Þjóðviljinn - 26.08.1978, Side 13

Þjóðviljinn - 26.08.1978, Side 13
Laugardagur 26. áglist 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Útsala hefst á mánudag sumarkjólaefni siðdegiskjólaefni blússuefni kápuefni riflað flauel prjónasilki tvibreið fóðursilki kr. 495.- pr. meter kr. 695.- pr. meter kr. 495.- pr. meter kr. 1.495.- pr. meter kr. 995.- pr. meter kr. 995.- pr. meter kr. 495.- pr. meter og belti á tvibreið fóðursilki kr. 495.- pr. meter tiskuskartgripir, hálsklútar og belti á hálfvirði. Fyrsta dag útsölunnar er 20% afsláttur á öllum vörum Miðbæjarmarkaðurinn Aðalstræti 9. m SAMBAND ÍSLENZKRA SVEITARFÉLAGA Slml 10300 - Póslhólt 0190 - 10B R*yk|avlk XI. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verður haldið að Hótel Sögu i Reykjavik dagana 4.-6. september n.k. Innritun þingfulltrúa verður kl. 9-10 mánudagsmorguninn 4. september, en þingfundir hefjast kl. 10. Auk þingstarfa samkvæmt lögum sam- bandsins verða aðalumræðuefni þingsins: verkaskipting rikis og sveitarfélaga og staðgreiðslukerfi opinberra gjalda. Sveitarfélög sem ekki hafa tilkynnt skrif- stofu sambandsins kjör fulltrúa á þingið, geri það hið allra fyrsta. STJÓRNIN. Aðvörun um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila á söluskatti Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik og heimild i lögum nr. 10, 22. mars 1960, verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér i umdæminu, sem enn skulda sölu- skatt fyrir april, mai og júni 1978 og ný- álagðan söluskatt frá fyrri tima stöðv- aður, þar til þau hafa gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum, ásamt áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir sem vilja komast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar við Tryggvagötu. Lögreglustjórinn i Reykjavik, 24. ágúst 1978. Sigurjón Sigurðsson, (sign.). Hverjum er ver- ið að þjóna? Borgarapressan á sér nokkra tyllidaga, sem hún frekar en aðra daga helgar sérstaklega óhróðr- inum um þær þjóðir sem búa við hagkerfi sósialismans. Yfir þenn- an óhróður er reynt að breiða blæju lýðræðisástar og mann- helgi, en allir nema þeir allra auðtrúuðustu vita að hér er aö- eins á feröinni blekkingartilraun afturhaldsins, sem miðar að þvi að reyna að hræða fólk frá þvi að sjá og skilja að til eru betri þjóð- félagsform en auövaldsþjóðfélag- ið. Allir eru þessir tyllidagar afturhaldsins tengdir einhverjum atburðum i rikjum alþýðunnar, sem afturhaldið hefir gert sér vonir um að gætu lamað innviði þeirra, eða jafnvel þróast á þá lund að verða þeim að falli. Einn af þessum uppáhalds dög- um afturhaldsins er 21. ágúst, sem tengdur er atburðum sem gerðust i Tékkóslóvakiu fyrir 10 árum siöan. Arlega siðan hefir borgarapressan úthellt flóði af krókódilstárum þennan dag, vegna þeirrar hörmulegu með- ferðar er hún telur aö lýðræðið hafi oröið að þola. En mér er nú nær aö halda að þessi tár, sem borgarapressan l^hellir yfir atburöunum i Tékkóslóvakiu, séu gremjutár yfir þvi að þar tókst ekki svo til, sem afturhaldið hafði vonast eftir. Það er sjálfsagt engin tilviljun, heldur i beinu sambandi við það, sem nú er að gerast hér hjá okk- ur, að aldrei hefir slikt ofurkapp verið lagt á rógsherferðina sem nú, þvi öll blöðin verja löngu máli til stuðnings þessu „göfuga” máli nú i dag, sunnudaginn 2aág., þar á meðal Þjóðviljinn, sem ver nær þvi öllu lesmáli blaðsins á sömu lund og hin blöðin. Það er einmitt þessi afstaða Þjóöviljans sem knýr mig til að skrifa þessar linur, þvi ég á Björn Bjarnason ómögulegt með að fá þaö inn i minn haus að það geti verið alþýðu þessa lands til hagsbóta að blað, sem telur sig vera málgagn sósialisma og verkalýðshreyfing- ar sé i harðri samkeppni við borg- arablöðin um að ófrægja fram- kvæmd sósialismans i rikjum alþýðunnar. Að minu viti er hér verið að þjóna andstæöingum alþýðunnar og engum öðrum. Björn Bjarnason. Jón Sigurdsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar Ályktanir Þjóðviljans Hr. ritstjóri, Að gefnu tilefni I forsiðu- klausum Þjóðviljans frá um- Jón Sigurðsson ræðum um efnahagsmál i stjórnarmyndunarviöræðum Al- þýðubandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks i gær 22. ágúst, og i dag 23. ágúst, vildi ég koma athugasemd á framfæri i blaöinu. A forsiðu Þjóðviljans i gær segir, að við „endurútreikn- inga, sem fram fóru á vegum Þjóðhagsstofnunar að beiðni Lúðviks Jósepssonar kom i ljós aö útreikningar Alþýðubanda- lagsins stóðust fyllilega”. Þjóö- hagsstofnun hefur alls ekki „endurútreiknaö” útreikninga Alþýöubandalagsins. Allar ályktanir um það, hvernig svör Þjóöhagsstofnunar við fyrir- spurnum viðræðunefndanna um einstök atriöi komi heim viö út- reikninga Alþýðubandalagsins, eru þvi á ábyrgð Þjóðviljans. Sama gildir vitaskuld um það, sem segir á forsiðu Þjóðviljans i dag, að Þjóðhagsstofnun „gefi grænt ljós” og i svörum hennar komi fram ,, að ekkert (sé) þvi til fyrirstöðu að vinna áfram að verkinu eftir þeim brautum sem þegar hafa verið markaðar”. Yfirlýsingar þessar eru Þjóð- viljans og heimildarmanna hans en ekki Þjóðhagsstofn- unar. Virðingarfyllst, Þjóðhagsstofnun Jón Sigurðsson Aðstoð við heyrnardaufa Félagiö Heyrnarhjálp gengst fyrir þjónustuferð um Vestfirði og Vesturland Félagið Heyrnarhjálp gengst fyrir ferö til aðstoðar heyrnar- daufum um Vestfirði og Vestur- land. Læknir og starfsmenn félags- ins verða til viðtals á eftirtöld- um stöðum: Isafirði, Bolungar- vik, Suðureyri, Flateyri, Þing- eyri, Patreksfirði, Hólmavík, Stykkishólmi, Grundarfirði og Ölafsvik. Nánar auglýst á hverjum stað. Þjónusta þessi er hverjum til reiðu, sem telur sig geta haft af henni not, en foreldrar, sem hafa grun um heyrnarskerðingu hjá börnum sinum, eru sérstak- lega hvattir til að láta athuga heyrn þeirra. Ennfremur er fólk, sem áður hefur fengið heyrnartæki, en ekki haft þeirra not sem skyldi, hvatt til að leita sér frekari leið- beininga.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.