Þjóðviljinn - 22.07.1978, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. júli 1978
Rennt
fyrir
lax"
Góö veidi í Stóru-Laxá
Sem og öörum laxveiöiám landsins
í síðasta þætti þar
sem við höfðum sam-
band við nokkur veiði-
hús og spurðumst
frétta f sambandi við
veiöi var algengasta
svarið sem við feng-
um, að um metveiði
hefði verið að ræða.
Við hringdum i nokkur hús
til viðbótar i gær. Viðtökur
þær er þátturinn fékk voru
þó misjafnar og er hringt var
i veiðihúsið að Laxamýri viö
Laxá i Suöur-Þingeyjarsýslu
náðum við sambandi viö
matreiöslukonu á staðnum.
Sagðist hún ekkert hafa við
höndina um veiði i ánni, og
einnig tók hún fram, að viö
Þjóðviljann vildi hún ekki
tala. Þetta væri ekki hennar
blað.
Af þessari framkomu, sem
er fyrir neðan allar hellur,
verður einungis dregin sú
ályktun aö veiði i ánni sé lé-
leg og þvi lundarfar bless-
aðrar konunnar skiljanlegt.
Stóra-Laxá
i Hreppum:
Þátturinn hafði samband
Þessi mynd er tekin i Laxá I Hreppum og er af einum besta veiöi-
stað árinnar. Þaö er Hrunakrókur sem á myndinni sést, en hana tók
Pétur Georgsson.
við Friðrik Stefánsson hjá
Stangaveiðifélagi Reykja-
vikur. Sagði hann að veiði i
ánni hefði verið mjög góö
það sem af er og nefndi tölur
máli sinu til stuðnings.
Eins og flestir vita er ánni
skipt i fjögur veiðisvæði, en
Friðrik hafði þó ekki upplýs-
ingar nema um tvö þeirra.
A veiðisvæði 3 sem er næst-
efsta svæði árinnar voru
þann 13. þessa mánaðar
komnir á land um 80 laxar.
Til samanburðar má geta
þess, að á sama tima i fyrra
komu á land frá þvi að veiði
hófst og fram að 13. júli um
40 laxar.
A veiðisvæði 4 sem veiði-
manna i milli er oft nefnt
„torfæruveiðisvæðið” sökum
þess hversu land þar er illt
yfirferðar voru komnir á
land 13. júli rúmlega 80 laxar
en i fyrra veiddust i allt á þvi
svæði um 172 laxar.
Friðrik sagði, aö mikið
yæri veitt á flugu. Útlending-
ar hefðu verið með ána á
leigu frá 15. júli og yrðu þeir
þar út ágústmánúð.
„Temmilegt verð/y
Friðrik Stefánsson sagöi i
samtali við Þjóöviljann i
gær, að Stangaveiðifélagið
hefði eftir bestu getu reynt
að halda veröi á veiðileyfum
niðri og taldi hann, að veröið
á þeim ám sem félagið væri
með á leigu, væri temmilegt.
Sagði hann einnig, að á hin-
um ýmsu stöðum öðrum væri
veðrið sprengt upp þannig að
einungis vel efnaðir menn
gætu stundað veiðarnar.
„Við erum i þann veginn
að selja siðustu leyfin, sem
viö erum með i sumar”,
sagði Friðrik, og hann bætti
þvi við, að hann reiknaði
með 100% nýtingu i öllum ám
félagsins.
Korpa:
1 Veiðimanninum fengum
við þær upplýsingar, að veiði
i Korpu væri nú svipuð og i
fyrra. 1 gær voru komnir á
land 178 laxar sem er mjög
svipað og á sama tima i
fyrra. Alls komu á land i
fyrra úr ánni 368 laxar og var
okkur tjáð, að sú tala væri i
það lægsta. Venjulega væri
veiðin i kringum 4-500 laxar.
Lax virðist nú vera kominn
upp um alla á, og i fyrradag
veiddust t.d. 14 laxar og allir
voru þeir dregnir á land i efri
hluta árinnar.
Laxá í Kjós:
Ekki tókst okkur að ná tali
af veiðiverði, en okkur var
tjáð af starfsstúlku i veiði-
húsinu að Asgarði, að vatn
væri litið i ánni um þessar
mundir einhverra hluta
vegna. Frést hefur, að veiði
hafi verið góð i sumar, en
seinna munum við greina frá
veiöi i Laxá i Kjós, einni feg-
urst laxveiðiá landsins.
SK.
Góður árangur
lóns í New York
— krækti sér í 1/2 alþjóðatitil
tslendingar hafa verið ansi
þaulsetnir við taflborðið i sumar.
Friðrik Óiafsson „startaði” öllu
santan með þvi að tefla á tveimur
mótum á Kanarieyjum og
skömmu siðar hélt Guðmundur
Sigurjónsson til Danmerkur og
tók þar þátt I allsterku móti.
Hvernig honum reiddi af er þeim
sem þessar linur hripar ekki al-
veg kunnugt en gera má ráð fyrir
góðum árangri.
Allstór hópur skákmanna fór i
júnilok til vesturheims eða öllu
heldur Bandarikjanna. Tóku þeir
fyrst þátt i hinu svonefnda
„World Open” skákmóti en þar
gerði Ingvar Asmundsson garð-
inn frægan eins og alkunna mun
orðið. Eftir þetta tvistraðist hóp-
urinn, sumir héldu lengra suður á
bóginn, aðrir heim á leið og hinir
héldu á vit opins skákmóts i New
York. t Bandarikjunum eru varla
haldin önnur en hin svofeölluðu
opnu mót þar sem allir geta veriö
með og átt möguleika á verðlaun-
um, mismunandi háum eftir
styrkleika að sjálfsögðu. Mótið i
New York var skipað 100 kepp-
endum, þar af nokkrum stór-
meisturum. íslendingarnir voru
7, eða þeir Jón L. Arnason, Mar-
geir Pétursson, Sævar Bjarnason,
Bragi Halldórsson, Guðni Sigur-
bjarnason, Asgeir Þ. Arnason og
Jóhannes Gislason. Mótið var
teflt á 11 dögum og jafnmargar
voru umferðirnar. Eftir fréttum
að dæma voru aðstæður afar bág-
bornar, loftræsting annaðhvort
alltof köld eða engin og þá hitin
drepandi. Keppnin um efsta sætið
var mjög hörð og spennandi en að
lokum féll það i skaut rúmenska
stórmeistaranum Florins
Gheorghiu. Hann hlaut 8
vinning og sigldi taplaus gegnum
mótið. I 2. sæti varð Peter Biyas-
as frá Kanada,hlaut 8 vinninga.
Frá sjónarhóli okkar tslendinga
ber hæst glæsilegan árangur Jóns
L. Arnasonar sem hlaut 7 vinn-
inga og 1/2 alþjóðlegan titil að
auki.Raddir hafa jafnvel heyrst
um að hann hljóti allan titilinn i
haust vegna sigurs hans á HM
sveina i Frakkalndi siðastliðið
haust, en heldur tel ég óliklegt að
það verði samþykkt enda kom til-
lagan seint fram. Hvaö sem þvi
liður efast varla nokkur maður
um að Jóni takist að krækja sér i
allan titilinn áður en langt um lið-
ur. Árangur annarra Islendinga
varð sem hér segir:
Sævar Bjarnason 6 1/2 v.
Margeir Pétursson 5 1/2 v.
Guðni Sigurbjarnarson 5 v.
Jóhannes Gislason 5 v.
Ásgeir Þ. Arnórsson 4 1/2 v.
Bragi Halldórsson 4 1/2 v.
Undir handarkrikanum hef ég
hér eina skák Jóns sem ég læt
flakka með lauslegum athuga-
semdum:
Hvitt: Jón L. Árnason
Svart: Belva
Sikileyjarvörn
1. e4 c5
2. Rf3 Rc6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 e6
5. Rc3 Rf6
7. Bf4 Be7
8. Be2
(Annað vinsælt og gott framhald
er 7. Df3 en þannig meðhöndlar
Guðmundur Sigurjónsson þetta
afbrigði gjarnan.)
8. .. 0-0
9. 0-0 Dc7
10. Khl a6
11. Del Bd7
12. Dg3 b5?!
Jóni L. Arnasyni tókst aö krækja sér I 1/2 alþjóðatitil á mótinu i New York.
Umsjón: Helgi ólafsson
(Skákfræðin telur þennan leik
vafasaman og að betra sé að leika
12. — Kh8 sem kemur i veg fyrir
ýmsar ógnanir á kóngsvængnum
(Be3-h6 t.d.). Þessi leikurstyður
þessa skoðun)
13. e5'
(Skemmtileg peðsfórn. Ef nú 13.
— dxe5,14. fxe5 Dxe5, kemur 15
Rxc6 og vinnur.)
13. ..Re8
14. Re4 Rxd4?
(Mjög ónákvæmur leikur. Bisk-
upinn kemst nú i lykilaðstöðu á
d4.)
15. Bxd4 d5
16. Rf6+!
(Fórnir sem þessar ganga upp af
sjálfu sér.)
16. ..Kh8
17. Dh4 Dxc2
18. Hf3
(Hótar 19. Bd3. Það hillir undir
leikslok.)
18. ,.h6
19. Rd3 Da4
20. f5!
(Afgerandi.)
20. ..Rxf6
(Hvað annað?)
21. exf6 Bxf6
22. Dxf6!!
(Smiðshöggið. 22. — gxf6 strand-
ar á 23. Bxf6- og vinnur skjótlega
eins og lesendur geta dundað við
að finna út.)
22. ..Hg8
23. Dxh6mát.
Stutt og laggott.