Þjóðviljinn - 05.08.1978, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. ágúst 1978
Minning
Framhald af bls. 7.
Við, sem eftir lifum og stöndum
frammi fyrir framtiðinni með öll-
um sinum tækifærum til þægilegs
lifs, spyrnum við fótum og finnst
það óréttlátt að Óskar fái ekki að
lifa lengur með okkur, njóta ævi-
starfsins og eyða ævikvöldinu i
ró. Eina stoð okkar er persónu-
leiki hans sjálfs. Glaðlyndi hans
lifir og veitir okkur huggun.
Sannleiksást hans gefur okkur
kjark til að trúa á sannleikann á-
fram. Hæfiieiki hans sem
heimilisföður og vinar, hvetur
okkur til að verða betri mann-
eskjur og halda áfram að gera
þetta þjóðfélag betra — vinna
sannleikanum og hugsjónum
sósialismans fylgi.
Heimilið i Aðalstrætinu hefur
misst höfuð sitt. Þar var oft setið
að tali og spjalli i góðra vina hópi.
En börnin hans sex, fjölskyldur
þeirra og eiginkona Óskars,
Björg Rögnvaldsdóttir, sem
virkilega er verð alls þess sem vel
erskrifað um eiginkonur og mæð-
ur, þó hún sjálf kæri sig ekki um
slikt — þau munu áfram halda
samheldninni sem einkennt hefur
þessa fjölskyldu mjög. A þann
hátt halda þau minningu Óskars
best á lofti, þannig vill hann að
fólk sé.
Þó okkur stundum hætti til að
efast um áframhald lifsins eftir
dauðann, lifði Óskar i öruggri trú
á tilveru guðs og framhald lifsins
að hérvistardögunum loknum.
Alla sina löngu sjúkdómslegu var
þessi trú honum leiðarljós og
þjáninguna bar hann sem sönn
hetja.
Ég bið guð að blessa sál hans og
gefa fjölskyldu hans styrk til að
sætta sig við fráfall hans.
Að lokum er hér siðasta erindið
úr uppáhaldssálminum hans.
Guð er eilif ást,
engu hjarta er hætt.
Rikir eilif ást,
sérhvert böl skal bætt.
Lofið Guð sem gaf,
þakkið hjálp og hlif.
Tæmt er húmsins haf,
allt er ljós og lif.
6tefán frá Hvítadal.
Elisabet Þorgeirsdóttir.
Fyrir bráðum tveimur áratug-
um var ég að blaða i skrá yfir
héraðsnefndir Samtaka her-
námsandstæðinga viðs vegar um
landið. Þar mátti finna nöfn
margra mætra manna og sumum
nafnanna fylgdi atvinnuheiti.
Þarna stóð nafnið Óskar
Brynjólfsson, tsafirði, og með
fylgdi atvinnuheitið „linumað-
ur”.
Jæja, þarna er þá sannur linu-
maður i röðunum hugsaði ég og
minntist þess, að fá verri skamm-
aryrði átti Morgunblaðið þá um
einstaka menn i hópi okkar
kommanna en það að segja að
þessi eða hinn væri „algjör línu-
maður”.
Og nú er óskar Brynjólfsson
allur. Hann verður jarðsettur
vestur á Isafirði i dag.
Og óskar var linumaður. Hann
var linumaður i tvennum skiln-
ingi. Hjá Rafveitu ísafjarðar
vann hann sem linumaður i ára-
tugi, og i pólitik var hann lika
linumaður i jákvæðasta skilningi
orðsins. Þeim skilningi, að hann
setti alltaf heildarhagsmuni
stjórnmálahreyfingar islenskra
sósialista efst á blað, en lét ekki
minniháttar sviptivinda á sig fá.
Það sem gerir lifið þess vert að
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
KÓPAVOGSHÆLI
STARFSFÓLK óskast til sumaraf-
leysinga og einnig til áframhaldandi
starfa.
Upplýsingar veitir forstöðumaður i
sima 41500 og tekur hann jafnframt
við umsóknum.
Reykjavik, 6. ágúst 1978.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000
Garðbæingar
Sundlaug og iþróttahús er lokað um öá-
kveðinn tima.
Forstöðumaður.
Bókasafnsfræðingur
Bókasafn Borgarspitalans óskar að ráða
bókasafnsfræðing i hálft starf, frá 1. sept.
n.k.
Nánari upplýsingar gefur yfirbókasafns-
vörður.
Reykjavik, 4. ágúst 1978.
Borgarspitalinn
lifa þvi, er félagsskapur góðra
manna, manna sem eitthvað vilja
á sig leggja fyrir náunga sinn,
fyrir málstað, sem þeir telja rétt-
an.
Sósialisk stjórnmálahreyfing
hefur átt mörgum slikum ein-
staklingum á að skipa. Einn
þeirra var Óskar Brynjólfsson,
einn þeirra allra tryggustu, einn
þeirra, sem siðast hefðu brugðist.
En þótt Óskar væri tryggur
flokksmaður myndaði hann sér
jafnan sjálfstæðar skoðanir og
hafði sitt til málanna að leggja.
Hann kunni hins vegar þá list að
láta ekki aukaatriði byrgja sér
heildarsýn.
Óskar var ættaður af Suður-
landi, en flutti snemma til tsa-
fjarðar, þar sem hann átti heima
siðan, siðustu árin, ekki veit ég
hvað mörg, i Hæstakaupstaöar-
húsinu.
Pólitiskir andstæðingar okkar
furða sig stundum mjög á þvi,
hvernig samtökum okkar sósial-
ista, hefpr á liðnum árum tekist
að komastfram úr fjárþagsvanda-
málum af ýmsu'tagi, standa und-
ir blaðaútgáfu koma upp húsnæði
fyrir flokk og blað.
Þeir sem mest eru hissa á þessu
skilja ekki fólk eins og Óskar
Brynjólfsson. Þeir eru tveir
heimar.
Ég þekkti Óskar aðeins litil-
lega, og aðeins nú á allra siðustu
árum, en Halldór ólafsson hafði
reyndar sagt mér sitthvað frá
honum áður.
En það skal sagt hér, þegar
Óskar Brynjólfsson er kvaddur,
að hann virtist jafnan allra
manna fúsastur að leggja fram
fjármuni i þágu stjórnmálastarf-
seminnar, og þó trúi ég efnin hafi
verið rýr. Ég bað Óskar aldrei um
peninga, en hann tók alltaf upp
veskið, ef við hittumst og reiddi
fram. Ég bað hann að hafa hóf á
þessu, en hann hlaut að ráða sin-
um gerðum i þessu sem öðru.
Siðustu mánuðina var óskar
fársjúkur maður. Hann lifði nán-
ast á því einu að biða úrslita kosn-
inganna, bæjarstjórnarkosninga
og alþingiskosninga. Annars var
honum ekkert að vanbúnaði að
kveðja. Meðbyrinn gladdi hann
sjúkan, en áður hafði hann heill
og hraustur stælst við margan
pólitiskan mótbyr.
Hér verður engin saga rakin,
aðeins fá kveðjuorð til að votta
Óskari Brynjólfssyni látnum
virðingu og þökk. Ég sagði áðan
að Óskar hafi verið i hópi þeirra
traustu og tryggu, — i hópi „linu-
manna ” i flokknum.
Yfir minningu slikra félaga
brennur rauður logi, sem visar
öðrum veginn fram, þótt holdið
hverfi i mold.
Ég votta konu óskars, Björgu
Rögnvaldsdóttur, svo og börnum
þeirra og öðrum vandamönnum
samúð mina nú þegar Óskar er
kvaddur.
Kjartan ólafsson.
Tekjuskattur
Framhald af bls. 16.
Sigfús Kristinsson, Selfossi: 10.8
milj.
Brynleifur Steingrimsson, Sel-
fossi: 5,8 milj.
Isleifur Halldórsson, Stórólfs-
hvoli: 5.4 milj.
Magnús Sigurðsson, Eyrar-
bakka: 5,4 milj.
Þórhallur ólafsson, Hverageröi:
4.8 milj.
Hæstan tekjuskatt félaga ber
Mjólkurbú Flóamanna, 26.3 milj-
ónir. Næst er Vörðufell hf.,
Hrunamannahreppi með 5.3 mil-
jónir.
Hæstan tekjuskatt einstaklinga
bera:
Brynleifur Steingrimsson, Sel-
fossi: 3.6 milj.
Sigfús Kristinsson, Selfossi: 3.4
milj.
Isleifur Halldórsson, Stórólfshv.:
3.3 milj.
Magnús Sigurðsson, Eyrar-
bakka: 3.1 milj.
Þórhallur Ólafsson, Hveragerði:
2.8 milj.
Vaka, Siglufiröi:
Banni aflétt
já S.R.
Verkalýðsfélagið Vaka á
Siglufirði hélt fund með
starfsmönnum í Síldar^
verksmiðjum ríkisins I
gærkvöld þar sem ákveðið
var að af létta bæði útf lutni-
ings- og yfirvinnubanni þvf
sem staðið hefur um skeið
vegna deilna sem upp
komu á milli stjórnar Slld-
arverksmiðjanna og
verkalýðsfélagsins um
kjör.
Að sögn Kolbeins Friðbjarnar-
sonar formanns Vöku er ástæðan
fyrir þvi að félagið afléttir bann-
inu sú, að engir aðilar hafa feng-
ist til að tala við fulltrúa starfs-
manna. —Þig
Engin aflahrota hjá
Austfjardatogurum
— mun betri afli í ár en áöur
Togarar Austfirðínga
hafa ekki orðið varir við
þá miklu aflahrotu sem
er að ganga yfir fyrir
Norðurlandi og Vest-
f jörðum að sögn Jóhanns
K. Sigurðssonar fram-
kvæmdastjóra útgerðar-
innar hjá Sildarvinnsl-
unni á Neskaupstað.
Það hefur hins vegar aflast
betur fyrir austan i ár en undan-
farin tvö til þrjú ár og taldi Jó-
hann að þar munaði fyrst og
fremst um að 150 erlendir togar-
ar eru horfnir af miðunum þar
austur frá. Jóhann hafði ekki
handbærar tölur um afla togar-
anna yfir árið, en hann nefndi að
togararnir kæmu yfirleitt með
8C—100 tonn eftir 8 daga veiði-
ferð, en það sem skipti einnig
miklu máli er að þeir hafa feng-
ið fyrsta flokks hráefni.
Jóhann sagði þá að lokum að
yfirleitt væri fiskurinn sem þeir
væru að veiða ókynþroska milli-
fiskur og á 70 sentimetra mörk-
unum.
—Þig
Um hækkun og lækk-
un verslunarálagningar
Álagningin var lækkuð.
Nýkjörinn alþingismaður
Alþýðubandalagsins, Kjartan
Ólafsson, skrifar leiðara i
Þjóðviljann 29. júli s.l., þar sem
segir m.a. orðrétt um vinstri-
stjórnarviðræðurnar: „Alþýðu-
bandalagið lagði til, að i stað
gengislækkunar krónunnar, þá
yrði nú hafist handa um niður-
færslu verðlags, m.a. með lækkun
söluskatts og verslunarálagning-
ar, sem fráfarandi rikisstjórn
hefur nýlega hækkaö.” »
Hér er um fölsun að ræða hjá
alþingismanninum, og er það illa
farið aðhann skuli gera sigsekan
um slikt. Verzlunarálagning var
lækkuð i byrjun ársins, fyrir at-
beina fráfarandi rikisstjórnar.
Tilkynning Verðlagsnefndar
varðandi lækkunina er númer 10,
1978, og er frá 21. febrúar. Með
henni er felld úr gildi tilkynning
númer 33, frá 24. nóvember 1977,
og verslunarálagningin þar með
lækkuð. Lækkunin var nokkuð
misjöfn, eða frá 8,4-10%, eftir þvi
um hvaða vöruflokk var að ræða.
Nú er verslunarálagning lægri
hér en hjá festum nágrannaþjóð-
um okkar, og á sumum vöru-
flokkum er hún helmingi lægri en
i nágrannalöndunum. Kaup-
mannasamtök Islands mótmæla
harðlega föslunum af þessu tagi,
sem settar eru fram i viðkvæm-
um pólitiskum viðræðum. Það er
skoðun Kaupmannasamtakanna
að verslunarálagning verði ekki
með nokkru móti skert frekar en
orðið er.
Jón I. Bjarnason
blaðafulltrúi
Kaupmannasamtakanna.
Prósentur og krónur.
Um margra ára skeið hefur pað
verið venja að við gengisfellingu
hefur prósentutölu álagningar
verið breytt, þannig að verslunin
hefði ekki þann aukagróða af
hækkuðum áiagningargrundvelli
sem óbreytt hlutfallsleg álagning
hefði þýtt. Tilkostnaöur verslunar
hækkar ekki þegar i stað við
gengisbreytingu, enda þótt
gengisbreytingin geti hleypt af
stað þannig atburðarás i hagkerf-
inu að kostnaðarhækkun komi
smám saman. Þess vegna er ekki
réttmætt að tala um þaö, að tekj-
ur verslunarinnar hafi verið
skertar, þótt prósentan sé lækkuð
um sinn.Hins vegar hefur reynsl-
an verið sú, að álagning hafi siðan
verið hækkuð aftur, þegar eitt-
hvað liður frá gengisfellingu,
enda er það staðreynd aö versl-
unarálagning hefur farið heldur
hækkandi en lækkandi á síöasta
kjörtimabili.
—Ritstj.
Breiðholt
Framhald af bls. 16.
verkamannabústaða sem Breið-
holt fékk. Þjv.)
Þeir gerðu það sem þeir gátu
til þess að koma i veg fyrir að við
fengjum þetta verk.
Þegar við vorum að fara i
bankana til að fá garanti varð-
andi verkið, þá voru þeir venju-
lega búnir að vera þar á undan og
búnir að eitra til að koma i veg
fyrir að maður fengi garantiin.
En mér þætti gaman aö sjá
samanburð á verði Ibúða sem Ar-
mannsfell og Breiðholt hafa
býggt Þeir hafa yfirleitt byggt
dýrustu ibúðirnar sem hægt er aö
fá en Breiðholt þær ódýrustU.
Ætli það muni ekki svona
50—60% á verði á ibúð hjá okkur
og Armannsfelli.”
eng.
Auglýsingasíminn er N
81333 PJOOVIUINN ,
BORGARSPÍTALINN