Þjóðviljinn - 26.08.1978, Qupperneq 4
4 StÐA — ÞJOÐVILJINN Laugardagur 2«, ágúst 1978
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýós-
hreyfingar og þjóöfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Berg-
mann Ritstjórar: Kjartan Olafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Ein-
ar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiösla auglýs-
ingar: Siðtlmúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaðaprent hf.
Sannleikurinn
um kaupsýsluna
Margsinnis hafa þingmenn Alþýðubandalagsins kraf-
ist aðgerða til aðhalds að versluninni. Einnig lagt til að
rannsakaðir væru ýmsir þættir verslunarinnar, einkum
innflutningsverslunarinnar til þess að leiða í Ijós hvað
verslunarbáknið kostar þjóðina, m.a. í óhagstæðu vöru-
verði. Engin slík mál hafa náð f ram að ganga, en þrýst-
ingur Alþýðubandalagsins á málið hef ur þóáttsinn þátt í
því að verðlagsyf irvöld tóku að kanna vissa takmarkaða
þætti innflutningsmála.
I fyrri áfanga könnunarinnar kom í Ijós að íslenskir
innf lytjendur keyptu vörur frá Englandi á 15-20% hærra
verði en enskir kaupsýslumenn gerðu í heildsölu. Bornar
voru brigður á réttmæti þessarar könnunar og hef ur því
veriðgerðönnur víðtækari í félagi við verðiagsyf irvöld á
Norðurlöndum. í henni er kannað innkaupsverð ákveð-
inna vörutegunda frá ýmsum löndum til Norðurlanda.
Innkaupsverð íslendinga reyndist 21-27% óhagstæðara
en það verð sem Norðurlandamenn sæta á þeim sömu
vörum.
Auðvitað eiga íslenskir innflytjendur kost á því að
kaupa vörur við sama verði að meðaltali og innf lytjend-
ur annarra landa. Verðlagsstjóri segir að könnunin sýni
að þeir gangi vísvitandi fram hjá slíku meðaltals- eða
lágmarksverði og geri innkaup sín á hærra verði af ráðn-
um hug. Einnig taki þeir óeðlilega há umboðslaun er-
lendis og f lytji jafnvel inn í gegnum óþarfa milliliði. Að
mati verðlagsstjóra er ekki ástæða til að ætla að fullt
álagningarfrelsi hér heima geti upprætt þessa óheil-
brigðu starfshætti.
Vissulega á verðlagsstjóri sérstakar þakkir skilið f yrir
það að haf a f ramkvæmt þessa könnun og skeytt engu um
hótanir kaupsýsluvaldsins í hans garð.
Faktáru-
Fölsunar-Félagið
enn á kreiki
Stétt kaupsýslumanna er yfirstétt í þessu þjóðfélagi.
Hún býr við allt önnur kjör en launafólk. Hún tekur toll
af lífsgæðum annarra, en ber sjálf ærið léttar skattbyrð-
ar. Verðbólgubálið byggir hallir hennar, og eigin neysla
skrifast á reikning sem aðrir borga. Fulltrúar kaup-
sýslumanna, einkum innf lytjenda, eru meginstoðir
Sjálfstæðisflokksins. Þeir tala um siðferðilega ábyrgð
og virðingu fyrir lögunum. Sjálfir eru þeir gerspilltir,
ganga á bak við sín eigin lög og reglur, stunda sjónhverf-
ingar frammi fyrir innlendum yfirvöldum, — vita það
eitt að þeirra upphefð kemur að utan. Ofurvald kaup-
sýslunnar er sérkenni íslenska auðvaldsskipulagsins.
Kynslóð eftir kynslóð situr kaupsýslan í náðum óháð allri
gagnrýni. Hún hefur sitt Faktúru-Fölsunar-Félag f jarri
armi íslenskra laga. Þetta er jafn satt í dag og það var
fyrir 30árum þegar Halldór Laxness lýsti því fyrirbæri í
Atómstöðinni.
Brytjum báknið!
Á krepputímanum fyrir strið var á vegum skipulags-
nef ndar atvinnumála gerð gagnrýnin athugun á íslensku
efnahagslífi. Meginniðurstaðan var sú, að allt of mikið
f jármagn væri bundin í verslun og til hennar rynnu óeðli-
lega miklar tekjur í hlutfalli við f ramleiðsluatvinnuveg-
ina. Þrátt fyrir allar þær breytingar sem orðið hafa á
þjóðlffinu síðan og standa m.a. í sambandi við gífurleg-
an hagvöxt og ný atvinnutækifæri, er þetta megin stað-
reynd efnahagsmálanna enn sem fyrr: Verslunarauð-
valdið er of fyrirferðarmikið, það tekur of mikið til sín
af fé og fólki, umsvif þess sliga framleiðslustarfsemina
og liggja eins og mara á lífskjörum launafólks. Hér er
hið sanna bákn sem þyrfti að brytja niður. —h.
NATÓ-kratar
óvinsœlir!
Mikill urgur er nú i mörgum
Alþýöuflokksmönnum vegna
þeirrar ákvörðunar NATÓ-anna
i þingliðinu unga og flokkstopp-
anna sem spilað hafa stjórnar-
forystu upp í hendurnar á Ólafi
Jóhannessyni. Þykir mörgum
sem þar hafi verkalýðsfrömuð-
inum Karli Steinari og siða-
meistaranum Vilmundi Gylfa-
syni heldur en ekki brugöist
bogalistin. .
Hvernig sem NATÓ-kratarn-
ir reyna að renna stoðum undir
falskenningar um nauðsyn þess
aöoddviti stjórnar og utanrikis-
ráðherra séu á einu máli segja
óbreyttir liðsmenn og verka-
lýösforingjar i Alþýðuflokknum
margir eins og Pétur Sigurðsson
i viötali við Dagblaðið.
Að hinu leytinu ber að fagna
þvi að ef vinstri stjórn og kemst
á laggirnar má vænta þess aö
Ólafur verði forsætisráðherra
og Benedikt utanrikisráðherra.
Þeir ættu að minnsta kosti að
verahundrað prósent sammála
um þá stefnu sem kratar hafa
nú tekiöað láni frá Ólafi: Nefni-
lega „já-já og neinei” stefnuna
Vingulsháttur
NATÓ-anna
Athygli vakti á fyrsta við-
ræðufundi Alþýðuflokksins,
Framsóknarflokksins og Al-
þýðubandalagsins undir forystu
Ólafs Jóhannessonar að kratar
töldu að véfrétt sú sem nefnd
hefur verið svar flokksstjórnar
Alþýðuflokksins til Alþýðu-
bandalagsins hafi veriö misskil-
in. Það þurfti lika mikla spek-
inga forðum tíð til þess að ráða
i véfréttina i Delfi. En það
þurfti enga sérstaka pólitiska
vitringa til þess að skilja eitt
atriði i svari flokksstjórnarinn-
ar. Þar sagði: Málefnasamn-
ingur meirihlutastjórnar á hins-
vegar að ná yfir öll svið þjóð-
mála.
Nú þegar það er tryggt að
kröfu erlendra afla að LUðvik
Jósepsson veiti ekki stjórninni
forstöðu er ekkert þvi til fyrir-
stöðu að halda áfram á þeim
grunni sem hann og Alþýöu-
bandalagið lögöu: Stjórn til
skemmri tima um afmörkuö
verkefni.
Ekki verður þetta skilið á
annan veg en aö kratar telji að
Ólafur Jóhannesson fylli upp i
götin á málefnasamningnum
sem þeir vildu i gær fylla með
málefnum á öllum sviðum þjóö-
mála.
Hugsunin er skýr en kenning-
um tjaldaö tii einnar nætur.
Ósköp hlýtur aö vera þægilegt
að vera krati. Ein kenning á
dag. Segja eitt í dag og annað á
morgun.
Heiður þeim
sem heiður ber
Það vakti athygli manna I
miðbænum i gær að rennileg
.McDonnell Douglas F-4E Phan-
tom þota frá setuliðinu raindi
sér fimm sinnum f lágflugi yfir
Tjörnina og Reykjavikurflug-
völl i gær. Margir höföu við orð
að þetta vopnaskak yfir
Reykjavik væri vel við hæfi á
íslenska
sérafbrigðið
Islensku kratarnir eru
sannarlega sérstætt fyrirbæri
samanborið við flokksbræður
„Ekkert athugavert
við Lúðvík sem
forsætisráðherra,-
— segir Pétur Sigurðsson form.
Alþýðusambands Vestfjarða
„Ég sé ekkert athugavert við að hefði mátt komast á stjórnarmynd
Luðvik verði forsætisráðherra," sagði ina. Einhver timi hefði þá gefizt
Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusam- ræða fleiri mál, sérstaklega með til
bands Vestfjarða. þeSS a(y vinstri stjórn er vænta
þeim timamótum þegar kratar
opinbera NATÓ-erindrekstur
sinn og standa sig ,,vel” i is-
lenskri pólitik.
Astæðan var hins vegar sú aö
herþotan vari æfingarflugi fyrir
flugsýningu á flugdaginn, sem
sagður er vera i dag. Bæði
Bandarikin og Vestur-Þýska-
land sýna Islendingum herþotur
i tilefni þessa dags. A.m.k. niu
herflugvélar frá bandariska
sjóhernum sýna listir sinar og
Transall C-160 frá vestur-þýska
flughernum flýgur yfir — og
len dir!
Þótt aðsjálfsögðu felist mikil
viðurkenning i þessum heim-
sóknum og vopnaskaki á við-
sjárverði tið og nokkur vörn —
amk. gegn kommum — skaf
fólki bent á aö halda ekki fast
um þann stað sem VL-ingum
var helst vörn i — heldur um
eyrun. í því er besta vörnin eins
og á stendur, sainkvæmt upp-
lýsingum hernaðarsérfræðings
þáttarins.
Klapp á öxlina
Þótt þessar virðingarheim-
sóknir séu að sönnu ánægjuleg-
ar er Alþýðuflokknum viðar
klappað á öxlina og á beinni hátt
þessa dagana. Þannig segir
Morgunblaðið:
„Meö þvi að verða ekki viö
kröfu Lúðviks um forsætisráð-
herradóm hefur Alþýðuflokkur-
inn sýnt meira þrek, en hann
virtist hafa um skeið”.
þeirra annarsstaðar i Vest-
ur-Evrópu. Nató-arnir I ungliði
kratanna eru þar engin undan-
tekning. Meðal annars var einn
þeirra ræðumaður á fundi Lýð-
ræöissinnaðrar æsku sem stóð
fyrir mótmælafundi 21. ágúst.
Þessi samtök sem eru hliðstæöa
Democratic Youth erlendis eru
raunar ekki til á íslandi. Ekki
hefur veriö haldinn formlegur
stofnfundur enn, ekki er til nein
stjórn og þó viðurkennt að
Vökumenn i Háskólanum hafa
staðið að þvi aö hóa mönnum
saman.
Samtök sem kenna sig við
Democratic Youth eru viða I
Evrópu meöal þess hægri-
sinnaöasta sem þekkist. Sam-
band ungra sjálfstæðismanna er
og aðili að samtökum æskulýðs-
sinnaðra stjórnmálaflokka i
Vestur-Evrópu, sem nefnast
DEMYC — Democratic Youth
Counsil. Framkvæmdastjóri
þeirra samtaka i Lundúnum er
Jón Ormur Halldórsson, klifrari
úr SUS. Það liggja ef til vill
þræðir þaðan og tilhugmyndar-
innarum Lýðræðissinnaða æsku
hér á fslandi, sem eins og áöur
sagði eru ekki samtök sem til
eru formlega.
En hitt er vist að það mætti
lengi leita meðal krata I gjör-
vallri Vestur-Evrópu að mönn-
um sem fengjust til þess að
leggja nafn sitt við hægri sam-
tök af þessu tagi. Hversu gott
sem málefnið annars væri. En
Islenskir NATó-kratar eru að
sönnu engum öðrum likir. —
ekh.
ura
iÝÐR/EÐISSINNUÐ nta, e.
Pundurion hófat á^Lækjartorgi,
raman við Útvegsbanka íalands,
iukkan rétt rúmiega hálfséx, en
kömmu áður hafði hópur fóiks
afnast þar aaman. Br dagskr&in
fíðlnaAi fnwáa.wJliimiwi *íl