Þjóðviljinn - 17.02.1978, Síða 21
Föstudagur 17. febrúar 1978 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 21
Blaðdrei iingarf ólk
óskast
Austurborg: Kópavogur:
Bólstaðarhlið Hrauntunga
Sogamýri
Háteigshverfi (af 1.)
DJODVIUINN
Siðumúla 6
simi 8 13 33
Ranitsóknamaður
óskast til starfa við Efnafræðistofu Raun-
visindastofnunar Háskólans. Laun skv.
launakerfi opinberra starfsmanna. Um-
sóknir, ásamt upplýsingum um mennt-
un, aldur og fyrri störf, sendist fram-
kvæmdastjóra Raunvisindastofnunar Há-
skólans, Dunhaga 3, fyrir 3. mars n.k.
Matvælafræðingur
óskast til Sölustofnunar lagmetis. Starfið
snertir þróun lagmetisiðnaðarins i heild,
framleiðslu nýrra vörutegunda og stöðlun
lagmetisframleiðslunnar. Einnig ráðgjöf
til lagmetisiðjanna um vörutegundir, um-
búðir, gæðaeftirlit og fleira.
Æskilegt er að umsækjandi sé háskóla-
menntaður i matvælafræðum.
Umsókna er óskað fyrir 15. marz 1978.
Hjúkrunarfræðingur
Landakotsspitala vantar nú þegar hjúkr-
unarfræðinga til afleysinga og i lengri
tima. Hlutavinna einnig i boði. Barna-
heimili og skóladagheimilispláss.
Hjúkrunrforstjóri
simi 19 600
Kennarar— Kennarar
Vegna mikillar fjölgunar nemenda á
framhaldsskólastigi i Garðabæ vantar
kennara að skólanum haustið 1978.
Kennslugreinar: Islenska, stærðfræði,
raungreinar, iþróttir drengja, verslunar-
greinar, danska,spænska, heimilisfræði.
Upplýsingar gefur skólastjóri i sima 52193
Og 52194.
f ...........................
Bálför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa
Hermanns Ágústs Hermannssonar,
Alftamýri 57,
hefur farið fram i kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð.
Asa Þ. Ottesen, Þuriður Hermannsdóttir,
Þorlákur Hermannsson, Alma Róbertsdóttir,
Herdis Hermannsdóttir, Erlingur Aðalstcinsson
og barnabörn.
LÍV
Framhaldaf bls.6
hömlun gegn verðbólgunni, en
eyðir trausti og samstarfsmögu-
leikum milli stjórnvalda og
launþegasamtaka, stuðlar bein-
linis að harðari kröfugerð og
hindrar að hægt sé að gera samn-
inga til lengri tima.
Með visun til framangreinds
mótmælir stjórn Landssambands
islenska verslunarmanna harö-
lega þeim áformum um ómerk-
ingu kjarasamninga, sem fram
og hvetur allt verslunarfólk til
samstöðu og baráttu til varnar
umsömdum kjörum, og hugsan-
legri takmörkun samningsréttar-
ins.”
Ríkisstjórnin
Framhald af bls. 1
en þeir verða haldnir i samráði
við fjórðungssamböndin.
Snorri kvað ljóst af yfirlýsingu
forsætisráðherra i gær að rikis-
stjórnin væri á undanhaldi fyrir
eindregnum og heilsteyptum við-
brögðum verkalýðssamtakanna.
Hitt er annað mál, sagði hann, að
þetta stöðvar ekki þær aðgeröir
!sem við höfum i bigerð, þvi að
eftir sem áður á kjaraskerðingin
að koma til framkvæmda 1. mars.
Innan ASl er mikil og góð sam-
staða. A formannafundinum á
miðvikudagskvöld var ályktunin
samþykkt samhljóða, en fundinn
s>>.tu um 130 manns, sagði Snorri
at> lokum.
Haraldur Steinþórsson, vara-
formaður og framkvæmdastjóri
BSRB, sagði að i yfirlýsingu
rikisstjórnarinnar i gær kæmi
fram að hún væri á undanhaldi,
og það er vel. Hitt væri hins vegar
óbreytt I frumvarpinu, aðskerða
ætti kaupið um helming verðbót-
anna frá 1. mars. En undanhaldi
rikisstjórnarinnar þarf að fylgja
eftir þangað til að öll ákvæði um
skerðingu á gildandi kjarasamn-
ingum hafa verið numin burt.
Við erum með fundi i undirbún-
ingi, sagði Haraldur. ASI og FFSl
hafa samflot um fundi, en skipu-
lag okkar samtaka er öðruvisi og
við munum þvi haga fundunum
með öðrum hætti sem ekki er
endanlega ákveðinn. En fyrsti
fundurinn verður i Vestmanna-
eyjum á sunnudaginn þar sem
opinberir starfsmenn, verkalýðs-
félögin og farmenn og fiskimenn
standa saman að fundinum.
Samningana
Framhald af bls. 1
„Ráðstefna formanna verka-
lýðsfélaga innan Alþýðusam-
bands Islands, formanna lands-
sambanda þess, svæðasambanda
og miðstjórnar haldin i Reykjavik
15. febrúar 1978 ályktar eftirfar-
andi vegna þeirrar allsherjarrift-
ingar kjarasamninga verkalýðs-
samtakanna sem felst i frum-
varpi til laga um ráðstafanir i
efnahagsmálum og rikisstjórnin
beitir sér nú fyrir með athygli at-
vinnurekendasamtakanna:
1. Samþykkt frumvarps þessa
fæli i sér grófa og stórfellda
kjaraskerðingu allra launþega
þar sem þeir yrðu sviptir hálf-
um samningsbundnum verð-
bótum fyrir verðlagshækkanir
sem ekki geta numið minna en
30—40% frá 1. nóv. 1977 — .1.
nóv. 1978,en það er það timabil
sem verðlagsbætur yrðu skert-
ar fyrir skv. 1. gr. frumvarps-
ins.
IFerðadiskótek
(„Disa” og „Marla”)
fyrir skemmtanir og árshát-
iðir. Upplýsingar í simum
50513, 53910 Og 52971
Pipulagnir
Nýlagnir, breyting-
ar, hitaveitutenging-
ar.
Sími 36929 (milli kl.
12 og l og eftir kl. 7 á
kvöldin)
2. Með ákvæðum 3. gr. frum-
varpsins er gert ráð fyrir að
óbeinir skattar skuli ekki hafa
áhrif á verðlagsbætur frá og
með næstu áramótum. Auk
þeirrar ómældu kjaraskerðing-
ar er þetta ákvæði hefði i för
með sér er augljóst að með
þessum nýja og gerbreytta
verðbótagrundvelli yrðu réttir
aðilar vinnumarkaðarins svipt-
ir lagarétti sinum til að semja
sín i milli um eitt helsta og
mikilvægasta atriði, sem laun-
akjörin varða og rikisvaldinu i
raun fengið i hendur einræðis-
vald til að ákvarða launakjör i
landinu.
Þar með yrðu launþegasam-
tökin gerð ómerk i kjarabar-
áttu sinni að þeim hætti sem
tiðkast i þjóðlöndum þar sem
lýðréttindi eru i minnstum há-
vegum höfð.
Þótt ekki kæmu til margvisleg
fleiri atriði en að framan er greint
frá er augljóst að með ráðstöfun-
um þessum væri hafin slik aðför
að verkalýðsstéttinni og samtök-
um hennar að óhjákvæmilega
nauðsyn bæri til, að gegn henni
veröi snúist með öllu þvi afli sem
samtökin hafa yfir að ráða. Legg-
ur ráðstefnan i þvi efni sérstaka
áherslu á fulla samstöðu og sam-
ráð við Bandalag starfsmanna
rikis og bæja og Farmanna- og
fiskimannasamband tslands sem
bæði hafa þegar lýst eindregnum
vilja sinum til samstarfs og bar-
áttu við hlið Alþýðusambands
Islands.
Ráðstefnan ítrekar fyrri
áskoranir verkalýðssam-
takanna til ríkisstjórnar-
innar um að stöðva fram-
gang frumvarpsins. Verði
ekki orðið við þeim ein-
dregnu tilmælum
samþykkir ráðstefnan að
fela miðstjórn ásamt
stjórnum eða fulltrúum
BSRB og FFl að skipu-
leggja sameiginlegar bar-
áttuaðgerðir og skal miðað
við að þær hef jist 1. mars
n.k. en þann dag á fyrsta
kaupskerðingin að koma til
framkvæmda. Allar skulu
aðgerðir samtakanna
stefna að því marki að
þeim ólögum, sem sett
hafa verið hagsmunum og
rétti launamanna til höf-
uðs verði i reynd eytt þann-
ig að kjara- og réttinda-
skerðingin komi ekki til
f ramkvæmda og verði ekki
þoluð af neinu verkalýðs-
félagi né einstökum félög-
um þeirra. Kjörorð barátt-
unnar verði: Kjarasamn-
ingana i gildi.
Nota tímann til 1. mars
Ráðstefnan felur miöstjórn
ásamt fulltrúum þeirra laun-
þegasamtaka annarra, sem með
henni vilja vinna i baráttunni
gegn kjara- og réttindaskerðing-
unni, sem nú dynur yfir, að nota
timann fram til 1. mars til hins
ýtrasta til að efla samstöðu og
baráttuaögerðir með fundahöld-
um i samráði við verkalýðsfélög-
in, með sérstökum svæðaráð-
stefnum launþegafélaganna og
með útgáfustarfsemi.
Ráðstefnan felur framan-
greindri framkvæmdanefnd einn-
ig að standa i fyrirsvari gagnvart
samtökum atvinnurekenda og
rikisvaldinu, en kalla til eftir
þörfum fulltrúa aðildarsamtak-
anna þegar taka þarf mikilvægar
ákvarðanir umfram þær sem i
samþykktum ráðstefnunnar eru
tilgreindar.”
Borðstofuhúsgögn
Gerið góð kaup. Til sölu er borðstofuborð
sem er stækkanlegt i rúma 2 metra á
lengd og 6 stólar.
Upplýsingar i sima 8 13 33 og 3 11 97
Alþýðubandalagið Akranesi og nágrenni
heldur félagsfund mánudaginn 20. febrúar kl. 20.30 i Rein. Lagöar
verða fram niðurstöður úr forvali. Umræður. Kaffi og meðlæti. —
Mætum stundvislega
Árnessýsla — Félagsmálanámskeið
Alþýðubandalagið i Arnessýslu og Alþýöubandalagið i Hveragerði og
nágrenni efna sameiginlega til sex kvölda félagsmálanámskeiðs sem
haldið verður til skiptis á Selfossi og i Hveragerði. Námskeiðið fer fram
á mánudags- og þriðjudagskvöldum. I fyrsta sinn mánudaginn 27.
febrúar nk. og þá i Hveragerði.
Ræðumennska og fundarstörf verður efni fyrstu fjögurra kvöldanna.
Leiðbeinandi er Baldur Óskarsson. Oll kvöldin hefjast námskeiðin kl.
20.30 og fjallað verður um ræðumennsku og fundarstörf mánudaginn
27. febrúar, þriðjudaginn 28. febrúar, mánudaginn 6. mars og þriðju-
daginn 7. mars.
Mánudaginn 13. mars verður á dagskrá félagsmálanámskeiðsins
umræða um þróun sósfalismans á íslandi. Einar Olgeirsson svarar
fyrirspurnum um efniö.
Þriðjudaginn 14. mars lýkur námskeiðinu með þvi að fjallað verður
um stefnu Alþýðubandalagsins. Olafur Ragnar Grimsson reifar
umræðuefnið.
Þátttaka á félagsmálanámskeiöinu tilkynnist Auði Guöbrandsdóttur,
Hveragerði, simi 4332 og Gyðu Sveinbjörnsdóttur, Selfossi, simi 1659,
og gefa þær allar nánari upplýsingar.
Alþýðubandalagið á Suðurnesjum
Keflavikurdeild
Fundur verður haldinn i Vélstjórafélágshúsinú n.k. ináhudagskvöld kl
20.30.
Dagskrá: Tilfaga uppstillinganefndar að lista fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingar.
Félagar, fjölmenniö. Mætiö stundvislega. — Uppstillingarnefnd.
Árshátið Garðabæ — Hafnarfirði — Árshátið
^Ubanba,agsté,ögln 1 Hafnarfjarðar-og Garðakaupstað halda árs-
P xJ°1!.tUvdaÁin,n, 24- febrúar aö Garðaholti. - Húsið opnað kl. 10.30.
Borðhald hefst kl. 20 stundvislega.
Fjölbreytt skemmtiatriði og dans. Miðaverð kr. 3.500. Vinsamlegast
tilkynnið þátttöku i simum 4 38 09, Garðabæ, og 5 16 36 eða 5 19 95,
Hafnarfirði, eftir kl. 16. — Fjölmennið og takiö með ykkur gesti. —
Nefndin.