Þjóðviljinn - 12.08.1978, Síða 7

Þjóðviljinn - 12.08.1978, Síða 7
Laugardagur 12, ágúst 1978[ÞJ0ÐVI]LJINN — stÐA 7 JGrein Svans Kristjánssonar lýsir svo mikilli vanþekkingu á starfsemi SHA, að ég, óbreyttur liðsmaður i þeim samtökum, gat ekki stillt mig um að taka penna í hönd... GuömundL Georgsson lækn r Valkostur herstööva- andstæðinga í utanríkis- stefnu íslands er skýr Að undanförnu hefur birst nokkur gagnryni á starf og baráttuaöferöir Samtaka her- stöövaandstæðinga (SHA) á siö- um Þjóöviljans. Ber þar helst til aö nefna Dagskrárgrein Svans Kristjánssonar laugardaginn 29. júli'. Sá þráöur var siöan tek- inn upp og spunninn áfram I pistlinum Klippt og skoriö viku siöar. Grein Svans Kristjánssonar lýsir svo mikilli vanþekkingu á starfsemi SHA, aö ég, dbreyttur liösmaöur i þeim samtökum, gat ekki stillt mig um aö taka penna i hönd, enda þótt ég geri ráö fyrir aö miönefnd SHA muni af þessu tilefni gera grein fyrir starfsemi samtakanna. Ég mun þvi ekki fara ýtarlega úti þá sálma. Vanþekking Svans á starf- semi SHA kemurskýrast fram i eftirfarandisetningu: „verkefni herstöövaandstæöinga er ekki eingöngu þaö aö skipuleggja Keflavikurgöngur og fundi i Háskólablói, þar sem menn fá venjulega alltaf sama skammt- inn úr tslandsklukkunni” og hann heldur áfram: ,,Megin-' verkefni herstöövaandstæöinga er aö vinna skoöun sinni fylgi meöal þjóöarinnar”. Þaö er alltaöþvi ærumeiöandi, aö Svanur skuli telja þörf á þvi aö segja okkur, sem tökum þátt I störfum SHA, aö viö þurfúm aö vinna skoöun okkar fylgi. Fjöl- mörg samtök um margvisleg- ustu efni, meira aö segja stjórn- málaflokkar, hafa komist aö þessari skynsamlegu niöurstööu fyrir löngu. Vandinn er hins vegar sá meö hvaöa hætti mál- staö herstöövaandstæöinga veröi best unnið fylgi meöal þjóöarinnar. Um þaö má deila og er deilt. Herstöövaandstæö- ingar eru fylgjendur upplýs- ingastefnu og hafa taliö aö mál- staönum yröi best unniö fylgi meö þvi aö auka þekkingu almennings á eöli Atlantshafs- bandalagsins og hinum marg- víslegu afleiöingum hersetunn- ar. Þaö er t.d. nokkuö almenn skoöun innan SHA aö undir- skriftir fjölda manns á plagg Varins lands hafi byggst á van- þekkingu. Þá vanþekkingu og hvernigbest megi Utrýma henni ber oft á góma yfir kaffibolla á fundum herstöövaandstæöinga (þaö er semsagt rétt aö viö fá- um okkur gjarnan kaffi á fund- um). Hins vegar hefur ill- mennska skoöanaandstæöinga ekki veriö rædd yfir þeim fjöl- mörgu kaffibollum, sem ég hef tæmt á fundum herstöövaand- stæöinga. Ég leyfi mér þvi aö draga i' efa aö herstöövaand- stæöingum hætti til þess öörum fremur aö ftokka andstæöinga i illmenni og samherja I góö- menni, eins og Svanur gefur I skyn. 1 anda þeirrar upplýsingar- stefnu sem SHA fylgja hefur verið reynt að útbreiöa þekk- ingu á herstöðvamálinu og NATÓ. M.a. hefur Dagfari kom- iö út þrisvar á þessu starfsári, fréttabréf og dreifirit hafa verið gefin út. Herstöövaandstæöing- ar hafa tekiö þátt i umræöu- fundum { skólum, kynningar- fundir veriö haldnir og erindrekstur átt sér staö. A þennan máta hafa herstöðva- andstæöingar komiö á framfæri margvíslegum fróöleik um eöli NATÓ og hin fjölþættu áhrif hersetunnar á íslenskt þjóölif. Allt þetta virðist hafa fariö framhjá Svani Kristjánssyni. Þaöeina, sem hann hefur oröiö var viö er Keflavikurganga og fundur i Háskólabiói. En um gildi þessara aðgeröa hafa einna helst orðið nokkrar vangaveltur innan SHA, en hins vegar hefur enginn mér vitan- lega dregiö I efa gildi þess aö fræöa sem flesta um herstööva- máliö. Fjöldaaögeröirnar hafa einkum haft þann tilgang aö reyna aö vekja athygli og um- ræöu um herstöövamáliö og halda þvi vakandi. Viröist full þörf á þvi, ef önnur starfsemi SHA nær ekki einu sinni athygli fylgjenda SHA, en ég efast ekki um aö Svanur Kristjánsson telj- ist til þeirra og kunni jafnvel aö vera góömenni einnig. 1 málflutningi herstöövaand- stæðinga hefur gætt margvis- legra sjónarmiöa. Oftar en einu sinni hef ég ekki verið viss um að ailar þær röksemdir, sem fram hafa komið, hafi veriö málstaönum til framdráttar, en hins vegar sannfærður um aö tilgangur þeirra, sem hafa sett þær fram var sá aö færa okkur nær þvi marki aö losna úr viöj- um hernaöarbandalags og her- setu. Ég efa þvi ekki, aö hiö sama vakir fyrir Svani Kristjánssyni erhann beinir þvl til herstöövaandstæöinga, a ö þeir segi alþýöu þessa lands, eins oghannoröar þaö, frá þeim erfiöleikum, sem hanntelur, aö brottför hersins geti haft I för meö sér. Ég er hins vegar efins um, aö þaö sé mjög heillavæn- legt til aö afla málstaö fylgis aö benda einkum á „neikvæöar” afleiöingar. Hins vegar er þaö rétt aö SHA hafa ekki fullbúnar tillögur um þaö, hvernig leysa eigi vanda þeirra sem missa atvinnu er herinn fer. Þaö merkir ekki, aö samtökin hafi ekki hugleitt þann vanda, þvl aö þetta er eitt af mörgum verk- efnum á þeim langa lista sem síöasta landsráöstefna her- stöövaandstæöinga samþykkti. Þaö vantar ekki viljann en hins vegar mannafla. Fáir finna sár- ar fyrir þvi en virkir herstööva- andstæöingar hversu margt er ógert. Mikið af tima hinna fáu virku félaga i SHA fer i hvers- dagslegt puö, t.d. viö aö tryggja fjárhag samtakanna. Þvi miður er það svo aö aðeins sárafáir herstöövaandstæöingar leggja þaö á sig aö koma sjálfir fjár- framlögum til skila, heldur veröur aö hringja i þá og sækja framlög, svo aö dæmi sé nefnt. Sem betur fer eru herstööva- andstæðingar viöar virkir en innan SHA. Ég hef fregnaö, aö innan Alþýöubandalagsins sé veriö aö vinna aö Suöurnesja- áætlun sem m.a. tekur fyrir vanda þeirra er missa atvinnu viöbrottförhersins. Þeirriáætl- un mun, þegar hún er fullunnin, veröa óspartbeittlmálflutningi herstöövaandstæðinga. Þaö er hins vegar misskilningur á eðli “SHA og oftrú á getu þeirra aö ætla aö samtökin geti haft áhrif á hvert Islendingar beina utan- rikisviöskiptum sinum, hvert þeir sækja lán eöa hvort Banda- rlkjamenn muni beita efna- hagslegum refsiaögeröum, ef hernum veröur vikiö úr landi. I greki sinni ber Svanur Kristjánsson tof á ýmis samtök fyrir aö fórna stundarhagsmun- um fyrir hugsjónir en vitir hins vegar herstöövaandstæöinga fyrir aö huga ekki nægilega aö stundarhagsmunum. Ég tel mig hafa fært rök aö þvi aö þessi ásökun sé óréttmæt. Mér er hins vegar engin launung á þvi, aö sjálfur tel ég hættuna af veru hersins fyrir lif og limu núlif- andi og komandi kynslóöa þaö geigvænlega, aö ekki sé um neina árekstra stundarhags- muna og hugsjóna aö ræöa þeg- ar SHA setja fram kröfuna: Is- land úr NATÓ og herinn burt. Ég vil vara við þeim grunn- færna skilningi á eöli Aronsk- unnar aö flokka hana einfald- lega undir lágkúru. Ég þekki fólk sem lltur á þaö sem hug- sjón. Enda þótt ég telji þaö á villigötum, treysti ég mér ekki til aö draga einlægni þess I efa. Þaö er hins vegar mikiö og veröugt verkefni fyrir sósialista aö reyna aö breyta þvi rang- snúna gildismati sem er undir- rót stefnu eins og Aronskunnar og viröist því miður standa djúpum rótum I islensku þjóöfé- lagi. Aö tokum: Valkostur her- stöðvaandstæöinga i utanrikis- stefnu tslands er skýr. Hann feist i þeirri meginkröfu, aö Is- land segi upp aöildinni aö Nató og hernum veröi vikiö brott og merkir aö viö viljum hlutlaust og vopnlaust tsland. Reykjavik, 8. ágúst 1978 Guöm. Georgsson bridge Umsjón: ólafur Lárusson Um komandi starfsár Þar eö undirritaður hefur tek- iö aö sér umsjón „stærsta” bridgefélagsins á landinu, er ekki úr vegi að huglciöa kom- andi starfsár, einmitt meö hliö- sjón af þessari nýjung, aö ráö- inn sé framkvæmdastjóri aö is- lensku bridgefélagi. Sú spurn- ing hlýtur aö vakna, hvert sé mitt hlutverk I félaginu, og hver séu völd min. Hlutverk framkvæmdastjór- ans er nýtt I bridge á Islandi. Jafnvel bridgesambandiö hefur ekki eiginlegan slíkan, heldur sér forseti um daglegan rekstur þess. En einhverjar starfsregl- ur hef ég, og þær eru I stuttu máli þær, að undir minn hatt fellur allt framkvæmdavald i félagsstarfinu, að undangengn- um stjórnarákvöröunum, aö sjálfsög öu. Hlutverkiö inniheldur m.a. þaö, aö útvega verölaun, sjá um spilastaö, ákveöa og semja hin ýmsu keppnisform, ráöa keppnisstjóra eöa stjórna keppnum sjálfur, og þannig má lengi telja. Til aö viöunandi Um komandi starfsár árangur náist I vetur, þarf sam- starf viö félaga BR og allt þaö áhugafólkum bridge,er fýsir aö reyna meö sér innan veggja félagsins. Iþeim húsum rúmast allir. Ég legg höfuöáherslu á það, aö breyta þeim anda sem rikt hefur i okkarstaönaöa bridge aö undanförnu, lifga upp á daglega starfssemi, auka æfingatimann, jafnvel spila tvisvar i viku og þá nota annan daginn eingöngu til æfinga, en hinn undir mótshald eöa stærri keppnir. Þaö er timi til kominn, aö rek- iö sé alvöru bridgefélag á Is- landi, félag sem getur gert ákveöna hluti og gerir þá, félag sem þjappar saman slnum félögum en ofbýöur þó engum. Meöstuöningi og skilningi mun reksturBR á komandi starfsári ekki vera erfiöur kross. Nv. formaður BR er Baldur Kristjánsson. Um íslandsmót og Reykjavlkurmót 1 ár er haldinn aöalfundur bridgesambands Islands. A þeim fundi þarf margt aö gera og mikiö veröur eflaust sagt. Fyrir öllu er þó (vonandi) aö tala saman um hlutina og bæta úr þeim vanköntum sem upp hafa komiö nýlega. Fyrir mér eru Reykjavikur- mótiö og landsmótiö i ár ákaf- lega hugleikiö efni og þarf aö bæta þar ýmislegt. Til aö mynda landsmótiö i tvimenn- ing. Menn uröu almennt sam- mála um þaö, aö styrkleiki þessa móts er ekki boölegur, þvi jafnvel einstöku félagskeppnir eru margfalt sterkari. Breyta þyrfti þessu móti þannig, að auka þátttökufjölda para úr 44 i t.d. 56 eöa 60 pör og siöan væri þaöúrtaksmót fyrir t.d. 16 para úrslitakeppni, sem allir spiluöu svo viö alla, og þá fleiri en 2 spil milli para, t.d. 6-8 spil. Þaö er út I hött aö halda „hraömót” einu sinni á ári, hóa i einhver pör að a ustan eöa vest- an, tilþess eins aö veröa núm- er 27 eöa 38 i rööinni. Hver nennir aö mæta til Reykjavikur upp á þessa skil- mála, ár eftir ár? Nei, þaö þarf aö breyta og verður breytt, aö öllu óbreyttu (sic....). Fy rirkomulagiö I sveita- keppni er nokkuö gott eins og þaö er 1 ár, og er þvl ekki aö kenna, aö ein sveit hefur einok- aö þaö sl. 2. ár. Sú sveit hefur einfaldlega veriö best, en von- andi breytist þetta meö tíö og auknum tima. Fyrirkomulagiö i Reykjavfk- urmóti i tvimenning er erfitt viöfangsefni, en þó er ég inni á þvi, aö litiö þurfi aö breyta þvi. ÞaÖ er ágætt einsog þaö er, og mun litiö batna, þó reynt yröi. En sveitakeppnin er hneyksli, sem verður örugglega ekki á dagskrá i vetur, enda munu nýir vendir sópa þarum gólf á kom- andi starfsári. Um bikarkeppni BSÍ Þættinum hafa borist tvenn úrslit úr 2. umferö bikarkeppni BSl, sem nú stendur yfir. Sveit Guðmundar T. Gfslasonar sigr- aöi sveit Alfreös G. Alfreösson- ar af Suöurnesjum, nokkuö örugglega. Og sveit Steinbergs Rikharðs- sonar sló meistarana frá I fyrra, sveit Armanns J. Lárussonar, út. Sl. fimmtudag áttust viö sveitir Vigfúsar Pálssonar og Georgs Sverrissonar. Ég minni á, aö sveitum býöst aö æfa sig i dag, laugardag, i Domus M., og einnig veröa þar á dagskrá bikarleikir. Fyrirliða sveita minni ég á, aö hafa sam- band viö þáttinn og skýra frá úrslitum leikja. Leikjum skal vera lokiö i 2. umferð fyrir 20. ág. n.k. r Frá Asunum Bridgeáhugafólk er minnt á, að keppni i sumarbridge As- anna veröur framhaldiö n.k. mánudag. Allir aö sjálfsögöu velkomnir, meöan húsrúm leyfir. Spilað er i Félagsheimili Kópavogs, uppi. Brýning Þátturinn vill eindregiö hvetja allt bridgeáhugafólk, hvar sem er á landinu aö senda inn skemmtileg spil og efni (al- veg sama hvaö þaö er) brand- ara eöa stuttar sögur, skylt bridge. Látið nú heyra i ykkur. Utan- áskriftiner: Bridgeþáttur Þjóö- viljins, Siöumúli 6 R.vik. I ráöi er, ef nægt efni fæst á næstunni, að tileinka þættinum smáauka- rými t.d. á sunnudögum, en þaö er aö sjálfsögöu undir lesendum komiö. Skrifiö, ha?

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.