Þjóðviljinn - 30.06.1978, Side 11
Föstudagur 30. júní 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Stjórn og varastjórn hins nýstofnaöa iþróttafélags þroskaheftra á Akureyri ásamt fulltrúa I.S.l. Sit-
jandi: Pétur Pétursson og Aðalheiður Pálmadóttir, en þau eru úr hópi þroskaheftra. Standandi: t.v.:
Jósteinn Helgason, Svanfriður Larsen, Guðrún Bergvinsdóttir, Stefania Guðmann, Margrét Rögnvalds-
dóttir formaður og Sigurður Magnússon skrifstofustj. ISl. A myndina vantar Þorgerði Fossdal.
Þriöjudaginn 16.
þ.m. var stofnað á
Akureyri fyrsta
íþróttafélag þroska-
heftra hér á landi og
hlaut það nafnið
íþróttafélagið Eik.
Félagið er stofnað að
frumkvæöi Iþróttasambands
tslands i nánu samstarfi við
Landssamtökin Þroska-
hjálp, en að stofnuninni á
Akureyri stóðu Styrktarfélag
vangefinna á Norðurlandi og
Foreldrafélag barna með
sérþarfir á Akurey'ri.
Fundarstjóri var Hörður
Olafsson skólastjóri en á
fundinum mætti Siguröur
Magnússon skrifstofustjóri
ISt og greindi frá aðdrag-
anda stofnunar félagsins,
skýrði lög þess og sýndi ný ja
norska kvikmynd um
likamsrækt þroskaheftra,
sem Fræöslumyndasafn
Rikisins hefur keypt og er til
útlána.
Tæplega 50 manns sátu
fundinn en i fyrstu stjórn
iþróttafélagsins Eik voru
kjörin:
Margrét Rögnvaldsdóttir
irþóttak. form.
Guðriin Bergvinsdóttir
Svanfriöur Larsen
Aðalheiður Pálmadóttir og
Pétur Pétursson, en tvö hin
siðast nefndu eru úr hópi
þroskaheftra.
Aformað er að stofna fleiri
iþróttafélög þroskaheftra á
þessu ári, bæði i Reykjavik
og út um land.
Ólofaðir
táningar
Hafa KR-ingarekki
staðið sig vel við um-
sjón iþróttakeppna og
móta? Ég held að
flestir séu á þeirri
skoðun og er því ærin
ástæða til að upplýsa,
þá sem ekki vita betur,
að svo er ekki.
Flestir muna eflaust eftir
frjálsiþróttamóti sem haldið
var fyrir skemmstu á
Laugardalsvelli. Margir
voru þeir sem furðuðu sig á
þvi hve mótið gekk vel fyrir
sig þrátt fyrir það að starfs-
lið væri fámennt. Fyrir mót-
ið hafði framkvæmdaaðili
mótsins tflnefnt ákveöna tölu
manna sem áttu að mæta frá
hverju félagi. Þar á meðal
voru 10 starfsmenn frá KR
og 5 frá Leikni.
Þegar mótið hófst kom i
ljós að enginn þessara 15
manna hafði séð ástæðu til
að mæta og stuðla að þvi að
mótið færi betur fram.
Þvi er ekki skritið að mað-
ur spyrji sjálfan sig þeirrar
spurningar hvað þessir
menn séu eiginlega að
hugsa. Eru þessir menn
samviskulausir gagnvart þvi
fólki sem æfir iþrótt sina
samviskulega.?
Hér skal ekki fullyrt hverj-
ir eiga sökina, stjórnendur
deildanna innan viðkomandi
félaga eða meðlimir þeirra
en trassaskapurinn er sá
sami eftir sem áður.
En eitt er vist og það er , að
þessir menn sem ekkert
hafa sér til málsbóta hafa
ekki hækkað i áliti og gera
það ekki,nema þeir hunskist
- tii að standa sig eins og menn
en ekki eins og ólofaðir
táningar.
SK.
ÚR MARKTEIGN UM
I síðustu viku féll þessi
þáttur niður og var það
vegna kosninganna sem
allir voru svo uppteknir
af. Það sem ég ætlaði að
taka til umf jöllunar i síð-
asta pistli verður því að
bíða betri tima.
Á miðvikudaginn lékum
við Islendingar landsleik
við Dani, eins og öllum
ætti að vera kunnugt.
Það verður ekki annað
sagt en beðið hafi verið
eftir leiknum með mikilli
tilhlökkun, bæði vegna
þess, að nú var kannski
tækifæri til að leggja
erkióvininn að velli á
sviði knattspyrnunnar,
þrátt fyrirað Danir hefðu
tilkynnt að þeir kæmu
með mjög sterkt lið. I
annan stað var beðið með
mikilli óþreyju eftir því
að sjá íslenska liðið í
fyrsta sinn undir stjórn
hins nýja landsliðsþjálf-
ara dr. Juri lllsév.
Ballið byrjaði á blaðamanna-
fundi i hinni vikunni, þar sem
landsliösnefnd tilkynnti sextán
manna hóp sem ætti að leika
fyrir Islands hönd.
Valiö á þessum hópi var i
marga staöi vel heppnaö en
margt var lika sem orkaði tvl-
mælis.
Sérstaklega þótti mér undar-
legt þegar landsliðsþjálfarinn
sagðist ekki hafa séð leikmenn
eins og Arna Stefánsson, Jón
Pétursson eöa Geir Þórðarson i
leik, en valdi þá vegna þess að
sér væri sagt að þessir menn
heföu átt góða leiki. Þá fannst
Sigurður
Haraldsson
skrifar
mér lika furöulegt sem kom
fram á fundinum að dr. Juri
hafði ekki séð leiki I Vest-
mannaeyjum eöa á Akranesi.
Þetta er ekki nógu gott, að
minu mati, enda kom fram i
leiknum aö Teitur var ekki neitt
betri en hann hefur áöur veriö
og reyndist vera helsti veikleik-
inn i liöinu.
Ég held, að það sé mikið
framboð af góðum sóknarmönn-
um hér sem myndu styrkja
liðið og gætu komið inn i stað
Teits.
Mesta spennan hjá mér var að
kynnast þvi hvernig dr. Juri
myndi láta liðið leika. Eins og
öllum er kunnugt, skrifaði hann
3 eða 4 greinar i Morgunblaðið
siðastliðið haust um málefni is-
lenskrar knattspyrnu og lét i
ljós þá skoðun sina að nú væri
hægt að byggja á þeim grunni
sem kominn væri hjá landslið-
inu og láta liðið sækja meir en
Tony Knapp hafði gefið skipanir
um.
En leikurinn á miðvikudags-
kvöld gaf ekki miklar vonir um
að meiri sóknarknattspyrna sé i
uppsiglingu hjá landsliðinu okk-
ar en verið hefur. Það var auð-
séð að dagsskipunin var að gefa
miðjuna eftir um leið og dansk-
urinn fékk boltann og bakka i
nógu þétta vörn i von um að þeir
fyndu ekki leiðína að marki en
sækja siðan þegar við fengjum
dauöa bolta, þ.e. frispörk, inn-
köst og þess háttar.
Þetta leikskipulag heppnaðist
fullkomlega, en þaö hefur áður
gért það. Þaö má kannski segja,
að fyrst Ásgeir Sigurvinsson var
ekki með, þá hafi ekki veriö nein
von um að eigna sér miðjuna i
leiknum, en það breytir ekki þvi
að liðið spilaði nákvæmlega
sömu taktik og þegar Tony
Knapp var með það.
En eins og þjálfarinn benti á
eftir leikinn, I viðtali viö eitt
blaðið, að ábyrgðin sem á
honum hvildi væri mikil og hann
vildi ekki taka neina áhættu.
Vona ég að áform hans um að
láta landsliöið sækja meira
heppnist, en ég held aö þá verði
að nota okkar bestu framherja i
liöið, sem ég veit að dr. Juri
getur valíö ef hann gefur sér
tima til að horfa á þá sjálfur.
Við Islendingar eigum tvo af-
burða knattspyrnumenn og
marga sem geta leikið mjög vel,
jafnvel gegn sterkustu þjóðum
heims, eins og dæmin sanna, og
ættum aö vera bjartsýnir á
framtiöina.
1 þessum pistlum mlnum hef
ég ekki minnst neitt á aðrar
deildir Islandsmótsins en
1. deild, enda er ég sekur
að þvi aö horfa ekki mik-
ið á fótboltann i neöri deild-
En það er alltaf sama sagan
hér á tslandi, að við tölum ein-
ungis um þá bestu. Mesta at-
hygli vekur landsliðið, þá 1.
deild og svo koll af kolli. Hjá fé-
lögunum er allt reynt aö gera
fyrir meistaraflokk, siöan er
hugsað um yngri flokkana og þá
aöeins um þá 11-16 stráka sem
eru bestir. Þetta er veikleiki I
uppbyggingu knattspyrnuhreyf-
ingarinnar þvi að með þessu
móti er aðeins ákveöinn hópur
sem kemst að en hinir sem ekki
eru nógu góðir hrökklast frá og
ist að og fengið að leika knatt-
spyrnu einu sinni til tvisvar i
viku og ég er viss um að þá
myndi áhuginn og vallarsókn
aukast að mun.
Eitt spor i þessa átt var stigið
nú eigi alls fyrir löngu aö frum-
kvæði áhugamannsins mikla
Halldórs Einarssonar (HEN-
SON) er nokkrar fyrrverandi
stjörnur stofnuðu sérdeild til að
fá aðspreyta sig eins og i gamla
daga. 1 þessari deild er allt kapp
lagt á að þátttakendur reyni ali
hafa sem mest garnan af keppn-
Þrlr kunnir kappar sem allir taka þátt I hinni nýstofnuöu úrvalsdeild. Þeir eru frá vinstri: Hörður
Markan, Þorsteinn Friðþjófsson og Halldór Einarsson (HENSON).
unum og er það aöallega
vegna timaskorts. En það er
mjög spennandi keppni i 2.
deild, ekki skilja nema 5 stig
efsta og neðsta liö. Unglinga-
flokkarnir eru mjög skemmti-
legir og oft hart barist þar og
vona ég að ég geti tekið þá fyrir
i einhverri grein i framtiðinni.
missa áhugann á iþróttinni. Ég
er ekki með neina „patent”
lausn á þessum vanda en ég
held, aö ef vilji og áræði
er fyrir hendi væri hægt
að koma á fyrirtækja-
knattspyrnu i svipuðum
stil og skólamótið sem KSl.
heldur. Þannig gætu fleiri kom-
inni. Þetta framtak lofar góöu
og finnst mér að KSI ætti að
fylgja þessu fordæmi eftir og
reyna að láta sem flesta hafa
verkefni við sitt hæfi á knatt-
spyrnusviðinu.
Sigurður Haraldsson.