og „hógværar” kröfur
Blaðamannafélagsins eru.
Blaðaútgefendur
Tillögur Biaðamannaféiags
Islands til Félags blaðaútgef-
enda, Útgáfufélags Þjóðviljans
og Dagblaðsins hf. um breyt-
ingar á kjarasamningi aðil-
anna, sem fallinn er úr gildi.
1. Við 1. grein samningsins
verði gerð sú breyting, sem til-
greind er á fylgiskjali 1 við til-
lögur þessar. Greiða skal verð-
lagsuppbót að fullu á laun sam-
kvæmt samningi frá 1. júli 1977.
2. Við þriðju grein þriðja lið
komi talan 50% i staö tölunnar
36%. í fjórða lið sömu greinar
komi talan 100% i stað 85% sem
er greiðsla fyrir aukavinnu og i
stað tveggja klukkustunda út-
kalls komi minnst fjórar stund-
ir. Siðan skal eftirfarandi bæt-
ast við fjórða liðinn: öll yfir-
vinna, sem unnin er á stórhátið-
um (nýársdag, föstudaginn
langa, páskadag, hvltasunnu-
dag, 1. mai, 17. júni, jóladag,
eftir klukkan 12 á hádegi að-
fangadag jóla og gamlársdag)
greiðist með tvöföldu yfir-
vinnuálagi.
Standi blaðamaður svokall-
aða gæsluvakt utan sins vinnu-
tima, þ.e. i' kallfæri við sima t.d.
um helgar, fær hann fullt
vaktaálag fyrir þann tima,og ef
til útkalls kemur fær hann yfir-
vinnuálag I samræmi við ofan-
greind skilyrði.
Hafi starfsmaður ekki fengið
samfellda hvildi a.m.k. 8 klukk-
ustundir vegna yfirvinnu eða
ýmiskonar útkalla, ber honum
átta klukkustunda hvild frá þvi
útkalli eða yfirvinnu lýkur og
þar til hann mætir til reglu-
bundinnar vinnu á ný án skerð-
ingar á þeim reglubundnu laun-
um sem starfsmaður hefði feng-
ið greidd. Fáist ekki tilskilin
hvild greiðist yfirvinnukaup auk
hinna reglubundnu launa (dag-
vinnu, vaktaálags og yfirvinnu)
sem hann hefði fengið greidd.
Þeir sem vinna vaktir skulu i
viku hverri fá tvo samfellda fri-
daga þannig að næturfri komi
fyrir og eftir fridagana.
3. Fjórða grein hljóðaði svo:
Útgefendur greiði fullt fasta-
gjald heimasimafélaga I Bt. Auk
þess greiði þeir 220 umfram-
skref á ársfjórðungi. Þá greiði
útgefendur einnig afnotagjald
útvarps og sjónvarps eftir eitt
ári starfi. „Litsjónvarpsafnota-
gjöld” skulu greidd þar sem um
slikt tæki er að ræða. Þessu til
viðbótar greiði útgefendur
krónur 2400 á mánuði upp I
sima-, útvarps- og sjónvarpsaf-
not til allra félaga i Bt.
Greiddsé ársfjórðungslega á-
skrift sex heimsendra dagblaða
fyrir félaga i Bt.
4. Akvæði samningsins um
sumarleyfi biaðamanna, sem er
að finna i sjöundu grein skulu
breytast á þann hátt, að sumar-
leyfi sé minnst 27 dagar (orlofs-
dagar). Eftir fimm ára starf
verði orlofsdagarnir 30, eftir 10
ára starf 33 og eftir 15 ára starf
36.
Blaðamenn fái 12 daga vetr-
arorlof.
Sé sumarorlof tekið á timabil- ’
inu 1. október til 31. mai kemur
á það 50% álag. Samsvarandi
hundraðshluti fyrir oriof á yfir-
Vinnu verði reiknaður út.
Laugardagur reiknist ekki
sem orlofsdagar i orlofi. Enn-
fremur verði eftirfarandi breyt-
ing gerð á s jöundu grein: Blaða-
menn, sem unniö hafa óslitið i
tfimm ár eða iengir á islenskum
ifjölmiðlum, skulu að loknu
í'imm ára starfi fá þriggja mán-
aða fri' auk orlofs á fullum laun-
um hjá þeim vinnuveitanda sem
iiann starfar hjá þegar friið er
tekið.
5. t áttundu grein verði eftir-
farandi breyting gerð: Þá skulu
félagar i BI, sem hafa verið eitt
ár i samfelldu starfi hjá sama
blaði fram að fæöingu barns
þeirra, fá þriggja mánaða fri á
fullum launum, enda haldi þeir
áfram störfum að frli loknu hjá
sama vinnuveitanda i a.m.k.
eitt ár.
Fyrri hluti áttundu greinar
breytist einnig á þennan hátt:
Veikist blaðamaður, em orðinn
ef fullgildur félagi i BI, lang-
varandi, á hann rétt á fullum
launum á dagvinnukaupi i fimm
mánuði og hálfum launum I
næstu fimm mánuði þar á eftir,
haldist veikindin. Blaðamaður
sem unnið hefur i fimm ár ða
lengur á rtt á sex mánaða lun-
um og hálfum launum aðra sex
mánuði, haldist veikindin.
Blaðamaður, sem unnið hefur i
10 ár eða lengur á rétt á átta
mánaða launum og hálfum
launum i aðra átta mánuði,
haldist veikindin.
6. Við tiundu grein bætist: At-
vinnurekendur greiði upphæð
sem nemur 2% af öllum launum
félaga i Bt i Eftirmenntunarsjóð
Blaðamannafélags Islands.
7. Við tólftu grein bætist:
Blaðamannafélag tslands fái
afrit af greiðslukvittunum
tryggingarfélaganna vegna
ferða- og slysatrygginga félags-
manna.
8. Ný grein komi sem 14.
grein, og númeraröð greina þar
á eftir hækki samsvarandi.
Greinin hljóði svo: Atvinnurek-
endur taka að sér að greiða árs-
gjöld félaga IB1 samkvæmt lög-
um félagsins.
9. Núverandi 14. grein breytist
þannig: Stjórn Bt er heimilt að
fyrirskipa meðlimum
þess að ieggja niður vinnu hjá
atvinnurekenda, sem dregið
hefur að greiða i lifeyrissjóð,
menningarsjóð, orlofsheimila-
sjóð, eftirmenntunarsjóð og
ársgjöld félaga I tvo mánuði eða
lengur.Þettaskal þóaðeins gert
að beiðni stjórnar sjóðanna og
stöðvunin tilkynnt með mánaö-
ar fyrirvara.
10. Núverandi 15. grein hljóði
svo: Samningur þessi gildir frá
1. júli' 1977 til 1. marz 1979.
11. Núverandi 17. grein hijóði
svo: Handritalesarar og próf-
arkalesarar á blöðum skulu fá
sömu laun og blaðamenn sam-
kvæmt fyrstu grein samnings-
ins.
12. Núverandi 18. grein hljóði
svo: Allir fastráðnir starfsmenn
sem stunda blaðamennsku.ljós-
myndun, handrita- og prófarka-
lestur og útlitsteiknun, skulu
gerast félagar i Bl. Fyrir fast-
ráðna félaga i B1 skal uppsagn-
arfrestur útgefandans vera
jafnlangur i mánuðum og
starfsaldur i árum, þó ekki
lengri en 12 mánuðir, nema
hvað uppsagnarfresturinn skal
aldrei vera styttri en þrir mán-
uðir. Uppsagnarfrestur félaga I
Bí skal vera þrir mánuðir.
13. Inn i samning skulu koma
ákvæði um að útgefendur sjái
félögum i B1 fyrir mat, ef þeir
standa vaktir á matmálstimum.
14. 21. grein hljóði svo: Trún-
aðarmaður BI á hverjum vinnu-
stað skal m.a. hafa þau réttindi
að eigi er heimilt að ráða nýjan
blaðamannán hans vitundar né
segja upp biaðamanni. Trúnað-
armaður félagsins skal vera
fulltrúi i stjórn þess fyrirtækis
sem hann starfar hjá, með til-
lögurétt og málfrelsi.
15. Inn I samninginn komi á-
kvæði um greiðslu fyrir afnot
fyrirtækis af tækjum starfs-
manna, svo sem bilum, ljós-
myndavélum og segulböndum.
16. Inn I samninginn komi á-
kvæði um greiðslu 50% álags
þegar menn þurfa að gegna
tveimur störfum samtimis, t.d.
þegar blaðamaður þarf auk
skrifa sinna að annast ljós-
myndatökur og öfugt (þ.e. þeg-
ar ljósmyndarar þurfa að
skrifa).
17. Blaðamannafélag Islands
áskilur sér allan rétt til frekari
tillögugerðar i þessum
samningum.
Blaðamannafélag Islands gerir tillögu um að laun blaða-
manna verði svohljóðandi frá 1. júli 1977.
Mánaðarlaun Arslaun
A fyrsta 2. fl. 3. fl. 2. fl. 3. fl.
starfsári 225.275 234.737 2.703.300 2.816.844
Eftir 1 ár 230.584 240.269 2.767.008 2.883.228
eftir 2ár 271.619 283.027 3.259.428 3.396.324
eftir 4 ár 278.415 290.108 3.340.980 3.481.296
eftir 6 ár 285.179 297.157 3.422.148 3.565.884
eftir 8 ár 292.038 304.304 3.504.456 3.651.648
eftir 10 ár 297.120 309.599 3.565.440 3.715.188
eftir 12 ár 307.929 320.862 3.695.149 3.850.344
eftir 15 ár 317.168 330.480 3.806.016 3.965.760
Hinn 1. desember 1977 hækki allir mánaðalaunataxtar um
4,3%, hinn 1. júni 1978 um 4,1% og hinn 1. september 1978 um
3,2%, hinn 1. desember 1978 um 5% og hinn 1. febrúar 1979 um
5%.
Ritstjórnarfulltrúar og fréttastjórar taka laun samkv. 4. flokki
sem séu a.m.k. 20% hærri en 3. fl. Ritstjórar taki laun sem séu
a.m.k. 40% hærri en 3. fl.
Stúdentar
áfram
FH fékk stig
í toppbaráttunni
Stúdentar áttu ekki i erfiðleik-
um með slakt lið Fram er liðin
mættust i 1. deildarkeppninni i
körfuknattleik I gærkvöldi i
iþróttahúsi kennaraskóla. Leikn-
um lauk með sigri ÍS sem skoraði
99 stig gegn aðeins 74 stigum
Framara.
Stúdentar höfðu ávallt frum-
kvæðið i leiknum i gærkvöldi. Eft-
ir 13 minútna leik var staðan orð-
in 26:18 tS i vil og eftir það gáfu
þeir hvergi eftir og sigruðu ör-
ugglega eins og áður sagði með
99:74 eftir að staðan i leikhléi
hafði verið 41:30 IS i vil.
Bestan leik fyrir IS átti Dirk
Dunbar að Venju og skoraði 33
stig þrátt fyrir að hann væri með
afbrigðum óheppinn með skot sin
úr dauðafærum.
Þá átti Steinn Sveinsson mjög
góðan leik sérstaklega i vörninni
og er nú að verða einn af okkar
bestu varnarmönnum. Hann lék
nú sinn 200. leik með M.fl. IS og
skilaði sinu hlutverki vel að
venju.
Hjá Fram var Simon Ólafsson
bestur og skoraði einnig mest eða
18 stig. Þá hitti Þorvaldur Geirs-
son vel i siðari hálfleik og var
harður i fráköstunum.
Þá er eftir að geta þáttar dóm-
aranna þeirra Kristbjarnar Al-
bertssonar og Erlends Eysteins-
sonar. Þeir dæmdu illa — voru
ósamkvæmir sjálfum sér.
— SK.
Staðan i islandsmótinu eftir leik-
inn í gærkvöldi er þessi:
KR 9 8 1 865:718 16
UMFN 9 8 1 794:680 16
Valur 10 8 2 897:812 16
IS 10 8 2 919:841 16
1R 10 3 7 850:903 6
Þór 927 679:741 4
Fram 11 2 8 854:954 4
Ármann 10 0 10 786:997 0
— SK.
Það var mikill darraðar-
dans stiginn í íþróttahús-
inu í Hafnarfirði í gær-
kvöldi þegar Hafnarfjarð-
arrisarnir FH og Haukar
léku þar í 1. deildinni.
Leiknum lauk með sigri
FH 19:18 eftir að Haukarn-
ir höfðu náð fimm marka
forustu þegar siðari hálf-
leikur var hálfnaður. Stað-
an var þá 15:10 Haukum í
vil.
En þá hrundi allt hjá Haukun-
um, FH-ingar skoruðu hvert
markið á fætur öðru,og þegar eft-
ir voru 4 minútur var staöan orðin
jöfn 17:17. Siðan skoruðu Hauk-
arnir 18:17,en enn náöu FH-ingar
aö jafna metin og siðan þegar 40
sekúndur voru til leiksloka var
brotið iliilega á Geir Hallsteins-
syni þegar hann reyndi að fara
inn úr horninu, og viti var dæmt.
Úr þvi skoraði Janus Guðlaugs-
son örugglega og sigur FH blasti
við. Haukarnir fengu þó boltann,
en fyrir klaufaskap misstu þeir
hann og FH-ingarnir náðu að
halda knettinum þar til leiktim-
inn rann út og sigurinn var
þeirra.
Gunnar Einarsson varði mark
Hauka vel i gærkvöldi, en einnig
átti Stefán Jónsson góðan leik.
Geir var tekinn úr umferð hjá
FH og var leikur FH-liðsins fyrir
bragðið ekki góður. Þá var vörn
FH-liðsins svo og markavarslan
slök.
Staðan i mótinu er nú þessi:
FH—Haukar 19:18
Vikingur
FH
Haukar
1R
Fram
Valur
KR
Ármann
5320 106:85 8
4400 85:72 8
5131 93:91 5
5131 112:113 5
5122 88:91 4
5113 88:91 3
5113 100:109 3
4103 75:87 2
SK.