Þjóðviljinn - 29.07.1978, Side 15

Þjóðviljinn - 29.07.1978, Side 15
Laugardagur 29. júli 1978 ÞJÓDVILJINN — StÐA 15 Menntamálaráðherra staðfestír út- hliihinarreglnr lánasjóðs námsmanna Maxim Gorki á ytri höfninni áöur en skipiö sigldi af staö til Akureyrar. Skemmtiferðaskip- ið Maxim Gorki á leið til Akureyrar Reglurnar dæmdar ólögleglegar s.l. vor Vilhjálmur Hjálmars- son menntamálaráð- herra undirritaði fyrir nokkrum dögum nýjar reglur um úthlutun lána úr Lánasjóði islenskra námsmanna. Reglur þessar eru samdar af stjórn Lin, en sl. vor féll dómur i prófmáli sem einn námsmaður höfð- aði gegn stjórninni og voru úthlutunarreglurn- ar dæmdar ólöglegar. Þjóðviljinn hafði af þessu tilefni samband við Braga Guðbrands- son formann SINE, Sambands is- lenskra námsmanna erlendis, og innti hann eftir nánari upplýsing- um um málið. Bragi sagði að allt fram til árs- ins 1976 hefði verið rikjandi sjón- armið hjá lánasjóðnum að við Ut- reikning námslána væri tekið til- lit til fjölskyldustæröar náms- manns, þ.e. maka hans og barna. Þegar Jón Sigurösson núverandi ritstjóri Timans, varð formaður sjóðstjórnar 1976 breytti hann og aðrir fulltrúar rikisvaldsins i stjórn sjóösins úthlutunarreglun- um á þann hátt að ekki var lengur tekið tillit til maka og barna námsmanns. Var þá höfðað mál á hendur sjóðsstjórninni þvi talið var að lögin um námslán og Bragi Guöbrandsson form. SINE: Afstaöa Jóns Sigurössonar bygg- ist meir á þrjósku en heilbrigöri skynsemi. námsstyrki sem sett voru á Al- þingi 1976 væru skýr og ótviræö hváð þetta atriði varðaöi. Dómur féll I málinu sl. vor og voru út- hlutunarreglurnar dæmdar ólög- legar. Nú yfir sumarmánuðina hafa fulltrúar rikisvaldsins I stjórn lánasjóðsins samið nýjar úthlut- unarreglur sem eru litið breyttar frá þeim eldri og enn er ekki tekið tillit til fjölskyldu námsmanns. Námsmenn reyndu að fá Vil- hjálm menntamálaráðherra til að neita að skrifa undir á þeim for- sendum að reglurnar heföu verið dæmdar ólöglegar. Vilhjálmur svaraöi þvi til að þar sem enn hefði ekki fallið dómur i málinu fyrir hæstarétti þá gæti hann ekki annaö en skrifað undir. Þaö er þvi augljóst aö Jón Sigurösson for- maður sjóðsstjórnar hefur veitt Vilhjálmi mjög ófullkomnar upp- lýsingar, þvi dómurinn kvað svo á um að lögin væru skýr og ótviræð hvað þetta atriði varöaði, þannig að engar likur eru á að hæstirétt- ur geti komið meö aðrar dóms- niðurstöður. Afstaða Jóns for- manns er furðuleg I þessu máli, það er eins og hann standi gegn þessu sjálfsagöa réttlætismáli af hreinni meöfæddri þrjósku, þvi það munar svo litlu fyrir sjóðinn fjárhagslega að taka tillit til fjöl- skyldustærðar. — Að lokum, Bragi, til hvaða aðgerða ætla námsmenn aö gripa? Nú I dag, laugardag hefst sum- arþing Sine, sem haldiö er i Fé- lagsstofnun stúdenta við Hring- brautogmunum við á þessu þingi marka stefnuna i þessum málum og ræða hugsanlegar aðgerðir, þó svo að hér er um litlar upphæðir fyrir sjóðinn að taka á sig með þvi að taka tillit til maka og barna námsmanna, þá er þetta hlutur sem skiptir mjög miklu máli fyrir námsmanninn og getur skipt sköpum hvorthann heidur áfram námi eöa ekki. Þá var haft samband við Bolla Héðinsson formann Stúdentaráðs Háskóla Islands og spurðist fyrir um það hvort einhverja aðgerða væri að vænta af hálfu Stúdenta- ráðs. Bolli sagði að ekki væri far- ið að ræða neitt slikt, en ætlunin væri að biða og sjá hvort ekki komi nýr ráðherra og umfram allt ný sjóðsstjórn sem væri hlið- hollari námsmönnum. —Þig Eitt glæsilegasta skemmtiferðaskipið sem hingað kemur, Maxim Gorki, hefur leg- ið hér úti á ytri höfninni að undanförnu og var blaðamönnum boðið um borð til að skoða þessa glæsilegu fleytu. Maxim Gorki er byggt fyrir 10 árum i Hamborg, en Rússar keyptu það fyrir nokkrum árum, og skirðu það núverandi nafni. Heimahöfnin er Odessa, en undanfarin ár hefur þýska ferða- skrifstofan Neckermann haft skipið á leigu i 11 mánuði ársins. Siglir það i ýmsar lengri og skemmri leiðir. m.a. i kringum hnöttinn og i sérstakar noröur Atlantshafsferðir, þar sem Island er einn viðkomustaðanna. Fulltrúi þýsku ferðaskrifstof- unnar um borð, Jansens aö nafni, sýndi blaðamönnum skipið, sem jafnan er fullbókað amk. ár fram i timann. Þar er eitthvaö við flestra hæfi, fjölda margir barir, setustofur, leikhús, sundlaug, bókasafn, danssalur, og margt fleira, en meðalaldur farþeganna er um 60 ár. Farþegarnir fara i land i Reykjavik og á Akureyri og er fyrirhugað að lengja dvölina hér á landi og gefa farþegunum kost á að fara landleiðina til Akureyrar, annaðhvort yfir Sprengisand eða eftir hringveginum. Fulltrúar ferðaskrifstofunnar Atlantic, sem sér um ferðir farþeganna á Islandi sögðu að þetta fólk hefði njög mikinn áhuga á tslandi og færi nær undantekningalaust i þær ferðir sem boðið er upp á i landi. Um 600 ferðamenn, lang- flestir þýskir eru um borð i skip- inu og rúmlega 400 manna rúss- nesk áhöfn. Skipið hefur nú lagt úr höfn i Reykjavik og er á leið til Akureyrar. þs Sjálfstæöismenn sátja hjá iatkvæða- greiðslu um nýjan borgarstjóra í Rvík Á fundi borgarstjórn- ar i fyrradag var lögð fram tillaga borgar- ráðsfulltrúa meirihlut- ans, þar sem gert var ráð fyrir, að Egill Skúli Ingibergsson, verkfræð- ingur, yrði ráðinn borgarstjóri i Reykjavik frá og með 15. ágúst til loka kjörtima borgar- stjórnar. Á fundinum létu borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokks eftirfarandi bókun frá sér fara: Við borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins höfum áður lýst þvi yfir, að við erum mótfallnir þeirri breytingu á eðli borgarstjóraem- bættisins, sem nú hefur verið ákveðin. Við teljum að saman eigi að fara pólitisk og embættisleg ábyrgð borgarstjóra og leggjum áherzlu á, að kjósendum gefist kostur á að taka afstööu til borgarstjóraefnis við borgar- stjórnarkosningar. Með þeirribreytingu, sem nú er ákveðin, hefur mjög verið dregið úr ábýrgð borgarstjóra og em- bættið i raun gert svipaðseðlis og önnur embætti borgarstarfs- manna. Þessu viljum við mótmæla og erum þvi andvigir þeirri ráðningu borgarstjóra, sem nú fer fram. Hann mun þvi starfa fyrst og femst á ábyrgð hins nýja meiri- hluta i borgarstjórn. Að sjálfsögðu munum við styðja borgarstjóra til allra góðra verka, en jafnframt gagnrýna hann eftir þvi, sem framkvæmd hans á stefnu meirihlutans gefur tilefni til. Varsiðangengiö tilatkvæða, og var tillaga borgarráðsmanna meirihlutans samþýkkt með átta samhljóða atkvæðum, en borgar- fulltrúar Sjálfstæðisftokks sátu hjá. —isi. Breytingar á fjárhagsáœtlun borgarsjóðs Erfið greiðslustaða fram tíl áramóta — hefði endurskoðun verið framkvæmd i apríl, væri vandinn minni, segja talsmenn meirihlutans Á fundi borgarstjórnar i fyrradag gerði Gunn- laugur Pétursson, borg- arritari, grein fyrir breytingum á fjárhags- áætiun Reykjavíkurborg- ar. Þær fela í sér hækkun á tekjulið, m.a. vegna hækkaðra leyfisgjaida og aðstöðugjalda, auk þess sem koma til nýjar upp- lýsingar frá Þjóðhags- stofnun um endurmetnar tekjur af söluskatti o.fl. Nemur hækkunin 762 miljónum króna. Hins vegar kom fram, að þessi aukning tekna Reykjavíkurborgar ést upp, m.a. vegna óhjá- kvæmilegra hækkana vaxtagjalda sem stafa af auknum vaxtagreiðslum á skammtímaskuldum og áhrifa gengisbreytinga. Ennfremur hafa nokkrir rekstrarliðir hækkað verulega. Kom jafnframt fram I máli Gunnlaugs, að greiðslustaða borgarsjóðs og stofnana, sem honum eru tengdar, væru nú mjög erfið, og fyrirsjáanlegt, að svo verði a.m.k. til næstu ára- móta. Sagði Gunnlaugur miklar verðhækkanir á vinnu, vöru og þjónustu valda þessu. Kom fram i ræðu Gunnlaugs, að þessi vandamál verða ekki leyst á annan hátt en með skammtima erlendri lántöku, og hafa verið teknar upp við- ræður m.a. við stjórnvöld og Landsbankann um möguleika á lausn þessa máls. Sagöi Gunn- laugur niðurstöðu vera að vænta eigi siðar en fyrir næstu mán- aðamót. Aö lokum sagöi Gunnlaugur i ræðu sinni, aö svo gæti farið, að með haustinu reyndist enn nauðsynlegt að taka fjárhags- og greiðsluáætlanir borgarsjóðs upp til endurskoðunar og breyt- inga. Þessu næst tók Birgir ísl. Gunnarsson borgarfulltrúi (D) til máls. Ræddi hann meðal annars afstöðu Sigurjóns Pét- urssonar til slikrar endurskoð- unar eins og hún hefði komið fram i kosningabaráttunni, og kvað hann hafa verið mótfallinn endurskoöun i þeirri mynd sem hér um ræddi. Hinsvegar væri ánægjulegt, að þeir væru nú sammála um þetta mál. Eins greindi Birgir Isl. frá þvi, að borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins myndu sitja hjá i at- kvæðagreiöslu um breytingar á fjárhagsáætlun, þar sem þeir álitu of skammt gengið. Sigurjón Pétursson (AB) tók þessu næst til máls, og sagði að afstaða sin til endurskoðunar fjárhagsáætlunar heföi ætið verið ljós, og vildi hann itreka það, að hefði álika endurskoðun og nú heföi verið framkvæmd, átt sér stað i mars eða april, hefði verið hægt að gera ráð- stafanir til að koma i veg fyrir það stóráfall sem nú vofði yfir. Hann sagði jafnframt, að nýi borgarstjórnarmeirihlutinn tæki ekki glaður við þvi búi, sem Sjálfstæðismenn hefðu skilið eftir sig, en axlaði vitaskuld ábyrgðina. Birgir Isl. sté á ný i ræðustól og kvað nýja meirihlutann greinilega ætla að taka á vand- anum meö vettlingatökum, og hliöra sér við að taka ýmsar vandasamar ákvarðanir, og til- tók Birgir sérstaklega væntan- legar kauphækkanir i haust, sem ekki hefði veriö gert ráð fyrir i þeim breytingartillögum sem fyrir lægju. Þessu svaraði Kristján Benediktsson (B), og sagði núverandi meirihluta hafa einmitt tekið málin föstum tök- um, og spurði Birgi hvort hann hefði kannski að auki skorið nið- ur framkvæmdir viö skóla, iþróttahús, dvalarheimili aldr- aða eða dagvistunarstofnanir. Hann tók ennfremur i sama streng og Sigurjón, og sagði, að hefði endurskoðun verið fram- kvæmd i aprilmánuði, hefði ver- ið auðveldara að mæta þeim vanda, sem við blasti nú. Krist- ján hélt þvi einnig fram, að eí Birgir skoðaði málið af sann- girni, myndi hann áreiðanlega komast að sömu niðurstöðu og meirihlutinn, að ekki hefði verið hægt að ganga lengra i niður- skuröi á framkvæmdum á veg- um borgarinnar. Nokkrar umræður uröu til viðbótar, en atkvæðagreiðslu lauk á þann veg, aö tillögur til breytinga á fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar voru sam- þykktar með átta samhljóða at- kvæöum borgarfulltrúa Alþýðu- bandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. __________ —jsj.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.