Þjóðviljinn - 22.07.1978, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 22.07.1978, Blaðsíða 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. júll 1978 Svavar Framhald af bls. 1 þeim þingmönnum flokksins sem hafa beitt sér fyrir vinstri viðræö- um. Vonandi eruþessi skrif ekki til marks um raunverulega af- stö&u Alþýðuflokks og Framsókn- arflokks til myndunar vinstri stjórnar. Hætt er viö aö ámóta slö-if i Þjóðviljanum yrðu lögö út sem merki um óheilindi af okkar hálfu. En slík skrif hafa ekki ver- ið i Þjóöviljanum. — Hvernig hafa svo viöræöurn- ar gengið undanfarna 3 daga? — Ég tel, aö þær hafi gengið eölilega, og ég mundi sist af öllu vilja bregða viömælendum okkar um óheilindi, en þeir viröast eiga viö ýmislegt aö etja I eigin rööum. A viöræðufundinum I gærmorgun var fariö yfir ýmsa mikilvæga þætti efnahagsmála. Alþýðu- bandalagið kynnti tillögur sínar um niöurskurö milliliöastarfsem- innar og yfirbyggingar, en þar er m.a. átt við einföldun innflutn- ingsverslunar, oliusölu, trygg- ingastarfsemi og bankakerfis svo og kröfur um strangara verðlags- eftirlit. Formlegir viöræðufundir halda áfram árdegis á laugardag. Ég vil aö lokum segja, aö i þessum viðræöum, sem Alþýöu- bandalagiö knúöi fram aö haldn- ar yröu, hefur flokkurinn lagt fram stefnu sina i heild, og allar „fréttir” um mismunandi áherslu á málaflokka eru tilhæfulausar með öllu. Viö viljum aö sjálfsögöu ná árangri i viöræöunum, en úr- slit mála eru ekki undir okkur einum komin, heldur auövitaö þvi hvaöa áhuga viðrasðuflokkar okk- ar hafa á þvi að starfa meö okkur að framkvæmd vinstri stefnu. —h. Fullt samráð Framhald af bls. 1 dómi er þaö grundvallaratriöi, aö rikisstjórn sem mynduö yröi viröi kjarasamninga. Hver sem ætlar sér að mynda rikisstjörn og virðir ekki kjarasamninga lendir i and- stöðu viö veröalýöshreyfinguna i heild. — Sagt hefur veriö i ýmsum blöðum að „menntamenn i þing- flokki Aiþýðubandalagsins” hafi borið verkalýðsforystu Alþýðu- bandalagsins ofurliði og ekki virt óskir hennar um samstjórn með Sjálfstæöisflokknum? — Þetta stenst ekki. Alþingis- kosningarnar beindu Alþýöu- bandalaginu beinlinis inn á þá braut aö stuðla að vinstri stefnu. baö var kosiö um stefnuna i efna- hagsmálum. Rikjandi var hægri stefna, en andstæöa hennar er vinstri stefna. Sjálfstæöis- og Framsóknarflokkar réöu feröinni i siöustu stjórn og þeir eru ekki liklegir til að breyta efnahags- stefnunni. Það er algerlega úr lausu lofti gripið að verkalýðs- hreyfingin telji Sjálfstæðisflokk- inn liklegan tii aö fylgja stefnu er verkalýðssamtökin geti sætt sig viö. I kosningunum var kosið gegn Sjálfstæöisflokknum og efnahagsstefnu hans. Þingflokkur og framkvæmdastjórn Alþýöu- bandalagsins hafa haft fullt sam- ráö viö stjórn verkalýösmálaráös við undirbúning stjórnarmyndun- arviðræðnanna. —óre. ■ w Er sjónvarpiö bilað? Skjárinn SjónvarpsMprkstó Bergsta5astr<ati 38 simi 2-19-40 Hveravellir — Kerlingafjöll Frá Hvitárvatni, en i Hvitanesi verður tjaldað. Sumarferð Alþýðubanda- lagsins í Kópavogi Hin árlega sumarferö Alþýðubandalagsins i Kópavogi veröur farin 28.-30. júlí n.k. Lagt verður af staö frá Þinghól kl. 17.30. Ekið verður í Hvítanes og tjaldað þar. Á laugardag verður ekið í Kerlingarf jöll og Hveravellir skoðað- ir, en siðan farið í Þjófadali og þar munu ferðamenn hitta Alþýðubandalags- fólk úr Norðurlandskjördæmi vestra. A sunnudag verður haldið heimleiðis og komið við hjá Hagavatni. Fólker hvatttil að panta far sem fyrst hjá Karii Einarssyni síma 40595 eða Lovísu Hannesdóttur sima 41279. Farseðlar verða seldir í Þinghól þriðjudaginn 25. júli kl. 16-18 og 20-22, sími 41746. Farmiði fyrir fullorðna kostar 6.500 kr. en börn á aldrinum 9-12 ára greiða 4.000 kr. Fólk hafi meðsér tjöld, viðleguútbúnað og nesti. Þátttaka er öllum heimil. Skoðið fagurt umhverfi i góðum félagsskap! Ferðanefndin NORDSAT Framhald af 5. siöu — Mun tjáningarfrelsiö aukast viö tilkomu NORDSATs? — Frá sjónarhóli skapandi listamanna vakna óneitanlega spurningar um tjáningarfrelsi I reynd. Hvað um þjóðfélagslega gagnrýniö efni? Viö getum nefnt dæmi. Norskur leikritahöfundur skrifar gagnrýni á ákveðinn þátt I norsku þjóöfélagsllfi. Skyldi nú norska sjónvarpiöhugsa ööruvisi, ef þaö vissi, aö þessi gagnrýni yröi send beint til allra Noröur- landa? Kæmi til sögunnar hræösla viö aö móöga tiltekiö land, eins og t.d. stjórn Danmerk- ur á Grænlandi? Þarna held ég að sé á feröinni viss hætta á meðvit- aöri eða ómeövitaöri ritskoöun. — Geturöu nefnt önnur dæmi um félagsleg áhrif NORDSATs? — Meginatriðið erhin almennu menningarlegu og félagslegu áhrif. Hvað t.d. um börn, sem eru þriðjungur Noröurlandabúa, hvaöa áhrif hefur þetta á þjóö- erniskennd þeirra og skilning á eigin þjóðfélagi? Þaö er vitaö mál, aö börn eiga erfitt meö aö greina i sundur veruleik, sem þau sjá ísjónvarpi og veruleik, sem er i umhverfi þess. Þá vaknar sú spurning, hvortþau ruglist viö til- komu slikra sjónvarpshnatta, og hvort þau geri sér þá grein fyrir þvi, I hvaða þjóöfélagi þau raun- verulega lifa. Til gamans má geta þess, aö i sjónvarps-umræöuþætti, sem ég tók þátt i ásamt Ellert Schram, varaformanni útvarpsráös, þá lagöi ég fyrir hann þá spurningu, hvers vegna isienska sjónvarpiö notfærði sér ekki betur framboö Nordvision, úr þvi þeir heföu svona mikinn áhuga á norrænu sjónvarpsefni. Þá svaraöi hann þvi til, að hann heföi engan sér- stakan áhuga á norrænu sjón- varpsefni; taldi þaö heldur væmiö og leiöinlegt. En samt er hann einlægur stuöningsmaöur NORD- SATs. Þá spyr maöur sjálfan sig, af hvaöa ástæöum hefur þá sá áhugi vaknað? Þaö er annaö i þessu, og þaö er gjaldeyriseyöslan. Þaö væri t.d. gaman aö sjá tölur yfir þaö, hvaö jafn litill hlutur eins og lita- sjónvarpiö er, hefur kostaö Is- lendinga i gjaldeyri. Hverjir skyldu hafa hagnast af lita- væöingu islenska sjónvarpsins? Ætli þaö sé þjóöin i heild eins og skuldum hennar er háttaö? — Hvaö er aö gerast i NORD- SAT-málinu ndna? — Þaö er veriö aö rannsaka lagalega og menningar-pólitiska hliö málsins af embættismönnum eingöngu. Máliö mun svo fara fyrir Norðurlandaráö snemma árs 1980, þaöan til einstakra þjóö- þinga, sem reiknaö er meö aö bú- iö sé aö taka ákvöröun 1982,og ef sú áætlun stenst, fer NORDSAT á loft 1985, og sendingin af himnum ofan veröur aö veruleika. — Hvað viltu segja aö lokum um NORDSAT? — Mér koma i hug orö for- manns sænska rithöfundasam- bandsins, þegar hann var spuröur isambandi viö NORDSAT og bent á, aö sé tækni oröin til, veröi aö nota hana. Þá svaraði hann og sagöi: „Ef maöur kaupir sér fall- I Lindarbæ 1 kvöld kl. 20,30 Sunnudag kl. 20,30 Miöasala i Lindarbæ alla daga kl. 17-19 og sýningardaga kl. 17-20. Simi 21971. Síðustu sýningar. exi, er þar meö sagt, aö viö verð- um aö koma á dauöarefsingu aö nýju?” —IM Aukið samstarf Framhald af 2 MFA, er nýlega afstaöin, en þaö var kynnisferö fyrir trúnaöar- menn verkalýðsfélaga til Noregs þar sem þátttakendur kynntu sér starfshætti verkalýðssamtaka þar i landi, þjálfun trúnaðar- manna, eftirmenntun og vinnu- og umhverfisvernd, svo fátt eitt sé nefnt. Ráðgert er, að framhald verði á ferðum sem þessari og þá i auknum mæli. 1 stjórn Alþýðuorlofs til næstu tveggja ára voru einróma kjörin Óskar Hallgrimsson, formaður, Björn Jónsson, varaform., Hall- dór Björnsson, ritari, Guöriður Eliasdóttir, gjaldkeri, og með- stjórnendur þeir Einar ögmunds- son, Lúther Jónsson og Jón Björnsson. 1 varastjórn voru kjörnir Snorri Jónsson, Hallgrim- ur Pétursson og Karl Steinar Guönason, en sem endurskoöend- ur voru kjörnir þeir Guöjón Jóns- son og Kristján Ottósson. Notað og nýtt Framhald af 6. siöu undir handlegginn aö gömlum siö og stingur honum beint I svart..., i sjúkrarúmiö. — En hvað með lækninguna, og hvaö með alla læknana? — Sjúklingurinn veröur send- ur á sérstakan útivistarstaö, sem nefnist Forum Medicum, og þar veröa allir læknarnir samankomnir undir berum himni og fremja lækningar, uppskuröi og aögeröir gegn vægum inngangseyri. Þetta mun drýgja gjaldeyristekjurnar verulega, þvi ætla má, aö túrist- arnir veröi alveg brjálaöir I aö sjá þjóölegar aögeröir undir bláum himni. Með kveðju. Feilan &lþýöubandalagi(} Viðtalstimar borgarfulltrúa Borgarfulltrúar Alþýöubandalagsins hafa viötalstima aö Grettisgötu 3 kl. 17-18 þriöjudaga og miövikudaga i sumar. Slminn er 17500 Alþýðubandalagið Vesturlandi Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi efnir til feröar I Þórsmörk dagana 11.-13. ágúst. Farið verður frá Borgarnesi kl. 16 á föstudag. Allir velkomnir — Nánar auglýst slöar hverjir taka við þátt- tökutilkynningum. Alþýðubandalagið |Vesturlandi Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi efnir til ferðar I Þórsmörk dagana 11.-13. ágúst. Farið verður frá Borgarnesi kl. 16 á föstudag. Allir velkomnir — Nánar auglýst siöar hverjir taka viö þátt- tökutilkynningum. Alþýðubandalagsfélag Hveragerðis efnir til sinnar árlegu sumarferöar 29.-30. júli. Fariö veröur aö Hvera- völlum og Kerlingarfjöllum. Lagt veröur af staö frá Gagnfræöaskól- anum laugardaginn 29. júli kl. 10 f.h. Væntanlegir þátttakendur láti skrá sig fyrir 18. þ.m. og fái nánari upplýsingar hjá eftirtöldum, Karl- innu i sima 4271, Auði I sima 4332 og Sigmundi i sima 4259. Félagar fjöl- menniö og takiö meö ykkur gesti.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.