Þjóðviljinn - 12.08.1978, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 12.08.1978, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 12. ágiíst 1978 Landbúnaðarsýn- ingin 1978 Miklar sviptingar hafa verift i málefnum Leikfélags Akureyr- ar að undanförnu. Hart hefur verið deiit á ráðningar leikara, en í upphafi mun það hafa verið ætlun stjórnar L.A. að ráða að- eins þrjá fasta leikara, en auka ráöningar lausra ieikara. Vakti sú ákvörðun mikinn úlfaþyt meðal ieikara fyrir norðan. Einnig var ráðning leikhús- stjóra lengi óákveðin en eins og komiöhefur fram i fréttum, hef- ur Oddur Björnsson verið ráð- inn ieikhússtjóri fyrir næsta leikár. Þjóöviljinn kom að máli viö Odd um fyrirhugaða starfsemi leikfélagsins, ráðningar leik- ara, verkefnaval og fleira. — Erendanlegum ráðningum ieikara nú iokið fyrir næsta leikár? — Ráöningum fastra leikara er lokið, en þeir verða sex aö tölu. Það eru þau Aðalsteinn Bergdal, Gestur E. Jónasson, Sigurveig Jónsdóttir, Svanhild- ur Jóhannesdóttir, Viðar Eggertsson og Þráinn Karlsson. Auk þess verða tveir leikarar rdðnir í hálft starf, en ekki er enn búið d ákveða, hverjir þeir verða. — Hver verða verkefni þessa ieikárs? — Fyrst tökum við fyrir leik- ritKambans, „Þessvegnaskilj- um við”, en æfingar á þvihefj- ast þ. 21. ágúst. Leikstjóri verð- ur Haukur Gunnarsson. Þetta er eina leikrit Kambans, sem kalla mætti gamanleik, þó þarna leynist mikil alvara eins og nærri getur, þegar þessi höfund- ur erannarsvegar. Þetta leikrit hefur ekki veriö sýnt á Islandi i ein 25 ár. Frumsýning verður um miðjan október. Þá er ætlunín að fara i gang með barnaleikritið, sem að þessu sinni verður „Skugga-Sveinn” eða „tltilegu- mennirnir” eftir Matthias Jochumsson. Þetta veröur „sýning fyrir alla fjclskyld- una”, en að minu áliti ætti ekki að ferma nokkurn mann fyrr en hann hefur séö almennilegan Skugga-Svein. Leikstjóri verður Sigrún Björnsdóttir, en hún hef- ur aö undanförnu unnið við upp- setningar á leikritum úti á landi, og meðal annars sett upp á Laugarvatni og á Isafirði. Miðað veröur við aö leikritið veröi fullæft um jólin. t byrjun nóvember hefjast svo æfingar á „Sjálfstæðu fólki” eftir Laxness, en Baldvin Halidórsson hefur gert nýja leikgerð viö verkiö og verður einnig leikstjóri. Verkið er fyrst og fremst hugsað fyrir .minni svið, og mun væntanlega frum- sýnt I byrjun janúar. Um sama leyti hefjast æfing- ar á leikriti Vésteins Lúöviks- sonar, „Stalin er ekki hér” og hefur leikfélagiö hug á að fá Sig- mund Orn Arngrimsson til að annast uppfærslu, en enn er óvist, hvort hann getur tekiö leikstjórn að sér vegna anna. Leikárinu mun svo ljúka með söngleik, sem saminn hefur ver- iðupp úr ákveðnu þema i hinni frægu skáldsögu „Don Quixote” eftir Cervantes. Haukur Gunn- arsson mun leikstýra verkinu. — Komiö hefur upp hugmynd um leikhúsráö við Leikfélag Akureyrar, sem annast muni allar veigameiri ákvarðanir I máium þess, i stað núverandi stjórnar, sem kosin er á aðal- fundi félagsins. Hvert er álit þitt á þessari hugmynd? — Ég tel að það sé áhugi og vilji fyrir þessari hugmynd, og álit, aö hún verði mjög á dag- skrá i framtiðinni. Það er erfitt fyrir mig að fara nánar út i þetta að sinni, þar sem hug- myndin hefur aðeins veriö rædd lauslega, en enginn fundur hef- ur veriö haldinn um málið. — Stjórnin er kosin af aðal- fundi leikfélagsins. Þennan fund sitja félagar L.A., sem flestir eru ekki tengdir daglegri starf- semi leikhússins. t siðustu stjórn var ekki kosinn neinn fulitrúi leikara. Telur þú eðli- legt, að svo sé? — Mér þætti það eðlilegast, aö fulltrúi eða fulltrúar leikara ættu sæti i stjórn. En það er litið við þessu að segja, þar sem nú- verandi stjórn hefur verið kosin á lýðræðislegan hátt á aðal- fundi. Hins vegar megum við ekki gleyma þvi, að þaö fólk, sem nú situr i stjórn, er flest gamlir leikarar við leikfélagið hér. — Hvernig leggst þaö I þig að taka við stjórn leikhússins á Akureyri? — Þaö leggst mjög vel i mig. Þegar helstu deilur hafa nú ver- iö leystar og starfsemin hefur verið mörkuð, held ég að starfs- árið gætioröið mjög blómlegt og þróttmikiö. Ég held, aö flestir brenni i skinninu eftir þvi aö taka til starfa og láta hendur standa fram úr ermum. Viö höf- um náttúrlega ekki haft tima til að ræða endanlega öll smá- atriði, þar sem fyrsti timinn hefur farið að mestu leyti i að velja verkefni og manna fyrsta leikritið. En ég lit björtum aug- um á komandi starfsár, segir Oddur aö lokum. Það má geta þess, að vegur Leikfélags Akureyrar hefur aukist mjög á undanförnum ár- um. Arið 1969 var ráðinn fram- kvæmdastjóri við leikhúsið og 1973 varð það atvinnuleikhús og átta leikarar ráðnir i hálftstarf. Á siðasta ári hefur fjárveiting rlkis aukist um 120% eða upp i 11 miljónir og framlag bæjar- stjórnar hefur aukist um tæp 150% eða upp i 16 miljónir, þannig aö sameiginlegar styrk- veitingar til L.A. nema nú 27 miljónum króna. Stjórn Leikfélags Akureyrar skipa: Guömundur Magnússon, formaöur, Þórey Aöalsteins- dóttir ritari og Heimir Ingi- marsson gjaldkeri. -im Þetta er Blesa og folaldiö hennar, en eigandi þeirra er Albert Jóhannsson frá Skógum. OIÚBVIUINN uúovium Þetta er bás Þjóöviljans á sýningunni, en þar geta menn fengiö ókeypis tilraunaáskrift i ágúst. Forseti tslands, herra Kristján Eldjárn, setur sýninguna. Laugarda gur 12. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Kynníng á stöðu og hlut- verki íslensks landbúnaðar búvélar, garðyrkja og skógrækt svo eitthvað sé nefnt. I sýningar- ráöi eiga sæti fulltrúar hinna ýmsu fyrirtækja og félaga- samtaka, sem vinna aö land- búnaöarmálum eöa framleiöa landbúnaðarafuröir. Sýningin er sem kunnugt er haldin af tilefni 70 ára afmælis Búnaðarsambands Suðuriands, en i þvi eru 35 félög. Ýmislegt veröur til skemmtunar á sýningunni. Auk tiskusýninga og kvikmyndasýninga veröa sýnd hin ýmsu tæki sem notuð eru i landbúnaöarstörfum, kórsöngur, hrossasýningar, nautgripa- sýningar, hlutavelta og margt fleira verður til skemmtunar. Sýningin er opin til 23 daglega til sunnudagsins 20. ágúst. þs ‘ Þaö rigndi duglega, þegar verio var að teyma siöustu dýrin inn á sýningarsvæðið á Landbúnaöar- sýningunni á Selfossi og koma þeim inn i húsin, áður en tignir gestir komu inn á svæði til að vera viöstaddir opnunina. Sýningar af svipuðu tagi og þessi eru orðnar árlegur viðburöur, þótt þessi hafi nokkra sérstöðu. Er ekki að efa að fjöl- skyldur munu bregða undir sig betri fætinum á næstunni, þvi fátt finnst krökkunum eins skemmti- legt og að fá aö skoöa lifandi dýr. Þarna fá þau meira að segja að halda á hænuungum, sem eru nýskriðnir úr egginu. Þegar við fórum i gegnum bás Sambands eggjaframleiðanda, var skammt i að að nýir hænuungar kæmu i heiminn, þvi i útungunarvélinni mátti sjá litla gogga reyna að komast út úr eggjunum. „Þeir veröa mátulega komnir i heiminn, þegar forsetinn birtist” sögðu krakkarnir. Þarna voru einnig svin, ýmiss konar ali- fluglar, hestar, folöld, kýr, kálfar, naut, ær og lömb, auk þess sem stórt laxapar er i kassa við dyrnar og nokkur minni seyði i stórum kössum úti á svæðinu. Sýningaraðilar eru rúmlega hundrað talsins, bæði fyrirtæki og framleiðsluaðilar af ýmsu tagi. Mikiö er af islenskum heimilis- iðnaði sem Samband sunnlenskra kvenna og Samband Vestur- Skaftfellskra kvenna hafa safnað. Landbúnaðarafurðir af ýmsu tagi eru kynntar, og einnig grænmeti, Gróa Jakobsdóttir býr tii muni úr islenskum leir i heimiiis- iðnaöardeildinni. Strákarnir skoða laxaseiðin frá Laxeldisstöðinni i KollafirðL : Bölvaldur heitir þessi ferhyrndi hrútur, en eigandi hans cr Asgeir Sigurðsson frá Kaldbak.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.