Þjóðviljinn - 18.04.1978, Síða 16
U 'J
Þriöjudagur 18. april 1978
-Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- N
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. ,
Utan þessa tima er hægt að ná I blaöamenn og aðra starfs-
menn blaðsins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaðaprent 81348.
81333
• Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóðviljans i sima-r
r skrá.
Kirkjusandur:
Uppsagnirnar voru
dregnar til baka
A föstudaginn ætluöu nokkrar
verkakonur i fiskvinnslustöðinni
á Kirkjusandi aö hætta vinnu aö
loknum venjulegum dagvinnu-
tima, kl. 5, þar sem þær þurftu aö
sinna ýmsum persónulegum er-
indum. Verkstjóri þeirra hótaöi
þá aö reka þær tafarlaust ár
vinnu, ef þær héldu ekki áfram aö
vinna. Konurnar létu þá flestar
undan siga vegna þessara hótana,
en tvær þeirra létu ekki brott-
rekstrarhótanir á sig fá og hættu
klukkan fimm. önnur þeirra er
trúnaöarmaöur verkakvenna á
Kirkjusandi.
1 gærmorgun kom i ljós, að
verkstjórinn ætlaði að standa við
orð sin. Hafði hann fjarlægt
stimpilkort stúlknanna tveggja
og tilkynnti þeim að þær væru hér
með reknar.
Mikill urgur var i verkafólki á
Kirkjusandi i gærmorgun vegna
þessara fáheyröi aðgerða. I kaffi-
timanum kom Guömundur J.
Guðmundsson varaformaður
Dagsbrúnar á vettvang og litlu
siðar Þórunn Valdimarsdóttir,
formaður verkakvennafélagsins
Framsóknar. Eftir viöræður
þeirra viö verkstjórann voru upp-
sagnirnar dregnar til baka. Einn-
ig varð að samkomulagi, að kom-
ið yröi á viðræðum milli forráöa-
manna Kirkjusands og fulltrúa
Dagsbrúnar og Framsóknar til að
reyna aö koma i veg fyrir aö slikir
atburðir endurtaki sig.
Að sjálfsögöu er verkafólki ekki
skylt að vinna eftirvinnu. Hins-
vegar er vinna oft mjög óregluleg
i frystihúsum, eftir þvi hve mikill
fiskur berstá land, og er oft unniö
til kl. 7 eða lengur, ef mikill fiskur
er i húsinu. Mikil þörf er þvi á, að
ákveðnar reglur komist á um það,
aö tilkynnt sé með góðum fyrir-
vara hve lengi verður unnið,
þannig að verkafólk geti þá jafn-
framt tilkynnt, ef það getur ekki
eöa vill ekki vinna yfirvinnu.
-eös
Leigubílaakstur
í Keflavík
Lægri taxti
fyrir Amerí-
kana
Margir leigubilstjórar suður i
Keflavik hafa lengi veriö afar
óánægöir meö þaö aö verötaxtinn
sem gildir fyrir Ameríkana á
Vellinum er mun lægri heldur en
taxtinn sem lsicndingar borga
eftir.
Bilstjórafélagið þar suður frá
hefur samt ekki fengist til að
leiðrétta þennan mismun og
Bandalag islenskra leigubilstjóra
hefur ekki heldur fengist til að
taka málið upp. Sem dæmi um
mismuninn er að fast gjald fyrir
skottúr innan Keflavíkurvallar
eru 2 dollarar (um 508 kr. isl.) en
aðeins startgjaldið fyrir tslend-
inga er 550 kr. Bill af Vellinum til
Rockville kostar 7 dollara fyrir
Amerikana (um 1778 kr.) en
sama ferð kostar fyrir íslending
um 2400 kr. Fast gjald fyrir ferð
Amerikana til Reykjavikur eru 30
dollarar (um 7620 kr. islenskar)
en tslendingur þarf að borga um
10.500 kr. fyrir sömu ferö.
—GFr
Guðmundur J. Guömundsson og Þórunn Valdimarsdóttir á fundi
kaffitimanum i gærmorgun.
meö starfsfólki Kirkjusands i
Ríkisstjórnin gefur eftir:
Kennurum endurgreidd
frádregin aukavinna
verkfallsdagana 1. og 2. mars sl.
Sem kunnugt er ákvaö rikis-
stjórnin aö hýrudraga þá opin-
beru starfsmenn um 16% af
heildarmánaðarlaunum þeirra,
fyrir verkfallsdagana 1. og 2.
mars sl. Innf þessum 16% var öll
aukavinna og aörar aukagreiösl-
1 ur sem opinberir starfsmenn fá.
Nú hefur rikisstjórnin aftur á
móti gefið nokkuð eftir i þessu
máli. Til að mynda er ákveöið að
endurgreiða öllum kennurum,.
sem þátt tóku i verkfallinu auka-
vinnuna, sem inni þessum 16%
voru. Upphæðin hefur þegar verið
dregin af fólki, en eins og áður
segir hefur nú verið ákveöið aö
endurgreiða kennurum við næstu
útborgun upphæð sem nemur
aukavinnunni.
Að sögn Haraldar Steinþórs-
sonar framkvæmdastjóra BSRB
hefur ekki heyrst enn sem komiö
er um endurgreiðslu aukavinnu
til annarra hópa innan BSRB.
—Sdór
Baráttufundur herstöðvaandstæðinga í Neskaupstaö:
Fjölsóttur og vel heppnadur
— Fundurinn tókst geysi-
lega vel/ sagði Smári
Geirsson kennari í Nes-
kaupstað/ er blaðið leitaði
frétta af baráttufundi her-
stöðvaandstæðinga í Nes-
kaupstað sl. laugardag.
Baráttufundurinn var haldinn i
Egilsbúð og var húsiö troðfullt,
þvi hátt á þriöja hundrað manns
sótti fundinn.
— Dagskráin var mjög vel
heppnuð, sagði Smári, enda var
hún mjög vönduö og vel undirbú-
in.
A fundinum voru fluttir leik-
þættir undir stjórn Guðriöar
Kristjánsdóttur. Tónlistarflutn-
ing önnuðust Smári Geirsson og
Karl Sighvatsson. Lesið var upp i
bundnu máli og óbundnu. Aðal-
ræðumaður var Vilborg
Harðardóttir, en stutt ávörp
fluttu Þóröur Júliusson og Ina
Gisladóttir. Leikararnir Arnar
Jónsson og Gisli Rúnar Jónsson
fluttu skemmtiþátt. Fundarstjóri
var Kristinn V. Jóhannsson.
— Við héldum þessa samkomu
fyrst og fremst til að kynda upp i
fólki og hvetja herstöðvaandstæö-
inga til dáða, sagði Smári Geirs-
son. — Það var óformlegur hópur
sem fyrir - þessu stóö, virkur
starfshópur fólks sem hefur
áhuga á málinu og fannst timi til
kominn að gera eitthvað i þvi á
þessu landshorni. Það gekk afar
vel að fá fólk til starfa og mikill
áhugi virtist á að hrinda þessu i
framkvæmd. Rúmlega 30 manns
tóku þátt i undirbúningi fundar-
ins.
— Ef miða má við undirtektir
fólks, held ég að við sem að þessu
stóöum getum verið afskaplega
ánægð, sagði Smári. — Starfshóp-
urinn hefur i hyggju aö halda
áfram starfi sinu og ég vona að
það takist að halda baráttunni
gegn hernum áfram. Ekki veitir
af.
-eös
Flateyjar-
hreppur
kaupir
Skáleyjar
Eins og skýrt var frá i
Þjóðviljanum fyrir réttum
mánuði siðan, gerði reyk-
vlskur endurskoðandi kaup-
tilboð i helming jarðarinnar
'Skáleyja á Breiðafirði, en
jarðarparturinn hafði þá
um nokkra hrlð verið aug-
lýstur til sölu. Kauptilboðið
var 15 miljónir króna, sem
greiðast á, á næstu 20
mánuðum. Abúendur i Skál-
eyjum eru bræöurnir Jó^
hannes og Eysteinn Gisla-
synir. Þeir eiga hinn helming
jarðarinnar en leggja jafn-
framt þann sem settu'r var i
sölu.
Hreppsnefnd Flateyjar-
hrepps hefur nú ákveðið að
neyta forkaupsréttar sins og
ganga inn i ofangreint tilboð.
Hafsteinn Guðmundsson,
oddviti sagði i samtali við
Þjóðviljann i gær að ekki
væri séð fyrir endann á þvi
hvernig hreppurinn færi að
þvi að kljúfa þessi kaup, en
árstekjur Flateyjarhrepps
eru innan við 2 miljónir
króna.
Lánveitingar eru ekki
opnar, sagði Hafsteinn, þ.e.
enginn sérstakur sjóður er
skyldugur til þess að fjár-
magna slik kaup. Hins vegar
eru margar stofnanir og ein-
staklingar hlynntir þvi að
hreppurinn eignist þessa
jörð, og það er ástæðan til
þess að viö erum bjartsýnir á
að þetta takist.
Þó gætu ýmsir sjóðir
komið til greina, — einna
helst Jarðasjóður rikisins, en
þetta er svo nýtilkomið, að
ekki er alveg ljóst hvernig að
f jármögnuninni verður
staðið, sagði Hafsteinn.
Hafsteinn sagöi einnig aö
hreppurinn myndi leigja
þeim Jóhannesi og Eysteini
ábúðarréttá sinum helming,
enda stæði jörðin vel undir
tveimur fjölskyldum, en ekki
fleiri.
jBíðum ennj
leftír svari
A föstudaginn i slðustu viku
sendi Verkamannasamband
tslands vinnuveitendum bréf,
þar sem samhandið lýsti sig
reiöubúiö til sérviðræöna milli
VMSt og vinnuveitenda. Þá
gæfist vinnuveitenduni kostur á
að sýna I verki vilja sinn til að
bæta kjör þeirra lægst launuðu,
eins og þcir hafa liamrað á um
langan tiina. Við inntum
Guðmund J. Guömundsson for-
mann VMSt eftir þvi i gær hvort
svar hefði borist við þessu bréfi.
„Nei, þaö hefur ekkert svar
borist frá þeim. Og ég vil nota
tækifærið og lýsa yfir fullri
ábyrgð á hendur alvinnurek-
endum ef aðgerðir VMS! hafa
einhver óþægindi og kostnað i
för með sér. Þeim er i lófa lagiö
að ganga að samningaborðinu
og skrifa undir nýjan samning
við okkur þar sem okkur verður
bætt upp skerðing kaupránslag-
anna, þá um leið er útflutnings-
bannið úr sögunni” sagði
Guðmundur. —S.dór
Kjördæmisrád Reykjaneskjördæmis
Fundur I kjördæmisráði Reykjaneskjördæmis verður haldinn föstu-
daginn 21. april kl. 20:30,1 Þinghól, Hantraborg 11, Kópavogi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Undirbúningur kosninga
3. önnur mál. stjórnin.