Þjóðviljinn - 26.08.1978, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. ágúst 1978
Jón Ingimarsson, formaður Iðju á Akureyri:
OPIÐ VINARBRÉF
til Davíðs Schevings Thorsteinssonar, formanns iðnrekendafélags íslands
Heill og sæll.
Með tilskrifi þessu er ég að leita
upplýsinga eða svars við mörgum
áleitnum spurningum sem koma
fram i hug minn, þegar ég hugsa
um stöðu iðnaðarins og afkomu
iðnverkafólks, þegar fjölda upp-
sagnir úr vinnu er staðreynd og
engin sýnileg ráð framundan.
Iðja, félag verksmiðjufólks á
Akureyri sendi frá sér ályktun 14.
júli s.l. þar sem bent er á tak-
mörkun á innflutningi erlendrar
iðnaðarvöru sem lausn að hluta,
aðlögun og fyrirgreiðsla hins
opinbera til eflingar iðnaðar-
framleiðslunni sem skapaði
aukna og bætta framleiðslu. Ég
hef það á tilfinningunni að félag
islenskra iðnrekenda sé ekki hrif-
iö af svona hugmyndum og vilji
mun fremur felia gengið og fl. eða
eins og þú hefur sagt, búa við
rétta gengisskráningu. l>að er
mikið rétt. En að fella stööugt
gengið er engin lausn á vandan-
um. Eignatilfærslur i landinu
verða gifurlegar frá einum at-
vinnuveginum til annars og er-
lendar skuldir einstakra og rikis-
ins stórhækka, dýrtiðin vex og
verður þungbærari almenningi
með hverjum mánuðinum sem
liður. Skattaálögur hækka þvi
alltaf þarf meira fé til allra hluta i
vaxandi dýrtið.
Mér hefur oft fundist þú i ræð-
um þinum og viðtölum, bæði rétt-
sýnn og framsýnn þegar þú ræðir
um iðnaðinn og vandamál hans,
stundum allhvass i orðum.
Engin takmörkun í neinu
formi
Þegar alþingi samþykkti aðild
sina af EFTA var iðnaðinum lof-
að aðlögunartima og aðstoð til að
geta endurbætt aðstöðu sina og
framleiðsluhætti. Þetta segir þú
að hafi verið svikið af núverandi
rikisstjorn að mestu leyti og mun
það rétt vera og er þvi ekki von á •
góðu.
Davið Scheving Thorsteinsson:
„Hvernig yrði staða land-
búnaðarins ef leyfður yrði ótak-
inarkaður innflutningur á '
amerisku holdanautakjöti, ali-
fuglum...”
Þegar frammámenn iðnaðarins
i Reykjavik, bæði þú og fleiri hafa
komið fram i fjölmiðlum, hefur
skoðun ykkar verið sú að aðhyll-
ast ekki takmörkun á erlendum
innflutningi i neinu formi heldur
styðjast við frjáls viðskipti og
frjálsa verslun, væri þó hugsandi
að koma upp svokölluðu kvóta-
kerfi eins og tiðkast um ýmislegt
annað. Ég hef það fyrir satt að
nokkurhluti iðnrekenda i Reykja-
vik séu jafnframt innflytjendur á
erlendum iðnaðarvörum og t.d.
S.Í.S. hefur tilkynnt að það flytji
inn um 30 þúsund stykki af galla-
buxum og þykir mér það alveg
stórfurðuleg ráðstöfun svo ekki sé
meira sagt.
//islenskur iönaöur sparar
gjaldeyri"
Heildsalakerfið i Reykjavik
virðist kappkosta um að flytja
sem mest inn i landið af iðn-
varningi og er með þvi, tvimæla-
laust að efla erlendan iðnað. A
iðnkynningarári nú fyrir
skemmstu var á hverri mynd,
ræðu og riti dregnar upp fagrar
linur um ágæti iðnaðarins á öllum
sviðum og honum spáð heilla-
drjúgri framtið á komandi árum.
Menn hældust um yfir þvi að
iðnaðurinn sparaði þjóðinni dýr-
mætan erlendan gjaldeyrir og allt
í þvf sambandi. Er það ekki i
sjónmáli okkar beggja nú, hvern-
ig þjóðin fer með þennan gjald-
eyri i allskonar ónauðsynlega
hluti, glingur og skran. Er það
ekki að verða eins og hjáróma
rödd að segja: Eflum islenskan
iðnað, þegar þannig er vegið að
honum úr öllum áttum.
Ég hef þá trú og það hefur lengi
verið min skoðun að takmarka
ætti innflutning á erlendum
iðnaðarvörum og flytja ekki
meira inn til landsins en þjóðin
Jón Ingimarsson: „Ég hef það á
tilf inningunni að Félag Is-
lenskra iðnrekenda sé ekkert
hrifið af svona hugmyndum...”
þarf að nota hverju sinni. Það er
aftur á móti skoðun ykkar að það
geri ekkert til. Svo já. Til að forð-
ast ofveiði eru settar upp tak-
markanir (veiðikvótar) t.d. á
hvalveiðum, sildveiðum og
rækjuveiðum. Allt I kringum
landið eru boð og bönn um veiðar
á tilteknum svæðum og telja það
allir sjálfsagt. Enginn kann
tveimur herrum að þjóna, segir
máltækið og svo er hér.
//Þeir sem þrástagast..."
Nú langar mig að spyrja þig um
nátengt atriði og hér hefur verið
getið um. Hvernig yrði staða
landbúnaðarins ef leyfður yrði
ótakmarkaður innflutningur á
amerisku holdanautakjöti, ali-
fuglakjöti og eggjum og t.d. frá
Danmörku, smjöri, svinakjöti og
kjúklingum? Þeir sem þrástagast
á frjálsri verslun og frjálsum inn-
flutningi i tima og ótima myndu
ekki slá hendinni móti þvi að kom
ast i slik viðskipti, þótt þeir eyði-
legðu stöðu landbúnaðarins um
langa framtið og eyddu þeim
gjaldeyri sem þeir hafa aldrei
aflað. Þvi fer þó betur að islensk-
ur landbúnaður hefur verið var-
inn gegn slikum innflutningi og
svo væri einnig hægt að gera
gagnvart iðnaðarframleiðslunni
ef vilji væri fyrir hendi og þjóðar-
hagur sæti i fyrirrúmi.
Ég viðurkenni að ég er ekki
nægilega fróður um öll þessi mál
og þá leyniþræði sem liggja að
baki ýmsum furðulegum ráð-
stöfunum og gerðum þeirra sem
mestu ráða, en ég veit að þú ert
um þessa hluti fróður og hefur i
gegnum stöðuna og kerfið komist
að ýmsu sem almenningi er ekki
kunnugt um.
Ýmislegt og reyndar margt
fleira hefur þvælst um i huga
minum, leitandi að orsökum,
eðli þeirra og uppruna og af-
leiðinga þeirra.
Ég vænti þess að þú, Davið;
takir með velvilja þessu bréfi og
sendir mér linu ef þú telur ástæðu
til. Ég kveð þig með mestu virkt-
um og þakka fyrir góð kynni.
Akureyri 16.ágúst 1978.
Jón Ingimarsson,
EFST Á BAUGI
bridge
Umsjón:
Ólafur
Lárusson
Húsnædismál
Eins og kunnugt er, hafa hús-
næðismál okkar bridgemanna
veriðmikill og stór höfuðverkur
undanfarin ár, og er mál manna
at brýn nauðsyn sé, að bæta úr
þeim vankanti hið fyrsta.
Sambandið hefur að vísu út-
vegað sér skrifstofurými, sem
er nándar nærri of litið og
þröngt. En það er hitt, að út-
vegun keppnisaðstöðu og
æfingarhúsnæðis er forgangs-
atriði fyrir aukna þróun
bridgemála hér á höfuðborgar-
svæðinu. Það nær engri átt öllu
lengur, að 3 félög i Reykjavik,
BR-TBK-BK, sem eru meðal
stærstu félaga þjóðarinnar,
borgisem svararkr. 300.000.00á
mánuði fyrir húsaleigu i sama
húsnæðihériborg, í eigulækna-
félagsins.
Ég spyr, er þetta hægt i fram-
tiðinni?
Nei, þessu verður að breyta
og þaðsem fyrst. Bridgeáhuga-
fólk þarf eigið húsnæði, þarsem
hægt er að hlúa að og mæta
þegar fólk vill, sér til skemmt-
unar og uppiyftingar. Þarna
verða opinberir aðilar að koma
til móts við fólkið sjálft.
Það verður að skoðast, að
hópur bridgeáhugafólks á
höf uðborgarsvæðinu skiptir
hundruðum, ef ekki þúsundum,
og þaðer hlálegt aðá 35áraferli
keppnisbridge á Islandi, skuli
ekki vera til önnur aðstaða til
stjórnunar en litil herbergis-
hola neðarlega á Laugaveg-
inum.
Þessu verður að breyta og
skal verða breytt, en til þess
verður að sameina kraftana i
eina átt, að eignast eigið at-
hvarf.
Um
keppnisstjórn
Nú þegar félögin eru mörg
hver farin að hugsa sér til
hreyfingar, i reglulegu vetrar-
starfi, er ekki fráleitt að leiða
hugann að ölluþvi er viðkemur
keppnisstjórn og keppnis-
stjðrum almennt.
Svo er háttað hér i okkar
þrönga hóp bridgefólks að litið
framboð er af mönnum til
stjórnunar í bridge. Þó eru til
menn innan um hópinn, sem
hafa gert þetta og þó nokkrir
sem eru eingöngu i stjórnun, en
þeim fer fækkandi og að sjálf-
sögðu eldast þeir og lúna.
Helstu stjórnendur hér fyrir
sunnan Esju eru Guðmundur
Kr. Sigurðsson, Agnar Jörg-
enson, Vilhjálmur Sigurðsson,
Sigurjón Tryggvason, auk
fáeinna sem hafa litillega
stundað þetta. 1 vetur munu
fleiri riða á vaðið, til að mynda
undirritaður, Skafti Jónsson, og
i sumar hefur Sverrir Armanns-
sonséðum sumarspilamennsku
Asanna.
Fjölbreytni i keppnisvali
félaga er um margt ábótavant
og þarf þar miklu að breyta.
Stórgalli hefur verið, hve mikið
er gert af þvi að hafa sömu
keppnirnar i gangi, hjá sitt
hvorufélaginu á sama tima. Td.
eru kannski 3-5 félög með
sveitakeppni i gangi á sama
tima o.s.frv.
Og einnig er athyglisvert, hve
fábreytni er mikil I vali á
keppnum hjá hinum einstöku
félögum.
Það er hraðsveitakeppni hér,
tvimenningur þar og barometer
alisstaðar. Og svo er skotið inn
einmenning eða Butler-keppni
eða Patton-keppni. Og þá er
upptalið I fjölbreytileik móta
hjá félögum á tslandi.
Það vantar mikið i okkar
bridge idag, og þá sérstaklega i
mótabridge, frekar en i félags-
bridge.
Yfirstjórn i mótabridge hafa
verið settar frekar þröngar
skorður undanfarin ár og er þar
engu einu um að kenna. Margt
kemur til, t.d áhugaleysi, tima-
leysi og húsnæðisleysi, auk
lélegrar stjórnunp.r. Það vantar
t.d. skipulagöar félagakeppnir,
deildamót eða á einhvern hátt
að auka réttindi félaganna I
islenskum bridge. Það á að
hætta að líta á félögin sem ein-
göngu æfingastaö fyrir tvö eða
þrjú mót á ári sem gefa eitt-
hvert gildi (landsmót eða
R.vikurmót eða bikarmót). Það
á að skipuleggja aögengileg
mót, sem spiluð eru á spila-
kvöldum félaganna en ekki um
helgar eða hátiðir eingöngu, þar
sem húsmæður (stór hluti af
bridgefólki) eru önnum kafnar I
fjölskyldumálum.
Til þess að þetta megi takast,
þarfað vera til staðar samstarf
milli stjórnar BSI og félaganna
sem geta þá sniðið sinn stakk
eftir þörfum BSt.
Ég hef frétt, aðstjórn BSthafi
einmitt i bigerð slika skrá eða
yfirlit, þar sem svæða-
samböndin geta kynnt sér
nákvæma tlmasetningu allra
móta, sem verða haldin á
vegum BSl næsta keppnistima-
bil.
Er það gott.
Frá Ásunum
tJrslit i sumarspilamennsku
Asanna sl. mánudag. Keppt var
i 1x16 para riðli, en auk þess
spiluðu nokkur pör sveitakeppni
(þám. ul-landsliðið)
Efstu pör:
1. Oddur Hjaltason —
Þorlákur Jónsson 265 st.
2. Helgi Ólafsson —
JónasP.Erlingsson 252 st.
3. Guðmundur Pétursson —
EstherJakobsdóttir 230 st.
4. Guðrún Bergs —
Sigrún ólafsdóttir 228 st.
5. Gisli Steingrimsson —
Sigfús A rnason 221 st.
6/7. Sigurður Sigurjónsson —
TraustiFinnbogason 209 st.
6.-7. Georg Sverrisson —
ValgarðBlöndal 209 st.
meðalskor er 210 stig.
1 stigakeppni Asanna hefur
þvi Þorlákur Jónsson tekið
forystuna. Röð efstu manna er
þessi:
1. Þorlákur Jónsson 10,5 st.
2. Sævar Þorbjörnss. 8 st.
3-5. Esther Jakobsd. 6st.
3-5. Guðmundur Péturss. 6 st.
3-5. Oddur Hjaltason 6st.
6-8. GuðmundurP.ArnarsonSst.
6-8. Óli Már Guðmundss. 5st.
6-8. Þórarinn Sigþórsson 5 st.
Keppni verður framhaldið
næsta mánudag. t fjarveru
Sverrir Armannssonar, mun
Ólafur Lárusson annast
keppnisstjórn.
Frá bridgefélagi
Sudurnesja
Logi Þormóðsson hafði sam-
bandvið þáttinn og vildi koma á
framfæri leiðréttingu, i sam-
bandi við bikarleik milli sveita
Jóhannesar Sigurðssonar
Keflavik og Pálma Lórens Vest-
mannaeyjum. Hið rétta er, að
sveit Jóhannesar sigraði með
74-72.
Þetta leiðréttist hérmeð.
Einnig sagði Logi fréttir af
starfsemi félagsins, sem fer að
hefjast I september. Félagið á
30áraafmælium þessar mundir
og mun i bigerð að halda veglegt
boðsmót i þvi tilefni.
Keppnispörum af höfuð-
borgarsvæðinu verður boðið til
mótsinsog er það von félagsins
að vel verði tekið þeirri hug-
mynd hér á höfuðborgar-
svæðinu, sem er ekkert nema
sjálfsagður hlutur. Til stjórn-
unar mótsins verður fenginn
vanur mannskapur, og keppt
verður um vegleg eignar-
verðlaun.
Nánar verður fjallað um
mótið síðar.