Þjóðviljinn - 17.02.1978, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 17.02.1978, Blaðsíða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. febrúar 1978 Greinargerð um samninga við Blaðamannafélag íslands Fréttatilkynning Hér fer á eftir greinargerð frá biaðaútgefendum vegna fram- kominnar fréttatilkynningar frá Blaðamannaféiagi Islands, þar sem augljóst er að meginregla blaðamanna um hlutlaust fréttamat hefur ekki verið I heiðri höfð við samningu henn- ar. Meginkrafa blaðamanna er sú, að algjörir byrjendur i blaðamennsku verði á sömu kjörum og margreyndir og/eða velmenntaðir fréttamenn Rikis- útvarpsins. Mætti likja þessu við að iðnnemi á fyrsta ári ætti að fá sömu laun og iðnmeistari. Útgefendur hafa boðið, að blaðamenn er hafa sambæri- lega starfsreynslu og/eða menntun og fréttamenn Rikis- útvarpsins njóti sömu kjara. Þessu hefur Blaðamannafélag tslands hins vegar hafnað, m .a. i þvi formi að neita algjörlega að taka nokkurt tillit til mennt- unar er skipa skal i launaflokka. Annað veigamikið atriði i þess- um samanburðier þaðað blaða- menn njóta sérstakra friðinda umfram fréttamenn, sem nema i dag milli 14 og 20 þúsund kr. á mánuði. Þessi friöindi vill Blaðamannafélagið ekki meta. Er ekki náöist samkomulag milli aðila i sérstakri nefnd út- gefenda og blaðamanna var að- ilum heimilt að segja upp gild- andi kjarasamningi. Blaða- mannafélag Islands notfærði sér þennan rétt og sagði upp samningi aðila frá og með 24. janúar s.l. Eins og venja er til er slikt á- stand skapast, þá lagði Blða- mannafélagið fram ýmsar kröf- ur. Auk ýmissa friðindakrafna og annarra sérkrafna voru lagðar fram kaupkröfur er námu allt að 105% hækkun launa frá þvi sem nú er. 1 þessu sambandi er rétt að taka fram að launaþróun blaðamanna á timabilinu 1. desember 1976 til 1. desember 1977 nemur um 47-48% hækkun launa meðan launataxtar prentara dagblaða hafa hækkað milli 52-56% á sama timabili og meöaltals- hækkun launataxta ASl-félaga i heild nemur um 60%. Vöntunin nemur þvi milli 5,7-8,4%. Sið- asta tilboð vinnuveitenda sam- svarar 6.5% hækkun launa, en gagnboð blaðamanna eru nú upp á um 91 %, Heildarhækkun iauna á eftir þessu að dæma að veraum 182% fyrir blaðamenn meðan hækkun launataxta ASt nemur um 60%. Til aö itreka enn frekar kröfur sinar hefur Blaðamannafélag tslands hvatt félaga sina til ó- löglegs yfirvinnubanns og hófst þaðþann 14. febr. s.l. Að lokum er rétt að taka fram að samningsvilji blaðamanna hef- ur um nokkurt skeið verið i al- gjörulágmarkiogþvi vartvon á lausn meðan óbreytt ástand rik- ir. Hér fylgja með kröfur blaða- manna,þannig að lesendur geti sjálfir dæmt um hversu rétt- mætar og „hógværar” kröfur Blaðamannafélagsins eru. Blaðaútgefendur Tillögur Biaðamannaféiags Islands til Félags blaðaútgef- enda, Útgáfufélags Þjóðviljans og Dagblaðsins hf. um breyt- ingar á kjarasamningi aðil- anna, sem fallinn er úr gildi. 1. Við 1. grein samningsins verði gerð sú breyting, sem til- greind er á fylgiskjali 1 við til- lögur þessar. Greiða skal verð- lagsuppbót að fullu á laun sam- kvæmt samningi frá 1. júli 1977. 2. Við þriðju grein þriðja lið komi talan 50% i staö tölunnar 36%. í fjórða lið sömu greinar komi talan 100% i stað 85% sem er greiðsla fyrir aukavinnu og i stað tveggja klukkustunda út- kalls komi minnst fjórar stund- ir. Siðan skal eftirfarandi bæt- ast við fjórða liðinn: öll yfir- vinna, sem unnin er á stórhátið- um (nýársdag, föstudaginn langa, páskadag, hvltasunnu- dag, 1. mai, 17. júni, jóladag, eftir klukkan 12 á hádegi að- fangadag jóla og gamlársdag) greiðist með tvöföldu yfir- vinnuálagi. Standi blaðamaður svokall- aða gæsluvakt utan sins vinnu- tima, þ.e. i' kallfæri við sima t.d. um helgar, fær hann fullt vaktaálag fyrir þann tima,og ef til útkalls kemur fær hann yfir- vinnuálag I samræmi við ofan- greind skilyrði. Hafi starfsmaður ekki fengið samfellda hvildi a.m.k. 8 klukk- ustundir vegna yfirvinnu eða ýmiskonar útkalla, ber honum átta klukkustunda hvild frá þvi útkalli eða yfirvinnu lýkur og þar til hann mætir til reglu- bundinnar vinnu á ný án skerð- ingar á þeim reglubundnu laun- um sem starfsmaður hefði feng- ið greidd. Fáist ekki tilskilin hvild greiðist yfirvinnukaup auk hinna reglubundnu launa (dag- vinnu, vaktaálags og yfirvinnu) sem hann hefði fengið greidd. Þeir sem vinna vaktir skulu i viku hverri fá tvo samfellda fri- daga þannig að næturfri komi fyrir og eftir fridagana. 3. Fjórða grein hljóðaði svo: Útgefendur greiði fullt fasta- gjald heimasimafélaga I Bt. Auk þess greiði þeir 220 umfram- skref á ársfjórðungi. Þá greiði útgefendur einnig afnotagjald útvarps og sjónvarps eftir eitt ári starfi. „Litsjónvarpsafnota- gjöld” skulu greidd þar sem um slikt tæki er að ræða. Þessu til viðbótar greiði útgefendur krónur 2400 á mánuði upp I sima-, útvarps- og sjónvarpsaf- not til allra félaga i Bt. Greiddsé ársfjórðungslega á- skrift sex heimsendra dagblaða fyrir félaga i Bt. 4. Akvæði samningsins um sumarleyfi biaðamanna, sem er að finna i sjöundu grein skulu breytast á þann hátt, að sumar- leyfi sé minnst 27 dagar (orlofs- dagar). Eftir fimm ára starf verði orlofsdagarnir 30, eftir 10 ára starf 33 og eftir 15 ára starf 36. Blaðamenn fái 12 daga vetr- arorlof. Sé sumarorlof tekið á timabil- ’ inu 1. október til 31. mai kemur á það 50% álag. Samsvarandi hundraðshluti fyrir oriof á yfir- Vinnu verði reiknaður út. Laugardagur reiknist ekki sem orlofsdagar i orlofi. Enn- fremur verði eftirfarandi breyt- ing gerð á s jöundu grein: Blaða- menn, sem unniö hafa óslitið i tfimm ár eða iengir á islenskum ifjölmiðlum, skulu að loknu í'imm ára starfi fá þriggja mán- aða fri' auk orlofs á fullum laun- um hjá þeim vinnuveitanda sem iiann starfar hjá þegar friið er tekið. 5. t áttundu grein verði eftir- farandi breyting gerð: Þá skulu félagar i BI, sem hafa verið eitt ár i samfelldu starfi hjá sama blaði fram að fæöingu barns þeirra, fá þriggja mánaða fri á fullum launum, enda haldi þeir áfram störfum að frli loknu hjá sama vinnuveitanda i a.m.k. eitt ár. Fyrri hluti áttundu greinar breytist einnig á þennan hátt: Veikist blaðamaður, em orðinn ef fullgildur félagi i BI, lang- varandi, á hann rétt á fullum launum á dagvinnukaupi i fimm mánuði og hálfum launum I næstu fimm mánuði þar á eftir, haldist veikindin. Blaðamaður sem unnið hefur i fimm ár ða lengur á rtt á sex mánaða lun- um og hálfum launum aðra sex mánuði, haldist veikindin. Blaðamaður, sem unnið hefur i 10 ár eða lengur á rétt á átta mánaða launum og hálfum launum i aðra átta mánuði, haldist veikindin. 6. Við tiundu grein bætist: At- vinnurekendur greiði upphæð sem nemur 2% af öllum launum félaga i Bt i Eftirmenntunarsjóð Blaðamannafélags Islands. 7. Við tólftu grein bætist: Blaðamannafélag tslands fái afrit af greiðslukvittunum tryggingarfélaganna vegna ferða- og slysatrygginga félags- manna. 8. Ný grein komi sem 14. grein, og númeraröð greina þar á eftir hækki samsvarandi. Greinin hljóði svo: Atvinnurek- endur taka að sér að greiða árs- gjöld félaga IB1 samkvæmt lög- um félagsins. 9. Núverandi 14. grein breytist þannig: Stjórn Bt er heimilt að fyrirskipa meðlimum þess að ieggja niður vinnu hjá atvinnurekenda, sem dregið hefur að greiða i lifeyrissjóð, menningarsjóð, orlofsheimila- sjóð, eftirmenntunarsjóð og ársgjöld félaga I tvo mánuði eða lengur.Þettaskal þóaðeins gert að beiðni stjórnar sjóðanna og stöðvunin tilkynnt með mánaö- ar fyrirvara. 10. Núverandi 15. grein hljóði svo: Samningur þessi gildir frá 1. júli' 1977 til 1. marz 1979. 11. Núverandi 17. grein hijóði svo: Handritalesarar og próf- arkalesarar á blöðum skulu fá sömu laun og blaðamenn sam- kvæmt fyrstu grein samnings- ins. 12. Núverandi 18. grein hljóði svo: Allir fastráðnir starfsmenn sem stunda blaðamennsku.ljós- myndun, handrita- og prófarka- lestur og útlitsteiknun, skulu gerast félagar i Bl. Fyrir fast- ráðna félaga i B1 skal uppsagn- arfrestur útgefandans vera jafnlangur i mánuðum og starfsaldur i árum, þó ekki lengri en 12 mánuðir, nema hvað uppsagnarfresturinn skal aldrei vera styttri en þrir mán- uðir. Uppsagnarfrestur félaga I Bí skal vera þrir mánuðir. 13. Inn i samning skulu koma ákvæði um að útgefendur sjái félögum i B1 fyrir mat, ef þeir standa vaktir á matmálstimum. 14. 21. grein hljóði svo: Trún- aðarmaður BI á hverjum vinnu- stað skal m.a. hafa þau réttindi að eigi er heimilt að ráða nýjan blaðamannán hans vitundar né segja upp biaðamanni. Trúnað- armaður félagsins skal vera fulltrúi i stjórn þess fyrirtækis sem hann starfar hjá, með til- lögurétt og málfrelsi. 15. Inn I samninginn komi á- kvæði um greiðslu fyrir afnot fyrirtækis af tækjum starfs- manna, svo sem bilum, ljós- myndavélum og segulböndum. 16. Inn I samninginn komi á- kvæði um greiðslu 50% álags þegar menn þurfa að gegna tveimur störfum samtimis, t.d. þegar blaðamaður þarf auk skrifa sinna að annast ljós- myndatökur og öfugt (þ.e. þeg- ar ljósmyndarar þurfa að skrifa). 17. Blaðamannafélag Islands áskilur sér allan rétt til frekari tillögugerðar i þessum samningum. Blaðamannafélag Islands gerir tillögu um að laun blaða- manna verði svohljóðandi frá 1. júli 1977. Mánaðarlaun Arslaun A fyrsta 2. fl. 3. fl. 2. fl. 3. fl. starfsári 225.275 234.737 2.703.300 2.816.844 Eftir 1 ár 230.584 240.269 2.767.008 2.883.228 eftir 2ár 271.619 283.027 3.259.428 3.396.324 eftir 4 ár 278.415 290.108 3.340.980 3.481.296 eftir 6 ár 285.179 297.157 3.422.148 3.565.884 eftir 8 ár 292.038 304.304 3.504.456 3.651.648 eftir 10 ár 297.120 309.599 3.565.440 3.715.188 eftir 12 ár 307.929 320.862 3.695.149 3.850.344 eftir 15 ár 317.168 330.480 3.806.016 3.965.760 Hinn 1. desember 1977 hækki allir mánaðalaunataxtar um 4,3%, hinn 1. júni 1978 um 4,1% og hinn 1. september 1978 um 3,2%, hinn 1. desember 1978 um 5% og hinn 1. febrúar 1979 um 5%. Ritstjórnarfulltrúar og fréttastjórar taka laun samkv. 4. flokki sem séu a.m.k. 20% hærri en 3. fl. Ritstjórar taki laun sem séu a.m.k. 40% hærri en 3. fl. Stúdentar áfram FH fékk stig í toppbaráttunni Stúdentar áttu ekki i erfiðleik- um með slakt lið Fram er liðin mættust i 1. deildarkeppninni i körfuknattleik I gærkvöldi i iþróttahúsi kennaraskóla. Leikn- um lauk með sigri ÍS sem skoraði 99 stig gegn aðeins 74 stigum Framara. Stúdentar höfðu ávallt frum- kvæðið i leiknum i gærkvöldi. Eft- ir 13 minútna leik var staðan orð- in 26:18 tS i vil og eftir það gáfu þeir hvergi eftir og sigruðu ör- ugglega eins og áður sagði með 99:74 eftir að staðan i leikhléi hafði verið 41:30 IS i vil. Bestan leik fyrir IS átti Dirk Dunbar að Venju og skoraði 33 stig þrátt fyrir að hann væri með afbrigðum óheppinn með skot sin úr dauðafærum. Þá átti Steinn Sveinsson mjög góðan leik sérstaklega i vörninni og er nú að verða einn af okkar bestu varnarmönnum. Hann lék nú sinn 200. leik með M.fl. IS og skilaði sinu hlutverki vel að venju. Hjá Fram var Simon Ólafsson bestur og skoraði einnig mest eða 18 stig. Þá hitti Þorvaldur Geirs- son vel i siðari hálfleik og var harður i fráköstunum. Þá er eftir að geta þáttar dóm- aranna þeirra Kristbjarnar Al- bertssonar og Erlends Eysteins- sonar. Þeir dæmdu illa — voru ósamkvæmir sjálfum sér. — SK. Staðan i islandsmótinu eftir leik- inn í gærkvöldi er þessi: KR 9 8 1 865:718 16 UMFN 9 8 1 794:680 16 Valur 10 8 2 897:812 16 IS 10 8 2 919:841 16 1R 10 3 7 850:903 6 Þór 927 679:741 4 Fram 11 2 8 854:954 4 Ármann 10 0 10 786:997 0 — SK. Það var mikill darraðar- dans stiginn í íþróttahús- inu í Hafnarfirði í gær- kvöldi þegar Hafnarfjarð- arrisarnir FH og Haukar léku þar í 1. deildinni. Leiknum lauk með sigri FH 19:18 eftir að Haukarn- ir höfðu náð fimm marka forustu þegar siðari hálf- leikur var hálfnaður. Stað- an var þá 15:10 Haukum í vil. En þá hrundi allt hjá Haukun- um, FH-ingar skoruðu hvert markið á fætur öðru,og þegar eft- ir voru 4 minútur var staöan orðin jöfn 17:17. Siðan skoruðu Hauk- arnir 18:17,en enn náöu FH-ingar aö jafna metin og siðan þegar 40 sekúndur voru til leiksloka var brotið iliilega á Geir Hallsteins- syni þegar hann reyndi að fara inn úr horninu, og viti var dæmt. Úr þvi skoraði Janus Guðlaugs- son örugglega og sigur FH blasti við. Haukarnir fengu þó boltann, en fyrir klaufaskap misstu þeir hann og FH-ingarnir náðu að halda knettinum þar til leiktim- inn rann út og sigurinn var þeirra. Gunnar Einarsson varði mark Hauka vel i gærkvöldi, en einnig átti Stefán Jónsson góðan leik. Geir var tekinn úr umferð hjá FH og var leikur FH-liðsins fyrir bragðið ekki góður. Þá var vörn FH-liðsins svo og markavarslan slök. Staðan i mótinu er nú þessi: FH—Haukar 19:18 Vikingur FH Haukar 1R Fram Valur KR Ármann 5320 106:85 8 4400 85:72 8 5131 93:91 5 5131 112:113 5 5122 88:91 4 5113 88:91 3 5113 100:109 3 4103 75:87 2 SK.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.