Þjóðviljinn - 18.04.1978, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 18.04.1978, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 18. april 1978 Málgagn sósíalisma, xerkalýdshreyfingar og þjóöfrelsis Otgefandi: Ctgáfufélag Þjóðviijans. Frarakvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með snnnudagsblaði: Arni Bérffmann. Augiýsingastjóri: Gunnar Stéinn, Pálsson (- Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Siðumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaðaprent hf. Tafarlausa samninga við Verkamanna- sambandið Þáð er hægt að hækka allt kaup verka- fólksins, sem hjá frystihúsunum vinnur um 10%, ef vextir væru helmingi lægri en þeir eru nú. Þessa athyglisverðu yfirlýsingu gaf Hjalti Einarsson, framkvæmdastjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna i sjón- varpsþættinum Kastljós á föstudaginn var. Fátt sýnir betur hversu fráleit sú kenn- ing er, að erfiðleikar frystihúsanna stafi fyrst og fremst af of háu kaupi verkafólks- ins, enda eru launagreiðslur ekki nema 25% af heildarrekstrarútgjöldum frysti- húsanna að sögn Hjalta Einarssonar i sama þætti. Það var annars harla athyglisvert, að i, lok þessa sjónvarpsþáttar þar sem full- trúar verkalýðshreyfingarinnar og at- vinnurekenda ræddust við, þá stóð fátt eftir af þeim fullyrðingum, sem málgögn rikisstjórnarinnar hafa haft uppi um yfir- standandi útflutningsbann i hatursáróðri sinum gegn verkalýðsheyfingunni. Málgögn rikisstjórnarinnar hafa haldið þvi fram, að með útflutningsbanninu muni Verkamannasambandið stöðva frystihúsin og kalla fram allsherjar at- vinnuleysi i sjávarþorpum og bæjum viðs vegar um landið. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins minnti i sjón- varpsþættinum á það, sem reyndar hafði áður komið fram, að Verkamanna- sambandið ætlar ekki að láta loka frysti- húsunum. Það mun heimila flutning á frystum fiski til geymslu milli hafna hér innanlands og undanþágur verða veittar til að flytja út hluta framleiðslunnar, þannig að frystihúsin geti haldist gang- andi og fólkið haft sina vinnu. Hitt er svo annað mál, að þær hömlur á útflutninginn, sem Verkamannasambandið gengst fyrir munu vafalaust leiða til meiri kostnaðar hjá atvinnurekendum en svarar til þeirra launagreiðslna, sem um er deilt!! Málgögn rikisstjórnarinnar hafa haldið þvi fram, að með útflutningsbanninu sé verið að beita lægst launaða fólkinu i kjarabaráttu fyrir vagn þeirra, sem mun hærri laun hafa. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins, benti á að einmitt þann sama dag, á föstudaginn, — hafi Verkamannasambandið sent at- vinnurekendum bréf þar sem farið sé fram á sérstakar viðræður um kjör félags- manna Verkamannasambandsins, án þess að aðrir komi þar við sögu. Það er láglaunafólkinu i Verkamanna- sambandinu, fólkinu með 112-150.000, krónur i dagvinnukaup á mánuði, sem verið er að neita um leiðréttingu sinna mála, sem meira að segja er neitað að ræða við. Afsakanir á borð við þær, að ekki sé hægt að greiða þessu fólki fullar visitölubætur, nema allir aðrir fái sömu prósentuhækkanir, — þær afsakanir eru haldlausar. Verkamannasambandið krefst sér- stakra samninga fyrir sitt fólk, fyrir lág- launafólkið. Rikisstjórnin og atvinnurek- endur neita. Málgögn rikisstjórnarinnar lýsa miklum fögnuði yfir ákvörðun norsku rikisstjórnarinnar að visa launadeilu þar til gerðardóms, og virðast telja slikt til fyrirmyndar. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins benti á i sjón- varpsþættinum, að i Noregi er kaup verkafólks um það bil helmingi hærra en hér á landi. Þar er samt krafist launa- hækkunar, en hér er aðeins verið að berj- ast gegn launalækkun og fyrir þvi að gerðir kjarasamningar fái að standa. Hér er óliku saman að jafna, og er þó engin ástæða til að bera blak af ákvörðun norsku rikisstjórnarinnar um gerðardóm. Málgögn rikisstjórnarinnar halda þvi fram, að sérhver launahækkun verkafólks leiði til aukinnar verðbólgu, og komi þannig verkafólkinu sjálfu i koll. Verkalýðssamtökin hafa aldrei heimtað fleiri krónur i kaup krónutölunnar vegna. Krafa Verkamannasambandsins nú er um bætt kjör, hækkun raungildis launanna, hvort sem krónutalan yrði hærri eða lægri. Leiðin til að ráða við verðbólguna er ekki sú að ráðast á kaup lægst launaða fólksins. Það sýnir best dæmið frá árinu 1975, fyrsta heila stjórnarári núverandi rikisst jórnarinnar. Þá og á siðari hluta ársins 1974 var kaupmáttur verkamannalauna skorinn niður um nálægt 20% frá þvi sem verið hafði á fyrri hluta árs 1974, en einmitt á þessu sama ári, 1975, var sett Islandsmet i verðbólgu, — þá hækkaði framfærslu- kostnaðurinn um yfir 50% á einu ári. Hér var það breytt stjórnarstefna, sem sagði til sin, ný rikisstjórn var komin til valda, stjórn, sem vildi skerða kjörin og notaði verðbólguna til þess. Barátta verkalýðshreyfingarinnar hefur siðan verið barátta við þessa rikis- stjórn og svo er enn. k. I B ■■ I Neiðkvæð skattstefna Eyjólfur tsfeld Eyjólfsson framkvæmdastjóri ritar grein i Morgunblaðið sl. fimmtudag og reifar þar margháttað- an vanda fiskvinnslunnar. Tveir þættir i grein þessa forstjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna eru mjög athyglisverðir: Annars vegar bendir hann á nei- kvæða skattstefnu stjórnvalda sem komi i veg fyrir eðlilega tækjaendurnýjun frystihúsa svo og á afleiðingar hávaxta- stefnunnar fyrir rekstur frysti- iðnaðarins. Jafnframt má skilja það á niðurlagi greinar for- stjórans að hann frábiðji sér þaö að lögmál frjálsrar samkeppni verði látin ráða of miklu i frysti- iðnaðinum. „Enginn vafi er að mikið hef- ur áunnist á sviði hverskonar hagræðingar i fiskvinnslu und- anfarin ár, en þó er margt enn ógert. Stafar það bæði af fjár- magnsskorti og einnig eru ávallt að koma fram nýjungar i vélum, tækjum og vinnufyrir- komulagi, sem i raun þýðir að ekki verður komist á leiðar- enda, heldur er einhverjum til- teknum áfanga náð. Hér kemur einnig til aö frystihúsin þurfaað taka upp vinnslu nýrra fiskteg- unda eins og karfa, þegar þorskveiöar eru stöðvaðar um tima, en slik vinnsla krefst fjár- festingari nýjum vinnsluvélum. I þessum efnum er þó greini- legt að mörg frystihús hafa dregist aftur úr og eru að ýmsu leyti vanbúin, þótt þau annars virðist hafa aöstöðu til þolan- legrar afkomu miðað við aðra. Hér er ekki rúm til að tiunda þessar aðgerðir i einstökum atriðum, en ekki er hægt að skilja við þetta mál án þess að minnast á það tómmlæti sem virðist rikja i þessum efnum af hálfu stjórnvalda. Gleggsta dæmið um það er stefna fjármálaráðherra i að- flutningsgjöldum af hverskonar tækjum og vélum til fiskvinnslu. Siðan það var niður lagt að vinnandi fólk þyrfti að bera Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson hiutina á bakinu eða handbör- um, þá eru lyftarar orðin nauð- synleg tæki til ýmiskonar flutn- inga. Ef frystihús ætlar sér að kaupa slikt tæki, þá þarf að greiða aðflutningsgjöld i rikis- sjóð sem nema 67% af inn- kaupsveröi, en slikt þótti i eina tið hæfilegur tollur á lúxusvöru. Ef frystihúsið kaupir flökun- arvél, sem nú er ómissandi tæki við fiskvinnslu, þá þarf að borga 22% af andvirði i rikissjóð. Frystihús sem kaupir lyftara og flökunarvél þarf að greiða 6 til 10 milljónir i aðflutningsgjöld af þessum framleiðslutækjum. Rétt er að geta þess að islensk- um iðnaði hefur undanfarið ekki verið gert að greiða þessi gjöld. Það er neikvæð skattastefna að draga úr arðsemi og bættri nýtingu hráefnis, sem getur skipt hundruðum milljóna kr. á ári, með þvi að skattleggja tækin sem skila þessum hagnaði og þannig koma i veg fyrir aö þau verði keypt.” Afleiðingar hávaxtastefnu t dæmi sem Eyjólfur tsfeld tekur um þrjú frystihús sem byrja með sömu efnahagsstöðu en rekstrarafkoman verður mísjöfná tveimur verðbólguár- um kemur berlega i ljós hve vaxtabyrðin er rekstri þeirra fyrirtækja, sem lenda i erfiðri lausafjárstöðu eða timabundn- um taprekstri, þung i skauti. ,,A meðan fjármagn var að fá og vextir voru lágir var auðvelt að leysa þetta mál með auknum lántökum i von um að betri af- koma gæti skilaö þvi aftur. Með þrengri lánsfjármarkaöi og þá ekki sist gifurlegum vaxta-. hækkunum, bæði á lánum og mðrgum lausaskuldum, þá er hér komið i vitahring þar sem stóraukin vaxtabyröi leiðir til vaxandi taprekst- urs. Innlend þjónustustarf- semi og margháttuð fram- leiðsla fyrir innlendan markað hefur möguleika á að veltá auknum vaxtagjöldum út i verölagið, en slikt er útflutn- ingsframleiðslunni fyrirmunað, auk þess sem hún verður að taka á sig aukna vaxtabyrði innlendrar þjónustu. Slik vaxta- stefna eyöileggur samkeppnis- aðstöðu fiskvinnslunnar i úr- vinnslu sjávarafla hér á landi og grefur undan fjárhag fyrir- tækjanna. Þvf er haldiö fram aö auka þurfi sparnað með því að borga raunvexti og beina fjár- magninu þangað sem það skilar mestum arði. Þessu verðurekki móti mælt ef litið er á þennan þátt í samhengi við aöra þætti efnahagslifsins, en þegar vextir eru gerðir að aðalbrimbrjót gegn verðbólgunni, án tilsvar- andi aðgerða á öðrum sviðum peninga- og fjármála, þá gerir þaö einungis vandann verri með þvi að draga úr framleiðslu, eða beina henni á óhagstæðari brautir.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.