Þjóðviljinn - 26.08.1978, Blaðsíða 9
Laugardagur 26. ágúst 1978 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 9
„Viö stóraukinn styrk rikis og
bæjar er rekstur leikhússins
ekkert einkamál L.A., heldur
landsbyggðarinnar allrar. Það
er fáránlegt, að leikfélaginu
skuli vera stjórnað af fólki, sem
kemur hvergi nærri daglegum
rekstri þess.”
Brynja Benediktsdóttir segir
álit sitt á Leikfélagi Akureyrar i
opinskáu helgarviðtali.
„Kúbumenn leggja mestu
áherslu á framtiðina”.
Opna Sunnudagsblaðsins er
helguð Heimsmóti æskunnar á
Kúbu. Rætt er við tvo þátttak-
endur frá tslandi og skýra þeir
frá heimsókninni þangað i máli
og myndum.
SUNNU-
DAGUR
■’T*"
Þetta er meðal efnis í
Sunnudagsblaði Þjóðviljans
„Sönn ást er ekki til nema þvi
einungis aö hún sé frjáls, sprott-
in upp án allra hafta og án þess
að valkostir séu settir. Þannig
brýtur hún lika allar reglur
kapitalismans, eignarrétturinn
er að engu hafður, skipulag fjöl-
skyldunnar óvirt, siðferði kirkj-
unnar sett 1 rúst, og ástin þar-
með kölluð synd og klám.”
Róska skrifar um „Veldi tilfinn-
inganna” i kvikmyndakomp-
unni.
„Rimur voru yfirleitt ortar upp
úr öðrum bókmenntum eins og
tslendingasögum. Þaö sama má
segja um Disneyrimur, nema
þær eru ortar upp úr fræðibók-
menntum.”
Sunnudagsblaðið hcfur kynn-
ingu á væntanlegum bókum á
haustmarkaði. Að þessu sinni
skýrir Þórarinn Eldjárn frá
hinni nýju rimnabók sinni, um
Walt Disney, sem Iðunn gefur út
i næsta mánuði. Þjóðviljinn
birtir jafnframt eina af rlmum
Þórarins.
„Siðari hefur bulið niðið gegn
Stalin jafnvel i hans eigin föður-
landi, eftir að þetta slys varð
hérna um árið þegar Krúsjeff
komst til valda. Það er þessa
ekta kratiski áróður, sem ég sé
þarna að verki.”
Ingvar Guðjónsson, 76ára gam-
ail bóndi i Dölum á Héraði,
hefur ákveðnar skoðanir á lifinu
og pólitikinni.
Hvaö sparast í helgarinnkaupum ef söluskattur
á allri matvöru er felldur nidur?
Þetta var helgarskammtur fjögurra manna fjöiskyldu. Það munaði rúmlega ellefu hundruð krónum.
eða 1136 krónur
Hjá þeirri
fjölskyldu
sem
Þjóöviljinn
fékk að
fylgjast meö
Hvaða áhrif hefur það á fjárhag
heimilanna ef söluskattur veröur
felldur niður af allri matvöru?
Þessari spurningu er liklega ekki
auösvarað, þvi eins og nú er hátt-
að söluskattsálagningu er stór
hluti matvæla undanþeginn skatt-
inum. Þánnig er það með mjólk
og allar mjólkurvörur, fisk, kart-
öflur og grænmeti, brauö og kök-
ur, en stærsti matvöruflokkurinn
sem er söluskattsskyldur er kjöt-
varan, svo og kornvara.
Þjóðviljinn fékk að fylgjast
meö helgarinnkaupum einnar
fjölskyldu i gær, en hún telur
fjóra i heimili. Keypt var i laug-
ardags- og sunnudagsmatinn, —
bjúgu og hryggur. með tilheyr-
andi, en auk þess eftirmatur. Þar
aö auki fylgir helgarinnkaupun-
um ýmis annar varningur, sem
ekki telst til matvöru, svo sem
þvottalögur, en hér að neðan má
sjá hvað keypt var, hvað greitt
var við kassann og svo hins vegar
hvaö helgarinnkaupin hefðu kost-
að, ef enginn söluskattur væri á
matvöru. Þær vörutegundir, sem
nú eru undanþegnar söluskatti
eru auðkenndar meö stjörnu.
1 ? Jj *■■ 4
* §F Sfc iNÉ
„Ég hafði nú ekki hugsað úti það neitt sérstaklcga hvaða vara væri
undanþegin söluskatti og hver söluskattsskyld”.
Tegund: M.söluskatti Ansöluskatts
Hryggur...................2.320.- 1.933.-
Bl. grænmeti..............311.- 259,-
Rauðkál...................424.- 353.-
Jarðarber.................542,- 451.-
Bjúgu.....................715,- 595.-
Súpa......................192,- 160.-
Kartöflur.................466.- * 466.-
Mjólk ....................309.- * 309.-
Undanrenna................121.- * 121.-
Tropicana.................415,- 345.-
Brauð.....................173.- * 173,-
Hrökkbrauð................192,- * 192,-
Appelsinur................328,- * 328.-
Kaffi 2 pk...............1.170.-* 1.170.-
Smjör 1.120,- * 1.120,-
Smjörliki 308,- 256,-
Kaka 472,- ☆ 472,-
Ostur 635.- * 635,-
Hangikjöt, álegg 349,- 290,-
Rjómi 550,- * 550,-
Sykur 304,- 253.-
Hveiti 444,- 370.-
Þvottalögur 576,- 576,-
Kornfleks 402,- 335.-
12.838,- 11.702,-
Mismunurinn er þvf 1.136 krónur eða 8,85%.
—AI