Þjóðviljinn - 26.08.1978, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 26.08.1978, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. ágúst 1978 ,,Þjófur, ég stefni þér með svo sterkri stefnu eins og þá guð stefndi djöflinum úr himnaríki forðum, niður til helvítis, að þú hafir engan frið á sál eða lífi nema þú mér aptur skilir stuld þeim, sem þú stalst f rá mér, bölvaður, í svefninum. Sof þú aldrei og ekki vak með friði eða ró- legheitum, nema þú heim færir mér stuld þann, sem þú stalst frá mér bölvaður. Verði allar þínar útréttingar til sjós og lands þér til bölvunar. Bölvuð verði öll þín verk, þánkar, orð og gjörðir, nema þú skilir mér eign minni, sem þú stalst frá mér, bölvaður í tímanum og ei- lifðinni. Guðslaus og allslaus gángi þér allt til ills og ama lukkulega og eilíflega. Þú ert þjóf ur og ég bölva þér, en ég bið guð að bölva þér og það eilíflega, því það get ég ekki. Verði þér allt til eilíf rar fordæmingar, nema þú skilir mér nú öllu aptur, sem þú hefir frá mér stolið." Þessa særingu eða „þjófastefnu" er að f inna í gömlum skræðum, og er haft fyrir satt að hún hafi komið að góðu gagni gegnum aldirnar i viðskiptum frómra við f ingralanga. Það væri því afleitt ef hún félli í gleymsku jafn fingralangur og landslýðurinn virðist vera orðinn uppá síðkastið. Særing þessi var oft tekin i gagnið fyrr á öldum með góðum árangri, og er sagt að Skúli fógeti haf i notað hana óspart i viðskiptum sín- um við hörmangara. Á sama hátt mun það hafa verið rætt í f ullri alvöru innan Neytenda- samtakanna, hvort þessi áhrínsorð gætu ekki komið að góðum notum í viðskiptum hins al- menna neytanda við misjafnlega ærukæra innf lytjendur. Það sem vekur mesta f urðu okkar neytenda er að vísu sú staðreynd, að Samband íslenskra samvinnufélaga sem er að sjálfsögðu stærsti innflytjandinn í landinu, er með sama vöru- verð og heildsalarnir, en Sambandið er eins og allir vita stofnað með hag neytandans í huga fyrst og fremst. Það hefur sem sagt komið í Ijós að inn- kaupsverð á neysluvarningi þjóðarinnar er; að því er virðist, vísvitandi 20-25% of hátt,en það þýðir að sömu vörur útúr búð eru 40-50% of dýrar. I málefnasamningi næstu ríkisstjórnar mun þjóf asæringin skipa háan sess,en síðasta ríkis- stjórn harðneitaði að taka hana í gagnið,af skiljanlegum ástæðum. Sagt er að það læri börnin, sem f yrir þeim er haft, og eru það víst orð að sönnu. Að minnsta kosti virðist ríkja hér um þessar mundir skeggöld og skálmöld innbrota, of beldis, svika og pretta. Innbrot á einkaheimili hafa mjög færst í vöxtuppá síðkastið, og af því tilefni hefur lög- reglan látið f rá sér fara nokkrar leiðbeiningar um það hvernig koma eigi í veg fyrir þann ófögnuð. Hér höfum við reglurnar, að vísu birtar eftir minni: I. Oráðlegt er að haf a opið uppá gátt, ef eng- inn er heima. II. Lykillinn á ekki að hanga á dyrakarmin- um við hliðina á smekklásnum. Skárra er að hafa hann undir mottunnþen þó helst í vasan- um. Sjálfsagteraðhafa heimilisfang á lyklin- um í von um að skilvís f innandi skili honum og að þjófur finni hann ekki. II I. Sjálfsagt er að merkja alíar eigur sínar með nafni og númeri. Á þetta einkum við um bankabækur og tékkhefti, eiginmenn og eigin- konur. IV. Látið loga á inni- og útiljósum allan sólarhringinn. Þjófar eru Ijósfælnir, og í ráði munað selja rafmagn til þessara nota á sér- stökum „þjófaprís", m.ö.o. álverksmiðjuprís. V. Hafið ekki vír hjá bréfalúgunni og látið ekki póstinn safnast fyrir. Biðjið heldur ná- grannann um að halda póstinum til haga. Gæta ber þó þess að sá nágranni sé ekki þjófóttur úr hófi fram. VI. Hafið ekki bifreið yðar opna og í gangi eftir að þér eruð genginn til náða, og gætið þess að hafa bensíntankinn jafnantóman. Með því vinnst tvennt: Ekki er hægt að stela bensíni af bílnum^og í öðru lagi eyðir hann mun minna þar sem hann er léttari í akstri með tóman tank en fullan. VII. Kaupið ekki innfluttar vörur. Eða eins og segir í vísunni Frjáls Verslun: Hækka skaltu hundraðfalt, harður okra og stela. Umfram allt þú ætíð skalt alla pretta og véla. Flosi. Verk eftir Gabor Attalai Ungyerji sýnir í Suðurgötu 7 I dag hefst i Galleri Suðurgötu 7 sýning á verkum ungverska listamannsins Gabor Attalai. Gabor er einn þeirra iistamanna sem eru að brjótast undan ofur- valdi hinnar opinberu listastefnu i landi sinu og hann verður að telj- ast einn af leiðandi mönnum neö- anjarðarlistahreyfingarinnar i Austantjaidslöndunum. Gabor Attalai er fæddur i Bilda- pest 1934 og nam viö listaháskól- ann i Bödapest á árunum 1953-’58. Hann hefur haldið fjölmargar listsýningar um gjörvalla Evrópu og hans hefur verið getiö i fjölda erlendra listtimarita. Hér á landi hefur hann sýnt tvivegis áður, i Galleri Súm. Gabor Attalai hefur gefið út timaritin „Time” og „Future”. Heiti sýningarinnar i Galleri Suðurgötu 7 er: „Red-y and post red-y mades”, en siðastliðin ár hefur Gabor unniö að einu griðar- stóru samhangandi verki út frá nokkurs konar „tema”. Hann hefur haldið þrjár sýningar hlið- stæöar þessari i Póllandi, Hol- landi og nú siðast i heimalandi sinu eftir talsvert þref, en þess má geta, að um það bil 10.000 manns komu að sjá þá sýningu. A sýningunni I Galleri Suðurgötu 7 notar Gabor innviði Gallerisins sem hluta af verkinu, en sýningin hefur borist hingað með póst- sendingum, þvi listamaðurinn hefur ekki tækifæri til aö ferðast frá heimalandi sinu. Sýningin er opin daglega frá 4- 10 og 2-10 um helgar. Hún stendur frá 26. ágúst til 10. septem- ber. Auglýsið í Þjóðviljanum Ikveikjum fjölgar WASHINGTON 23/8 (Reuter) — Atvinnubrennuvargur, sem er .að visu hættur störfum, sagði bandariskri nefnd i dag, að ó- heiðarlegir athafnamenn gætu látið framkvæma ikveikju á jafn auðveldan hátt og þeir gætu pantað borð á veitingahúsi. Maður þessi sagði, að hann hefði kveikt i meira en 100 bygg- ingum I grennd við Minneapolis og fengið 500 til 1500 doilara fyrir viðvikið i hvert sinn, áður en hann var tekinn höndum og dæmdur árið 1977. En gamall félagi Mafiunnar sagði, að ágóði brennuvarga væri yfirleitt ekki svo mikill: Mafian tæki að visu að sér að kveikja I húsum fyrir 25% af þvi sem tryggingarfélög borguðu fyrir tjónið, en hinir raunverulegii brennuvargar fengju þó aðeins um 700 dollara fyrir ikveikjuna. Eitt af þeim vitnum sem komu fyrir nefndina taldi að glæpsamlegum ikveikjum fjölg- aði um fjórðung á ári, og heföu þær kostað 1000 mannslif og tvo miljarða dollara I greiddu tryggingarfé árið 1976. Flugdagurinn er í dag Flugdagurinn er I dag. Margar flugvélar verða til sýnis á Reykjavfkurflugvelli, sýnt verður listflug, eldnevtistaka I lofti og fleira. Ein beirra véla sem sýndar verða er Klemma 25, sem þessi mynd er af. Hún kom hingað til lands 1938 og flaug Agnar-Kofoed-Hansen henni vftt og breitt um land. Vélinni var lagt 1940, en hefur nýlega verið gerð upp. Mynd: Baldur Sveinsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.