Þjóðviljinn - 18.04.1978, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 18.04.1978, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þribjudagur 18. april 1978 Ragnar Arnalds um skattafrumvarp ríkisstjórnarinnar: Velt málinu á undan sér í 4 ár en ætlar nú ad afgreida þaö á 3 vikum t samtali við Þjóöviljann I gær sagði Ragnar Arnalds, að erfitt væri að meta efni skattafrum- varpsins. Forystumenn stjórnar- andstöðunnar hefðu fengiö það fyrst til athugunar á sunnudags- kvöld og þvi ekki gefist tlmi til að kanna það. Frumvarpinu fylgdu engir útreikningar og töflur og þvi erfitt að segja hvernig frum- varpiö myndi koma út. Það væri þó ljóst að á vissum sviöum horfi frumvarpið til bóta, en á öðrum sviðum ekki. Ragnar sagði að sú takmarkaöa sérskött- un hjóna er fælist i frumvarpinu væri spor i rétta átt, en vafalaust mikil iþynging fyrir ýmis hjón þar sem bæði vinna úti. Ragnar sagði að mesti veikleiki núverandi skattalöggjafar væri að fyrirtækin slyppu með að borga litinn sem engan tekju- skatt. í fljótu bragði væri engin möguleiki að segja hvaöa áhrif frumvarpið hefði á þennan þátt. Akvæðin um fyrningar og sölu- hagnaö væru vaflaust eðlilegri I þessu frumvarpi en gildandi ákvæði, en hins vegar kæmi á móti að varasjóðsheimildir fyrir- tækja haldast, tekjuskattspró- sentan á fyrirtækin lækkar, og greiddur arður af rekstri er má nema hálfri miljón kemur til frá- dráttar. Þá væru vaxtatekjur fé- laga af innistæðum i bönkum skattfrjálsar meö vissum skilyrö- um. Einnig væri um að ræða stór- felldar heimildir til að færa niður verð vörubirgða og þannig að fela hagnað. Ragnar sagðist vilja aö lokum benda á að rikisstjórnin hefði velt skattamálunum á undan sér I 4 ár en ætlaöi nú að afgreiða þau á tæpum 3 vikum. Það væri hins vegar afrek út af fyrir sig að rikisstjórninni hefði tekist að þvæla málinu allt kjörtimabilið. Þá væri ljóst að ekki yrði lagður á skattur samkvæmt nýjum skatta- lögum fyrr en komiðværi fram á næsta kjörtimabil. Skattafrumvarp ríkisstjórnarinnar: Takmörkuð sér- sköttun hjóna Tekjuskattsprósenta á fyrirtæki og félög lækkar úr 53-48% Meiðyr ðalöggj öfin yerði endurskoðuð Fruravarp rikisstjórnarinnar um tekju- og eignaskatt var lagt frani á Alþingi siðdegis i gær. Helstu breytingar seni felast i frumvarpinu eru eftirfarandi: 1) „Takmörkuð sérsköttun hjóna”. Felur þetta i sér heimild til millifærslu þesshluta persónu- afsláttar sem öðru hjóna nýtist ekki yfir til hins. Sérstakur frá- dráttur gildandi laga vegna launatekna giftrar konu er felldur niður. 2) Frádráttarliðum er fækkað, einkum frádráttum sem sérstakir hópar njóta, t.d. vegna bóka- og verkfærakostnaðar eða náms- kostnaðar sem stofnað er til eftir 20 ára aldur. Hins vegar er bætt inn frádrætti vegna fengins arðs af atvinnurekstri, allt að 500 þús. hjáhjónum!! Vaxtafrádráttur er hins vegar óbreyttur frá gildandi lögum og nánast ótakmarkaður. 3) Aðalreglan varðandi tekju- skattsálagningu er eftirfarandi: a) Frá brúttótekjum hvors hjóna kemur til greina tiltekin frádráttur eða þá almennur 10% frádráttur. b) Þegar búiðer aö taka tillit til frádráttar kemur til 18% álagn- ing af fyrstu 2 miljónum. Af næstu 2 miljónum er um að ræða 26%, þingsjá en af tekjum yfir 4 miljónir er það 34%. c) Um er að ræða 250 þús. kr. persónufrádrátt. Óráðstafaður hluti persónufrádráttar hjá öðr- u hjóna dregst frá reiknuðum skatti hins makans. d) Barnabætur verða 65 þús. með fyrsta barni, en 100 þús með börnum umfram það fyrsta. 4) Tekjuskattsprósenta á fyrir- tæki og félög lækkar úr 53-48%. 5) Reglum um fyrningu ogsölu- hagnað er verulega breytt. Stofn- verð eigna á að breytast árlega i samræmi við breytingar á bygg- ingavisitölu. Upphæðirnar sem fyrningaheimildir eru reiknaðar út frá, hækka þvi frá ári til árs. Fengnar fyrningar eru einnig endurmetnar. Hins vegar lækka fyrningahlutföllin og verða 8-15% fyrir skip, vélar og tæki en 2% fyrir mannvirki. „Alþingi ályktar að endurskoða beri löggjöf um ærumeiðingar og samþykkir að skjósa til þess 5 manna nefnd. Nefndin skili niður- stööum i frumvarpsformi á næsta þingi, fyrir áramót”. Þannig hljóöar þingsályktunar- tillaga um endurskoðun meiðyrðalöggjafar sem Vilborg Harðardóttir, Páll Pétursson og Svava Jakobsdóttir hafa lagt fram á Alþingi. 1 greinargerð með tillögunni segja flutnings- menn. ■ ,,Allt frá þvi að núgildandi lög varðandi ærumeiðingar voru sett hafa þau þótt orka tvímælis. Svo- kölluö VL-málaferli undanfarna mánuði og ár hafa þó beint at- hygli manna enn meir að göllum laganna og leitt i ljós mögulega misnotkun þeirra i pólitiskri baráttu og jafnvel beinlinis i auðgunarskyni. Lög þau, sem hér um ræðir, eru nr. 19/1940, — almenn hegningar- lög XII. kafli gr. 108og XXV. kafli gr. 234-237 og 241. Er þar m.a. kveðið svo á, að sektum varði bregði maður manni brigslum án tilefnis, þótt hann segi satt, og varðandi opinbera starfsmenn að aðdróttun, þótt sönn sé, varði sektum sé hún borin fram á ótil- hlýðilegan hátt. Auk þess sem lögin banna fólki þannig að segja sannleikann er það greinilegt, að ævinlega hlýtur að vera heldur hæpið túlkunar- alriði hvenær gefið sé tilefni eða hvað sé ótilhlýðilegt, enda sýnt, að túlkun laganna i ofangreindum málaferlum hefur orðið á annan veg i Hæstarétti en i héraði. Þá hafa enn fremur skv. þessum Iögum ummæli verið dæmd dauð og ómerk, að þvi er viröist hvort sem sönn eru eða eigi, og er næsta erfitt að sjá fyrir sér hvernig þannig sé unnt að ganga frá þegar sögðum eða skrifuðum orðum,” Ragnar Arnalds: Fjármálakerfið sett undir eftírlit almennmgs Siðastliðinn miðvikudag mælti Ragnar Arnalds fyrir frumvarpi sem hann flytur um upplýsinga- skyldu banka og annarra lána- stofnana. Ræða Ragnars fer hér á eftir I meginatriðum: Eftirlit almennings Það er skoðun min og raunar skoðun okkar Alþýöubandalags- manna almennt, að nauðsyn sé á þvi að fjármálakerfi landsmanna sé sett undir nánara eftirlit al- mennings með þvi að gera það opnara og gagnsærra. Fyrsta grein frumvarpsins kveöur ein- mitt á um þennan tilgang þess, þ.e.a.s. að tryggja, að almenning- ur eigi þess kost að kynna sér og hafa eftirlit meö útlánum lána- stofnana. Það er vist kunnara en frá þurfi að segja, aö veiting lána er mjög mikilsverð þjónusta og harla eft- irsótt fyrirgreiðsla og þá ekki sist á veröbólgutimum. Það er skoðun min, að opin- ber birting lánaveitinga myndi opna almenningi sjálf- sagða leiö til að hafa eftirlit með ráðstöfun fjár úr opinberum sjóðum. Þá væri minni hætta á mismunun og á geðþóttaákvörð- unum þeirra, sem slikum stofn- unum stjórna. Auk þess er það ótvirætt kostur við þessa nýskip- an. að ókunnugir geta þá kynnt sér milliliðalaust hvers konar lán eru veitt úr lánastofnunum lands- ins og i hvaða tilgangi þau eru veitt. Lánveitingar Fram- kvæmdastofnunar birtar opinberlega Mér þykir hlýða að rifja það hér upp, að þegar lög um Fram- kvæmdastofnun rikisins voru samþykkt á Alþingi i tið vinstri stjórnarinnar i árslok 1971, þá var ákveðið, að árlega skyldi birt skrá yfir lánveitingar stofnunar- innar og á það við bæði Fram- kvæmdasjóð og Byggðasjóð og aðra þá sjóði, sem settir kynnu að verða undir stjórn stofnunarinn- ar. Þetta var ljóst af þáverandi 15. gr. laga og hefur ekki verið breytt eftir aö lögin voru endur- skoðuð. Þetta ákvæði i lögum um Framkvæmdastofnun rikisins var algert nýmæli i islenskum lögum á sinum tima og ég veit ekki betur en það hafi gefist vel. Þetta hefur sem sagt gilt um allar lánveitingar Framkvæmdasjóös og Byggðasjóðs og hefur birst i þvi formi, að i skýrslu Fram- kvæmdastofnunarinnar, sem gef- in er út á hverju ári og m.a. dreift til þingmanna, hefur verið birt skrá yfir allar lánveitingar á liðnu ári. Mér virðist langeðlileg- ast, að þessi sami háttur sé lög- bundinn um allar lánveitingar úr viðurkenndum opinberum lána- stofnunum. Leyndin skapar tor- tryggni og ekki verður séð, að nokkur lánveiting úr opinberri lánastofnun geti átt rétt á sér, ef hún þolir ekki dagsins ljós. Útlán er fara yfir 3 millj. skulu birt t 2. gr. frumvarpsins er kveðið nánar á um framkvæmd þessa fyrirkomulags, en þar segir með leyfi forseta: „Bankar, sparisjóðir, fjárfest- ingarlánasjóðir og aðrar lána- stofnanir skulu birta opinberlega lista yfir öll veðlán, sem veitt hafa verið á liðnu ári, einnig hvers konar útlán, sem nema hærri fjárhæð en þrem milj. kr. og veitt eru til lengri tima en tveggja ára ásamt upplýsingum um nöfn lántakenda, lánskjör og yfirlýstan tilgang lánanna. Þá skal einnig birta lista yfir ein- staklinga, félög og stofnanir, sem skulda við áramót meira en 5 milj. kr. i viðkomandi stofnun. Upphæðir þær, sem nefndar eru i 1. mgr, skulu breytast árlega i réttu hlutfalli við visitölu bygg- ingarkostnaöar 1. jan. 1978.” Hér eru þvi sett nokkur tak- mörk, hvaða lánveitingar skuli birtar, þar sem ástæöulaust virð- ist að bankar og sparisjóðir þurfi aö tina til sérhvert smálán. Þvi er i fyrsta lagi miðað við öll veðlán og i öðru lagi við öll útlán, sem nema hærri fjárhæð en 3 milj. kr. og veitt eru til lengri tima en tveggja ára. Ljóst er, að það er til hægðar- auka fyrir þá, sem vilja kynna sér slika lista, að saman sé dreg- ið I árslok hvað skuld sé orðin há hjá ákveönum aðila eða hjá ein- staklingum, stofnunum, og kem- ur þá einnig fram hve mikil lán viðkomandi hefur fengið á liönum árum. Útlánalisti liggi frammi í afgreiðslu Um nánari framkvæmdaatriði er svo kveðið á i 3. gr. þar sem segir: „Utlánalisti skal lagður fram i afgreiðslu stofnunarinnar áður en liðinn er fyrsti mánuður næsta árs og afhentur hverjum sem vill gegn hæfilegri þóknun, sem svarar til kostnaði viö prent- un.” Hér er ekki gert ráð fyrir þvi, að viðkomandi lánastofnun sé endilega skyldug að gefa út skyrslu um allar lánveitingarnar, prentaða skýrslu eins og Fram- kvæmdastofnunin hefur gert varðandi lán Byggðasjóðs og Framkvæmdasjóðs, heldur ætti það að duga að lagður væri fram fjölfaldaður listi, sem lægi frammi i afgreiðslu stofnunarinn- ar og væri heimill hverjum sem hafa vildi. Herra forseti. Ég sé svo ekki ástæöu til þess að fjölyrða frekar um efni þessa frumvarps. Ég vil aöeins itreka að frumvarp þetta er flutt i þeim tilgangi að stuðla að opnara og réttlátara stjórn- kerfi, stuðla að þvi, að fjármála- kerfið sé sett undir eftirlit al- mennings. A þvi er brýn þörf og sé ég ekki ástæðu til að rökstyðja það frekar. Að lokinni framsögu Ragnars var frumvarpinu visað til nefndar og 2. umræðu. St. lósepsspítali — Landakoti Hjúkrunarfræðingar óskast i fullt starf á hinar ýmsu deildir spitalans. Hlutastarf kemur til greina. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga i sumarafleysingar. Nokkrir hjúkrunarfræðingar geta enn komist að á upprifjunarnámskeið sem hefst 8. mai og verður i 4 vikur. Upplýs- ingar veitir hjúkrunarforstjóri i sima 19600. Reykjavik 10. april 1978 St. Jósepsspitali

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.