Þjóðviljinn - 29.07.1978, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 29.07.1978, Blaðsíða 18
18 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júll 1978 Viötal við Auði Framhald af 12 si&u ekki fyrir nema einni. Þá veröur hún aö drekka hana kl. tvö um nóttina þvi aö krakkarnir skynja kóktappa i 40 m fjarlægö. Viö veröum aö fá aö vera einstakling- ar. A minu heimili gildir þaö lög- mál aö þaö séu mannréttindi aö fá aö pissa i friöi. Viö eigum aö standa undir svo mörgum hlut- verkum og bera einar ábyrgö á öllu saman. — Séröu einhverja lausnir út úr þessum vanda? — Jú, ég vil minnka vinnuálag- iö á einstæöum foreldrum. Þaö þarf aö gera foreldrum auöveld- ara að vera heima og sjá um börnin sin. Það kostar rikið óhemju fé aö greiöa meö barna- gæslu. Vera heima ef þeir vilja. Þaö vantar mæðraverndarnefnd. Tekjutrygging myndi e.t.v. leysa þennan vanda. Geturöu ekki fengid EINHVERN til að hjálpa þér? Eftir þessa þrjá mánuöi i vetur fór ég til Félagsmálastofnunar og sagði þeim að nú gæti ég þetta ekki lengur, ég yrði að hætta aö vinna úti en stunda mina heima- vinnu og vera heima hjá börnun- um. Ég baö um framfærslulán I fimm mánuði og fékk þaö. Ég varð að fá betra húsnæöi. Þar sem ég bjó áður var ástandið eins og á hersjúkrahúsi, rúm alls staðar og ekkert hægt aö ganga um enda ibúðin á viö eldspýtna- stokk. Þessi ibúö er tvöfalt stærri. Með þessari aðstoð og veröbólg- unni tekst mér að kljúfa þetta. — Er sllk aðstoð auðfengin? — Nú er farið að styrkja mæöur t.d. til styttra náms sem tekur minna en tvö ár. Ég hef þó heyrt dæmi um neitun. Það var stúlka sem ætlaði aö taka meirapróf og haföi loforö um vinnu sem myndi hækka kaupiö hennar um helm- ing. Hún baö um aöstoö viö aö fá barnagæslu i fimm vikur en fékk synjun. Félagið okkar hljóp undir bagga. Það er oft sagt viö fólk: „Getur þú ekki fengið EINHVERN tilaðhjálpa þér”, en ég segi alltaf þessir einhverjir vaxa ekki á trjánum. Flestir eiga nóg meö sig. — Hvað um ný sambýlisform? Gætu einstæðir foreldrar ekki staöið betur saman? — Það er auövitað oft erfitt aö búa ein meö börnunum, að þurfa aö koma þeim i skilning um aö ég hefi minar einkaþarfir. Ég get imyndað mér aö fleiri saman geti rætt sin vandamál og þeir um- gangast þá aöra fulloröna ein- staklinga. En það hlyti að vera erfitt aö vera með svona mörg börn. — Við erum aftur komnar að húsnæöismáiunum, sem virðast vera erfiðasti hjallinn eða hvað? — Já vandamál einstæöra for- eldra er að þeir hafa ekki láns- traust. Þeir eru lágtekjufólk, oft óöruggur vinnukraftur og oft álitnir heldur vafasamir karakt- erar. En þetta er að breytast. Þetta hefur ekki staöiö mér fyrir þrifum. Þegar ég var aö leita mér að ibúö kynntist ég annarri hliö á þessum málum. Ég var spurð: „Hvaö gerir maöurinn þinn?” „Ég er ekki gift” „Nú ertu ekkja?” „Nei ég er ógift einstæö móö- ir”. „Nú við höfum tveggja her- bergja ibúö i kjallara i Norður- mýrinni”. „Ég fer nú ekki aö fara i minni ibúö”, svaraði ég. „Já en vina min, þetta veröur allt of dýrt fyrir þig” „Ég veð i.seölum” laug ég. Viö erum hvorki hetjur né furöufyrirbæri Ég læt ekki vaða svona ofan i mig, bara vegna þess að ég hef ákveöna þjóðfélagsstöðu. Ég get ekki látið þjóðfélagið sniöa mér stakk sem ég á svo að passa i. Einstæðir foreldrar eru ekki ann- ars flokks fólk, aumingjar sem einginn getur búið meö. Við erum miklu fremur fólk sem horfumst i augu við að áframhaldandi sam- búð bauð ekki upp á þá hamingju sem sambúö á að færa og höfðum hugrekki til að slita henni. Eða ógift móðir sem er svo heilbrigö og skynsöm að hún og þau bæði, sem eiga barnið sjá aö hjónaband með barn að grundvelli er ekki rétta leiöin. Og svo nokkur hópur sem missti maka sinn. Við búum við erfiðari skilyrði en „venjuleg- ar” fjölskyldur og við þurfum á aöstoð samfélagsins aö halda. Ekki i formi samúðar, vorkunnar eöa náðargjafa, heldur þurfum við tillitssemi, samhug og skiln- ing á okkar vandamálum. Ég verð oft vör við að annað hvort er ég álitin furðulegt fyrir- bæri eða hetja, sem stend eins og klettur upp úr froðufellandi lifs- baráttunni. Ég er hvorugt, ef eitt- hvað þá það fyrra. Hetjan ég rómuð fyrir hugrekki og eilifðar- brosið sem aldrei slokknar gefst oft upp og bölsótast og orga af illsku eða sest i tröppurnar og skæli af þreytu. Ég veit að fleiri hundruð einstæðra foreldra gera það sama. Við gerum þaö bara heima hjá okkur en ekki i Banka- strætinu. Þess vegna lafir þessi geislabaugur sæmilega. Hann er semsagt óþarfur. Við erum bara venjulegt fólk með önnur vanda- mál en hitt fólkið og tökumst á við þau i þeirri röð sem við komumst yfir þau. Það er fásinna að dýrka okkur og það er fásinna að lita niður á okkur. Oft er þetta lifs- hlutverk sem við höfum valið okkur. Það sem mest hrjáir okkur er fjárhagsskortur og timaleysi hvort tengt hinu. Mér verður oft að orði: Svei mér þá, nú tæki ég Krist niður og negldi hann upp aftur fyrir hundraðkall. K.A..K.J. og S.H. Alþýðubandalagið Vesturlandi Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi efnir til ferðar I Þórsmörk dagana 11.-13. ágúst. Farið verður frá Borgarnesi kl. 16 á föstudag. Allir velkomnir — Nánar auglýst slðar hverjir taka við þátt- tökutilkynningum. Alþýðubandalagsfélag Hveragerðis efnir til sinnar árlegu sumarferðar 29.-30. júli. Fariö verður aö Hvera- völlum og Kerlingarfjöllum. Lagt verður af stað frá Gagnfræöaskól- anum laugardaginn 29. júli kl. 10 f.h. Væntanlegir þátttakendur láti skrá sig fyrir lö. þ.m. og fái nánari upplýsingar hjá eftirtöldum, Karl- innu i sima 4271, Auði i sima 4332 og Sigmundi 1 sima 4259. Félagar fjöl- mennið og takið með ykkur gesti. Ljósmyndun — Utlitstelkn- un — Auglýsingateknun Ungur maður með reynslu i fyrrnefndum störfum óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina. Upplýsingar á blaðinu í sima 81333. rr Peoples Problems and Progress'' Tveggja stunda samstund með SYSTUBt CHRISTINE fyrrverandi yfírráðgjafa Veritas-Villa HÓTEL ESJU (2. HÆÐ) Mánudag 31. júlí kl. 20-23, þriðjudag 1. ágúst kl. 20-23. Þátttökugjald kr. 2.500.- pr. mann. KRISTÍNARVINIR 77 ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦t J Auglýsingasíminn er ro OO MOÐVIUINN Höfnin Framhald af 20. , Guðrún Helgadóttir steig þá aftur i pontu og itrekaði, að gámageymsluþörf yrði að leysa á annan hátt en með nýtingu dýr- mæts hafnarsvæðis. Albert steig þá aftur i ræöustól, I og strax á eftir honum Ólafur B. Skák Framhald af 2 65. Bb8-a5 66. Bd6 (En ekki 66. Bc7 vegna 66. — Kc4 o.s.frv..) 66. ..Kc4 67. Kxh5-a4 68. Kxh6-Kb3! (Karpov verður að tefla ná- kvæmt. Léki hann 68. -b5 tapar hann á eftirfarandi hátt: 69. Kg5 Kb3 70. Kf5 Kxa3 71 Ke5 Kb3 72. Kd5 a3 73. Kc5a274. Be5o.s.frv.) 69. b5-Kc4 70. Kg5-Kxb5 71. Kf5-Ka6 (Upp er komið athyglisvert enda- tafl. Eins og getið var um áðan er staðan jafntefli ef hvitur hefur aðeins a-peð. Nú hefur svartur bæði a og b-peð og nái hvitur að koma svörtum i leikþröng með kónginn vinnur hann taflið. D æm i: Hvitt: Kc6, Bb6, a3 Svart: Ka6, a4, b5. Nú verður svartur að gjöra svo vel að leika b5-b-4 og eftir axb4 a3 er hann mát með b4-b5. Fleiri svona dæmi má tilfæra en þetta eina sýnir að Karpov má hvergi misstiga sig i vörninni). 72. Ke6-Ka7 73. Kd7-Kb7 74. Be7-Ka7 75. Kc7-Ka8 76. Bd6-Ka7 77. Kc8-Ka6 78. Kb8-b5 79. Bb4 (Svartur hótaði 79. -b4!) 79. ..Kb6 80. Kc8-Kc6 81. Kd8-Kd5 82. Ke7-Ke5 83. Kf7-Kd5 84. Kf6-Kd4 85. Ke6-Ke4 86. Bf8-Kd4 87. Kd6- Ke4 88. Bg7-Kf4 89. Ke6-Kf3 90. Ke5-Kg4 91. Bf6-Kh5 Hér fór skákin i biö eftir 11 klst. taflmennsku. Svovirðistsem ekki sé meira en jafntefliI stöðunni, en vist er að Karpov verður að tefla vörnina af nákvæmni. Thors (D) sem gerði grein fyrir atkvæði sinu, en hann sagöist ekki geta fylgt tillögu hafnarstjórnar. Hann taldi brýnt, að höfnin afsal- aði sér ekki umræddum lóðum þegar i stað, heldur hefði mögu- leika á að leysa vanda annarra skipafélaga en E.L.Vandi hinna skipafélaganna væri ekki leystur, og væri þvi vart réttlætanlegt að úthluta Eimskipafélaginu þess- um lóðum, auk þess sem erfitt væri að sjá þörf þess fyrir þær. Að lokum tók Kristján Bene- diktsson (B) til máls og tók i sama streng og Guðrún og Ólafur, og nefndi þá stefnu borgarstjórn- ar Reykjavikur að gera Vestur- höfn að fiskihöfn með tilheyrandi þjónustu. Hann taldi jafnframt, að með stækkun landhelginnar mætti bú- ast við aukinni Utgerð i Reykja- vik, og myndi þvi ekki veita af þeirri aðstöðu sem hægt væri að búa til I Vesturhöfn. Til atkvæða var gengiö með nafnakalli, og var tillaga hafnar- stjórnar felld með atkvæöum þeirra öddu Báru Sigfúsdóttur (G), Daviðs Oddssonar (D), Guðrúnar Agústsdóttur (G), Guðrúnar Helgadóttur (G), Kristjáns Benediktssonar (B), Magnúsar L. Sveinssonar (D), Ólafs B. Thors (D), Sigurjóns Péturssonar (G) og Þorbjörns Broddasonar (G). Eftirtaldir borgarfulltrúar greiddu tillögunni atkvæði sitt: Albert Guðmundsson (D), Birgir ísleifur Gunnarsson (D), Markús örn Antonsson (D), Páll Gislason (D), Sigurður E. Guömundsson (A) og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir (A). —jsj. sjónvarpið bilaó? Sjónvarpsverbtói sími Begstaðasírfflti 38 (2-19-40 Pípulagnir Nýlagnir, breyt- ingar, hitaveitu- tengingar. Simi 36929 (milli kl. 12 og i og eftir kl. 7 á kvöldin) Blikkiöjan Asgarði 7. Garöabæ Onnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verötilboð SÍMI 53468 Tökum aö okkur smiði á eldhúsinnréttingum og skápum, bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur um breytingar á innréttingum. Við önn- umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og inni. Verkið unnið af meisturum og vönum mönnum. Trésmíðaverkstæöið Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.