Þjóðviljinn - 05.08.1978, Síða 7
Laugardagur 5, ágúst 1978 | ÞJOPVILJINN — StÐA 7
Þessa mynd af alþingismanninum og frimúraranum
Eiði Guðnasyni sá ég ljóslifandi fyrir mér þegar ég
las grein hans um „Pólitískan heigulshátt Alþýðu-
bandalagsins**sem birtist i Vísimiðvikud.2. ágúst sl.
Úlfar Þormóös-
son,
blaðamaöur
5*
Rotnun líksins er hafín
5*
Inn I mikinn sal gengur beR-
höfðaður maður með bundið fyr-
ir augun. Hann er jakkalaus.
Skyrtan er brotin niður fyr-
ir öxlina svo að brjóstkassinn
erber i hjartastað. Skókapparn-
ir eru troðnir niður að aftan á
öðrum skónum. Vinstri buxna-
skálmin er brotin upp fyrir
hnéð. Maðurinn er leiddur fram
fyrirhásæti „vitrasta staðgeng-
ils Salomons” og þar krýpur
harin á kné og sver hinum vitra
staðgengli Salómons eið og lofar
að hlýða honum i hvivetna og
reglu hans. ,,Látið hann sjá ljós-
ið”, segir hinn vitri staðgengill
Salomons og bindið er leyst frá
augum mannsins knékrjúpandi.
Og sjá: Allt i kring um hann
standa svartklæddir menn sem
beina korðum að vinstra brjósti
hans, og þvi er lýst yfir að Eiður
Guðnason sé orðinn frimúrari!
(Byggt á viðtali við Stórmeist-
ara dönsku Frimúrarareglunn-
ar, Erik Kay-Hansen, um.það
hvernig inntaka nýliða i r'egluna
fér fram.)
Þessa mynd af alþingismann-
inum og frimúraranum Eiði
Guðnasyni sá ég ljóslifandi fyrir
mér þegar ég las grein hans um
„Pólitiskan heigulshátt Alþýðu-
bandalagsins,” sem birtist i Visi
miðvikud. 2. ágúst s.í. Hann
krýpur auðmjúkur framan við
hásætið þar sem situr þáverandl
rikissaksóknari, i höndina á hin-
um verðandi reglubróður heldur
Gunnar Thoroddsen, ráðherra,
ög þegar hann fær að sjá ljósið,
standa á nöktu brjósti hans hnif-
ar þeirra Guðmundar H. Garð-
arssonar, fyrrv. alþm;, Er-
lendar Einarssonar, forstjóra
StS og Axels Kristjánssonar
stórkrata og forstjóra RAFHA!
Siðan þá er hann hlýðinn reglu-
bróðir; annað dugir ekki segir
Erik Kay-Hansen, það mundi
þýða tortimingu, dauða! Hann
er þeirra þjónn; hann gerir allt
fyrir þá, hann skrifar lika fyrir
þá.
Það er slitnað upp úr svoköll-
uðum „vinstri” viðræðum. Þeir
sem í viðræðunum' tóku þátt
gefa upp breytilegar ástæður
fyrir viðræðuslitunum. Bene-
dikt Gröndal, sem vann
glæstan kosningasigur fyr-
ir erlent betlifé segir
skýringar sósialista á við-
ræðuslitunum „sviviröilega
rógsherferð”, og að Alþýðu-
bandalagsnönnum hafi aldrei
verið alvara með að fara i
stjórn. Hinn vel menntaði kenn-
’ari og form. Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavikur, Karl
Steinar Guðnason, tekur i sama
streng með ályktun frí „Verka-
lýðsmálanefnd!!!! Alþýðu-
flokksins” og segirað „mennta-
mannaklikan i Alþýðubanda-
Iaginu hafi svinbeygt verka-
lýðsarminn”. Sighvatur Björg-
vinsson samþykkir á flokks-
stjórnarfundi i Alþýðuflokknum
að tillögur Alþýðubandalagsins
um að fara bæri aörar leiðir við
lausn efnahagsvandans en þær
sem kratar vildu og mistekist
hafa hér á landi i marga áratugi>
og leitt yfir okkur það ástand
sem við búum nú við séu algjör-
lega óraunhæfar oé séu ástæðan
fyrir þvi að viðræðurnar fóru út
uní púfur. Og frimúrarinn Eiður
segir að Alþýðubandalagið
„þori ekki, vilji ekki og ætli sér
ekki að takast á við þann vanda,
Sem nú biasi við i efnahaggmúl-
um.” ■S~'
Ja, ljótar eru lýsingar þess-
ara heiðarlegu og hreinlyndu
manna á afstöðu félaga oklfar i
Alþýðúbandalaginu.
Af forkönnunarviðræðum AI-
þýðuflokks og Alþýðubandaiags
varð ljóst; að Alþýðuflokkurinn
eða þeir menn sem tóku þátt i
viöræðunum fyrir hans hönd,
vildu reyna að ná málefnasam-
stöðu með Alþýðubandalaginu.
Þeir játtu hugntyndum um
niðurfærsluleið, þeir játtu ýms-
um þjóðnýtingarhugmyndum,
þeir féllust á að gengisfelling
væri ekki rétt leið til þess að
vinna bug á efnahagsvandanum
o.fl. o.fl. Jákvæðir og elskulegir
menn, kratar. Fyrir vikið fól
forseti tslands hinum hrein-
lynda og jákvæða Benedikt
Gröndal að \reyna að mynda
rikisstjórn, sem hefði meiri-
hluta á alþingi. Þegar Benedikt
fékk þetta umboð vissi hann vel
að Alþýðubandalagið mundi
ekki undir neinum kringum-
stæöum taka þátt i rikisstjórn
meö Sjálfstæðisflokknum. Samt
varð það háns fyrsta verk aö
kallá saman fulltrúa Alþýðu-
bandalags og Sjálfstæðisflokks
til þess að mynda stjórn þessara
þriggja flokka. Auðvitað tókst
það ekki. Þá var næst að fá
Framsókn i spilið og viðræður
hófust. Ekki leið á löngu þar til
hinir jákvæðu viðræðunefndar-
menn kratanna voru komnir á
allt aðra skoðun i ýmsum
meginmálum.eii þeir höfðu ver-
ið i þinum svokölluðu forkönn-
unarvfðræðum; nú var tak-
markað gagn af niðurfærsluleið
og gengisfelling var orðin allra
meina bót!
Siðan velta menn þvi fyrir sér
hvað hafi i raurvog veru gerst á
þessum stutta tima. Hvaö varð
' til slikrar kúvendingar?
t leit að svari við þessum
spurningum hefur mér virst
sem gleymst hafi eftirtaldir
þættir, en einmitt þar væri ef til_
viH svaríð að finna.
1. tsienskL Alþýðuflokkurinn
er rekinn fyrír erlent betlifé.
Fyrr á árum fylgdu þessu betli-
fé ákveðin skHyrði. Eitt þeirra
vac að Alþýðuflokkurinn skyldi
reyna að koma I veg fyrir það
með ráðum og dáð að islensku
„kommúnistarnir” kæmust til
valda og áhrifa. Betlifénu nú,
miljónum og aftur miljónum,
reyndar svo mörgum að Bene-
dikt þorir ekki að gangast við
þeim öllum, hljóta að fylgja
skilyrði; en hver þau eru veit
enginn frekar en hversu margar
miljónir Benedikt betlaði.
2. A vordögum hvarf við-
ræðunefndarmaðurinn Sighvat-
ur Björgvinsson úr landi. Hélt
hann i vesturveg, til Bandarikj-
anna. Hvað að gera? spurði ég
formann þingflokks Alþýðu-
flokksins, Gylfa Þ. Gislason, sl.
vor. Gylfi vissi það ekki. Hann
vissi þó að hann var þar ekki á
vegum flokksins. Hann hélt að
hann hlyti að vera þar I boði ein-
hvers. Það var Sighvatur
reyndar. Fyrir þessu boði
mætti hann gera grein i blöðum ý
hver bauð og hvert? Ég veit
það, en það er ekki vist að fleiri
viti um það.
3. Frimúrarareglan á Islandi,
sem og annars staðar i heimin-
um er gjörsamlega fráhverf
sósialisma. Hana skipa lögfræð-
ingar og bissnesmenn að lang-
stærstumhluta. Hlutverk reglu-
bræðra er að viðhalda þvi þjóð-
félagskerfi þar sem lögfræðing-í.,
ar og bissnesmenn geta leikið
sina leiki á kostnað fólksins i
landinu. Um þetta eru allir
reglubræður sammála. Aö þessi
regla sé i heiðri höfð er hlutverk
„vitrasta staðgengils Salo-
mons” að sjá um. Og allir bræð-
urnir eíga að auðsýna honum
skilyrðislausa hlýðni: „Hann
skal beiðraöur, honum skal
hlýtt, á hann skal hlustað og
borin skal virðing fyrir honum i
einu og öllu”, segir Erik Kay-
Hansen. Jafnframt skýrir hann
frá þvi að óæðri beri að hlýða og
virða hina sem æðri eru.
Þessir þrir þættir vekja
spurningar:
1. Hvaöa skilyrði fylgdu betli-
fénu? Komu skipanir frá gef-
endum um að sjá svo til að
„kommúnistar” kæmust ekki
undir neinurn kringumstæðum i
rikisstjórn á islandi?
2. Hvaða skilyrði var fyrir
boðí Sighvats Björgvinssonar til
Bandarikjanna? Barst honum
rödd að vestan, sem skipaði
honum aö sjá til þessl aö ís-
lensku „kommúnistarnir” •
kæmust ekki til valda hér á
landi?
3. Hvað sagði „vitrasti slað-
gengill Salomons” vHiauðmjúk-
an bróður sinn Eið Guðnakon?
Engar þjóðnýtingar, kannski; á-
framhaldandi gengisfellingar?
Sagði hann kannski hinum auð-
mjúka bróður Eiði, að honum
bæri við stjórnarmyndun að
hlýða forsjá sér æðri bræðra
eins og Guðmundar H. Garðars-
sonar og Gunnars Thoroddsens?
Þessum spurningum öllum
þarf að fá svar við áður en hægt
er að-gera sér fulla grein fyrir
hinum undraverðu stakkaskipt-
um sem kratar tóku varðandí
stjórnarsamstarf við Alþýðu-
bandalagið. Þegar svörin eru
komin frá þeim þremenningum,
ætla ég að biðja Vilmund Gylfa-
son, vel að merkja alþingis-
mann, að hjálpa mér við rann-
sóknarblaðamennskulega út-
tekt á svörunum, hvers virði
þau eru, hvérsu sönn þau eru.
Þeir reglubræðurnir Gunnar
Thoroddsen, Guðmundur H.
Garðarsson og Eiður Guðnason
eru allir bræður af þeirri gráðu,
sem innvigst hafa eftir svo-
felldri seremoniu, sem Erik
Kay-Hansen, „vitrasti stað-
gengill Salomons” i Danmörku
lýsir svo: n
Dauðinn skipar hásæti. Það
sést vel þegar bróðir er hafinn
upp á þriðja þrep. Þá er hann
lagðúr i likkistu i stúkusalnum.
Lelkiö er sorgarlag á orgel i öll-
um stúkusölum. Sá sem i kist-
unni liggur er kallaður „sár
dauði” og sérstaklega kjörinn
reglubróðir tekur i hönd „liks-
ins” og segir: „Kotnun iiksíns
er hafin”. _
Nú er óviturlegt af mér, sem
er ekki einu sinni réglubróðir af
fyrstu gráðu, að taká mér t
munn orðfæri sona hins alvitta-
Salomons. Eg geri það nú samt:.
AlþýðufloíHHirinn er Iík og
hefur verið um margrá' ára
skeið. „Hotnun liksins er baf--
in”! —
Ulfar Þormóðsson.
hlaðamaður.
Minning
Óskar Brynjólfsson
F. 28.12. 1910 dáinn 28.7. 1978.
Útför hans fer fram frá ísafjarðarkirkju i dag
Þvi var allt svo hljótt við
helfregn þina
sem hafi klökkur gígjustrengur
brostiö.
Og ég veit margt hjarta harmi
lostið
mun hugsa til þin alla daga sina.
Tómas Guðmundsson
Óskar fæddist i Syöri-Vatna-
hjáleigu i Landeyjum Rang. For-
eldrar bans voru hjónin Brynj-
ólfur Jónsson og Margrét
Guðmundsdóttir er þan- bjuggu.
Hjá þeim ólst Hann upp til 12 ára
aldurs. Þá fluttust þau til Vest-
mannaeyja en hann að Hallgilsey
i sömu sveit, þar sem hann átti
heima til 28 ára aldurs,'"-
Fundum okkar Óskars bar fyrst
saman er hann var heitbundinn
fóstursystur minni Björgu Rögn-
valdsdóttur. Þau gengu i hjóna-
band 2. desember 1944. Um ára-
mót 1946 fluttust þau til Isa-
fjarðar. Þar hóf hann starf sem
linumaður við rafmagnsveitu
Isafjarðar og gegndi þvi, starfi
meðan kraftar hans entust. Hann
tók nokkurn þátt i félags’málum á
ísafirði. Lengi var hann
meðlimur f taflfélagi þar og
fékkst einnig við leikstörf.
Þeim hjónum varð ö barna
auðið: Guðfinna Margrét nú
kennari við Barnaskóla tsafjarö-
ar, gift Trausta Hermannssyni,
sérstökum ágætismanni, Stefán
Dan sjómaður kvæntur Rann-
veigu Hestness, Brynjólfur verk-
stjóri við Rækjuverksmiðju tsa-
fjarðar, kvæntur Onnu Gúðna-
dóttur, Rögnvaldur, sem nú vinn-
ur sem bakari i Sviþjóð, kvæntur'
Guðrúnu Halldórsdóttur, Már
sjómáöur sem enn dvelur i
heimahúsum og Arnar nemandi i
Menntaskóla ísafjarðar, kvæntur
Elinu Björnsddóttúr.
Ég mínnist óskars sem eins
allra besta og ábyrgasta manns
senuég hefi kynnst. Umhyggja
hans gagnvart konu, börnum,
starfisinu, öllu er honum við kom
var frábær. Eftir að Öörnin voru
komin til þroska, dvöldu þau
hjónin oft um tima i Reykjavik og
bjuggu þá jafnan hjá mér. Er
hann talaöi i sima við börn sin eöa
tengdabörn á tsafirði kvaddi
hann þau alltaf með orðunum
„Svo munið þið að fara heim til
okkar og gefa köttunum”.
Mér fannst það mjög falleg
saga er kona hans sagði mér, er
hann kom heim um siöustu jól,
eftir nokkra vikna sjúkrahús-
dvöld hér i Reykjavík. Var þá
orðinn það hress að geta sest i
stólinn sinn við sjónvarpið. Kom
það mikla eftirlætisdýr, heimilis-
kisan, settist við stólinn, slarði á
hann nokkra stund, uns hún stökk
upp i kjöltu hans og tjáði honum á
sinu máli hve glöð hún var að sjá
hann aftur.
Ég þakka Óskari fyrir alla þá
vinsemd er hann hefur sýnt mér
frá okkar fyRstu kynnum. Að
lokum þakka ég honum starf er
hann vann fyrir mig á tsafirði s.l.
haust, starf er ekki var hægt aö fá
unnið i Reykjavik.
Við alla þá er nú horfa á það
með sárum trega að óskar Brynj-
ólfsson er horfinn af þessu jarð-
vistarsViði vil ég kveðja með
orðum Jóns Bergmanns er hann
segir:
Sorgin lifi sameinuð
sem er að oss kveðin
hún er öll i ætt við guð
eins og dýpsta gleðin.
Svanlaug Danielsdóttir
Drottinn er kominn i borð
unninn leikur
friður fenginn.
Hendurnar þinar stóru
sein áður héldu um haka
beittu hrók fyrir biskup,
nú taka þær til starfa á ný
i landinu þajL sem friðurinn
rikir.
Friður drauma okkar og vona
Veturnir eru oft dimmir vestur
á tsafirði. Veður geysa grimm og
fólk reynjr að stytta sér stundir
innivið i góöum félagsskap eða
við lestur. Astæðan fyrir þvi að ég
rifja þetta upp er sú staðreynd, að
dimma langa vetur er það ekki
sist rafmagnið sem styttir okkur
stundirnar og það var einmitt það
sem ævistarf félaga okkar, sem
við sjáum nú að baki, snerist um.
Að grafa skurði til að leggja kapla
eða að klifra upp rafmagnsstaura
á þessum skringilegu skóm sem
klifrað var á þegar staurar voru
úr viði.
Það er að sumuTeyti einkeiinL-
legt, að ungur maður, sem fæddur
er og uppalinn i Landeyjum í ölíu
viðsýninu þar, skuli setjast aft
vestur á tsafirði og una þar sina
ævidaga. En á ísafirði tókst ósk-
ar á hendur fast starf sem krafft-
ist samviskusemi hans og dugn-
aðar og tryggð hans við það starf
sitt brást aldrek-
Við unga fólkið, sem alin erum
upp við rafmagnsljós og þekkjum
ekki annað, sem eigum auðvelda
leið til hvers kyns mennta og’
finnst-það ekkert n§ma sjálfsagt,
ættum stöku sinnum að hugleífta
tækifæri og aðstöðú þeirra
manna, sem ekki hvað sist hafa
gert okkur þetta fært. Við ættum
að reyna að likjast þéim i stað-
festu þeirra og trú viö þann mál-
stað sem við öll viljum aðhyllast.
Sósialismi Óskars og kynslóðar
hans er sá sósialismi sem runnin
er af rótum islenskrar menning-
ar, hugsjóna Eddukvæða og þess
kraftar sem skáld kreppuáranna
gáfu hreyfingu okkar.
Framhald á 14. siðu