Þjóðviljinn - 29.07.1978, Page 13
Laugardagur 29. jdll 1978 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 13
V istfr æðirannsókn
ir í Hvalfirdi
Kostaöar af Járnblendifélaginu
Umfangsmiklar vist-
fræðirannsóknir standa
nú yfir i Hvalfirði vegna
byggingar málmblendi-
verksmiðjunnar á
Grundartanga. Rann-
sóknir þessar eru ann-
ars vegar loftmengun-
arrannsóknir sem fram-
kvæmdar eru af Rann-
sóknarstofnun iðnaðar-
ins og hins vegar líf-
fræðirannsóknir i
umsjón Líffræðistofnun-
ar Háskóla íslands.
Þjóðviljinn hafði samband við
Pétur Sigurjónsson forstjóra
Rannsóknarstofnunar iðnaðarins
og Agnar Ingólfsson forstöðu-
mann Llffræðistofnunar Háskól-
ans, til að fá nánari upplýsingar
um þessar rannsóknir.
— Pétur sagði að loft-
mengunarrannsóknirnar væru
frumrannsóknir til að kanna nú-
verandi ástand loftsins, áður en
verksmiðjan hæfi starfsemi til
þess að fá samanburð eftir að
framleiðslan á málmblendinu
hefst. Rannsóknartækjum hefur
veriðkomið fyrir á nokkrum stöð-
um kringum verksmiðjuna I allt
að 6 km fjarlægð frá henni. Þá er
safnað loftsýnum, rigningavatns-
sýnum og rykmengun könnuð
m.a. með tilliti til magns þung-
málma i sýnunum. Rannsóknir
þessar eru gerðar i samvinnu viö
norskt fyrirtæki, Norsk institut
for luftforskning, en þetta fyrir-
tæki hefur útvegað tækin og sett
þau upp. Hins vegar mun megnið
af sýnunum vera rannsakaö hér,
— Pétur sagði að lokum að
Járnblendifélagið kostaði þessar
rannsóknir og hljóðaði kostnaðar-
áætlunin i ár upp á 7-8 miljónir
króna. Þessar rannsóknir munu
siðan verða stundaðar til fram-
búðar eftir að verksmiðjan tekur
til starfa.
— Agnar Ingólfsson sagði i
samtali við blaðið að rannsóknir
Liffræðistofnunarinnar beindust
einkum að rannsóknum á þung-
málmum i gróðri á landi og
sjávardýrum auk sjóefna- og
straumarannsókna, en sýni eru
tekin I allt að 5 km fjarlægð frá
verksmiðjunni. Liffræðistofnunin
annast ekki þessar rannsóknir al-
veg á eigin spýtur, þvi Náttúru-
fræðistofnunin og Hafrann-
sóknarstofnunin tóku að sér hluta
þeirra. Rannsóknir þessar
byrjuðu vorið 1975 og munu
standa allt þangað til verksmiðj-
an byrjar að framleiða málm-
blendi vorið 1979. Eftir það verða
framkvæmdar áframhaldandi
rannsóknir til að kanna hvort
Grundartangaverksmiðjan. Rannsóknirnar eiga aft sýna hve miklar breytingar verfta á lifriki Hval -
fjarftar eftir aft verksmiftjan tekur til starfa.
breytingar verða á lifrikinu I
Hvalfirði með tilkomu verksmiðj-
unnar og þá m.a. hvort og hvernig
magn þungmálma I gróðri og
sjávardýrum breytist.
— Agnar sagði ennfremur að
þessi rannsóknaráætlun sem nú
væri I gangi myndi kosta rúmar
26 miljónir og væri hún kostuð af
Járnblendifélaginu, en þetta væri
samt heldur lægri upphæð en sú
sem Liffræðistofnunin hefði farið
fram á.
— Agnar var að lokum spurður
hvort nægilegt fé fengist almennt
til iiffræðirannsókna á Islandi. —
Agnar sagði aö liffræðistofnunin
væri i hreinu fjársvelti. Fjár-
magn það sem henni hefði verið
úthlutað samkvæmt fjárlögum
hefði ekkert hækkað i krónutölu
siðan 1976, en það er um 8 milj-
ónir. Hins vegar hefði kennurum
við Liffræðiskor Háskólans fjölg-
að þannig að sifellt minna rann-
sóknarfé kemur á hvern sér-
fræðing. —Þig
Frá blaftamannafundi Þursaflokksins. 1 forgrunni má sjá Þórft Arnason, Egil Ólafsson, James Kay upp-
tökumann og Tómas Tómasson.
Þursaflokkurinn meö hljóm-
leika á Miklatúni
Siðastliðinn þriðjudag
var boðað til blaða-
mannafundar i Hljóðrita
i Hafnarfirði i tilefni af
væntanlegri hljómplötu
og útihljómleikum
Þursaflokksins. Hljóm-
leikarnir verða haldnir á
Miklatúni hér i Reykja-
víkurborg á mánudags-
kvöldið kl. 20.30 og eru
efndir við loforði sem
Þursaflokkurinn gaf á
Stranglershljómleikun-
um, en þá neitaði flokk-
urinn að leika vegna
samningsbrota gagn-
vart sér.
Maöur ferst í hús-
bruna á Siglufirði
Laust eftir kl. 13 i gær-
dag kom upp eldur i
gömlu timburhúsi á
Siglufirði, við Lindar-
götu. t húsinu bjuggu
hjónin Elin Birgisdóttir
og Kristján Gunnarsson
með 6 bömum sinum,
sem eru á aldrinum 2-18
ára.
Eldurinn kom upp á efri hæð
hússins og varð skjótt mjög miki
ill. Börnin voru ekki öll heima er
eldsins varð vart, en Elinu og
nágrannakonu tókst að koma
börnunum sem heima voru út, en
Elin brenndist ilia við björgunar-
aðgerðirnar og var flutt á sjúkra
hús i Reykjavik. Kristjáni
Gunnarssyni tókst hins vegar
ekki að komast út og beið hann
bana i eldinum. Hann var 32 ára
að aldri og hafði stundað sjó-
mennsku og alhliða vinnu i landi.
Eldsupptök eru óþekkt, en
slökkviliðinu tókst að ráða niður-
lögum eldsins á mjög skömmum
tima undir vaskri stjórn Kristins
Georgssonar slökkviliðsstjóra.
Húsið Lindargata 10 er gjör-
ónýtt og missti fjölskyldan þar
allt sitt innbú og eigur.
-Þig/GRS
A hljómleikunum á Miklatúni
mun Þursaflokkurinn leika lög af
væntanlegri hljómplötu sinni, en i
bigerð er að hún komi út i sept-
ember og þá á vegum Fálkans.
A fundinum i Hljóðrita var leik-
ið af bandi efni það sem þeir
Þursar ætla á plötuna — sumt
fullunnið, annað ekki. Þetta er
geysimögnuð músik og greinilegt
að hér hafa menn lagt sig alla
fram og þaulhugsað málin. —
Sem sagt — listaverk á leiðinni.
Efni plötunnar er byggt á göml-
um merg, eða þjóðlagasafni séra
Bjarna Þorsteinssonar siðan á 19.
öld. Auk þess verða á plötunni
kaflar úr verki þvi sem Þursa-
flokkurinn flutti með Islenska
dansflokknum á listahátið.
Þursaflokkinn skipa Þórður
Arnason (gitar), Rúnar Vilbergs-
son (fagott), Asgeir Óskarsson
(trommur), Tómas Tómasson
(bassi) og Egill ólafsson (söng-
ur), en sá siðastnefndi stýrði
þessum blaöamannafundi bæði
skörulega og þægilega.
47 fiskimjölsverk-
smiðjur starfandi
Aðeins 16 hafa fullt starfsleyfi
Um 1/5 af öllum fiski-
mjölsverksmiðjum á ís-
landi hafa ekki starfs-
leyfi, eða 11 af 47 starf-
andi fiskimjölsverk-
smiðjum. Aðeins 16 eru
með fullt starfsleyfi, og
20 verksmiðjur eru með
skilyrt starfsleyfi.
Þettar upplýsingar komu fram
i samtali sem Þjóðviljinn átti við
Hrafn Friðriksson forstööumann
Heilbrigðiseftirlits rikisins, er
hann var inntur eftir upplýsing-'
um um hvaða reglur giltu um
leyfisveitingar til fiskimjölsverk-
smiðja og eftirlit með þeim.
— Arið 1972 tóku gildi lög um
mengunarvarnir, sem gerðu
fiskimjölsverksmiöjum skylt að
sækja um starfsleyfi til Heil-
brigðiseftirlitsins, en heilbrigöis-
ráðherra veitir siðan leyfin að
fenginni umsögn heilbrigðis-
nefnda. A sinum tima sótti Félag
Islenskra fiskimjölsframleiðenda
um starfsleyfi fyrir allar starf-
andi fiskimjölsverksmiöjur á
einubretti og voru þessi leyfi af-
greidd á árunum 1972-1974.
I lögum og reglugerðum um
veitingu þessara starfsleyfa segir
að reykháfar á fiskimjölsverk-
smiðjum skuli hafa ákveöna hæð
og frárennsli frá þeim skuli vera
af ákveðinni lengd undiryfirborði
sjávar. Þessi ákvæði voru mjög
gagnrýnd vegna þess að i mörg-
um tilfellum var verksmiðjunum
fjárhagslega ofviða að standa við
skuldbindingar sinar. Reglugérð-
inni var þá breytt á þann veg
verksmiðjunum var gefinn kostur
á að þvo eða brenna reyk þann
sem myndast við bræðsluna eða
taka upp gjörbreytta framleiðslu-
hætti og gufuþurrka mjölið. A
grundvelli þessara reglna eru
leyfin veitt nú.
— Kom fram hjá Hrafni að i
mörgum tilfellum væri svipað
ástand i mengunarvörnum hjá
verksmiðjum með fullt starfsleyfi
og skilyrt starfsleyfi, enda þyrfti
að að meta aðstæður hverju sinni
t.d. hvort verksmiðjan væri stað-
sett i þéttbýli eða utan þess.
— Hrafn var að lokum spurður
hvort ekki væri farið eftir aðbún-
aði og hollustuháttum við leyfis-
veitingu.
— Hrafn sagði að s.l. tvö ár
hefði verið lögð sérstaklega mikil
áherská að kanna ástand þessara
þátta áður en leyfi væri veitt og
mætti segja að Heilbrigðiseftirlit-
ið legði sig allt fram um að fýlgj-
ast með að þetta væri i sem bestu
ásigkomulagi hjá verksmiðjun-
um. Gallinn væri hins vegar sá að
eftirlitið væri allt of illa mannað
og mætti jafnvel þrefalda starfs-
lið til að hægt yrði að anna öllu
sem þyrfti. —-Þig
phyris snyrtivörumar
verða , sifellt vinsælli.
phyTÍS er húðsnyrting
og hörundsfegrun með hjál|
blóma og jurtaseyða
phyris fyrir viðkvaema
húð
phyris fyrir allar
húðgerðir
Fæst i helstu snyrtivöruversl-
unum og apótekum.
■P