Þjóðviljinn - 18.04.1978, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.04.1978, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 18. apríl 1978—43. árg. 79. tbl. V estfir ðingar með allsherjarverkfalfi skorað á verkalýðsfélögin vestra að afla heimildar til boðunar allsherjar verkfalls fyrir 24 apríl Um siðustu heigi var haldin fundur með öllum formönnum og stjórnar rnönnum Alþýöusam- bands VestfjarOa, þar sem rætt var um aögeröir ASV til aö fá kjarasamningana aftur f gildi. A fundinum var aöallega rætt um tvær leiðir i þessu sambandi, lit- flutningsbann og allsherjarverk- fall. Aö sögn Péturs Sigurössonar forseta ASV skiptust menn i tvo hópa varöandi þessi mál, en aö loknum umræöum þar sem kostir og gallar hvorrar aöferöarinnar fyrir sig voru ræddar fram og aft- ur, varð samkomulag um alls- herjarverkfallið. Var samþykkt á fundinum aö félögin öfluöu sér heimildar til allsherjar vinnu- stöövunar á Vestfjöröum fyrir 24. april n.k. Höfuð ástæöan fyrir þvi aö menn féllust ekki á útflutnings- banniö er sú, að fjölmargir land- verkamenn á Vestfjöröum stunda sjósókn á litlum bátum frá vori til hausts. Frystihúsin á Vest- fjöröum ætluðu aö neita aö taka við fiski af þessum litlu bátum ef útflutningsbann heföi veriö sett á og þá aðeins tekiö viö fiski af eig- in bátum. Þetta heföi þegar f staö kallað atvinnuleysi yfir stóran hóp manna. Auk þess töldu menn að allsherjar verkfall væri áhrifa- meira, og þess vegna var sú leið farin. Guðmundur I. Guðmundsson formaður VMSÍ: Fagna þessum aðgerðum V estfirðinga aðalatriðið er að menn berjist fyrir kjarabótunum en ekki hvaða aðferð er notuð ,,Ég fagna um aögeröum Aðalatriöiö ist fyrir þvl innilega þess- Vestfiröinganna. er aö menn berj- aö fá samning- ana aftur I gildi, en ekki hvaöa- aöferöum menn beita. Þeir hafa Fulltrúaráð verka- lýðsfélaganna í Hafnarfirði: Styðjum útflutnings- bannið Aöalfundur fulltrúaráðs vcrka- lýösfélaganna f Hafnarfiröi var haldinn sl. föstudag. Og eins og sagt er frá annars staðar i Þjóðviljanum samþykkti fundurinn stuðningsyfirlýsingu við útflutningsbann VMSl. Að loknum venjulegum aðalfundar- störfum var kjörin ný stjórn full- trúaráösins og var Hermann Guðmundsson fyrrum formaöur Vmf. Hlffar kjörinn formaður ráösins. Guöriöur Eliasdóttir varaformaöur, ólafur Olafsson ritari og Birgir Magnússon gjald- keri. -S.dór. metiö sina stööu þannig aö alls- herjarverkfall henti þeim bet' ur en útflutningsbannið og þeir vita þaö betur en aörir hvaö hent- ar þeim best og allsherjar verk- fall er sko engin smá aögerö”, sagöi Guömundur J. Guðmunds- son formaöur Verkamannasam- bandsins er viö ræddum viö hann i gær og spurðum hann álits á fundarsamþykkt ASV frá þvi á sunnudag. Guðmundur benti á aö VMSl hefði f upphafi boðað aö aögerðir þess miöuðu að þvi aö fá atvinnu- rekendur að samningaborðinu til að undirrita nýja kjarasamninga til handa verkafólki, þar sem kjaraskerðing kaupránslaganna væri bætt. VMSÍ heföi boöað út- flutningsbann, en Vestfirðingarn- ir hefðu taliö allsherjarverkfall henta þeim betur, en hvoru tveggja miðaði aö sama marki. „Og ég vil taka þaö skýrt fram, að það er ekki nokkur minnsta deila milli okkar i stjórn VMSl og ASV og þær aögeröir sem þaö hef- ur boðað er fullkomlega I takt viö það sem við erum að gera” sagöi Guömundur. Hann benti enn- fremur á hversu óra langt at- vinnurekendur og málgagn þeirra Morgunblaöiö væru frá aö skilja þessa baráttu verkafólks aö Mbl. hefur haldið þvi fram linnu- laust aö Vestfiröingar væru ekki meö i aðgeröum VMSl, en svo boðar ASV haröari aögeröir en Verkamanna@ambandiö. S.dór. Þaö kom fram á fundinum, aö sögn Péturs, að menn gera sér fulla grein fyrir þvf aö verkalýös- hreyfingunni duga engin vett- lingatök i þessum málum. Sá fleygur, sem rikisstjórnin hefur reynt aö reka i raöir verkalýös- hreyfingarinnar meö kaupráns- lögunum getur oröið hættulegur ef verkalýðshreyfingin stendur ekki saman sem einn maöur og mætir aðgeröum rikisvaldsins af fyllstu hörku. „Og þaö munum viö gera” sagöi Pétur Sigurösson. — S.dór Skattalagafrumvarp lagt fram Afgreitt í þinglokin? Takmörkuð sérsköttun hjóna Rikisstjórnin lagði í gær fram á Alþingi tvenn frumvörp er lúta að skattamálum. Fyrra frumvarpið er um tekju- skatt og eignaskatt/ en hið siðara er um staðgreiðslu opinberra gjalda. Ætlun ríkisstjórnarinnar mun vera að afgreiða tekju- og eignaskattsf rum- varpið fyrir þingslit, en ólíklegt er talið að frum- varpið um staðgreiðslu skatta verði afgreitt á þessu þingi. Þar eð aðeins 2-3 vikur eru eftir til þing- slita þá er Ijóst að ríkis- stjórnin ætlar sér að láta samþykkja frumvarpið án þess að gefa hinum ýmsu hagsmunaaðilum tækifæri til að gera athugasemdir við það. Athygli vekur að skatta- frumvarpinu er ekki ætlað að taka gildi fyrr en við álagningu 1980 á tekjur ársins 1979. Ef stað- greiðsluf rumvarpið verður samþykkt næsta haust eru likur á að það taki gildi 1979. Á 6. síðu er greint frá helstu atriðum skatta- frumvarpsins og birt stutt viðtal við Ragnar Arnalds um frumvarpið. j Viltu tala! frambjóð- ! við jendur? Framb jóöendur og borgarfulltrúar Alþýöu- bandalagsins f Reykjavfk tii borgarstjórnarkosninganna 28. maf hafa ákveöiö aö gefa Reykvfkingum kost á aö spyrjast fyrir um stefnumál flokksins I borgaramálum á fundum klúbba, féiaga- samtaka ýmis konar, á vinnustööum, hjá hverfa- félögum og heimahúsa- fundum. Þeir, sem óska eftir aö ná tali af borgarfulltrúunum og frambjóöendunum, meö þessum hætti, geta haft sam- band viö þá beint eöa dag- lega I sima 17500 á milli klukkan 5 og 6 á daginn.en á þeim tfma munu á næstunni einhverjir frambjóöenda veröa fyrir svörum I þessum sfma. í dag veröur Sigurjón Pétursson, borgarráös- maöur til svara og á morgun, ,miövikudag, Adda Bára Sigfúsdóttir, borgarfulltrúi. Eru félagasamtök, vinnu- hópar og einstaklingar hvattir til þess aö nota sér þetta tækifæri til aö kynnast viöhorfum flokksins til borgarmála og þá ekki sföur til þsss aö koma sinum eigin ■ skoöunum á borgarmálum á I framfæri við frambjóöendur. Yfirlýsing framkvæmdastjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna: Helmingslækkun vaxta þýðir 10% kauphækkun Ef vextir yröu lækkaöir um helming frá þvf sem þeir eru nú er unnt aö hækka kaup um 10%. Eitthvaö á þessa leiö komst Hjaiti Einarsson, framkvæmda- stjór Sölumiöstöövar hraö- frystihúsanna, aö oröi i sjón- varpsþætti á föstudaginn var. Svaraöi lijalti þarna spurningu Guömundar J. Guömundssonar, formanns Verkamannasambands lslands. t spurningu sinni vitnaöi Guömundur meöal annars til .greinar eftir Eyjólf tsfeld mót- mælir f greininni harölega vaxta- stefnu rikisstjórnarinnar. Hann viðurkennir að þaö sé réttmætt sjónarmiö aö auka þurfi sparnaö meö þvi aö borga raunvexti af lánum, en vaxta- hækkanir einar sér séu háskaleg- ar. Hann segir: „... en þegar vextir eru geröir aö aöalbrim- brjót gegn verðbólgunni án til- svarandi aðgeröa á öörum sviö- um peninga- og fjármála, þá ger- ir þaö einungis vandann verri meö þvi aö draga úr framleiöslu, eða beina henni á óhagstæöari brautir”. t téðum sjónvarpsþætti kom þaö fram að launakostnaöur frystihúsanna væri aö jafnaöi um 25% heildarútgjalda. Þá hefur komið fram samkvæmt upplýs- ingum frá Þjóöhagsstofnun aö vextir nema aö maöaltali um 6% af útgjöldum frystihúsanna. Þannig aö lækki vextir um helm- ing og verði 3% af útgjöldunum i heild, er augljóst aö helmings- vaxtalækkun heföi i för meö sér möguleika á 12% kauphækkun. Yfirlýsing Hjalta Einarssonar um 10% kauphækkun fyrir helm- ingsvaxtalækkun er þvi sist of há tala.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.