Þjóðviljinn - 05.08.1978, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 05.08.1978, Qupperneq 11
Laugardagur 5. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Að loknu sumarleyfi Þátturinn tók sér sumarfri i júlimánuði, seinni hiuta mánað- arins, og þar af leiöandi hefur ekki verið neinn þáttur i blaðinu sl. tvö skipti. Lesendur eru beðnir velvirðingar á þessu, en semsagt þetta stendur allt til bóta. Þess má geta, að undirritaður hefur haft þaö gott sl. hálfan mánuð, og bar drjúgan afla á land (af „betri” fiski) Segi veiðisöguna seinna... Frá aöalfundi BR Fyrir skömmu var haldinn aðalfundur félagsins. Ný stjórn var kjörin, til 1 árs. Hana skipa: Baldur Kristjánsson formaður, Þorfinnur Karlsson vara-for-* maður, Sigmundur Stefánssoni gjaldkeri, Páll Bergsson ritari og Sævar Þorbjörnsson með-i stjórn. Auk þess var sú ný- breytni gerð, að ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri að fé- laginu, sem hefur með daglega umsjón að gera. Sá er Ólafur Lárusson (undirritaður). Standa vonir til, að þessi .stjórn muni gera ýmsa góða hluti á komandi starfsári, með stuðningi allra velunnara bridge hér á höfuðborgarsvæð- inu. Leyfi ég mér, að óska hinni nýju stjórn alls hins besta, um leið og ég þakka fráfarandi stjórn. Frá Ásunum úrslit sl. mánudagskvöld: A-riöill: 1. Óli:Már Guðmundsson — Þófarinn Sigþórsson' 206 st. 2. Ármann J. Lárusson — Vilhjálmur Sigurðsson 195 st 3. Hjörleifur Jakobsson — Þorlákur Jónsson 188 stig 4. Sævar Þorbjörnsson — Sigurður Sverrisson 180 stig 5. Einar Þorfinnsson — Sigtryggur Sigurðsson 175 st. 6. Guðmundur Páll Arnarson — Helgi Sigurðsson 173 st. bridge B-riðill: 1. Björn Halldórsson — Jörundur Þórðarson 141 st. 2. Guðlaugur Óskarsson — Sigurður Steingrimsson 123 st. 3. Jón Pálsson — Kristin Þórðardóttir 116 st. 4. Guðlaugur Nielsen — Gisli Tryggvason 112 st. 5. Jón Þorvaldsson — Ómar Jónsson 109 st. 6. Helgi Ólafsson — Jónas P. Erlingsson 106 st. Meðalskor i A-riðli var 165 stig en 108 stig i B. Einsog sjá má, eru þarna margir skák- menn á ferð i B-riðli, liklega að æfa undir keppni við okkur, bridgemenn. Vakin er athygli á þvi, að ekki er spilað nk. mánudag, sem er fridagur verslunarmanna. I stigakeppni Asanna i sumar- spilamennsku i ár, hefur ungur en þekktur spilari af suðurnesj- um, Sævar Þorbjörnsson tekið góða forystu. Hann hefur 8 stig. Sævar mun skipa landsliö yngri manna, sem keppir i Skotlandi ’siðla i ágúst. Keppnisstjóri er sem fyrr, Sverrir Ármannsson. Frá bikarkeppni BSÍ Dregið hefur verið i 2. umferð bikarkeppni BSI (16 liða úrslit) og er það þá þessi röð: (Heima- leikir á undan): Þórarinn Sigþórsson BR-ólaf- ur Lárusson Asum Armann J. Lrusson-B. Kópavpgs — Stein- berg Rikh. BR (Guðm. Páll Arnarson BR — Bogi Sigur- björnsson Siglufj. Hjalti Elias- son BR — Haukur Guðjónsson Vestm. eyjum Jóhannes Sigurðsson Suðurnes — Pálmi Lórens Vestm. eyj. Vigfús Páls- son TRK — Georg Sverrisson Asum, Jón Asbjörnsson BR — Aðalsteinn Jónsson Fljótsdals- hérað:'Alfreð G. Alfreðsson Suð- urnes — Guðm. T. Gislason BR Leikjum skal ljúka fyrir 20. ágúst. Bent er á, að sveitum býðst að spila leik sinn nk. laugardag i Dómus Medica. Kínverkst fimleika- fólk væntánlegt Rauðhetta ’78 Kinverskt fimleikafólk kemur hingað til lands á vegum Fimleikasambands islands fimmtudaginn 10. ágúst n.k. Undirbúningur að ferð þessari hefur verið á döfinni frá þvi i byrjun mai s.l. Þetta eru 6 stúlkur og 6 piltar, sem sýna allar greinar áhalda- fimleika. Auk þeirra eru þjálfar- ar, fararstjórar og læknar. Sam- tals er hópurinn þvi 17 manns. Allt er þetta ungt fók á aldr- inum 14-20 ára og mjög framar- lega i fimleikum. Þrir flokkar frá Kina voru á ferð viðs vegar i heiminum s.l. vor, m.a. einn i keppnisferð i Kanada og vann hann þar 1. verðlaun. Sennilega eru þau sem koma hingað viða að úr Kina og er ekki að efa, að þetta er úrvalsfólk, sem Ifimleikaunnendur hér á landi munu hafa mikla ánægju af að ;sjá. Sýningar verða þrjár. Sú fyrsta á Akureyri, sunnudaginn 12. ágúst, en hinar tvær i Laugar- dalshöllinni i Reykjavik, þriðju- daginn 15. ágúst og fimmtudaginn 17. ágúst. Þá mun islenskt fimleikafólk fá tækifæri til að æfa með kinverska fólkinu. Einnig fara gestirnir i skoð- unarferðir um Reykjavik og við- ar. tsland er fyrsti viðkomustaður þeirra á þessari sýningarferð, en héðan fer hópurinn föstudaginn 18. ágúst til Hollands og sýnir þar. (Fréttatilkynning) Flóö granda 20 í Texas 4/8 — Stórrigning hefur verið i Texas undanfarna daga og valdið gifurlegum flóðum, sem hafa orð- ið að minnsta kosti 20 manns að bana siðustu tvo dagana. Margra er þar að auki saknað. Mest eru flóðin i hæðalendinu umhverfis San Antionio, og er vitað að þar hafa 14 manns drukknað. Sima- linur hafa rofnað af völdum vatnsgangsins og samgöngur truflast, þvi að langir kaflar af tveimur aðalvegum eru undir vatni. Gröf Lyndons B. Johnsons Bandarikjaforseta er einnig undir vatni. Hann var jarðsettur að bú- garði sinum, sem er við Pedern- ales-ána fyrir vestan Austin. Undirbúningur Rauð- hettuhátiðarinnar stend- ur nú sem hæst. Dagskra hennar er nú endanlega tilbúin og hefur • hún al- drei verið fjölbreyttari. Þarna eru saman komnir margir helstu skemmtikraftar landsins og má þar nefna’.Bruna- liðið, Mannakorn, Tivoli, Basil fursti, Þursaflokkurinn, Megas, Jazzvakning, Fjörefni, Baldur Brjánsson, Diskotekið Disa, Rut - Reginalds, Big Balls and the Great White Idiot (þýskir ræfla rokkarar). Þá er og önnur skemmtidagskrá fjölbreytt, m.a. þúfubió, tivoliskemmtun, hesta- leiga, bátaleiga á vatninu, svif- drekaflugsýningar og Islands- meistaramótið 1 svifdrekaflugi, maraþonbros- og kossakeppni, og svo alveg nýtt „göngurallý”. Margt er um að vera á sama tima og margt um að velja. Aðgöngumiðaverðið er kr. 8000. — og er öll dagskrá þar innifalin, m.a. 9dansleikir, og má þvi segja verðið ódýrt miðað við verð á sveítaböll i dag. Fjölmennt starfslið skáta mun Verða á mótinu, eða um 300 manns, til að sjá um að allt gangi snurðulaust og vel fyrir sig. Forsala aðgöngumiða er þegar hafin, og ferðir á mótið skipu- lagðar viðs vegar af landinu. Bjóða Flugleiðir 15% afslátt af ferðum þeirra, sem hyggjast fljúga með Flugleiðum, og hafa aðgöngumiða, en þeir eru seldir m.a. i afgreiðslu Flugleiða. Búist er við miklu fjölmenni á Rauðhettu ’78, enda veðri lofað góðu. Alþýðubandalagið á Vesturlandi Þórsmörk 11.-13. ágúst Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vest- urlandi verður i Þórsmörk i ár. Verður (jr för Alþýðubandalagsins á Vesturlandi á Látrabjarg ifyrra. dvalist þar helgina 11.-13 ágúst. Góðir leiðsögumenn verða með i ferð- inni. Farið verður frá Akranesi föstudag 11. klukkan 14.30 og frá Borgarnesi kl. 16.00. Þessir taka við þátttökutilkynningum: Akranes: Jóna ólafsdóttir simi 1894 Borgárnes: Sigurður Guðbrandsson s. 7190 og 7122 Hvanneyri: Rikharð Brynjólfsson s. 7013 Búðardalur: Kristjón Sigurðsson s. 95- 2175 Hellissandur: Sæmundur Kristjánsson S. 6767 Grundarfjörður: Ragnar Elbergsson s. 8715 Reykjavikursvæðið: Engilbert Guð- mundsson. s. 81333 Gisli Ól. Pétursson S. 42462 Skráið ykkur sem fyrst. Verð 4500-5000 kr. Allir velkomnir Þórsmörk — œvintýri

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.